Morgunblaðið - 09.01.2009, Side 20

Morgunblaðið - 09.01.2009, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009 BALDUR ÞÓRHALLSSON, pró- fessor í stjórnmálafræði við Há- skóla Íslands, hefur rannsakað hvaða áhrif smáríki hafa innan ESB. F lest mál hjá Evrópusamband- inu eru afgreidd með sam- hljóma samþykki. Það er ætíð reynt að ná samstöðu um afgreiðslu allra mála áður en gripið er til atkvæðagreiðslu,“ segir Baldur. Það gefi villandi mynd af völdum ríkja, stórra og smárra, að telja fjölda þingmanna á Evr- ópuþinginu, atkvæði í ráðherra- ráðinu eða fjölda framkvæmdastjóra vegna þeirrar hefðar ESB að ætíð er reynt að ná sátt. Hitt sé miklu auð- veldara að segja bara að Ísland fengi 1% atkvæða og það jafngilti 1% áhrifum. Raunveruleikinn sé alls ekki svona. Baldur segir að smáríki líkt og Ís- land geti haft veruleg áhrif í afmörk- uðum málaflokkum og langt umfram það sem fjöldi Íslendinga segi til um. Lykillinn að áhrifum smáríkja sé að þau for- gangsraði og beiti sér ekki í öllum málum, heldur að þeim mála- flokkum sem skipta þau mestu. Írar hafi ein- beitt sér að landbún- aðar- og byggðamálum með góðum árangri. Ís- land myndi einbeita sér að sjávarútvegsmálum og orkumálum og vænt- anlega einnig landbún- aðar- og byggðamálum en vera sveigjanlegra í öðrum málaflokkum. Samkvæmt Lissa- bon-sáttmálanum má taka ákvarð- anir með svokölluðum auknum meirihluta í fleiri málum sem þýðir að ríkin hafa ekki lengur formlegt neitunarvald gagnvart þeim. Baldur segir að þetta breyti litlu um stöðu smáríkja. Ástæðan sé sú að nánast aldrei sé kosið um mál, held- ur reynt til þrautar að komast að niðurstöðu sem allir sætti sig við. Oftast ekki kosið Í rannsókn sem Baldur gerði kom í ljós að á árunum 1999-2004 mátti í 70% tilvika taka ákvarðanir í ráð- herraráðinu með auknum meirihluta. Í 85% tilfella var ekki gripið til kosninga, heldur náðist sam- komulag milli aðild- arríkjanna. Baldur segir að auk þessa hafi smáríkin ekki beitt neitunarvaldi þó að þau hafi til þess formlegan rétt í til- teknum málaflokkum. Ástæðan sé sú að smáríkin óttist að á þau verði ekki hlustað og beiting þess skaði þau til langframa. En geta hin ríkin ákveðið það að þau ætli bara ekki að hlusta á það ef eitthvert ríki beitir neitunarvald? „Í fyrsta lagi er mjög sjaldgæft að ríki hóti eða beiti neitunarvaldi. Og á þessu tímabili sem ég hef rannsakað þá voru það sjaldnast smærri ríkin sem greiddu atkvæði gegn tillögu, heldur voru það stóru ríkin. Og það virðist vera að þessi hefð innan ESB, að leita eftir samhljóma samþykki, geri það að verkum að smærri ríkin þurfa ekki á neitunarvaldi að halda. Reglan um aukinn meirihluti kemur í veg fyrir að stóru ríkin stöðvi fram- gang mála og það styrkir því stöðu smáríkja innan sambandsins ef eitt- hvað er.“ En ef í harðbakkann slær? „Smáríkin geta formlega beitt neitunarvaldi. En þau hafa ekki þurft þess. Það sem er aðalmálið í þessu er að innan Evrópusambands- ins er í gildi sú grundvallarregla að aldrei skuli gengið gegn grundvall- arhagsmunum aðildarríkja. ESB tekur ekki ákvarðanir sem ganga gegn grundvallarhagsmunum aðild- arríkis, á því byggist Evrópusam- vinnan.“ Lítil ríki verða að forgangsraða  Villandi að telja bara fjölda atkvæða Íslands í ráðherraráðinu og á Evrópuþinginu  Sjaldan kosið um mál þó heimild sé fyrir því, heldur er reynt til þrautar að semja Hvað er aukinn meirihluti? Þingmenn Evrópuþingsins Núverandi Fjöldi samkvæmt staða Lissabon-sáttmálanum Þýskaland 99 96 Bretland 78 73 Frakkland 78 74 Ítalía 78 73 Spánn 54 54 Pólland 54 51 Rúmenía 35 33 Holland 27 26 Belgía 24 22 Grikkland 24 22 Portúgal 24 22 Tékkland 24 22 Ungverjaland 24 22 Svíþjóð 19 20 Austurríki 18 19 Búlgaría 18 18 Danmörk 14 13 Finnland 14 13 Slóvakía 14 13 Írland 13 12 Litháen 13 12 Lettland 9 9 Slóvenía 7 8 Eistland 6 6 Kýpur 6 6 Lúxemborg 6 6 Malta (Ísland fengi jafnmarga) 5 6 Samtals 785 751 Til að hægt sé að samþykkja mál sem krefst aukins meirihluta í ráðherraráðinu þarf 255 atkvæði, þ.e.a.s. 73,9% af heildarfjöldanum. Jafnvel þó að Lissabon-sáttmálinn verði samþykktur verður þetta kerfi óbreytt til 2014. Ef Lissabon-sáttmálinn verður samþykktur breytast reglurnar um aukinn meirihluta og verða með þessum hætti Til að uppfylla kröfur um aukinn meirhluta þarf annað þessara tveggja skilyrða að hafa verið uppfyllt: a) 55% aðildarríkjanna verða að vera samþykk (15 af 27) b) Að minnsta kosti 65% af íbúum ESB verða að búa í ríkjunum sem eru samþykk Til viðbótar verða að minnsta kosti fjögur aðildarríki að vera andvíg ákvörðun til að hægt sé að stöðva hana. Ef færri en fjögur aðildarríki eru andvíg ákvörðun sem er tekin með auknum meirihluta tekur ákvörðunin samt gildi, jafnvel þó að skilyrði um mann- fjölda hafi ekki verið uppfyllt. Sjaldnast er kosið um mál í ráðinu heldur er reynt að komast að niðurstöðu sem öll ríkin geta sætt sig við. Atkvæðavægi og mannfjöldi Mannfjöldi Atkvæði Íbúar á hvert atkvæði Þjóðverjar 82.217.800.000 29 2.835.096.552 Frakkar 63.753.100.000 29 2.198.382.759 Hollendingar 16.217.800.000 13 1.247.523.077 Danir 5.475.800 7 782.257.143 Maltverjar 410.300 3 136.767 Íslendingar 319.756 3 106.585 Atkvæðavægi í ráðherraráðinu Bretland, Frakkland, Ítalía, Þýskaland 29 Spánn, Pólland 27 Rúmenía 14 Holland 13 Belgía, Grikkland, Portúgal, Tékkland, Ungverjaland 12 Austurríki, Búlgaría, Svíþjóð 10 Danmörk, Finnland, Írland, Litháen, Slóvakía 7 Eistland, Lettland, Kýpur, Lúxemborg, Slóvenía 4 Malta (Ísland fengi væntanlega jafnmörg atkvæði) 3 Samtals 345 Baldur Þórhallsson BJÖRG THORARENSEN er prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hennar sérsvið er stjórn- skipunarréttur. B jörg segir að það blasi við að Ísland fengi smæðar sinnar vegna ekki mörg atkvæði í þeim stofnunum Evrópusam- bandsins sem hafa lagasetningarvald, ráðherraráðinu og Evrópuþinginu. Í ráðherraráðinu fengi Ísland um 1% at- kvæðavægi og heldur minna í þinginu. „Þannig að Ísland hefði nú ekki mikið vægi þegar litið er til þeirra form- reglna sem gilda.“ Á hinn bóginn yrði að skoða málið út frá pólitík. Ríki mynduðu bandalög og innan sambandsins væri ávallt reynt að ná samkomulagi. Það væri auðvitað hægt að búa til bandalög en það væri ekki víst að hagsmunir Ís- lands og annarra ríkja færu saman í öllum tilvikum. „Ef Ísland þarf að verja sína sérhagsmuni sem rekast á hags- muni stærri ríkja, þá hefur Ísland ekki möguleika á að hafa mikil áhrif.“ Í sambandinu er sjaldnast gripið til atkvæðagreiðslu og þar er viðleitni til að ná samkomulagi. „Ef aðeins er litið á reglurnar um hvert yrði vægi Íslands í atkvæðagreiðslu ráðherraráðsins eða þingmannafjölda á Evrópuþinginu er það afar lítið. En samkomulag næst um flesta hluti í ráðherraráðinu án þess að á þetta reyni. Náist hins vegar ekki samkomulag hefur Ísland aug- ljóslega lítið að segja um niðurstöðu í slíkum ágreiningi.“ Hún hefur áhyggj- ur af því hvað gerist ef upp koma hagsmunaárekstrar, hagsmunir fari ekki alltaf saman í sambandi svona margra og ólíkra ríkja þar sem stefnt er að einsleitni í lagasetningu. „En auðvitað treystir maður því að í svona stóru samfélagi sé verið að vinna að hagsmunum allra íbúanna í senn.“ Fá atkvæði í hlut Íslands Hvað ef hagsmunir rekast á? Björg Thorarensen NORMUND POPENS er fasta- fulltrúi Lettlands gagnvart ESB. L ettlandi hefur tekist ágætlega að hafa áhrif á þá málaflokka sem skipta landið miklu, s.s. loftslags- og orkumál, að mati Popens. Lettlandi tókst t.d. að tryggja sér tilslakanir varðandi út- blástur á gróðurhúsalofttegunum. Þannig að ESB hlustar á ykkur. Þeir segja ekki bara, æi þeir eru svo litlir og hafa svo lítið vægi í ráð- herraráðinu og svo framvegis? „Nei, ég held að það sé bæði al- menn stefna og hefð innan sam- bandsins að reyna að gera alla ánægða. Það er hvorki vilji fram- kvæmdastjórnarinnar, ráðsins né nokkurra annarra að taka ákvörðun sem veldur einhverju ríkjanna miklum vand- ræðum. Það mun bara koma í bakið á mönn- um seinna. Það er mik- ið reynt að ná sam- komulagi sem allir geta sætt sig við. En raun- veruleikinn er raun- veruleikinn. Stóru að- ildarríkin hafa auðvitað gríðarlegt vægi.“ Lettland er að sigla inn í kreppu og það var engin tilviljun að þegar blaðamaður Morg- unblaðsins var á skrifstofu Popens í Brussel mætti hann lettneska seðla- bankastjóranum í bið- stofunni því skömmu síðar var greint frá láni Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins og Evrópska seðlabankans til Lett- lands. Hvaða máli skiptir aðild fyrir Lettland með tilliti til krepp- unnar? „Ég held að værum við utan sambandsins væri mun meiri hætta á að kreppan yrði dýpri. Þótt við sjáum fram á kreppu á næsta ári þá held ég að efnahagurinn taki við sér. Það tengist því að við erum hluti af ESB og innri markaðnum. Ef við lítum fram hjá áhrifum evr- unnar og tengingar latsins við hana – hefur aðild að ESB þá skipt máli í baráttunni við kreppuna? „Það hefur verið gripið til ákveð- inna aðgerða. Endurreisnaráætlunin [sem ESB samþykkti í desember] felur meðal annars í sér að Evrópski fjárfestingarbankinn veitir um 30 milljarða evra til að örva efnahagslíf í litlum og meðalstórum að- ildaríkjum. Einnig verður flýtt fyrir útborgun úr félags- og uppbygging- arsjóðum sambandsins. Sumt skiptir okkur ekki máli en annað mun hafa bein áhrif á næsta ári. Og það er auðvitað ekkert leyndarmál að Lett- land er að leita eftir svipuðum samn- ingi við Alþjóðabankann og Ísland fékk [og hefur nú fengið]. Það er heldur ekkert leyndarmál að ESB virðist ætla að fara betur út úr kreppunni en önnur svæði. Ég held að hluti af skýringunni sé sú örygg- iskennd sem felst í því að vera í sam- bandinu. Ef lítið land með eigin gjaldmiðil lendir í vandræðum hefði spákaupmennska og orðrómur miklu meiri áhrif.“ Hvað hefði gerst ef Lettland hefði ekki verið í ESB? „Ég vil helst ekki hugsa um það. En mitt persónulega álit er að við værum í mun verri málum en nú.“ Það nægi að líta á lönd sem voru í Öryggiskennd með aðild að sambandinu  Enginn hefur hag af ákvörðun sem veldur einu ríki miklum vandræðum, slíkt kemur í bakið á mönnum  Stæði Lettland utan Evrópusambandsins, væri mun meiri hætta á að kreppan yrði dýpri Normund Popens Evrópusambandið | Stjórnkerfi og stofnanir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.