Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 á EGLA bréfabindum 50 ára Vinnustofa SÍBS Hátúni 10c - S. 562 8500 www.mulalundur.is 489 kr/stk Gildir út janúar 2009 Tilboð FLESTIR læknar, þrír skurðlæknar og einn lyflæknir, á Sjúkrahúsi Suðurnesja eru með iðrasýkingu af völdum nóróveiru. Af þeim sökum er sjúkrahúsið nú að mestu lokað og í sóttkví. Ákveðið var í gær, að lyf- og handlækningadeildin, að- aldeild sjúkrahússins, yrði lokuð í þrjá sólarhringa með- an reynt verður að ráða niðurlögum sýkingarinnar og gilda mjög strangar reglur um umgengni á sjúkrahús- inu. Sigurður Þór Sigurðarson, framkvæmdastjóri lækn- inga á Sjúkrahúsi Suðurnesja, segir, að sýkingin gangi yfirleitt yfir á tveimur eða þremur dögum hjá heilbrigðu fólki og hafi ekki nein eftirköst. Það var í nóvember, sem sóttvarnalækni barst til- kynning um alvarlegan nóróveikifaraldur á sjúkrahúsi á Austurlandi en á síðustu árum hefur hann skotið upp kollinum æ oftar og sett sitt mark á starfsemi margra deilda sjúkrahúsa og öldrunarstofnana. Iðrasýking af völdum nóróveiru er afar smitandi og getur sýkingin varað lengur en ella hjá öldruðu fólki og langveiku og oft gengið mjög nærri því. Til að hefta útbreiðslu sýkingarinnar er nauðsynlegt að grípa til óþægilegra og kostnaðarsamra aðgerða. Til dæmis þarf að einangra smitað fólk og gæta alveg sér- staklega að handþvotti, oft með spritti, og öðru hrein- læti. svs@mbl.is Í sóttkví vegna iðrasýkingar Flestir læknar á Sjúkrahúsi Suðurnesja veikir af völdum nóróveiru sem er mjög vaxandi vandamál hér á landi SAMSKIPTAVEFURINN Face- book hefur heldur betur slegið í gegn hjá Íslendingum og er ekki ósennilegt að þar stefni í enn eitt heimsmetið miðað við höfðatölu eins og Íslendingum einum er lag- ið. Vinsældir eru mestar meðal ungs fólks, því nær allir Íslendingar á aldrinum 20-29 ára, eða 95,8%, eru skráðir notendur á Facebook, skv. samantekt ABS Fjölmiðlahúss. Allt í allt eru rúmlega 120 þús- und Íslendingar, sem nemur tæp- um helmingi þjóðarinnar, með Facebooksíðu. Minnst er virknin í hópi 60 ára og eldri en þó nokkur því alls nota 1.560 Íslendingar á þessum aldri Facebook, eða 3,1%. Þá má geta þess að kynjaskiptingin meðal Íslendinga er 60% konur en 40% karlar. una@mbl.is Næstum allir á Facebook ALLT kapp hefur verið lagt á að ná fram ásættanlegri tillögu sem hefur það að markmiði að tryggja bygg- ingu Tónlistarhússins og ráðstefnu- miðstöðvarinnar, segir meðal ann- ars í yfirlýsingu frá Austurhöfn, NBI og Landsbanka Íslands. „Allir þeir sem að málinu koma hafa frá upphafi haft fullan vilja til að finna því farsæla lausn og unnið ötullega að framgangi þess á undanförnum vikum. Lausn máls- ins hefur dregist sökum umfangs verkefnisins og flókinna hagsmuna- tengsla málsaðila.“ Allt kapp lagt á lausn FULLT var út úr dyrum á opnum borgarafundi í Iðnó í gær, þeim sjöunda í röðinni en jafnframt fyrsta á þessu ári. Umræðuefnið að þessu sinni var mótmæli og borg- araleg óhlýðni og var talsmönnum lögreglu boðið til fundarins. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra var einnig hvattur til að mæta en hann lét ekki sjá sig. Frummælendur á fundinum voru Hörður Torfason, Eva Hauksdóttir aðgerðasinni, grímuklæddur ein- staklingur sem titlaði sig anarkista og Stefán Eiríksson lögreglustjóri. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn mætti einnig til pallborðsins. Fundurinn fór vel fram og á málefnalegum nótum, þótt nokkuð væri púað und- ir framsögu Stefáns. „Þeir sem kenna sig við borg- aralega óhlýðni eða aðgerðasinna eru fullkomlega meðvitaðir um það að þeir eru að brjóta lög og þar með fullkomlega meðvitaðir um að það er hlutverk lögreglu að grípa inn í,“ sagði Stefán meðal annars. Fundinum lauk að loknum pallborðsumræðum með lófataki gesta. Borgaraleg óhlýðni rædd í mestu friðsemd Enn troðfullt á borgarafundi Morgunblaðið/Kristinn PRESTSETRIÐ á þeim forna kirkjustað Stafholti í Borgarfirði fellur úr ábúð frá og með næstu mánaðamótum þar sem það telst vart lengur íbúðarhæft. „Það hefur komið í ljós og við höfum fengið álit Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á því að ekki sé æskilegt að nýta húsið til íbúðar eins og það er í dag,“ segir Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs. Sr. Elínborg Sturludóttir sókn- arprestur tók við Stafholts- prestakalli síðasta haust en áður hafði sr. Brynjólfur Gíslason gegnt embættinu í nærri 40 ár og búið í Stafholti. Prestsetrið var byggt árið 1938 og hefur verið búið þar síðan en nú er aldurinn farinn að segja til sín að sögn Guðmundar. „Þetta er gam- alt hús, en það er rétt að taka fram að það hefur verið vel gengið um húsið alla tíð. En þegar fólk flyst út eftir svona langan tíma þá kemur ýmislegt í ljós sem hefur leitt til þessarar niðurstöðu.“ Má þar nefna óæskilegan raka og fleira sem rekja má til aldurs húss- ins. Staðið hefur til um nokkurt skeið að reisa nýtt íbúðarhús í Staf- holti og var stefnt að því að bygging hæfist á þessu ári eða næsta. Hremmingar „En svo lendum við í þessum hremmingum eins og allir aðrir og höfum orðið að stoppa allar nýfram- kvæmdir, því miður. Þannig að við höfum þurft að leita nýrra leiða til að leysa húsnæðismál prestsins á með- an,“ segir Guðmundur. Til bráða- birgða mun sr. Elínborg því flytja í leiguíbúð í Borgarnesi um næstu mánaðamót. Guðmundur telur ósennilegt að ráðist verði í viðgerðir á gamla prestsetrinu úr þessu. .una@mbl.is Prestsetrið vart íbúð- arhæft Flutt úr Stafholti eftir 70 ára búsetusögu Nærri 1.000 skráðir atvinnu- lausir það sem af er vikunni Aldrei áður hafa jafn margir verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ATVINNULEYSI í landinu eykst hröð- um skrefum. Samkvæmt vef Vinnumála- stofnunar í gær voru 10.056 skráðir at- vinnulausir, 6.329 karlar og 3.727 konur. Aldrei áður hafa jafn margir verið skráðir atvinnulausir hjá Vinnumála- stofnun. Áður var mesta skráð atvinnu- leysi í janúarmánuði árið 1994. Þá voru 9.515 einstaklingar án atvinnu eða 7,7% af áætluðum mannafla. Meðal ástæðna þessa mikla atvinnuleysis var sjómanna- verkfall fyrri hluta janúarmánaðar, en einnig var mikið atvinnuleysi í verslun og meðal iðnaðarmanna. Atvinnuleysi var alls staðar meira hjá konum heldur en körlum og ástandið var mun verra á landsbyggðinni en á höfuð- borgarsvæðinu. Nú hefur þetta snúist við og fleiri karlar eru án atvinnu en konur. Á íslenskum vinnumarkaði eru nú um 175 þúsund manns. Samkvæmt því er at- vinnuleysið nú um 5,7%. Hins vegar er hluti þeirra, sem eru á skrá hjá Vinnu- málastofnun á hlutabótum á móti hluta- starfi, svo raunverulegt hlutfall atvinnu- lausra er því eitthvað lægra. Í byrjun vikunnar voru 9.173 skráðir atvinnulausir og hefur þeim því fjölgað um 883 það sem af er vikunni. Er þessi fjölgun með því mesta síðan hrina at- vinnuleysis hófst í kjölfar bankahrunsins. Þreföldun frá í október Hinn 25. nóvember síðastliðinn var 6.441 skráður atvinnulaus hjá Vinnumála- stofnun. Í október voru 3.106 skráðir án atvinnu og hefur atvinnuleysið því ríflega þrefaldast frá því í október. Á höfuðborgarsvæðinu eru nú 4.028 karlar og 2.178 konur án atvinnu eða sam- tals 6.206 manns og 176 manns á Suð- urnesjum.                                     EIGENDUR gjafabréfa eru aftarlega í röð kröfuhafa verði verslun gjald- þrota, að sögn Hildigunnar Haf- steinsdóttur, lög- fræðings hjá Neytendasamtökunum. „Um er að ræða almenna kröfu og það er vonlítið að ná í slíkar kröfur. Við höfum alltaf hvatt neytendur til þess að gæta að því að sitja ekki uppi með gjafabréf. Þeir ættu í staðinn að kaupa eitthvað sem þá vantar eða langar í áður en þetta brennur inni og sérstaklega núna í ljósi efnahags- ástandsins,“ segir Hildigunnur. Hún getur þess að við eigenda- skipti hafi nýir eigendur í ein- hverjum tilvikum fallist á að greiða gjafabréf út í einhvern tíma. „Það fer hins vegar bara eftir samningum við yfirtöku eða sölu og það er ekki algilt.“ Hið sama á við um inneignar- nótur, að sögn Hildigunnar. Segir hún sjálfsagt að lýsa þeim í þrotabú gjaldþrota fyrirtækis í samráði við skiptastjóra þótt vonlítið sé að fá slíkar kröfur greiddar. Hætta á að gjafabréf brenni inni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.