Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SAMNINGUR Vega- gerðarinnar og Samskipa um rekstur Grímseyjar- ferjunnar Sæfara hefur verið framlengdur til næstu tveggja ára. Land- flutningar-Samskip hafa annast rekstur ferjunnar óslitið í rúm 12 ár eða frá 1. maí 1996. Í tilkynningu frá Sam- skipum segir að nokkur aukning hafi verið milli ára í farþegaflutningum með Sæfara, fyrst og fremst yfir sumartímann. Aukningin milli áranna 2007 og 2008 hafi t.d. verið allt að 40% og muni þar sérstaklega um fjölgun far- þega til og frá Grímsey. Farþegar með ferjunni í fyrra voru 4.821. Nýr Sæfari, sem getur tekið allt að 108 farþega og 160 tonn af varningi, var tekinn í notkun í fyrra. Siglt er þrisvar í viku á milli Dalvíkur og Grímseyjar; á mánu- dögum, miðvikudögum og föstu- dögum, en tvisvar í viku á milli Dalvíkur og Hríseyjar; á þriðju- dögum og fimmtudögum. Vilja örva ferðamanna- strauminn til Grímseyjar Grímseyingar hafa mikinn hug á því að boðið verði upp á helgarsigl- ingar til Grímseyjar í tilrauna- skyni í 1-2 mánuði í sumar, til þess að örva ferðamannstraum til eyj- arinnar. Að sögn Garðars Ólasonar sveitarstjóra hyggjast þeir senda erindi þess efnis til Samskipa á næstunni. Hugmyndin sé að sigla til Grímseyjar á laugardagsmorgn- um og til baka síðdegis á sunnu- dögum, þannig að fólk geti eytt sólarhring í eyjunni. Ætlunin sé að bjóða upp á skoðunarferðir, sigl- ingu í kringum eyjuna og annað sem ferðafólk hafi hug á. Gistiað- staða er fyrir allt að 50 manns í Grímsey. Veitingahúsið Krían muni síðan bjóða upp á matseðil með hráefni úr Grímsey. Straumur ferðamanna til Gríms- eyjar hefur farið vaxandi á und- anförnum árum. Hafa Íslendingar jafnt og útlendingar lagt leið sína í nyrstu byggð Íslands. Grímseyjarferjan Sæfari er um 40 metra löng og 10 metra breið, smíðuð árið 1992, en keypt hingað til lands í desember 2005. Voru umtalsverðar endurbætur gerðar á skipinu hérlendis, áður en það var tekið í gagnið í apríl 2008. Endurbygging Sæfara var mikið í fréttunum í fyrra enda fór kostn- aður langt fram úr áætlunum. Að sögn Sigurjóns Herbertssonar skipstjóra hefur skipið reynst afar vel, en sjór getur orðið úfinn á Grímseyjarsundi á veturna. „Sæ- fari er afar gott sjóskip,“ segir Sigurjón skipstjóri. Grímseyingar vilja helgarferðir Skipstjórinn segir Sæfara gott sjóskip og hann hafi reynst vel í vetur Morgunblaðið/Skapti REYKJAVÍKURBORG hefur hlot- ið tilnefningu ATCM-samtakanna til verðlauna í flokknum Miðborg- arreynsla fyrir góðan árangur í að draga úr veggjakroti og til- heyrandi eignaspjöllum á árinu 2008, segir í tilkynningu frá borg- inni. ATCM eru alþjóðleg samtök á sviði borgauppbyggingar í Evr- ópu, og eiga hundruð borga og bæja aðild að samtökunum. Tilnefningin kemur í kjölfar út- tektar og samanburðar á ástandi miðborgar Reykjavíkur frá vori til loka ársins 2008. Þykir árang- ur í viðureigninni við veggjakrot í miðborg Reykjavíkur einstakur að mati dómnefndar ATCM. Aðrar tilnefningar í sama flokki hlutu borgirnar Leeds, Rochdale, Newcastle og Belfast. Tilkynnt verður hvaða borg hlýtur verðlaunin á sérstakri verðlaunahátíð í Lundúnum þann 26. mars næstkomandi. Árangur með veggjakrot ÁTVR hefur fengið nokkur erindi frá viðskiptavinum sínum í kjölfar fréttar um fyrirhugaða lokun vín- búðarinnar í Spönginni í Grafarvogi. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoð- arforstjóri ÁTVR, segir að þetta séu viðbrögð sem búast hafi mátt við. Á bloggsíðum hafa íbúar í Graf- arvogi bent á að það sé einkennilegt að loka einu vínbúðinni í 18 þúsund manna íbúðahverfi, sérstaklega í ljósi þess að búðin hafi verið valin Vínbúð ársins bæði 2006 og 2007. Það er ÁTVR sem veitir þessa nafn- bót og er þá litið til ýmissa þátta varðandi rekstur og þjónustu. Sigrún Ósk segir að það sé vissu- lega rétt að þjónusta vínbúðarinnar hafi þótt framúrskarandi. Hins veg- ar hafi húsnæðið verið lítið og óhent- ugt og vöruúrval minna en við- skiptavinir óskuðu eftir. Að sögn Sigrúnar Óskar munu íbúar Grafarvogs fá sína vínbúð að nýju. Leitað verði eftir stærra og hentugra húsnæði. Það muni svo fara eftir framvindunni í þjóðfélag- inu hvenær ÁTVR telji raunhæft að opna nýja búð. sisi@mbl.is Búð ársins slegin af  ÁTVR fær pósta vegna lokunarinnar Morgunblaðið/Kristinn. Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s. Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Tækniþróunarsjóður kynnir nýjar áherslur í starfsemi sinni og sprotafyrirtæki kynna nýsköpun á sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um helgina. og nýsköpun Vaxtarsprotar Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9. og 10. janúar. Dagskrá föstudag 9. janúar 14:00 - 17:00 14:00 Ávarp iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar 14:15 Nokkur verkefni styrkt af Tækniþróunarsjóði, kynning og sýning Dagskrá laugardag 10. janúar 12:00 - 17:00 12:00 Sýning sprotafyrirtækja opnuð 13:00 Brúarsmíði sjóða og sprota, Tækniþróunarsjóður, Nýsköpunarsjóður, Impra og Innovit Þátttakendur Marorka • Mentor • Mentis Cura • ORF • Kine • Stjörnu-Oddi • Handpoint • Eff2 Clara • TellmeTwin • Matís • Nýsköpunarmiðstöð Íslands Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi sprotafyrirtækja og opinberan stuðning við nýsköpun. Þann 5. janúar 2009 auglýsti BBR ehf. að félaginu ber samkvæmt X. kafla laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti að gera öðrum hluthöfum Exista hf. yfirtökutilboð. Í auglýsingunni kom fram að gildistími væri frá frá kl. 9 árdegis þann 9. janúar 2009 til kl. 4 síðdegis þann 19. mars 2009. Það tilkynnist hér með að tilboðsyfirlit hefur ekki fengist staðfest og að gildistöku tilboðsins er frestað um óákveðin tíma. Auglýst verður aftur þegar gildistaka tilboðsins liggur fyrir. Yfirtökutilboð til hluthafa í Exista hf. frestað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.