Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti húsgögn Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 80%afslætti valdar vörur á allt að Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is VANSKIL á fasteignasköttum eru að margfald- ast hjá reykvískum skattgreiðendum, svo mikið að grípa á til aðgerða með lagasetningu. Þetta kemur fram í umsögn Kristbjargar Stephensen borgar- lögmanns til borgarráðs, sem lögð var fram á fundi ráðsins í gær. Fjöldi uppboða hefur margfaldast Nú þegar hefur verið beðið um uppboð á fast- eignum 400 greiðenda, af 1.500, sem eru í van- skilum við Reykjavíkurborg með fasteignaskatt ársins 2007. Ekki nóg með það, heldur segir í um- sögninni að vanskil um 2.000 skattgreiðenda, vegna fasteignaskatts fyrir 2008, verði send í inn- heimtu hjá lögfræðingum í þessum mánuði. Ef svipað hlutfall fasteigna endar á uppboði núna og fyrir 2007 má búast við því að rúmlega 530 fasteignir til viðbótar verði seldar ofan af fólki og fyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum út af þessu. Til samanburðar var aðeins óskað eftir uppboði á fasteignum 100 greiðenda vegna ársins 2006. „Það sem við sjáum hér er vaxandi fjöldi mála sem fer í löginnheimtu og það er mjög líklegt að það verði vaxandi fjöldi mála sem fer í uppboð. Það er ástæðan fyrir því að þessi tillaga er lögð fram,“ segir Birgir Björn Sigurjónsson, fjármála- stjóri Reykjavíkurborgar. Svigrúm aukið um tvö ár Nú er í meðferð samgöngunefndar Alþingis frumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Tillaga borgarlögmanns felur í sér að fasteignaskattar fyrir árin 2007 og 2008 verði teknir með í því frumvarpi, og sveitarfélögum þannig gert auðveldara að veita fólki svigrúm með erfiðar greiðslur. Breytingin fælist að sögn Birgis Björns í því að borgin fengi tryggingu með lögveðsrétti í viðkom- andi eign til fjögurra ára. Sá réttur er nú til tveggja ára. Með því að rýmka hann um tvö ár gæfist sveitarfélögum meira svigrúm til að milda innheimtuaðgerðir gegn fólki. Einhugur var um að samþykkja umsögn borg- arlögmanns og senda til samgöngunefndar, að sögn Óskars Bergssonar, formanns borgarráðs. Hundruð eigna enda á uppboðum  Vanskil 2.000 greiðenda fasteignaskatts í Reykjavíkurborg send til innheimtu í þessum mánuði  Talsverð aukning frá innheimtuaðgerðum fyrir árið 2007, þegar 400 sinnum var beðið um uppboð Morgunblaðið/Ásdís Fasteignir Margir eiga í greiðsluerfiðleikum. UM 400 manns hlýddu á Ólaf Stefánsson íþróttamann á fundi sem Skóla- skrifstofa Mos- fellsbæjar stóð fyrir í Hlégarði í gærkvöldi. Kennarar og annað starfsfólk leik- og grunnskóla víða af landinu mætti til að ræða við Ólaf um kennslu- og uppeldismál, en hann hyggur á frekara starf í þeim efn- um, m.a. á vefnum kennsla.is Fjölmenni á fundi Ólafs Ólafur Stefánsson MARGT bendir til þess að inflú- ensa sé að stinga sér niður á land- inu. Eitt tilfelli inflúensu af A- stofni var stað- fest í desember og annað eftir áramótin. Að sögn Haraldar Briem sótt- varnalæknis hefur komum á Lækna- vaktina fjölgað að undanförnu. Þá hefur inflúensutilfellum fjölgað í ná- grannalöndunum. Hins vegar hefur komum á bráðamóttökur LSH ekki fjölgað undanfarið, að sögn Har- aldar, sem bendir til þess að inflú- ensan sé ekki farin að hafa mikil áhrif ennþá. Búast megi við því að hún leggist með auknum þunga á landsmenn á næstunni. sisi@mbl.is Inflúensa sting- ur sér niður NÝJASTA viðbótin við fjölnotendatölvuleikinn EVE Online, sem framleiddur er og rekinn af íslenska tölvu- leikjaframleiðandanum CCP, fer í loftið þann 10. mars næstkomandi. Viðbótin mun bera nafnið Apocrypha, en viðbætur EVE bera gjarnan nöfn, sem eiga rætur í Biblíunni. Fjöldi breytinga verður gerður á leiknum með út- gáfu Apocrypha, en mest er spennan meðal spilaranna sjálfra fyrir nýrri tegund geimskipa. Ólíkt þeim geim- skipum, sem nú þegar eru í leiknum, býður þessi nýja tegund upp á að spilarar hanni og setji saman sín eigin geimskip í takt við þarfir sínar og langanir. Samhliða útgáfu Apocrypha mun EVE leikurinn loks fást á ný í verslunum, en ef horft er framhjá stuttu tíma- bili árið 2003 hefur EVE ekki fengist keyptur í verslunum. Þess í stað hafa spilarar hlað- ið leiknum niður af vefsíðu CCP og verður áfram boðið upp á þá þjónustu. Forsvars- menn CCP vonast hins vegar til þess að þessi nýja dreifingarleið opni leikinn fyrir fleiri tölvuleikja- áhugamönnum. Alls spila um 300.000 manns leikinn, en skammt er síðan nýtt met var slegið þegar ríflega 45.000 manns spiluðu EVE á sama tíma. bjarni@mbl.is Enginn samdráttur í sýnd- arheiminum EVE Online FUNDUR Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigð- isráðherra með starfsfólki St. Jósefsspítala stóð fram undir miðnætti í gærkvöldi, en hann hófst klukkan 21. Árni Sverrisson, forstjóri spítalans, segir fundinn hafa farið vel fram en ráðherra hafi þó fengið að heyra mjög skýrt álit fólks, það hafi tjáð sig mjög sterkt og undir- strikað hversu mikið því er niðri fyrir vegna þeirrar ákvörðunar að gerbreyta starfseminni. Vel var mætt á fundinn, sem var lokaður öðrum en starfsfólki og ráðherra. Um hundrað manns söfnuðust saman fyrir utan Sólvang til að sýna samstöðu í verki. Sagðist fólk ósátt þar sem heilbrigðisþjónusta yrði nú fjarlægari, fólk missti vinnuna og auk þess væri stór hluti tækjabúnaðar í spítalanum þangað gefinn af hafn- firskum félagasamtökum, enda væri spítalinn rótgróin hafnfirsk stofnun. onundur@mbl.is Hafnfirðingar fjölmenntu við Sólvang í gærkvöldi Morgunblaðið/Kristinn Ráðherra til fundar við starfsfólkið HJÓLHÝSI og tjaldvagnar hafa nú bæst við þau ökutæki sem skyld eru til skoð- unar, samkvæmt nýrri reglugerð sem tekur gildi í dag. Þar má finna umtalsverðar breytingar frá eldri reglum, m.a. þegar kemur að tíðni skoðana. Samkvæmt nýju reglunum breyt- ist hún þannig að ökutæki verður nú skoðað fyrst á 4. ári frá skráningu og síðan á tveggja ára fresti eftir það þar til ökutækið hefur náð 8 ára aldri, en eftir það verður skoðun framkvæmd árlega. Undantekning frá þessu eru atvinnuökutæki, s.s. vörubifreiðar og hópbifreiðar, sem áfram þarf að skoða á hverju ári eins og verið hefur. Skerpt á reglum Með breytingunum verður skerpt á reglum um vegaskoðun stærri öku- tækja, sem felst í skipulegu eftirliti skoðunarmanns á vegum úti. Þannig er stefnt að því að mögulegt verði að koma auga á ökutæki sem ekki eru örugg, jafnvel þótt þau hafi verið skoðuð eins og ráð er fyrir gert. Þá verður héðan af lagt á van- rækslugjald, 15.000 kr, sé ökutæki fært 2 mánuðum of seint til aðalskoð- unar eða 1 mánuði of seint til endur- skoðunar. Unnt verður að greiða van- rækslugjaldið á skoðunarstofu með greiðslukorti. una@mbl.is Bílar fyrst skoðaðir á fjórða ári Stór Vörubílar verða áfram skoð- aðir árlega. 100 Uppboð vegna vangoldinna fasteignaskatta ársins 2006 400 Uppboð vegna vangoldinna fasteignaskatta ársins 2007 530? Uppboð vegna vanskila 2008, en hver verður fjöldinn eftir þetta ár?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.