Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 ✝ Matthildur Þórð-ardóttir fæddist á Hörðuvöllum í Hafn- arfirði 13. apríl 1914. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 6. janúar síð- astliðinn. Foreldrar Matthildar voru Sól- veig Bjarnadóttir frá Sólmundarhöfða á Akranesi og Þórður Einarsson frá Ný- lendu í Garði. Systk- inin voru tólf og kom- ust tíu til fullorðinsára. Látin eru: Jón Rós- ant, Ólafur Ingi, Kristín, Sigríður Sesselja og Hulda Dagmar. Á lífi eru Ásta Guðrún og Unnur Guð- ríður, báðar búsettar í Bandaríkj- unum, Róbert á Selfossi og Guð- mundur Marínó í Hveragerði. Matthildur var þrígift. M1: Gest- ur Benediktsson, þau skildu eftir stutta sambúð. M2: Bjarni Pálsson frá Hrísey. M3: Þórarinn Kristjánsson símrit- ari. Matthildur var barnlaus, en dótt- ursonur Bjarna, Ragnar Þórarinsson, ólst upp hjá henni að miklu leyti. Hann býr með fjölskyldu sinni í Noregi. Matthildur gekk í Flensborgarskóla í Hafnarfirði og Versl- unarskóla Íslands í Reykjavík. Hún vann skrif- stofustörf hjá Garðari Gíslasyni í New York, og hjá Reykjavík- urborg. Lengst af var hún skrif- stofustjóri hjá Styrktarfélagi lam- aðra og fatlaðra, eða til ársins 1981. Útför Matthildar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Í dag kveðjum við föðursystur mína Matthildi Þórðardóttur, Möttu frænku, eins og við kölluðum hana. Matta frænka var mikil heimskona. Hún var vel menntuð og á margan hátt frábrugðin öðrum konum sam- tímans. Hún fór ung til Ameríku, þar sem hún starfaði um tíma, og sagði hún okkur stundum frá þeim heimshluta, sem var okkur fram- andi og forvitnilegur. Hún hafði yndi af því að ferðast og fór einnig mikið í leikhús. Það var gott að koma í heimsókn til Möttu, sem var frábær kokkur. Hún hafði gaman af að taka á móti fólki og gleðjast í góðra vina hópi. Hún þekkti marga, var ótrúlega fróð um ættfræði og gat ekki ein- ungis rakið ættir fólks, heldur einn- ig hvar það bjó, starfaði og hverjum það giftist, svo það var hægt að gleyma sér við að hlusta á hana þegar hún komst á skrið. Eftir að ég varð húsmóðir í sveit kom Matta stundum í heimsókn og dvaldi þá gjarnan í nokkra daga. Það fylgdi heimsóknum hennar allt- af einhver sérstakur blær, kannski svolítið útlenskur, og mátti margt af henni læra. Af henni lærði ég til dæmis að búa til matarmiklar sam- lokur sem voru kannski með fersku salati, kjúklingum og grænmeti, á meðan flestir notuðu rækjusalat eða annað í þeim dúr. Já, hún Matta var mikil heimskona. Á með- an almúgakonur klæddust Hag- kaupssloppum og kíktu kannski í Alt for damerne á læknastofum var hún flott klædd útivinnandi glæsi- kona í stjórnunarstöðu, með enska reyfara á náttborðinu og keyrði um á Volvo. Ég og fjölskylda mín kveðjum Möttu frænku með þakklæti fyrir samfylgdina og góðar samveru- stundir. Við munum minnast henn- ar með virðingu og hlýju. Guð blessi minningu mætrar konu. Jóhanna. Minningarnar leita á hugann og þakklæti fyrir það þegar leiðir okk- ar lágu saman og við kynntumst smám saman betur. Hún var hressa mágkonan hans pabba, útivinnandi alla tíð og unnu þau saman í Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra í mörg ár og voru þau góðir félagar. Svo urðum við nágrannar þegar hún fluttist á Kambsveginn á ská á móti mér. Hún kom stundum yfir og það lyftist alltaf á manni brúnin þegar hún birtist, hress og kát, hafði kímnigáfuna í lagi og sagði oft: Enginn veit sinn næturstað. Hún fæddist á Hörðuvöllum í Hafnarfirði og pabbi hennar var ljósavörður slökkti og kveikti á rafmagninu í bænum, sagði hún mér einhvern tíma frá. Hún átti góða æsku með mörgum systkinum. Pabbi hennar vann hjá breskri togaraútgerð og þau bjuggu í góðu húsi og minntist hún æskustöðvanna með hlýju og þakklæti.. Hún fór í verslunarskóla og Flensborg og gekk vel að læra. Hún sagði frá því þegar fjölskyldan fór eitt sinn til Reykjavíkur og hitti óvænt afa hennar á Austurvelli og þá urðu fagnaðarfundir eins og hún sagði. Hún sagði mér frá því þegar hún fór að vinna í New York og kom heim til að fá alla pappírana en allt breytist og hún varð ástfangin og sagði þá: Já enginn ræður sínum næturstað. Ég minnist örlætis hennar þegar hún lánaði mér fína kjóla til að leika í í skólaleikritum og höfðum báðar gaman af. Hún átti engin börn sjálf en var mjög barn- góð, svo krakkar löðuðust að henni. Hún passaði lítinn frænda minn sem átti heima ofar í götunni þegar mamma hans var að vinna. Alltaf tilbúin að hjálpa og á svo hressi- legan hátt. Hún kunni að gera sér dagamun og þegar hún varð níræð var haldin góð veisla á Furugerði þar sem hún hafði flutt inn nokkru áður. Hún saknaði þess mikið þegar hún hætti að geta keyrt bílinn sinn og var alltaf svo þakklát fyrir smá- bíltúra um Reykjavík eða upp í Heiðmörk. Hún sótti styrk sinn í bænina, þakklát fyrir að hafa verið kennt það í barnæsku. Hún var sátt og þakklát þeim sem sinntu henni en var ekkert allra og tókst á við líf- ið, sorgir og gleði, af jafnvægi og ró. Með þessum fátæklegu orðum þakka ég Matthildi samfylgdina, og votta Ragnari, skyldfólki hennar og vinum, mína dýpstu samúð fyrir hönd fjölskyldu minnar og kveð Matthildi með jólasálminum með ósk um fagnaðarfundi á nýrri strönd, Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilífa lagið við pílagrímsins gleðisöng. (M.Joch.) Margrét Svavarsdóttir. Matthildur Þórðardóttir ✝ Frank ArthurCassata fæddist í New York 3. nóv- ember 1911. Hann lést á Landakotsspít- ala 2. janúar síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Samuel Cassata útvarps- virki, f. á Sikiley 1891, d. í Bandaríkj- unum 1968, og Sa- rah Cassata hús- móðir, f. á Sikiley 1892, d. í Bandaríkj- unum 1942. Frank var elstur sjö systkina og á eina eftirlifandi systur, systkini hans voru öll búsett í Bandaríkjunum. Fyrri kona Franks var Laufey Sigurrós Ásgeirsdóttir, f. 1918, d. 2004. Þau skildu eftir stutt hjóna- band, og áttu engin börn. Seinni kona Franks var Áslaug Kjartansdóttir Cassata, f. í Reykjavík 23. október 1926, d. 23. júní 2007. Foreldrar hennar voru Kjartan Ólafsson augnlæknir, f. á Völlum í Svarfaðardal í Eyjafirði 12. júní 1895, d. 25. júní 1956, og Kristíana Blöndahl Ólafsson kaup- kona, f. í Hafnarfirði 28. nóv- ember 1896, d. 7. mars 1972. Ás- laug og Frank gengu í hjónaband í New York árið 1951. Synir þeirra eru: 1) Sigfús Blöndahl Richard Cassata, f. í New York frá Sikiley. Á sínum yngri árum hafði hann mikinn áhuga á flugi, smíðaði sína eigin svifflugvél og kenndi unglingum svifflug. Hann vann við sölustörf og sinnti við- gerðarþjónustu með föður sínum. Frank kom fyrst til Íslands árið 1941 sem verktaki á vegum Bandaríkjahers og starfaði við skipulagningu á birgðaflutn- ingum um landið. Hann fór aftur til New York árið 1944, og vann þá meðal annars við byggingu Thule-herstöðvarinnar á Græn- landi. Hann var í miklum tengslum við Íslendinga- samfélagið í New York, þar kynntist hann Áslaugu konu sinni. Þau fluttu til Íslands árið 1952. Hann hélt áfram störfum fyrir herinn allt til ársins 1958. Árið 1961 stofnaði hann fyr- irtækið Kísil hf., sem í byrjun stundaði innflutning á efnavöru. Starfaði hann þar samhliða konu sinni, Áslaugu, sem rak gler- augnaverslunina Fókus. Frank starfaði við fjölskyldufyrirtækið allt til dauðadags og sinnti helst innflutningi á matvöru og víni frá Ítalíu síðustu árin. Frank var kaþólikki og lagði mikla rækt við trúna hin síðari ár og sótti mess- ur í Landakotskirkju. Frank var við góða heilsu alla sína ævi, og lést eftir stutta sjúkrahúslegu. Frank verður sungin sálu- messa í Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst hún klukkan 15. Jarðsett verður í Hólavalla- kirkjugarði. 25. janúar 1952, kvæntur Guðlaugu Þórólfsdóttur, f. 21. desember 1950. Son- ur þeirra er Frank Arthur Blöndahl Cassata, f. 30. júlí 1983. Dóttir Guð- laugar frá fyrra hjónabandi er Chien Tai Shill, f. í Sviss 6. desember 1969, gift Ágústi Valfells, f. 8. janúar 1970. Synir þeirra eru Ásgeir, f. 1. nóvember 1993, Ólafur, f. 3. október 1996, og Ágúst, f. í 13. maí 2004. 2) Sig- hvatur Blöndahl Frank Cassata, f. 19. júlí 1954, sambýliskona Sig- rún Einarsdóttir, f. 29. júlí 1956. Fyrrverandi eiginkona Sighvats er Anna Björg Davíðsdóttir, f. 1. apríl 1956. Börn þeirra eru: a) Áslaug Heiður Cassata, f. 18. júlí 1974. Börn hennar eru Daníel Atli, f. 24. júlí 1994, og Hera Björg, f. 12. desember 1999. b) Erlendur Blöndahl Cassata, f. 29. maí 1978, kvæntur Lilju Ósk Snorradóttur, f. 2. júní 1977. Dóttir þeirra er Natalía Erla, f. 13. mars 2003. c) Kristíana Sarah Cassata, f. 11. janúar 1991. Frank var fæddur og uppalinn í Brooklyn í New York, en for- eldrar hans voru innflytjendur Það eru blendnar tilfinningar sem fara í gegnum huga mér við fráfall tengdaföður míns Franks Cassata. Þó að aldurinn hafi verið hár og getan dvínandi kom andlát hans eins og þruma úr heiðskíru lofti. Eftir öll okkar samskipti síð- ustu ár, upp á hvern einasta dag, er söknuðurinn mikill. Það mætti segja að hann hafi ekki átt neinn sinn líka, dugnaður- inn var einstakur og orkan ótæm- andi. Það kom svo greinilega í ljós þegar Áslaug eiginkona hans greindist með Alzheimer, hann sinnti henni af einstökum dugnaði svo eftir var tekið. Fráfall hennar var honum erfitt og eftir lát henn- ar dvínaði krafturinn. Minningarnar eru margar þegar Frank á í hlut. Upp úr stendur ást hans á ítölskum mat og er hann allra besti kokkur sem ég á ævi minni hef kynnst. Má þá sérstak- lega nefna hans einstöku pizzur, rauðu sósuna og linsurnar. Allt eru þetta hernaðarleyndarmál sem við fjölskyldan eigum núna. Frank veiktist að morgni og dó að kveldi, hann var ekki að tvínóna við hlutina frekar en fyrri daginn. Hans síðustu orð til okkar voru hvað við værum að hanga þarna, hver væri „at the office“, business- maður fram í fingurgóma. Það fer um mig góð tilfinning að hugsa til þess að nú hafa þau sam- einast, Áslaug og Frank, og minn- ist ég þeirra góðu hjóna með sökn- uði, þakklæti og hlýju. Guð blessi minningu þeirra. Guðlaug. Yfir hálf öld er nú síðan frænka mín Áslaug Kjartansdóttir Ólafs- sonar, augnlæknis, föðurbróður míns, kom til landsins frá Ameríku með eiginmanni sínum Frank Arthur Cassata og með ungan son þeirra Sigfús. Óhætt er að segja að Frank var ekki tekið opnum örmum af sumu tengdafólki sínu. En Áslaug stóð fast með sínum manni alveg fram í andlátið fyrir nokkrum árum. Frank og Áslaug voru mjög samrýnd hjón og unnu lengst af saman í fyrirtækjum sín- um og tóku saman þátt í félagslíf- inu og ferðuðust mikið saman, bæði í viðskiptaerindum og sér til skemmtunar. Frank lifði löngu lífi, í 97 ár, og mestan tímann á Íslandi. Fyrst var hann hér á stríðsárun- um og kvæntist þá íslenskri konu. Þau skildu og Frank flutt- ist aftur til Bandaríkjanna. Þar kynntust þau Áslaug á skemmtun í Íslendingafélaginu. Ég var enn unglingur er ég kynntist Frank og áttum við mik- il samskipti innan fjölskyldunnar næstu 50 árin. Frank var afburða heilsuhraustur fram á síðasta dag og lifandi í andanum. Alltaf sí- starfandi að viðskiptum og fram- leiðslu, ræktandi garðinn sinn og að viðhaldi á húsi fjölskyldunnar og sumarbústað. Hann var sér- staklega lífsglaður maður og upplífgandi að hitta. Fyrir nokkrum árum veiktist Áslaug af alzheimer og gerði Frank það þá að sínum æðsta vilja að gera allt sem hann gat til að gera henni tilveruna bæri- legri. Löngu lífi samlyndra hjóna er lokið og votta ég sonum hans og ættingjum öllum innilegustu samúð mína. Jóhann J. Ólafsson. Frank Arthur Cassata ✝ Móðir okkar, amma og langamma, GEIRÞRÚÐUR JÚLÍUSDÓTTIR, áður Gertrud Block, lést á Sólvangi Hafnarfirði sunnudaginn 28. desember. Að ósk hinnar látnu fór útförin fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs fyrir 12 ára umönnun og vináttu. Auður Fríða Gunnarsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Arnar Róbertsson, Helga Kristín Sigurðardóttir, Gunnar Gabríel Arnarsson, Davíð Karl Sigurðsson, Auður Helen Arnarsdóttir, Melkorka María Sigurðardóttir. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR JÓHANNA JÓHANNESDÓTTIR frá Þorleifsstöðum Blönduhlíð, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 6. janúar. Jóhannes Þ. Ellertsson, Margrét Guðmundsdóttir, Margrét Ellertsdóttir, Danelíus Sigurðsson, Málfríður Ellertsdóttir, Sveinn H. Guðmundsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES PÉTUR SIGMARSSON, Borgarvegi 20a, Njarðvík, áður Hilmisgötu 1, Vestmannaeyjum, er látinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Helga Jóhannesdóttir, Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, Sigmar Jóhannesson og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, TRYGGVI EGGERTSSON, Gröf á Vatnsnesi, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Hvammstanga fimmtudaginn 8. janúar. Kristín Jóhannesdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.