Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 3-7, 110 Reykjavík sími 515 5000, www.oddi.is LÆGRA VERÐ - SÖMU GÆÐI Hætt að greiða af RÚV Sveitarfélög og opinberar stofnanir þurfa ekki að greiða nýtt útvarpsgjald Rík- isútvarpsins. Á Landspítalanum sparast t.d. tæpar fjórar milljónir á breytingunni. HVORKI sveitarfélög né opinberar stofnanir rík- isins þurfa að greiða nýtt útvarpsgjald Ríkisút- varpsins. Taka má sem dæmi að Landspítalinn greiddi árlega 3,7 milljónir króna í afnotagjöld. Spítalinn greiddi fullt gjald af fyrsta viðtæki en hálft af öllum öðrum. Anna Lilja Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjárreiðna og upplýsinga hjá Landspítalanum, segir þessar tæpu fjórar milljónir aðeins brota- brot miðað við heildarupphæðina sem þurfi nú að spara á spítalanum, en honum er gert að skera niður um 1.740 milljónir króna. Spítalinn greiði nú hærri fasteignagjöld, svo nemi tugum milljónum króna. „Margt smátt gerir þó eitt stótt.“ Breytingar á tekjuöflun Ríkisútvarpsins spara ferðaþjónustufyrirtækjum skildinginn. Til dæmis greiddu hótel fullt gjald af fyrsta viðtæki en 25% af öðrum. Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ánægjulegt að fyrirtæk- in sjái einhvern kostnað lækka á þessum verð- bólgutímum. „Þetta er eðlilegra gjald vegna þess að erlendir ferðamenn eru ekki hér á landi til þess að horfa á sjónvarp.“ Breytingarnar skipti þó ekki sköpum fyrir fyrirtækin. „En allt telur.“ Allir þeir sem eru yfir sextán ára aldri og að sjö- tugu og eru yfir skattleysismörkum greiða nýja útvarpsgjaldið. Þá eiga allir skattskyldir lögaðilar að greiða gjaldið. Undanskilin álagningu eru dán- arbú, þrotabú og ýmsir lögaðilar, svo sem félaga- samtök og sjálfseignarstofnanir sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni. gag@mbl.is TEYMI frá Alþjóða Rauða krossinum og palestínska Rauða hálfmánanum fékk í fyrsta sinn í fyrradag leyfi ísraelska hersins til að senda sjúkrabíla til að vitja fólks í Zaytun-hverfi Gazaborgar en beðið var um aðstoð þar 3. janúar vegna sprengjuárásanna. Starfsmenn Rauða krossins og Rauða hálfmánans fóru um sundurtætt hverfið og fundu fjögur börn sem biðu við lík móður sinnar í einu húsanna. Í næstu húsum fannst einnig fjöldi látinna. Alls voru um 30 særðir fluttir úr hverfinu. Flytja varð börnin og hina særðu á ösnum hluta leið- arinnar því herinn hafði rutt upp hervirkjum allt í kring og því ekki hægt að koma sjúkrabílunum að. Fjöldi særðra á þessum slóðum bíður enn aðstoðar. Rauði krossinn telur ljóst að Ísraelsher hafi í þessu til- felli brotið gegn alþjóðlegum mannúðarlögum, og krefst þess að sjúkrabílar Rauða hálfmánans fái vernd til að sinna skyldum sínum og leyfi til að aðstoða og leita særðra borgara á átakasvæðunum, segir í frétt frá Rauða krossi Íslands. Hrikaleg aðkoma hjálpar- liða í Zaytun-hverfi á Gaza Fundu fjögur börn sem biðu við lík móður sinnar ÁLFHEIÐUR Ingadóttir, þing- maður Vinstri grænna, gerði flestar at- hugasemdir við ræður annarra þingmanna á ný- liðnu haustþingi. Samkvæmt yf- irliti Alþingis gerði Álfheiður 76 athugasemdir og talaði í 120 mínútur. Þegar við bætast 74 ræð- ur sem stóðu í 447 mínútur er nið- urstaðan sú að Álfheiður fór 150 sinnum í ræðustólinn og talaði í samtals 567 mínútur. Næstur í röðinni var flokksbróðir Álfheiðar, Jón Bjarnason, sem gerði 69 athugasemdir og talaði í 128 mínútur. Þegar við bætast 45 ræður sem stóðu í 429 mínútur ger- ir það 554 mínútur í ræðustólnum. Aðrir þingmenn sem gerðu fleiri en 50 athugasemdir eru Pétur H. Blöndal (64), Grétar Mar Jónsson (62), Árni Þór Sigurðsson (58), Árni Páll Árnason (53), Sturla Böðv- arsson, forseti Alþingis (52), og Ög- mundur Jónasson (52). Ræðukóng- ur haustþingsins, Guðjón Arnar Kristjánsson, gerði 29 athugasemd- ir og talaði í 43 mínútur. Þegar við bætast 54 ræður sem stóðu í 541 mínútu gerir það samtals 584 mín- útur í ræðustólnum. Margfaldur ræðukóngur þings- ins, Steingrímur J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, gerði 44 at- hugasemdir og talaði í 68 mínútur. Þegar við bætast 54 ræður sem stóðu í 469 mínútur gerir það 537 mínútur samtals. sisi@mbl.is Álfheiður gerði flestar athugasemdir Álfheiður Ingadóttir GUÐMUNDUR Steingrímsson, varaþingmaður Samfylking- arinnar, sem genginn er í Framsókn- arflokkinn, hyggst tilkynna Alþingi að hann taki ekki oftar sæti á þingi á kjörtímabilinu. Guðmundur er fyrsti varaþingmaður Samfylking- arinnar í Suðvesturkjördæmi, og hefur þrisvar tekið sæti á Alþingi. Fyrsti varamaður verður nú Tryggvi Harðarson. sisi@mbl.is Tekur ekki sæti á Alþingi Guðmundur Steingrímsson ALLT fór friðsamlega fram þegar um 300-400 manns mótmæltu fyrir utan sendiráð Bandaríkj- anna við Laufásveg. Mótmælendur hlýddu á ræðu Sveins Rúnars Haukssonar, formanns Fé- lagsins Ísland-Palestína, og í kjölfar ræðunnar afhenti hann starfsmanni sendiráðsins yfirlýs- ingu félagsins. Mótmælin voru undir yfirskriftinni „Sýnum samstöðu – Stöðvum fjöldamorðin“ og var stuðn- ingi Bandaríkjanna við árásir Ísraela á Gaza- svæðið mótmælt. Eftir um 45 mínútur var farið að þynnast verulega í hópi mótmælenda. Um tíu til fimmtán lögreglumenn stóðu vakt- ina auk öryggisvarða sendiráðsins en ekki þurfti að beita valdi Um 300-400 manns mótmæltu við sendiráð Bandaríkjanna Stuðningi við árásir Ísraela mótmælt Morgunblaðið/Kristinn RAUÐI kross Íslands sendi í gær 10 milljónir króna til neyðaraðstoðar Alþjóða Rauða krossins á Gaza-svæðinu. Rúmar sex milljónir eru framlag frá ríkisstjórn Íslands en tæpar fjórar milljónir úr hjálparsjóði Rauða krossins. Forgangsverkefni Al- þjóða Rauða krossins í Palestínu er að aðstoða sjúkrahús á Gaza- svæðinu og sjá þeim fyrir nauðsynlegum birgðum af lyfjum, blóði og skurðáhöldum. Pálína Ásgeirsdóttir hjúkr- unarfræðingur, einn reyndasti sendifulltrúi Rauða kross Íslands á átakasvæðum, hefur yf- irumsjón með heilbrigð- isverkefni Rauða kross- ins í Gaza og á Vestur- bakkanum. Þrjú læknateymi og fjórir sjúkrabílar Rauða hálfmánans í Palestínu hafa orðið fyrir skotár- ásum Ísraela meðan þau voru að sinna útköllum síðan átökin brutust út 27. desember. Einn sjálf- boðaliði Rauða hálfmán- ans lét lífið við hjálpar- störf sín í byrjun janúar. 10 milljónir til neyðaraðstoðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.