Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 14
SÝNINGIN Ferðalög og frístundir verður haldin í Íþrótta- og sýning- arhöllinni í Laugardal dagana 8.- 10. maí nk. Þar mun sameinast á einum stað allt sem viðkemur ferðalögum, frístundum og afþrey- ingu, innanlands og utan. Kjarninn á ferðasýningunni verður ferða- torgið þar sem ferðamálasamtök landsins kynna hver sinn lands- hluta og ferðaþjónustu á sínu svæði. Sýningin Golf 2009 verður einnig haldin samhliða ferðasýn- ingunni. Frístundasýning 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 STJÓRN Kvennahreyfingar Sam- fylkingarinnar fordæmir innrás Ísraelshers á Gaza. Loftárásir og innrás hersins bitnar helst á íbúum svæðisins sem þegar búa við kröpp kjör. Ekkert réttlætir ofbeldi gegn saklausum borgurum; konum, börnum og öldruðum. Viðvarandi skortur á mat, vatni, rafmagni, lyfj- um og öðrum nauðsynjum hefur verið á svæðinu svo mánuðum skiptir. Stöðugar árásir Ísraelshers og bardagar við palestínska skæru- liða gera hjálparsamtökum það nánast ómögulegt að koma hjálp- argögnum til íbúa á Gaza. „Stjórn Kvennahreyfingar Sam- fylkingarinnar tekur undir með Friðarráði ísraelska og palest- ínskra kvenna og krefst þess að árásum ísraelshers á Gaza verði hætt án tafar.“ Fordæma árásir Ísraelshers á Gaza SÉRA Þórhallur Heimisson hefur í samstarfi við Kjalarnesprófasts- dæmi ákveðið að bjóða upp á nám- skeið í öllum sóknum prófastsdæm- isins á næstu vikum undir yfirskriftinni „10 leiðir til lífsham- ingju“. Námskeiðin eru ókeypis og öllum opin. Þau verða auglýst nán- ar síðar. Leiðir til hamingju SKESSUHORN stóð fyrir vali á Vestlendingi ársins og var það Erla Björk Örnólfsdóttir, forstöðumaður Varar – sjávarrannsóknaseturs við Breiðafjörð, sem hlaut þann titil. Í rökstuðningi dómnefndar segir að Erla hafi unnið frábært braut- ryðjandastarf og miðlað vísinda- starfi inn í skóla til ungs fólks. Vestlendingur ársins MEÐ fullri sanngirni má halda því fram að greiðslur landsmanna vegna Icesave-málsins muni nema andvirði a.m.k. 40 framhaldsskóla á ári – næsta áratuginn. „Allir raunsæir menn sjá að það er með öllu óraunhæft að leggja slíkar drápsklyfjar á fámenna þjóð,“ segir í tilkynningum frá Röddum fólks- ins. Raddir fólksins fordæma „máttlítil og ómarkviss“ viðbrögð ríkisstjórnarinnar við árásum Breta. „Nýta á einn kost af þremur í lögsókn á hendur breskum stjórn- völdum og gefa ádrátt um mögu- lega kæru til Mannréttinda- dómstólsins.“ „Drápsklyfjar“ STUTT Heimildamynd eftir Friðrik Þór Friðriksson www.solskinsdrengurinn.is SÓLSKINSDRENGURINN Verkefnið er styrkt af Kom einhverfur hugur manninum til tunglsins? HV ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA Eftir Jón Pétur Jónsson jonpetur@mbl.is MUNNLEGUR málflutningur fór fram í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær þar sem tekist var á um þá kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar að rannsókn á skattahluta Baugsmálsins yrði dæmd ólögmæt. Til vara er þess krafist að Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, víki sæti sökum van- hæfis. Ákæruvaldið fer hins vegar fram á að mál- inu verði vísað frá og til vara að það beri að hafna öllum kröfum verjanda um niðurfellingu málsins. Arngrímur Ísberg héraðsdómari tók málið til dómsmeðferðar að málflutningi loknum. Gísli Hall hélt uppi vörnum fyrir Jón Ásgeir í umboði Gests Jónssonar, sem var fjarverandi sök- um veikinda. Að sögn Gísla er óviðeigandi að það sé verið að gefa út ákæru í þriðja sinn í sama máli á hendur Jóni Ásgeiri auk þess sem það sé ólíðandi hve lengi málið hafi dregist. Ljóst væri að rétt- urinn til réttlátrar málsmeðferðar væri brotinn. Þriðja ákæran á hendur Jóni Ásgeiri var gefin út hinn 18. desember sl. „Það er búið að verjast mörgum ákærum í þessu eina og sama Baugsmáli, sem hófst í ágúst 2002. Það kemur að því að það þurfi að fá dómsúrslausn um það hversu langan tíma rannsóknarar fái til að ljúka rannsókn mála,“ segir Gísli. Aðspurður segir hann að það sé eðlilegt að þetta sé gert með þessum hætti, þ.e. að höfðað sé sér- stakt dómsmál. „Það er gert ráð fyrir því að það sé hægt að fá dómsúrlausn um lögmæti rannsóknar með þessum hætti Annars geti menn beðið fram í það endalausa.“ Gísli benti jafnframt á að báðir aðilar, þ.e. ákæruvaldið og verjendur, væru sammála um það að drátturinn á meðferð málsins væri óhæfilegur. Hann segir að ríkissaksóknari hafi sett fordæmi um að mál, sem hafi dregist óhæfilega lengi að rannsaka, skuli vera fellt niður. Hvað varðar hæfi Helga Magnúsar segir Gísli: „Við teljum að hann hafi farið yfir strikið í sam- skiptum við fjölmiðla. Einnig er það sérkennilegt að saksóknari sé vitni í sama málinu. Hann tengist málinu með þeim hætti að það er ekki trúverðugt að hann sé hlutlaus á sama tíma. Ásýndin er þann- ig.“ Það kom t.d. fram í máli Gísla að það væri óvið- unandi að saksóknari hefði birt fjölmiðlum ákær- una á hendur Jóni Ásgeiri rúmri klukkustund eftir að verjendur fengu hana í hendur. Hann segir að þetta sé brot á reglum um meðferð opinberra mála. Kristín Jóhannesdóttir, systir Jóns Ásgeirs, sem var einnig birt ákæra 18. desember sl. vegna meintra skattalagabrota, hefur sömuleiðis höfðað mál þar sem þess er krafist að rannsóknin verði dæmd ólögmæt. Munnlegur málflutningur í máli hennar og ákæruvaldsins fer fram mánudaginn 12. janúar nk. Tekist á um lögmæti „Búið að verjast mörgum ákærum í þessu eina og sama Baugsmáli“ Morgunblaðið/Ómar Jón Ásgeir Jóhannesson Krefst þess að rannsókn á meintum skattalagabrotum verði dæmd ólögmæt. „Þessari rannsókn er lokið og svo tekur við dómsmeðferð með ákæru. Þar er hægt að hafa uppi allar þessar sömu kröfur,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, og vísar til rannsóknar ákæruvaldsins á meint- um skattalagabrotum Jóns Ásgeirs Jóhann- essonar. Þá segir hann að það sé óeðlilegt að tveir héraðsdómarar við sama dómstólinn fjalli um kröfu innan sama máls. Slíkt standist ekki eðli laganna. Þrátt fyrir að ekki sé skýrt kveðið á um þetta í lögunum sé þetta „svo langt frá eðli- legum skilningi á lögunum að það sé hægt að halda svona máli til streitu.“ Hann tekur það hins vegar fram að það sé ekki vilji ákæruvaldsins að sakborningar verði fyrir réttarspjöllum. „Teljist sækjandi vanhæfur af þessum sjónarmiðum, sem þó er hægt að hafa uppi í ákærumálinu, þá verður hann vænt- anlega að víkja við meðferð þess máls. Og ef eitthvert ólögmæti er við útgáfu ákæru eða rannsókn málsins verður málinu væntanlega bara vísað frá.“ Óeðlilegt að tveir dómarar fjalli um kröfu innan sama máls Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is UM 70 umsóknir hafa borist um aðstöðu á Torginu við Austurvöll, viðskiptasetri Nýsköpunarmið- stöðvar Íslands, frá því að það var opnað fyrir um það bil mánuði. Að- staðan er fyrir einstaklinga sem eru að skapa sér atvinnutækifæri með aðstoð Nýsköpunarmið- stöðvar, Landsbankans og Sam- taka starfsmanna fjármálafyr- irtækja, að sögn Berglindar Hallgrímsdóttur, framkvæmda- stjóra Impru, deildar innan Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands. Nú þegar hafa verið settar á laggirnar 11 starfsstöðvar á Torg- inu sem er í húsnæði sem Lands- bankinn hafði á leigu. Ákveðið var að nýta það fyrir starfsemi sprota- fyrirtækjanna sem er af marg- víslegum toga. Þar eru meðal ann- ars hreyfimyndagerð, vinnsla við táknmálsvef, iðn- og vöruhönnun, fjármálaráðgjöf og hugbún- aðarþróun svo eitthvað sé nefnt. „Við hjálpum þeim að koma sér af stað og veitum þeim ráðgjöf og handleiðslu og greiðum úr þeim málum sem kunna að koma upp,“ segir Berglind. Alls er gert ráð fyrir því að um 20 sprotafyrirtæki geti verið með aðstöðu á Torginu, að sögn Elvars Knúts Valssonar verkefnisstjóra en hann er einn þeirra sem veita sprotafyrirtækjunum ráðgjöf. „Það munu hins vegar verða um 30 starfsstöðvar fyrir sprotafyrirtæki í húsnæði Nýja Glitnis í Lækj- argötu. Við erum að vinna að því að geta aðstoðað fleiri sprotafyr- irtæki því að við höfum því miður þurft að vísa frá áhugaverðum hugmyndum. Vonandi getum við veitt fleiri frumkvöðlum og sprota- fyrirtækjum svipaða aðstoð í ná- inni framtíð.“ 70 umsóknir um aðstöðu fyrir ný sprotafyrirtæki í kjölfar kreppu Morgunblaðið/Valdís Frumkvöðlar Hópur sem vinnur að stofnun fyrirtækja með aðstoð Nýsköp- unarmiðstöðvar, Landsbanka og Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.