Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Aðrar stofnanir og fleira sem kemur málinu við Evruráðið. Þar sitja ráðherrar þeirra ríkja sem hafa tekið evruna upp. Evrópudómstóllinn getur dæmt í öllum málum sem falla undir sameiginlega löggjöf og reglur sambandsins og ráðleggur dómstólum aðildarríkjanna. Einn dómari er skipaður af hverju aðildarríki. Endurskoðunardómstóllinn hefur eftirlit með fjárlögum ESB. Dómstóllinn samþykkti í nóvember síðastliðnum fjárlög ESB fyrir árið 2007. Þetta er töluverður áfangi fyrir framkvæmdastjórn ESB því 13 árin þar á undan hafði dómstóllinn neitað að skrifa upp á fjárlögin vegna óreiðu og lélegs eftirlits með útgjöldum. Framkvæmdastjórnin benti á að um 80% af útgjöldum væru í umsjón aðildarríkjanna en endurskoðunardómstóllinn hefur á hinn bóginn sagt að það sé á ábyrgð framkvæmdastjórnarinnar að tryggja að aðildarríkin fari að leikreglum. Í ákveðnum tilfellum gerði dómstóllinn engar athugasemdir við fjárlögin 2007, s.s. við rekstur stofnana sambandsins. Slakar útboðsreglur og ónógt eftirlit var meðal þess sem dómstóllinn gagnrýndi. Mistök hafi verið gerð í um 5% tilvika þegar greitt var úr sjóðum landbúnaðarstefnunnar, sem er stærsti einstaki útgjaldalíðurinn, og í 11% útgjalda byggðasjóðanna. Dómstóllinn tekur fram að mistökin séu ekki endilega merki um svikastarfsemi heldur að ekki hafi verið farið eftir reglum um greiðslur, en reglurnar séu í mörgum tilfellum flóknar. Efnahags- og félagsmála- nefndin veitir umsagnir um lagatillögur framkvæmdastjórnarinnar. Þar sitja um 350 fulltrúar hagsmunasamtaka frá ríkjum ESB. Malta hefur sex fulltrúa, Ísland fengi líklega jafnmarga. Í héraðanefndinni sitja fulltrúar frá bæjar- og sveitarstjórnum og hafa sama hlutverk. Seðlabanki Evrópu ber ábyrgð á peningamálastefnu á evrusvæðinu. Ísland fengi strax fulltrúa í bankaráðinu en kæmist ekki í bankastjórn fyrr en evran yrði tekin upp hér á landi. Ísland yrði hluthafi í Fjárfestinga- banka Evrópu frá upphafi. Fulltrúi Íslands mun taka sæti í stjórn bankans og Ísland fær fulltrúa í framkvæmdastjórn bankans. Íslenska yrði væntanlega eitt af opinberum tungumálum Evrópusambandsins, í það minnsta varð maltneska eitt af opinberum tungumálum ESB (maltneska og enska eru opinber tungumál Möltu). Um þetta yrði þó að semja í aðildarviðræðum. Í það minnsta yrðu allar lagagerðir þýddar á íslensku og skjöl sem ráðherrar fengju í hendur og byggðu ákvarðanir sínar á. Hvort Íslendingar gætu talað íslensku á fundum færi væntanlega eftir því hvort túlkur væri til reiðu. Það hefur reynst þrautin þyngri að fá nægilega marga túlka sem geta þýtt í og úr maltnesku til starfa hjá framkvæmdastjórninni. svipaðri stöðu og Lettland eftir fall Sovétríkjanna en gengu ekki inn í ESB. Þau væru nú í mun verri stöðu. Ef Ísland myndi sækja um aðild, gæti Lettland á einhvern hátt beitt áhrifum sínum til að Ísland fengi sem hagstæðastan samning? „Það fer nú eftir því hvað þið vilj- ið,“ sagði Popens og brosti. Ég á nú aðallega við fiskveiðar. „Við berum sérstakar taugar til Íslands enda varð það fyrst til að viðurkenna sjálfstæði okkar árið 1991. Öll skólabörn í Lettlandi læra þetta. Ef þið næðuð góðum samningi um fiskveiðar myndum við ekki gera athugasemdir, þvert á móti, þið eigið góða vini í Lettlandi. Og við værum mjög ánægðir ef Ísland sækti um að- ild og ynni með okkur. Það er líka betra að vera inni í sambandinu þeg- ar ákvarðanirnar eru teknar.“ CHRISTIAN LEFFLER starfar hjá þeirri deild framkvæmdastjórn- arinnar sem fjallar um samskipti milli stofnana ESB og almannatengsl. Hann gengur framkvæmdastjóra deildarinnar næstur að völdum. M orgunblaðið ræddi við hann fyrir skömmu og spurði hann m.a. út í Lissabon- sáttmálann og fyrirhugaða seinni þjóðaratkvæðagreiðslu Íra um sáttmálann. Írar höfnuðu Lissabon-sáttmál- anum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú á að bera samninginn undir þá á nýjan leik. Er þetta ekki dæmi um að verið sé að fikta við lýð- ræðið, svo ekki sé meira sagt? „Nei, það er ekki mitt álit. Ég geri orð Margot Wallström [fram- kvæmdastjóra] að mínum. Hún var spurð að því eftir að úrslitin lágu fyrir hvort ESB tæki ekkert mark á neitun. Hún sagði að ESB gerði það en í neit- un fælist engin lausn. Það er mikið til í þessu. Staðan er sú að 27 þjóðir og stjórnvöld þeirra verða að finna leiðir til að vinna saman. Ríkisstjórnirnar sömdu um sáttmálann og skrifuðu undir. Síðan þurftu þær að fá hann samþykktan heima fyrir. Eiginlega má segja að þetta sé írskt vandamál því ríkisstjórnin virðist hafa mislesið almenningsálitið heima fyrir. En er það eðlilegt að eitt aðild- arríki hindri óskir 26 aðildarríkja? Við hefðum líka getað sagt, allt í lagi, Írar höfnuðu samningnum. Búið mál. En er það lýðræðislegra? Ekki endi- lega. Við virðum neitun Íra en við þurfum líka að skilja hana. Af hverju hafa þeir áhyggjur? Mislíkar þeim við ESB? Nei, það er ljóst að samkvæmt skoðanakönnunum líkar þeim við veruna í ESB. Þá þarf að spyrja hvers vegna þeir hafi áhyggjur og hvort hægt sé að koma til móts við þær og finna lausnir sem þeir geta sætt sig við og einnig önnur aðild- arríki sambandsins. Þetta er ekki ólýðræðislegt, ég lít svo á að þetta sé hluti af lýðræðislegum samningum.“ Komið hafi verið til móts við Íra, breytingar gerðar og þær breytingar verði væntanlega bornar undir þjóð- aratkvæði. Ekki mælikvarði á lýðræði En Írar eru þeir einu sem kusu um Lissabon-sáttmálann. Það voru engar þjóðaratkvæðagreiðslur í öðrum ríkj- um. „Nei, en það er ekki þar með sagt að Írar hafi gert þetta með lýðræð- islegri hætti en aðrir. Hvert ríki hefur mismunandi aðferðir. Þýska stjórn- arskráin leyfir til að mynda ekki þjóð- aratkvæðagreiðslur. Gerir það Þýskaland ólýðræðislegt? Nei, ég held að lýðræðið standi þar hvað styrkustum fótum. Í Bretlandi er mikið talað um nauð- syn þess að halda þjóðaratkvæða- greiðslu. En sama fólkið og gerir það vill yfirleitt verja Bretland frá af- skiptum ESB og talar þá jafnan um fullveldi þingsins. En bíddu nú við. Ef þú vilt tryggja fullveldi þingsins, hvers vegna viltu þjóðaratkvæða- greiðslu? Í fulltrúalýðræði kjósum við fulltrúa til að grandskoða flókin mál og taka um þau ákvarðanir. Mér finnst þjóðaratkvæðagreiðsla ná- kvæmlega jafn lýðræðisleg eins og ákvarðanir sem teknar eru á þjóð- þingum eftir að málin hafa hlotið ít- arlega umfjöllum.“ Það er auðvelt að færa rök fyrir því að Írar hafi haft hag af aðildinni að ESB. En hvers vegna heldur þú að þeir hafi sagt nei? „Þú getur skoðað rannsóknir sem hafa verið gerðar um það. Eitt var að þeir vissu ekki mikið um sáttmálann og nei-herferðin ýtti undir þessa til- finningu með slagorðinu „Ef þú ekki veist, segðu nei“ (Dońt know, vote no). Þetta var í sjálfu sér snjallt slagorð. Úr því að margir þekktu ekki mál- efnið, var líka nokkuð um misskilning. Ef litið er á málefnin þá höfðu margir áhyggjur af því að breyting yrði á stöðu Írlands sem hlutlauss lands, að sáttmálinn hefði áhrif á löggjöf um fóstureyðingar og af skattlagningu. Það er auðvitað þverstæðukennt að þetta hafi verið notað sem ástæða til að segja nei við Lissabon-sáttmál- anum því í honum var nákvæmlega ekkert sem breytti þessum málum.“ Samkvæmt Lissabon-sáttmálanum væri öllum aðildarríkjum tryggður einn framkvæmdastjóri [af 27] fram til 2014 en þá kemur fyrirkomulagið til endurskoðunar. Leffler bendir á að samkvæmt Nice-sátttmálanum, sem nú er í gildi og mun gilda áfram, verði Lissabon-sáttmálinn ekki sam- þykktur, sé beinlínis skylda að fækka framkvæmdastjórum.  Lengri útgáfa af viðtalinu er á mbl.is/esb Þverstæðukennd neitun Íra  Ekkert endilega lýðræðislegra að bera nýjan sáttmála ESB undir þjóðaratkvæði  Þjóðaratkvæðagreiðslur bannaðar í Þýskalandi en landið samt mjög lýðræðislegt Cristoper Leffler Það kemur í bakið á mönnum Viðtal við Normund Popens, fasta- fulltrúa Lettlands gagnvart ESB mbl.is | Sjónvarp Eftir að kjósendur í Frakklandi og Hollandi höfnuðu stjórnarskrár- sáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2005 var samið um nýjan sáttmála, Lissabon-sáttmálann. Það er í valdi aðildarríkjanna að ákveða hvernig skal staðfesta eða hafna sáttmálum og aðeins á Ír- landi er krafa, byggð á dómi Hæsta- réttar Írlands, um að sáttmálar séu bornir undir þjóðaratkvæði. Írar höfnuðu Lissabon-sáttmál- anum í sumar en skömmu fyrir jól samdi írska ríkisstjórnin um tiltekin atriði sem þau telja að hafi átt stóran þátt í „nei-inu“, m.a. munu aðildarríki áfram tilefna einn framkvæmda- stjóra í framkvæmdastjórnina og því var lýst yfir að ESB færi ekki að skipta sér af „siðferðilegum“ málum, s.s. banni við fóstureyðingum og hjónaböndum samkynhneigðra. Gert er ráð fyrir að Lissabon-sáttmálinn, með fyrrnefndum breytingum, verði aftur borinn undir atkvæði á Írlandi í haust. Gagnrýna lýðræðishalla Gagnrýnendur ESB segja oft að sambandið sé ólýðræðislegt, m.a. vegna þess að borgarar ráði engu um skipan í framkvæmdastjórnina og almenningur fái sjaldan eða aldrei tækifæri til að kjósa um sam- bandið og stefnu þess. Fylgjendur Lissabon-sáttmálans hafa á móti m.a. bent á lýðræði aukist í starfi ESB, m.a. vegna auk- inna valda Evrópuþingsins. Þar að auki geri Lissabon-sáttmálinn ráð fyrir að þjóðþing ríkjanna fái form- lega aðkomu að lagasetningu ESB, þó hún sé takmörkuð. ESB þarf nú að láta þjóðþing vita af því hvaða lagasetning sé í pípunum og þingin hafa átta vikur til að koma at- hugasemdum á framfæri. Ef meiri- hluti þjóðþinga er andvígur fær málið sérstaka umfjöllun á Evr- ópuþinginu og í ráðherraráðinu. Þingin geta hins vegar ekki stöðvað lagasetningu, aðeins gefið gula (eða appelsínugula) spjaldið. Langvinnar raunir Lissabon-sáttmálans Stjórnkerfi og stofnanir | Evrópusambandið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.