Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 44
44 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Orð dagsins: Því ég segi yður: Héðan í frá mun ég eigi drekka af ávexti vínviðarins, fyrr en Guðs ríki kemur. (Lk. 22, 18.) Alveg getur það ært Víkverja þeg-ar hann fer í netbankann sinn að sjá þar alls kyns fjárkröfur frá hinum og þessum sem Víkverji hefur aldrei undirgengizt. Það stoðar lítt að vilja ekki greiða, Víkverji getur ekki fjar- lægt kröfurnar af reikningi sínum og bankinn segist ekki geta það heldur. Eina leiðin er að Víkverji hringi í við- komandi og biðji hann að falla frá kröfunni. Af hverju? Ekki hringja þessir kröfuhafar í Víkverja og spyrja hvort hann vilji borga og þeir megi þá setja kröfuna á reikninginn hans. Einni undantekningu frá þessu man Víkverji eftir í fljótu bragði. Það var fulltrúi MS-félags Íslands sem hafði samband og spurði hvort skuldfæra mætti Víkverja fyrir ákveðinni upp- hæð. Víkverji veit að hann getur falið reikninga í netbankanum. Það breytir þó ekki því að kröfurnar eru áfram á lífi og bara tilhugsunin er afskaplega pirrandi svo Víkverji segi ekki meira. Víkverji vill geta loka reikningi sínum með sama hætti og hann getur látið setja merki við símanúmer sitt og losnað þar með undan alls kyns kvabbi. x x x Nú er Helgi Daníelsson aftur kom-inn á Skagann. Af því tilefni rifj- ast upp fyrir Víkverja saga af Helga og öðru knattspyrnugoði Skaga- manna, Ríkharði Jónssyni sem nýlega var útnefndur heiðursborgari Akra- ness. ÍA átti að spila við lið í Reykja- vík. Á tilsettum tíma voru aðeins Helgi og Ríkharður mættir af ÍA- mönnum og dómarinn taldi einsýnt að fresta leiknum. En þeir félagar héldu nú ekki. Þú passar markið og gefur svo langa bolta fram, þar sem ég sé um afganginn, sagði Ríkharður. Og Helgi var til í slaginn. Í hálfleik stóð 5-0 fyrir ÍA. Þegar kom fram í seinni hálfleik mundi Ríkharður allt í einu eftir því að hann hafði lofað að klára að mála íbúð akkúrat þennan dag. Hann kvaddi því Helga með þessum orðum. Ég þarf að skreppa frá og mála íbúð. Þú heldur markinu hreinu á meðan. Þegar Rík- harður kom aftur í blálokin var staðan óbreytt og lokatölurnar urðu 6-0 fyrir Skagamenn. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 keipa, 4 laska, 7 starfið, 8 ófús, 9 elska, 11 topp, 13 fræull, 14 fugla, 15 móðguð, 17 sterk, 20 skar, 22 erfð, 23 steins, 24 stéttar, 25 vesælla. Lóðrétt | 1 dugnaður, 2 dulan, 3 ráða við, 4 innsti hluti dals, 5 ásaka, 6 hagnaður, 10 trjábörk- ur, 12 vel látin, 13 vín- stúka, 15 stoppa í, 16 aft- urkalla, 18 kvendýrum, 19 skordýra, 20 lof, 21 hræðslu. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fyrirmuna, 8 lykil, 9 lindi, 10 ull, 11 gárar, 13 afrek, 15 hvolf, 18 eldur, 21 lof, 22 fulla, 23 angan, 24 af- rakstur. Lóðrétt: 2 yrkir, 3 illur, 4 molla, 5 nánar, 6 flog, 7 virk, 12 afl, 14 fól, 15 hæfa, 16 orlof, 17 flaka, 18 efans, 19 duggu, 20 röng. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Á réttri leið. Norður ♠8542 ♥G95 ♦KD5 ♣G103 Vestur Austur ♠76 ♠DG93 ♥2 ♥K43 ♦ÁG1087 ♦6432 ♣ÁD974 ♣62 Suður ♠ÁK10 ♥ÁD10876 ♦9 ♣K85 Suður spilar 4♥. Það er erfitt að koma út frá vest- urhendinni með tóma gaffla og einspil í trompi, en í ljósi sagna gerði vestur sér vonir um einspil í laufi hjá makk- er sínum og lagði niður ♣Á. Glanna- legt útskot, en byggt á því að austur hafði stutt tígulsögn vesturs og þar virtist lítið að hafa. Er útspilið mis- heppnað? Nei, vestur er á réttri leið, en hann má ekki spila smáu laufi í öðrum slag. Ef hann gerir það kemst sagnhafi inn í borð til að svína í trompinu og tekur ellefu slagi. Vörnin sem bítur er að spila laufdrottningu næst til að halda sagnhafa á heimavígstöðvum. Suður spilar væntanlega tígli, en vestur hoppar upp með ásinn og gefur makker sínum laufstungu. Austur kemst svo skaðlaust út á ♠D og fær annan slag á trompkóng. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Kjaftasögur um eða frá vini skemmta þér í dag. Leyndarmálið á bak við velgengni þína er að þú gerir alltaf þitt besta. (20. apríl - 20. maí)  Naut Misskilningur og tafir hafa sett svip sinn á líf þitt að undanförnu. Taktu þér tak, annars áttu á hættu að verða um- svifalaust dæmdur amlóði. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Óvænt atvinnutilboð eða aðferð- ir til þess að auka tekjur þínar gætu bor- ist þér í dag. Sérstaklega er hyggilegt að velta fyrir sér þeim mistökum sem hafa orðið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Allt virðist ganga þér í haginn og sjálfsagt að njóta þess. Haltu þínu striki og þá munu draumar þínir rætast. Talaðu ljóst þegar þú segir öðrum skoðanir þín- ar. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Mundu að deila velgengni þinni með þeim sem standa þér næst. Fólk dáist að því af hve miklum þokka þú kemur fram við annað fólk. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er hætt við að einhver valdi þér vonbrigðum í dag. Haltu því ótrauður áfram og fylgdu málinu allt til enda. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert að glíma við verkefni sem krefst mikils af þér. Innst inni leiðist þér fyrirsjáanleg rútínan og þú leitar eftir spennu og einhverju óvenjulegu frá heim- inum. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Taktu það rólega. En hafðu andvara á þér, því fyrr en varir geturðu þurft að hafa fyrir hlutunum aftur. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert að velja fólk til að hjálpa þér með verkefni. Ef menn taka þig ekki eins og þú ert er það þeirra vandamál. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þær áköfu samræður sem þú átt við ástvin eiga eftir að koma þér úr jafnvægi. Athygli vinnufélaganna beinist að þér svo notaðu tækifærið þér í hag. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú getur lært heilmargt um sjálfa/n þig af samræðum þínum við aðra í dag. Leyfðu þeim að flæða, þótt ekki sé það allt jafnskemmtilegt, sem þú upplifir. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur heilbrigðan metnað til að komast áfram og átt að leyfa honum að leiða þig. Gættu þess að ofmetnast ekki þegar allir vilja hrósa þér fyrir árangur þinn í starfi. Stjörnuspá 9. janúar 1964 Tunnuverksmiðjan á Siglu- firði brann til ösku og fjörutíu manns misstu atvinnu sína. Tjónið nam milljónum króna. 9. janúar 1986 Tilkynnt var að Hafliði Hall- grímsson hlyti tónskáldaverð- laun Norðurlandaráðs fyrir verkið Poemi. 9. janúar 2006 Íslendingar urðu 300.000, að mati Hagstofu Íslands. Íbúa- fjöldinn náði 100.000 árið 1925 og 200.000 árið 1967. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Jónína Magn- úsdóttir, hús- móðir og sauma- kona, er níræð í dag, 9. janúar. Jónína býður ættingjum og vinum til kaffi- samsætis í safn- aðarheimili Laugarneskirkju laugardaginn 10. janúar frá kl. 15 til 19. 90 ára ÓTTAR ætlar að fagna afmælinu með því að halda frekar fjölmenna veislu heima hjá sér. Aðspurður segir hann eftirminnilegasta afmælisdaginn vera þegar hann varð 21 árs. Hann átti afmæli á sunnu- degi en daginn áður útskrifaðist hann úr mennta- skóla og hélt útskriftarveislu. „Þetta var í raun sameiginleg veisla og hún var nokkuð skrautleg,“ segir Óttar og vill ekki lýsa henni nánar en bætir þó því við að vinir hans tali enn um veisluna. Óttar er nemi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands en í sumar stefnir hann þó að því að halda á heimaslóðir til Bolungarvíkur en þar býr fjöl- skylda hans. Auk þess að vinna stefnir hann að því að sinna áhuga- málum sínum sem eru fótbolti og golf. Óttar æfir með BÍ/Bolungarvík en síðasta sumar fór liðið úr 3. deild og upp í 2. „Það var ótrúlega mik- il stemning og áhugi fólks á fótbolta vex þegar árangurinn er góður. Fólk stoppaði mig út á götu og spjallaði við mig um þetta,“ segir hann. Sökum þess hve mikið var að gera í fótboltanum síðasta sumar náði Óttar ekki að æfa sig jafnmikið í golfi og hann vildi. „Ég er að vona að við spilum lítið fótbolta um helgar næsta sumar og þá verð ég grimmur á ZZZZ,“ segir hann. ylfa@mbl.is Óttar Kristinn Bjarnason nemi 25 ára Stemning fylgir árangri Selfoss Sara Mist fæddist 10. desember kl. 24. Hún vó 16 merkur og var 53 sm löng. Foreldrar henn- ar eru Elísa Einarsdóttir og Sigurður Einar Ein- arsson. Noregur Anna fæddist í Odda 27. ágúst kl. 7.35. Hún vó 3.280 g og var 51 sm löng. Foreldrar hennar eru Bergey Óla- dottir og Eirik M. Oppe- dal. Sudoku Frumstig 1 9 4 2 8 6 3 5 7 3 6 5 9 2 1 4 2 4 1 5 9 3 9 5 4 8 6 3 7 2 7 1 9 8 2 9 1 5 7 4 2 1 9 5 6 1 2 6 5 3 6 5 7 3 6 2 4 8 9 1 5 1 7 6 4 8 2 3 8 1 9 2 1 3 5 2 9 7 5 6 8 1 3 3 6 2 7 9 1 2 5 9 3 2 8 6 9 1 3 5 4 2 7 5 4 2 8 7 6 9 1 3 7 3 1 9 4 2 6 8 5 1 2 5 3 6 4 8 7 9 9 7 6 5 8 1 3 4 2 4 8 3 2 9 7 5 6 1 2 1 8 4 5 9 7 3 6 6 5 4 7 1 3 2 9 8 3 9 7 6 2 8 1 5 4 3 1 9 7 2 5 6 4 8 5 4 6 1 9 8 7 2 3 7 2 8 3 6 4 1 9 5 4 9 1 8 5 6 3 7 2 2 5 3 9 7 1 8 6 4 6 8 7 2 4 3 5 1 9 9 3 4 6 8 7 2 5 1 8 6 5 4 1 2 9 3 7 1 7 2 5 3 9 4 8 6 5 2 1 9 3 4 8 7 6 9 6 7 8 1 2 5 4 3 8 3 4 6 7 5 2 1 9 1 5 9 4 6 3 7 2 8 3 7 2 1 9 8 4 6 5 4 8 6 5 2 7 3 9 1 6 4 3 2 5 1 9 8 7 7 1 8 3 4 9 6 5 2 2 9 5 7 8 6 1 3 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 9. janúar, 9. dagur ársins 2009 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 e5 7. Rb3 Be6 8. Be3 Be7 9. Dd2 h5 10. 0-0-0 Rbd7 11. h3 Dc7 12. Bd3 h4 13. f4 b5 14. Hhe1 0-0 15. g4 hxg3 16. Hg1 exf4 17. Bxf4 Re5 18. Rd4 Dc5 19. Be3 b4 20. Ra4 Da5 21. b3 Bd7 22. Kb1 Rxd3 23. cxd3 Rh5 24. De2 g6 25. Hdf1 Bxa4 26. bxa4 Dxa4 27. Rb3 Db5. Staðan kom upp á öflugu móti sem lauk fyrir skemmstu í Pamplona á Spáni. Ítalska undrabarnið Fabiano Caruana (2.640) hafði hvítt gegn spænska stórmeistaranum Francisco Vallejo-Pons (2.664). 28. Hf5! gxf5 29. Rd4! De5 30. Rc6 Rf4 31. Bxf4 Dxf4 32. Rxe7+ Kh7 33. Rxf5 Kg6 34. Re7+ Kh7 35. Rf5 Kg6 36. Hf1 Dg5 37. h4 Df6 38. Dg4+ Kh7 39. Dh5+ Kg8 40. Rh6+ og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Nikulás Tumi og bræðurir Hlyn- ur og Páll Bjarnasynir voru með tombólu við Hamraborg í Kópavogi í desember og söfnuðu 6.010 kr. og einni evru. Þeir færðu Rauða kross- inum ágóðann. Hlutavelta Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.