Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 41
Minningar 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 sumir hafa fylgt mér alla tíð síðan, auk þess sem ég kynntist öllum systkinum hans pabba sem var elstur barna ömmu. Öll umgengust þau mig, ömmustrákinn, sem litla bróður og fékk ég þar ótakmarkaða athygli, ást og umhyggju sem ég bý að enn í dag. Ekki var ríkidæminu fyrir að fara í Hrauni en ömmu tókst með dugnaði og útsjónarsemi að láta allt ganga upp. Aldrei fannst mér neitt skorta á heimilið þó að þar hafi oft verið mannmargt og sennilega þungt í búi. Mörgum sinnum laumaði hún pening í lófann minn og fylgdu oftast með orð um að ég mætti alls ekki segja neinum frá því. Þessu hélt hún áfram alla tíð og það er ekki lengra síðan en í ágúst síðastliðnum að ég þurfti að hafa mikið fyrir því að sannfæra hana um að ég þyrfti ekki á peningum að halda. Svona var amma, alltaf að létta undir með öðrum. Sem ungur maður hélt ég mikið til í Hrauni og það var sama hve seint á ferðinni maður var, ósjaldan var komið langt fram á nótt þegar heim til ömmu var komið. Allt- af tók hún á móti mér og færði mér eitthvað að borða og drekka til að ég færi ekki svangur í háttinn. Með ömmu er gengin ein af mestu alþýðuhetjum sem byggðu þetta land og það er erfitt að gera sér í hug- arlund allar þær breytingar sem hún hefur upplifað, allt frá því að hún ólst upp í torfbæ snemma á síðustu öld til dagsins í dag. Hún og hennar kynslóð byggðu upp velferðarþjóðfélagið með dugnaði sínum og ósérhlífni og aldrei heyrði ég hana kvarta undan hag sín- um, þrátt fyrir að eflaust hafi lífið oft verið erfitt. Þremur dögum áður en hún lést brosti hún, þessi litla kona, enn sínu blíðasta brosi til mín þegar ég kvaddi hana í síðasta sinn. Elsku amma, það er skrítið til þess að hugsa hvað lítil kona eins og þú getur skilið eftir sig stórt skarð, ég á alltaf eftir að sakna þín og hugsa um þig með endalausri ást og virðingu. Vertu sæl, amma mín, ég vona að góður guð taki þig í faðm sinn eins og þú tókst svo oft á móti mér og öllu þínu fólki. Skilaðu kveðju til pabba, Sigga afa og allra hinna sem þú hittir. Skúli Sævarsson. Tilkynningar Kröfukaup Kaupum kröfur á eftirfarandi félög: Hagar hf., Bónus hf., Aðföng hf., Exista hf. Sé eindagi innan 3ja mánaða: 47,5% Sé eindagi innan 6 mánaða: 35% Sé eindagi innan 12 mánaða: 12,5% Staðgreiðsla í boði. Fleiri félög, t.d. gamlir bankar, í skoðun. Vinsamlega lýsið kröfum á netfangið eagleF9@hive.is sem fyrst. Kröfukaupahópurinn. ✝ Hannes Björg-vinsson fæddist í Reykjavík 11. mars 1945. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut annan dag jóla, 26. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans eru Katr- ín Ragnhildur Magnúsdóttir, f. á Hellissandi 4. janúar 1923, og Jón Björgvin Magnússon frá Eystri-Loftsstöðum í Gaulverjabæj- arhreppi, f. 20. desember 1921, d. 4. nóvember 1996. Albróðir Hannesar er Jón M., f. 18.2. 1943. Hálfsystkini sammæðra eru Grétar Ó., f. 6.1. 1949, og Inga Hanna, f. 21.12. 1952, Guðmundarbörn. Hálfsystkini sam- feðra eru Ragnheiður, f. 3.5. 1948, Páll, f. 11.4. 1951, Magnús, f. 12.6. 1952, og Björgvin, f. 2.1. 1954. Hannes ólst upp í Reykjavík hjá móður sinni og stjúpföður, Guð- mundi Ingimundarsyni, í fjöl- skylduhúsunum fyrst á Eiríksgötu 33 og síðar á Lynghaga 10. Hann var mörg sumur í sveit á bænum Kletti í Reykholtsdal í Borgarfirði hjá sæmdarhjónunum Jóneyju Jónsdóttur og Einari Sigmunds- syni, sem eru bæði látin. Hann undi hag sínum vel í sveitinni hjá þeim hjónum og tóku þau honum með ástúð og reyndust honum vel alla tíð. Að loknu skyldu- námi fór hann að vinna ýmis almenn verkamannastörf. Hann vann m.a. lengi hjá Byggung, hjá fyr- irtæki Péturs Jóhann- essonar húsasmíða- meistara, við Sigölduvirkjun og víðar, en lengst af vann hann hjá Eim- skip hf., síðar Flytj- anda hf. sem bílstjóri á gámaflutn- ingabílum og gat það oft verið erfitt og krefjandi starf. Í þessu starfi var hann í yfir tuttugu ár eða þar til hann hætti vegna veikinda. Hann hafði áhuga á sil- ungsveiði og stundaði hana þegar hann var yngri, einnig varð ljós- myndun áhugamál hjá honum seinna. Hann hafði yndi af ferðalög- um og fór nokkrar ferðir utan og heimsótti m.a. bróður sinn og fjöl- skyldu hans til Bandaríkjanna þeg- ar þau bjuggu þar og ferðaðist þá talsvert um. Hann fylgdist vel með frændsystkinum sínum og sýndi oft í verki umhyggju fyrir þeim. Hann hélt alltaf góðu sambandi við móð- ur sína og aðstoðaði og hjálpaði henni á allan hátt og studdu þau hvort annað dyggilega. Hannes verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Hannes, bróðir minn, er dáinn, hann kvaddi á hátíð ljóssins annan dag jóla. Hann varð að lúta í lægra haldi fyrir manninum með ljáinn, eftir langvarandi og harða baráttu við illvígan sjúkdóm. Samvera okkar var ekki mikil á fyrstu árunum þar sem ég ólst upp vestur á Sandi hjá afa og ömmu, en hann í Reykjavík og Borgar- firði. En eftir að ég flutti suður vorum við saman á Lynghaganum og deildum herbergi í kjallaranum í góðu sambýli við gömlu hjónin Jóhönnu og Ingimund, en herberg- ið okkar var jafnan kallað „hrúta- kofinn“. Hannes var mjög ungur þegar hann slasaðist og hlaut varanleg brunasár, aðallega í andliti, það voru því ófáar spítalalegurnar sem hann fór í gegnum næstu árin á eftir til þess að reyna að fá ein- hverja bót og lagfæringu á andlit- inu. Nærri má geta að það hefur reynt á svo ungan dreng og vafa- lítið haft varanleg áhrif á hann. Margt kemur upp í hugann að leiðarlokum. Eins og þegar ég fór í heimsókn að bænum Kletti í Reyk- holtsdal þar sem Hannes dvaldist alltaf í sveit á sumrin. Hann var svo ánægður að sýna mér allt, skepnurnar, umhverfið og ána sem þar rennur hjá. Einnig þegar hann kom vestur á Sand með mömmu að heimsækja okkur afa og ömmu og við fórum að veiða niður í fjöru og í Höskuldsá og urðum auðvitað votir í lappirnar. Eða þegar hann eignaðist fyrstu skellinöðruna sína og þeysti á henni út um allan bæ, þá var gam- an að lifa. Og hvað hann var ánægður þegar við vorum að mála nýju íbúðina hans í Krummahól- um, hann þá búinn að eignast sína fyrstu íbúð. Hannes var hávaxinn og myndarlegur á velli og mikið gæðablóð, hæglátur í framkomu og hafði góða nærveru, en hann var einfari og það varð hlutskipti hans að búa einn en hann virtist una því ágætlega. Hann var mjög barngóður og fylgdist með frændsystkinum sín- um og bar hag þeirra fyrir brjósti. Hún móðir okkar átti aldeilis hauk í horni þar sem Hannes var og létti hann henni dagana á alla lund og sér hún nú á eftir góðum dreng. Hannes greindist með krabba- mein fyrir um 5 árum en hann tap- aði aldrei voninni um bata og kvartaði aldrei þó að erfiðar lækn- ismeðferðir reyndu mikið á hann. Fráfall ástvinar kemur alltaf jafn mikið á óvart þó að vitað sé að hverju stefnir, þá er svo margt sem er ósagt og ógert og allt er um seinan. Minningin lifir, en eng- inn má sköpum renna. Hannes minn, þín verður sárt saknað. Hvíldu í friði. Þinn bróðir Jón M. Björgvinsson. Við minnumst föðurbróður okk- ar, Hannesar Björgvinssonar, með hlýju og væntumþykju. Hann var góður og hæglátur maður sem ávallt sýndi okkur áhuga og um- hyggju. Við hittum Hannes oftast hjá ömmu og var gott að njóta samvista við hann í góðu yfirlæti á Lynghaganum. Okkur þótt alltaf vænt um Hannes og fundum til með honum í veikindum hans. Við vottum ömmu, pabba og systkinum Hannesar okkar innilegustu sam- úð. Þuríður, Katrín og Sólborg Jónsdætur. Lítillátur, ljúfur og kátur, leik þér ei úr máta. Varast spjátur, hæðni, hlátur, heimskir menn sig státa. Mér datt í hug þessi staka úr Heilræðavísum Hallgríms Péturs- sonar er ég minnist Hannesar Björgvinssonar í örfáum orðum. Ég kynntist Hannesi fyrir tæpum 40 árum er ég giftist inn í fjöl- skyldu hans. Hannes var feiminn og til baka en ég skynjaði strax að þar fór vandaður maður bæði til orðs og æðis. Ungur að árum lenti hann í hræðilegu slysi, hann brenndist illa í andliti og er ég sannfærð um að þetta slys mark- aði djúp spor í allt hans lífshlaup. Ég átti ekki lengi samleið í fjöl- skyldu hans en ég fylgdist með í fjarlægð, hélt tryggð við móður hans, Katrínu, hina mætu og góðu konu. Þau mæðginin voru mjög ná- in og er sárt fyrir Katrínu sem sjálf hefur orðið fyrir miklum heilsubresti að kveðja nú son sinn. En eigi má sköpum renna. Hannes var alla tíð einhleypur og barnlaus og starfaði hann lengi sem bílstjóri hjá Eimskip eða á meðan heilsan leyfði. Pabbi minn, sem féll frá í des- ember árið 2003, og Hannes voru góðir félagar. Þeir voru líkir að upplagi, báðir feimnir og til baka, en þeir náðu vel saman, kynntust er þeir unnu saman við smíðar. Ég man að pabbi talaði oft um Hann- es, vin sinn, en það voru ekki margir í lífi pabba míns sem hann talaði um sem vini sína. Þeim fannst báðum ljúft að dreypa á guðaveigum er þeir hittust þá losnaði líka um málbeinið hjá þeim og fór þeir á flug saman vinirnir, en allt var í góðu og aldrei var neinum hallmælt. Ég veit að núna fer vel á með þeim vinunum og hafa þeir ugglaust tekið þráðinn upp að nýju. Ég votta Katrínu og systkinum Hannesar mína dýpstu samúð, megi minningin um góðan dreng lifa. Far þú í friði fagra sál. Sigfríður Þórisdóttir. Hannes Björgvinsson stóðum við félagarnir einhverjahelgina úti í garði í norðanbáli og reyndum að mála húsið. Ég fór þá með fyrsta erindið í Áföngum Jóns Helgasonar og þóttist karl í krapinu. Jónas tók við og fór með öll hin erindin án þess að reka í vörðurnar. Sagði svo að lokum, þetta er déskoti vel ort hjá Jóni. Horfði síðan á mig kankvís og spurði: Kanntu Fjallið Skjald- breiður eftir Jónas? Á árum áður þótti ekki tiltöku- mál þó tappi væri stundum dreg- inn úr flösku í lok dags í vinnu. Þannig var stundum með eigend- ur og starfsmenn hjá þessum gömlu heildverslunum í Reykjavík og var slíkri háttsemi lengi vel sýnd mikil þolinmæði, bæði af stjórnendum og fjölskyldum. Meiri agi var þó á fjölskyldu- mönnum en einstaklingum. Jónas var einstæðingur og er mér ekki kunnugt um, að hann hafi nokk- urn tíma verið í sambúð. Þannig veröld getur verið erfið og vissu- lega komu tímar þegar það mátti merkja hjá Jónasi vini mínum. En fyrir um það bil 30 árum síðan tók Jónas sig til og setti punkt fyrir aftan það tímabil, hafði ekkert sérstaklega hátt um það, gerði þetta bara ganske pent og með miklum bravör. Jónas var barngóður, kurteis, tillitssamur gagnvart samferðar- fólki og hjálpfús. Þegar við unnum saman á sumrin á byggingarvö- rulagernum hjá H.Ben á Suður- landsbrautinni var til siðs að rölta upp Hallarmúlann í Múlakaffi tvisvar á dag í kaffi. Það var heil- mikið uppeldi fólgið í því fyrir unglingsdreng að fá að eiga menn eins og Jónas og fleiri karaktera að vinum og félögum á þessum ár- um og hlusta á þá fara yfir mál líðandi stundar. Guð blessi minningu Jónasar Jónssonar. Kristinn Björnsson. Meira: mbl.is/minningar V i n n i n g a s k r á 36. útdráttur 8. janúar 2009 Harley Davidson FatBoy + 3.200.000 kr. (tvöfaldur) 3 8 0 8 6 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 3 7 0 8 8 4 5 0 0 2 5 4 5 2 9 6 5 8 2 7 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 9358 14639 37949 55144 71864 77563 12353 23830 41294 64136 77509 78583 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 4 6 8 1 0 9 2 3 2 0 2 1 7 3 2 5 1 2 4 3 9 8 9 5 0 5 9 4 6 5 0 6 4 7 2 1 7 1 8 0 7 1 1 2 0 6 2 0 6 5 9 3 3 4 1 5 4 4 0 9 2 5 0 8 1 1 6 5 1 8 4 7 2 3 4 9 1 0 7 6 1 1 9 4 3 2 1 3 9 7 3 4 1 3 7 4 4 3 1 7 5 3 0 9 7 6 5 2 1 8 7 3 2 0 0 1 2 4 5 1 3 9 3 3 2 2 0 3 2 3 4 5 2 4 4 4 5 9 2 5 3 2 5 4 6 6 4 2 4 7 3 2 6 2 3 0 6 1 1 4 8 0 9 2 2 7 5 3 3 6 1 3 2 4 6 0 3 7 5 4 2 3 8 6 6 5 9 9 7 3 3 5 4 3 9 9 4 1 4 8 2 6 2 3 6 4 7 3 6 2 5 4 4 6 0 6 2 5 5 6 5 6 6 6 8 0 5 7 3 7 6 5 4 2 4 1 1 5 3 6 3 2 5 5 1 2 3 6 2 7 4 4 8 4 6 6 5 5 7 2 8 6 8 0 1 4 7 5 1 6 5 5 0 6 9 1 7 5 6 7 2 6 0 5 8 3 6 4 2 3 4 8 5 2 3 5 8 0 9 4 6 8 3 8 5 7 6 3 2 1 6 5 5 7 1 7 8 4 0 2 7 2 9 1 3 7 4 5 3 4 9 0 2 7 6 0 0 9 9 6 8 6 0 0 7 8 7 3 4 8 1 7 1 1 8 0 7 2 2 7 3 3 1 4 0 0 0 7 4 9 4 8 1 6 0 9 2 7 7 0 9 8 6 8 4 6 3 1 9 0 5 0 2 8 7 0 5 4 2 2 2 2 4 9 6 5 8 6 1 2 5 2 7 1 1 2 9 8 6 9 4 1 9 0 6 6 3 0 4 5 4 4 2 3 7 5 5 0 1 3 9 6 2 8 1 4 7 1 6 3 3 1 0 3 7 4 1 9 8 3 3 3 1 3 4 5 4 2 8 9 0 5 0 2 0 3 6 4 9 3 8 7 1 9 9 7 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 1 9 9 1 2 8 9 5 2 2 2 4 1 3 3 3 4 5 4 6 1 8 5 5 1 1 7 1 6 1 7 3 6 7 3 3 0 2 1 5 7 9 1 3 5 6 6 2 2 6 8 0 3 3 4 1 7 4 6 2 8 1 5 1 6 9 0 6 1 9 2 2 7 3 4 2 6 2 1 0 2 1 5 0 9 5 2 3 0 6 8 3 4 3 6 8 4 6 3 7 5 5 2 2 9 3 6 1 9 9 4 7 3 4 4 8 2 4 4 3 1 5 5 0 1 2 3 5 1 0 3 4 4 9 0 4 6 4 5 1 5 3 7 5 9 6 2 1 6 6 7 3 5 5 7 3 2 7 3 1 5 9 5 8 2 3 5 9 1 3 5 0 2 6 4 6 4 9 1 5 3 8 4 3 6 3 5 6 3 7 3 7 1 6 3 2 8 1 1 6 0 2 1 2 3 6 3 5 3 5 8 9 1 4 6 9 1 1 5 4 5 0 0 6 4 1 1 5 7 4 1 9 2 3 3 3 4 1 7 2 7 3 2 4 0 9 9 3 6 0 5 9 4 6 9 3 9 5 4 5 0 6 6 4 2 0 7 7 4 1 9 7 3 3 7 3 1 7 4 5 2 2 4 1 7 9 3 6 1 0 8 4 7 2 2 1 5 4 5 6 6 6 4 3 8 2 7 4 2 7 1 3 9 8 3 1 8 2 4 0 2 4 8 4 2 3 6 2 2 8 4 7 4 3 6 5 4 6 7 1 6 4 7 7 9 7 4 4 1 6 4 0 0 2 1 8 3 7 5 2 5 2 3 1 3 6 2 3 2 4 7 5 1 9 5 5 0 5 7 6 4 8 3 6 7 4 5 1 2 4 7 3 3 1 8 6 8 5 2 5 2 9 6 3 7 0 7 0 4 7 6 3 9 5 5 4 4 3 6 5 6 9 9 7 4 5 4 7 4 8 2 9 1 8 7 1 6 2 5 6 6 2 3 8 0 0 8 4 7 6 6 4 5 5 4 5 0 6 5 9 6 6 7 5 0 3 5 5 6 7 1 1 8 7 1 8 2 5 7 8 2 3 8 2 1 2 4 7 6 7 2 5 5 8 3 3 6 7 3 5 6 7 5 4 9 8 6 4 5 8 1 8 8 9 5 2 5 9 7 3 3 8 4 2 4 4 8 1 2 7 5 6 0 7 6 6 7 4 2 7 7 5 5 3 0 6 8 4 8 1 9 1 2 6 2 6 0 3 8 3 9 2 9 6 4 8 1 5 0 5 6 1 0 3 6 7 8 4 5 7 5 6 1 2 7 1 4 6 1 9 2 3 7 2 6 7 2 9 3 9 8 3 7 4 8 2 3 4 5 6 1 6 8 6 7 8 8 4 7 5 9 6 9 7 2 0 5 1 9 3 5 4 2 6 9 2 1 4 0 0 6 8 4 8 3 8 1 5 6 5 4 0 6 8 1 4 9 7 6 0 7 3 7 5 5 6 1 9 5 0 9 2 7 6 1 2 4 0 1 7 5 4 8 7 9 1 5 6 5 4 7 6 8 2 1 1 7 6 1 3 5 8 0 9 8 1 9 6 2 0 2 7 8 8 9 4 0 4 6 0 4 8 8 6 2 5 6 6 2 0 6 8 2 9 0 7 6 5 6 4 8 2 7 4 1 9 7 5 2 2 7 8 9 9 4 1 0 7 1 4 9 0 3 7 5 6 6 8 0 6 8 4 5 0 7 7 2 6 6 8 8 3 8 1 9 8 0 2 2 8 2 0 0 4 1 3 0 4 4 9 5 0 9 5 6 7 8 9 6 9 1 2 2 7 7 6 0 6 9 0 6 5 1 9 8 6 1 2 8 2 6 8 4 1 3 3 3 4 9 6 0 0 5 7 6 3 9 6 9 3 6 8 7 7 8 8 5 9 2 7 6 1 9 9 7 0 2 8 6 3 8 4 1 6 1 8 4 9 7 0 5 5 7 7 3 1 6 9 7 1 4 7 8 0 4 4 9 3 2 9 1 9 9 7 4 2 8 7 1 2 4 1 9 5 7 4 9 7 2 9 5 8 7 7 1 7 0 3 6 1 7 8 5 0 8 9 4 3 5 2 0 4 4 7 2 9 1 0 6 4 1 9 7 6 4 9 8 2 1 5 9 1 2 6 7 0 3 9 8 7 8 8 2 5 9 8 1 3 2 0 8 5 9 2 9 4 5 2 4 2 5 2 4 4 9 9 0 4 5 9 5 9 8 7 0 4 1 9 7 9 9 7 7 1 0 4 6 4 2 0 9 3 3 2 9 5 7 8 4 2 6 0 7 4 9 9 2 5 5 9 7 4 5 7 1 1 4 5 1 0 7 4 6 2 1 0 4 6 2 9 7 0 6 4 3 6 8 6 5 0 1 5 5 5 9 8 5 3 7 1 6 4 6 1 1 0 8 6 2 1 1 4 3 3 0 6 7 4 4 3 8 8 8 5 0 4 7 8 6 0 4 4 0 7 1 7 7 7 1 1 3 3 0 2 1 4 9 3 3 2 5 8 4 4 5 3 1 3 5 0 5 4 2 6 0 6 4 3 7 2 1 8 5 1 1 5 4 8 2 1 9 5 6 3 2 8 4 6 4 5 5 6 7 5 0 7 5 4 6 1 1 2 6 7 2 1 9 2 1 2 2 7 5 2 2 1 2 3 3 2 9 2 5 4 5 7 7 0 5 0 8 8 9 6 1 4 5 7 7 3 1 6 8 Næstu útdrættir fara fram 15. janúar, 22. janúar & 29. janúar 2009 Heimasíða á Interneti: www.das.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.