Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 23
Fréttir 23ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
Útihurð banað
með keðjusög
ROBERT Kane, 34 ára gamall
Bandaríkjamaður í borginni Scran-
ton í Pennsylvaníu, á nú yfir höfði
sér allt að 37 ára fangelsi. Kane
reiddist mjög granna sínum, Jamie
Zaleski, eftir að gestur hins síð-
arnefnda lagði bíl beint fyrir fram-
an hús Kanes.
Kane barði að dyrum, hellti sví-
virðingum yfir grannann og skipaði
honum að opna, annars myndi hann
tæta hurðina í sundur. Zaleski og
félagar hans flúðu skelfdir út um
bakdyrnar og beitti Kane þá að
sögn sjónarvotta keðjusög til að
búta hurðina í sundur.
Kviðdómur hefur dæmt Kane
sekan um innbrotstilraun, hryðju-
verkahótun og fleiri brot en dómur
hefur ekki enn verið kveðinn upp.
kjon@mbl.is
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BANDARÍSKIR leyniþjón-
ustumenn hafa lengi varið miklu af
tíma sínum í að berjast innbyrðis en
öflun upplýsinga til að tryggja ör-
yggi ríkisins er á hendi margra
stofnana sem halda fast utan um eig-
in hagsmuni. Þekktust er CIA.
Skugginn af fangabúðunum ill-
ræmdu í Guantanamo hefur hvílt ár-
um saman yfir öllu starfi stofnunar-
innar, margir öflugustu
fagmennirnir á sviði leyniþjónustu
hafa með einum eða öðrum hætti
komið þar við sögu. Barack Obama
hefur heitið því að loka búðunum.
En málið er flókið, hvað á að gera við
fangana? Ef öllum er sleppt lausum
og einhver þeirra fremur mann-
skætt hryðjuverk er ljóst að Obama
fær mikinn skell, honum verður
kennt um.
„Búðirnar voru ein af alvarlegustu
mistökum Bush-stjórnarinnar,“
sagði utanríkisráðherra Póllands,
Radek Sikorski, nýlega og er hann
þó dyggur vinur Bandaríkjamanna.
Hann sagðist ekki ákafur í að Pól-
verjar tækju við föngunum.
Obama hefur nú valið Leon Pa-
netta, sjötugan demókrata sem
gegndi starfi skrifstofustjóra í Hvíta
húsinu í tíð Bills Clintons, til að
verða yfirmaður CIA. Panetta hefur
vissulega þann kost að hann er ein-
dreginn andstæðingur pyntinga en
það voru sumir liðsmenn CIA sem
hefðu vafalaust valdið starfinu ágæt-
lega. Reynsla Panetta af leyniþjón-
ustumálum er engin. Skýring manna
Obamas á valinu var að Panetta
hefði reynslu af því að „fá upplýs-
ingar“. En eins og dálkahöfundurinn
Richard Dreyfuss segir í Guardian
er það varla sannfærandi ástæða.
„Ég reikna með að hann endist
þarna í ár. Hann hefur ekkert að
gera í njósna-harðhausana sem ráða
þarna ríkjum og hann hefur ekkert
að gera í hershöfðingjana sem eru að
hamast við að tryggja sér betri tök á
því hve miklu fé skuli varið í leyni-
þjónustuna og hver forgangsröðin
skuli vera.“
Panetta spáð stuttri dvöl
Væntanlegur yfirmaður hefur enga
reynslu af leyniþjónustustörfum
Reuters
Hjólbörutækni Bandarískir herlögreglumenn í fangabúðunum í Guant-
anamo á Kúbu flytja einn fanganna til yfirheyrslu.
FORSÆTISRÁÐHERRA Líbanons,
Fuad Saniora, hefur fordæmt eld-
flaugaárásir sem gerðar voru frá
Líbanon á norðurhluta Ísraels í
gær auk þess sem hann fordæmdi
hefndaraðgerðir Ísraela sem
fylgdu í kjölfarið. Enginn særðist
alvarlega í árásunum.
Hamas-samtökin hafa neitað því
að standa að baki árásunum í gær
og að sögn líbanskra yfirvalda
hafa Hezbollah, samtök herskárra
sjíta sem Ísraelar beittu sér gegn
árið 2006, einnig neitað aðild.
Óttast er að eldflaugaárásirnar
geti haft í för með sér að árásir
Ísraela teygi sig víðar en árásir
ísraelska hersins á Gaza-svæðið
hafa þegar orðið um 700 manns að
bana.
Eldflaugaárásirnar frá Líbanon
í gær komu að mati fréttaskýrenda
ekki á óvart því þar blossa iðulega
upp átök þegar upp úr sýður á
milli Ísraela og Palestínumanna.
Rauði krossinn sakaði Ísra-
elsmenn í gær um óviðunandi tafir
við að hleypa björgunarfólki að
þremur heimilum í Gaza-borg sem
sprengd höfðu verið í loft upp.
Þegar björgunarmenn komust að
húsunum fundu þeir 15 látna og 18
særða í húsunum. Rauði krossinn
segir að Ísraelsher hafi ekki hleypt
björgunarfólki inn í Zaytun-
hverfið í fjóra daga og að sjúkra-
bílar hafi ekki komist leiðar sinnar
vegna vegatálma.
Ísraelar hættu skotárásum í
þrjár klukkustundir annan daginn
í röð í gær til að hleypa mat-
vælasendingum og hjálpargögnum
inn á Gaza-svæðið. Chris Gunness,
talsmaður Sameinuðu þjóðanna,
hefur sagt að sá tími sé of stuttur
og dugi engan veginn til að sinna
vatns- og matarþörf íbúanna.
jmv@mbl.is
AP
Rústir Ísraelar hafa haldið uppi
linnulausum árásum á Gaza-svæðið.
Breiðast
átökin út?
FRANSKI dóms-
málaráðherrann,
Rachida Dati, mætti
galvösk til vinnu
sinnar á miðviku-
dag, fimm dögum
eftir að hún eign-
aðist fyrsta barn sitt
með keisaraskurði.
„Barnsburður er
ekki sjúkdómur,“ sagði Dati, sem
tilkynnti frá sænginni að hún hefði
öll mál í hendi sér.
Mikið er rætt um faðerni barnsins
í Frakklandi og var forvitni almenn-
ings vakin er Dati sagðist lifa
„flóknu einkalífi“. Francois Sar-
kozy, yngri bróðir Frakklands-
forseta, er talinn líklegur faðir. Þá
hafa José-Maria Aznar, fyrrverandi
forsætisráðherra Spánar, og franski
milljarðamæringurinn Dominique
Desseigne barón, verið nefndir.
Faðerni vek-
ur forvitni
Rachida Dati
KÍNVERSKI bóndinn og sjálfmenntaði uppfinn-
ingamaðurinn Wu Yulu lætur heimatilbúið vél-
menni draga sig um heimahagana í nágrenni
Peking. Vélmennið er nýjasta og viðamesta upp-
finning Yulu sem hefur haft brennandi áhuga á
slíkri smíði allt frá æsku. Yulu hóf að hanna og
smíða vélmenni árið 1982 þegar vélmennið Wu
Laoda (fyrsti sonur Wu) leit dagsins ljós.
Wu hefur smíðað vélmenni sem geta klifið
veggi, borið fram vatn, kveikt í sígarettum, leik-
ið á hljóðfæri og skrifað skrautskrift.
Yulu verður að teljast nægjusamur og vist-
vænn uppfinningamaður þar sem vír, málmur,
skrúfur, naglar og annað sem til fellur af rusla-
haugum eru aðalefniviður hans. jmv@mbl.is
Reuters
Ástríðufullur uppfinningamaður
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SAMNINGAVIÐRÆÐUR milli
Rússa og Úkraínumanna um gas-
deilu þeirra fóru út um þúfur í gær.
Embættismenn, sem höfðu milli-
göngu um viðræðurnar fyrir hönd
Evrópusambandsins, kenndu rúss-
neska gasfyrirtækinu Gazprom um
það að þær báru ekki árangur.
Iðnaðarráðherra Tékklands,
landsins sem fer fyrir ESB þetta
misserið, sagði að Gazprom hefði
hafnað tillögu um að óháðir eftirlits-
menn yrðu fengnir til að fylgjast
með gasflutningum til ESB-landa
um leiðslur í Úkraínu. Andris Pie-
balgs, sem fer með orkumál í fram-
kvæmdastjórn ESB, sagði að Rússar
hefðu ekki viljað undirrita sam-
komulag um eftirlitið, m.a. vegna
þess að þeir vildu senda eigin eft-
irlitsmenn til Úkraínu.
Forstjóri Gazprom, Alexej Miller,
kenndi hins vegar Úkraínumönnum
um það að að ekki náðist samkomu-
lag.
Gasflutningar til um tólf ESB-
landa höfðu stöðvast eða minnkað
verulega vegna deilunnar. Um fjórð-
ungur af öllu jarðgasi, sem notað er í
ESB-löndunum, kemur frá Rúss-
landi.
Deilt um eftirlit með
gasleiðslum í Úkraínu
Samningaviðræður um gasdeiluna fóru út um þúfur
Í HNOTSKURN
» Stjórnvöld í Búlgaríu hafaþurft að grípa til þess ráðs
að skammta gas til fyrirtækja
og 75 skólum hefur verið lok-
að vegna skorts á gasi til
kyndingar.
» Ekki var hægt að kyndamörg hús í Búlgaríu og níu
borgum og bæjum í Serbíu
vegna gasskortsins. Mikill
vetrarkuldi er á þessum slóð-
um.