Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009       !     "#$   %    &'( "     )*  +,     Þetta helst ...                !  !"#" $   - . ! //  0 1. 2-  0 1.   .   3!  4 &54 . 6  . %&&$!'!() *# #  - #   -7  78& (/! / &9  ! / ( /1 : ; < 1= ! /. >. 5. 7? !  +! ),#&- @    @ !0 .  15 . .*/0 # "1!*                                        /1   ' A /  < 1 , BCD,,,, 3 +,B)CEFD *CCG,B,B BCD+)EB* 3 G),CC 3 DDG*FG +DFFBBG 3 3 3 )))),,,, 3 3 +H,, )HCE )FHB* GEH), )H+F CDH+, )DEH,, DB,H,, 3 ))GH*, )H*F 3 3 3 )+),H,, 3 3 +H)* BH,, )FHFG GCH), )H++ CGH,, )G)H,, DC,H,, 3 ))CH*, )H*G 3 B,HC, 3 )+F,H,, ),H,, *H,, &5   /1 3 * 3 G *B * 3 ) 3 F )) 3 3 3 C 3 3 "    /  G)B,,C E)B,,C G)B,,C E)B,,C E)B,,C E)B,,C B)B,,C E)B,,C F,)BB,,E E)B,,C E)B,,C 3 B,))B,,E F),B,,E E)B,,C BE))B,,E +))B,,E ' ' ' ● LÆKKUN hinnar nýju Úrvalsvísitölu Kauphallarinnar hélt áfram í gær, en vísitalan lækkaði um 2,58% og endaði í 936,25 stigum. Bréf Össurar hækkuðu um 0,52%, en mikið munaði um 12,27% lækkun á gengi bréfa Straums- Burðaráss og 7,91% lækkun á bréfum Bakkavarar. Velta á skuldabréfamark- aði nam 9,7 milljörðum króna í gær, en 140 milljónum á hlutabréfamarkaði. bjarni@mbl.is Enn lækkar vísitalan ● BRESKA fjár- málaeftirlitið hefur hleypt af stokk- unum vinnuferli sem gæti orðið til þess að reglur um tryggðar sparifjár- innistæður myndu taka miklum breytingum. End- urskoðunin var ákveðin í kjölfar þess að núverandi kerfi varð fyrir harðri gagnrýni þegar Icesave-reikningar Landsbankans og Kaupþing-Edge fóru í þrot. Tilgangurinn er sagður sá að læra af þeim atburðum sem áttu sér stað í haust og nota þann lærdóm til að búa til betra kerfi, en það sem nú er til staðar. thordur@mbl.is Breytt vegna Icesave ● INNHEIMTAR tekjur ríkissjóðs námu 393 milljörðum króna fyrstu ellefu mánuði ársins sem er aukning um rúma 3 milljarða frá sama tíma fyrra árs. Tekjuáætlun ársins gerði ráð fyrir að innheimtar tekjur yrðu 398 ma.kr. og eru þær því um 5 milljörðum undir áætlun. Greidd gjöld námu á tímabilinu 392,5 milljörðum og hækka um 64,5 milljarða frá fyrra ári eða tæp 20%. Mest aukning er vegna almannatrygg- inga- og velferðarmála, 20,1 milljarða króna. Aukning útgjalda til efnahags- og atvinnumála nam 13,2 milljörðum milli ára. bjarni@mbl.is Útgjöld ríkissjóðs jukust mikið í fyrra Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is ÚTLIT er fyrir að ríkissjóður tapi tugum ef ekki yfir hundrað millj- örðum króna vegna veðlána sem Seðlabanki Íslands veitti fjármála- fyrirtækjum á síðasta ári. Lánin voru meðal annars veitt gegn veðum í skuldabréfum gömlu viðskipta- bankanna, sem alger óvissa er um hvort eitthvað fæst fyrir í dag. Um áramótin fékk ríkisstjórnin heimild til að taka þessi lán yfir af Seðlabankanum til að bjarga bank- anum úr erfiðri stöðu sem hefði sett rekstur hans á hliðina. Um er að ræða 285 milljarða króna sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðs- ins. Erfitt er að fullyrða hversu mikið af þessum 285 milljörðum króna næst til baka. Stærsta einstaka kraf- an vegna þessara veðlána er á Spari- sjóðabankann eða um 150 milljarðar króna. Miðað við stöðu Sparisjóða- bankans, og í ljósi þess að veð bank- ans eru í verðlausum bankabréfum, er ljóst að stór hluti upphæðarinnar er tapaður fyrir fullt og allt. Ríkið á kröfu á Straum fjárfest- ingarbanka, um 40 milljarða króna, sem bankinn hefur lagt fram full- nægjandi veð fyrir. Önnur fjármála- fyrirtæki, Saga Capital, Askar Capi- tal, SPRON og VBS fjárfestingar- banki, skulda ríkinu samtals um 45 milljarða króna vegna veðlána. Samkvæmt fjáraukalögum, sem samþykkt voru rétt fyrir jól, ber fjármálaráðuneytinu að annast upp- gjör þessara krafna „eins og hag- kvæmast þykir“. Eins og sjá má á skýringarmynd- inni jukust þessi veðlán við Seðla- bankann stórkostlega í fyrra. Bankastjórar Seðlabankans halda því fram að bankinn hafi verið að veita lausafjárfyrirgreiðslu eins og allir aðrir vestrænir seðlabankar. Reglur voru rýmkaðar til að auð- velda fjármálafyrirtækjum þessi viðskipti. Þeim var svo breytt aftur í haust þegar í ljóst kom að fram- kvæmd þeirra var ábótavant. Milljarðatap á veðlánum Í HNOTSKURN »Stóru viðskiptabankarnirnotuðu smærri fjármála- fyrirtæki til að sækja peninga í Seðlabankann gegn veðum í þeirra eigin skuldabréfum. »Þegar bankarnir félluhafði Seðlabankinn lánað 500 milljarða króna í gegnum veðlánaviðskipti. »Eftir að bankarnir féllusitur ríkissjóður uppi með áhættuna af útlánunum. $ &    $ $ I    " $ &    $ $ I   *,, +,, F,, B,, ),, ,    Í FEBRÚAR og mars næstkomandi þarf að greiða háar fjárhæðir í vexti af ríkisbréfum sem eru að mestu í eigu erlendra aðila, að því er fram kemur í fréttabréfi Landsbankans, Daily Economic Briefing. Samkvæmt reglum Seðlabankans um gjaldeyrisviðskipti geta erlendir eigendur ríkisbréfa ekki fengið þau greidd út í gjaldeyri. Hins vegar er leyfilegt að greiða vexti af slíkum bréfum í gjaldeyri á gjalddaga. Fyrr í þessari viku voru greiddir 3 milljarðar króna í vexti af 45 millj- arða króna ríkisbréfum, sem voru komin á gjalddaga. Þá kemur fram í fréttabréfi Landsbankans að hinn 28. þessa mánaðar muni þurfa að greiða 5,6 milljarða í vexti af 40 milljarða ríkisbréfum, að mestu til erlendra aðila, og svo háar fjárhæðir í febrúar og mars. gretar@mbl.is Vaxta- greiðslur af ríkisbréfum Háar greiðslur í febrúar og mars MEGINÁSTÆÐA hárra stýrivaxta hér á landi er veik staða krónunnar og brýn þörf á að forða henni frá frekara hruni. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis. Hvenær farið verður í stýrivaxtalækkun hér á landi fer að mati Glitnis nær alfarið eftir því hvernig gengur að ná stöð- ugleika á gjaldeyrismarkaði og að fleyta krónunni á ný. Stýrivextir í Bretlandi voru í gær lækkaðir um hálfa prósentu, úr tveimur í eitt og hálft prósent. Þeir hafa aldrei verið lægri í landinu frá stofnun Englandsbanka árið 1694. Tilgangur vaxtalækkunarinnar er að koma í veg fyrir að láns- fjárkreppan auki enn þann sam- drátt sem nú á sér stað í Bretlandi. Stýrivextir háðir gengi Englandsbanki lækk- ar enn stýrivexti sína DANSKI bankinn FIH Erhvervsbank mun segja upp 90-110 starfsmönnum á næstunni en það svarar til 20-24% af starfsmönnum bankans. Með þessu móti á að spara allt að 200 milljónir danskra króna, jafnvirði um 4,8 milljarða íslenskra króna, á árinu, að því er segir í tilkynningu. Segir þar að margir þeirra, sem nú verður sagt upp, hafi verið ráðnir þegar væntingar um bankastarfsemi voru mun meiri en nú. Gamla Kaupþing er enn skráð fyrir meirihluta hlutabréfa FIH, en þau bréf voru sett að veði fyrir láni, sem Seðlabanki Íslands veitti Kaupþingi. Unnið er að sölu á FIH, en kaupandi hefur ekki enn fundist. Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson sögðu sig úr stjórn FIH um miðjan desember sl. og verður haldinn hluthafafundur 15. janúar þar sem eftirmenn þeirra verða kosnir. Ekki er vitað hverjir tilnefndir verða af skilanefnd Kaupþings. Fjöldauppsagnir hjá FIH Erhvervsbank Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is YFIRLÝST markmið og metnaður Björgvins G. Sigurðssonar, við- skiptaráðherra, er að efla eftirlits- stofnanir samfélagsins. Þar á með- al er Fjármálaeftirlitið (FME). Segir Björgvin að eftirlitið hafi verið eflt verulega frá því hann tók við ráðherraembættinu, meðal annars með stórauknum framlög- um til þess. Hins vegar hefði þurft að byrja að efla eftirlitið miklu fyrr. „Ég fékk til liðs við mig mjög öflugan stjórnarformann FME, Jón Sigurðsson, auk þess sem tekjustofnar eftirlitsins voru efld- ir, til að mynda um 52% árið 2007,“ segir Björgvin. „Þá var eft- irlitið gert samkeppnishæfara um starfsfólk. Það aukna hlutverk sem Alþingi fól FME með setn- ingu neyðarlaganna í októbermán- uði síðastliðnum, að taka yfir bankana sem fóru í þrot, kallaði auðvitað yfir starfsfólkið gríðar- legt álag. En starsfólkið hefur að mínu mati unnið frábært starf að undanförnu við mjög erfiðar að- stæður.“ Ábyrgð stjórnvalda Björgvin segir ljóst að margt sé hægt að læra af falli bankanna. Eitt af því sé að samstarf milli stjórnvalda og stofnana, eins og FME og Seðlabankans, þurfi að vera öflugra. „Á bakvið vöxt bankanna var pólitísk hvatning, sú hvatning að þeir skyldu fara hærra, hraðar og lengra. Og það var á ábyrgð stjórnvalda að eftirlitsstofnanir og Seðlabankinn fylgdu þar ekki nægjanlega vel á eftir, og að þær skyldu ekki efldar til samræmis við það. Ég tek undir með formanni stjórnar FME í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær, að við það séu kostir og gallar að Fjármála- eftirlitið og Seðlabankinn séu að- skildar stofnanir. Almenna þróun- in undanfarin ár er að þetta séu sín stofnunin hvor og það er ekk- ert sem blasir við að það sé til bóta að sameina FME og Seðla- bankann. En það er sjálfsagt að endurskoða fyrirkomulagið og ekkert er útilokað í þeim efnum.“ Viðskiptaráðherra segir álag á starfsfólk FME gríðarlegt Eftirlitið hefði þurft að efla fyrr Morgunblaðið/RAX Ráðherra Björgvin G. Sigurðsson á fréttamannafundi fyrir nokkru. ● „ÉG hef ekki stórar áhyggjur af vangaveltum Reuters um að virði eigna eigenda í Actavis sé lítið sem ekkert,“ segir Sigurgeir Guðlaugsson hjá Novator, stærsta eiganda lyfjaris- ans Actavis. Reuters fréttastofan greindi frá því í gær að Actavis væri á leið í söluferli og að ólíklegt væri að meira fengist fyrir félagið en sem næmi skuldum félagsins við Deutsche Bank, en þær eru sagðar vera 669 milljarðar íslenskra króna á núverandi gengi. Sigurgeir segir það rangt að Actav- is sé komið í söluferli og hafnar því að Deutsche Bank sé að þrýsta á um sölu félagsins. „Actavis hefur staðið við all- ar sínar skuldbindingar hingað til og mun gera það áfram.“ thordur@mbl.is Segir Actavis ekki komið í söluferli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.