Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
ÉG LEGG mig fram
við að breyta rétt svo sú
hegðun mín geti leitt til
góðrar almennrar
hegðunar. Sé ég ósáttur
breyti ég engu að síður
rétt og stunda ávallt
hreinskiptin og heið-
arleg samskipti. Ég læt
enga hafa áhrif á mig í
þeim efnum.
Á óvissutímum sem nú ríða yfir sam-
félagið allt er til staðar akur þar sem
hægt er að sá neikvæðri umræðu,
rugli, útúrsnúningum og sölumennsku.
Að nota Framsóknarflokkinn í því
skyni er óvirðing við félaga í flokknum
því flokkurinn er það fólk sem í honum
er. Núna sem aldrei fyrr er nauðsyn-
legt að fólk snúi bökum saman – hvar í
flokk sem það skipar sér hverju sinni.
Framsóknarfólk er upp til hópa gott
fólk sem mér þykir vænt um líkt og
mér þykir vænt um aðra félaga mína.
Hver og einn félagsmaður í flokknum
ætti ávallt að hafa að leiðarljósi þá
spurningu hvað get ég gert fyrir flokk-
inn minn en ekki hvað getur flokkurinn
gert fyrir mig. Það eru samvinna og
samábyrgð sem koma samfélaginu og
flokknum best – ekki sundrung og
sundurlyndi. Það eiga fyrrverandi
þingmenn að hafa í huga
eins og aðrir. Framsókn-
arflokkurinn hefur um
þriðjungsfylgi í Norð-
urþingi og á þar þrjá full-
trúa í sveitarstjórn.
Í Norðausturkjördæmi
hefur Framsóknarflokk-
urinn um fjórðungsfylgi
og á þrjá þingmenn á Al-
þingi. Það eru samvinna
og heilindi sem hafa skil-
að þessum árangri.
Vinnubrögð þeirra sem
aðhyllast sjálfshyggju eru
til þess fallin að grafa undan stoðum
samvinnu sem og þeim grunngildum
Framsóknarflokksins sem félagar hans
eiga ávallt að hafa í heiðri. Menn eiga
því að láta af þeirri iðju sinni að kasta
steinum úr glerhúsi en taka þess í stað
upp vinnubrögð uppbyggilegrar um-
ræðu. Mál að linni, saman í samvinnu í
Framsóknarflokknum.
Opið bréf til Bjarna
Harðarsonar
Hjálmar Bogi Haf-
liðason skrifar bréf
til fyrrverandi
þingmanns Fram-
sóknarflokksins
Hjálmar Bogi
Hafliðason
»Ég er stoltur félagi í
Framsóknarflokkn-
um og í mínum huga er
flokkurinn mér fé-
lagsskapur þar sem ég
rækta sjálfan mig.
Höfundur er formaður
Framsóknarfélags Þingeyinga.
ÞAÐ er smám saman að renna
upp fyrir þjóðinni hvað hefur
hent hana á undanförnum árum.
Allar eignir hennar hafa ann-
aðhvort verið teknar af henni
með einkavæðingu eða þær hafa
verið veðsettar að fullu og hún
svipt þeim með þeim hætti. Ráð-
gjafar ríkisstjórnarinnar í einka-
væðingarmálum hafa á und-
anförnum misserum hreykt sér
af þeim „árangri“ sem náðst hafi.
Fyrst hafi kvótinn verið tekinn af
þjóðinni, hann gerður að einka-
eign sem mætti veðsetja og
braska með, síðan hafi fjár-
málastofnanir farið sömu leið og
í kjölfarið aðrar almannaeignir
og að lokum hafi lífeyriskerfi
landsmanna verið sogað inn í
braskið.
„Nú væri gaman að gefa í“ og
halda með enn meiri hraða og af
enn meiri krafti inn í einkavæð-
ingarheiminn, sagði Hannes
Hólmsteinn með glampa í auga í
þættinum Ísland í dag á Stöð 2,
fyrir rúmu ári. Því miður varð
honum að ósk sinni og við vitum
hvernig fór. Ég held að það hafi
verið rétt greining hjá Hannesi
að feigðarflanið hófst með einka-
væðingu kvótakerfisins. En ein-
mitt þar á nú að byrja að vinda
ofan af öfugþróuninni. Ná þarf
að tryggja sjávarauðlindina aftur
í þjóðareign. Sama gildir um
vatnið, heitt og kalt, rafmagnið
og alla grunnþjónustu samfélags-
ins sem ríkisstjórnir undangeng-
inna tveggja áratuga hafa verið
að þoka út á markaðstorgið.
Markaður á að ríkja þar sem
hann gerir gagn. Ekki þar sem
nú hefur sannast að hann gerir
ógagn. Brýnasta verkefni þjóð-
arinnar nú er að ná auðlindunum
til baka. Ef við missum þær úr
hendi til auðmanna innan lands
eða utan þá eigum við okkur ekki
viðreisnar von. Aldrei. Látum
það ekki henda.
Ögmundur Jónasson
Endurheimtum
þjóðareignir
Höfundur er alþingismaður.
ORÐRÓMUR um
að núverandi starf-
semi St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði yrði hætt
átti við full rök að
styðjast. Það sem
gerst hefur er að færa
á meltingarsjúkdóma-
deild St. Jósefsspítala
yfir á Landspítalann
ásamt almennum
skurðlækningum og jafnframt á að
flytja skurðaðgerðir innan kven-
sjúkdómalækninga, bæklunarlækn-
inga og lýtalækninga sem fram-
kvæmdar hafa verið á St.
Jósefsspítala á skurðstofur sem nú
tilheyra Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja í Reykjanesbæ.
Leyndarhjúpur
Þessi orðrómur hefur verið á
sveimi um margra vikna skeið og
hefur það valdið starfsfólki og
skjólstæðingum spítalans vaxandi
særindum og kvíða. Ljóst er að
„leki“ um þessa vinnu kom frá
Landspítalanum en Hafnfirðingar
og aðrir áhugamenn um velferð
spítalans fengu engar upplýsingar.
Fólk fann því til vaxandi hræðslu
um að missa störf sín samtímis því
sem það óttast að áralöng uppbygg-
ing sérfræðiþekkingar fari í
hundana.
Ráðherra heilbrigðismála kaus
hins vegar að viðhafa algera leynd
yfir áformum sínum og hleypti þar
engum að nema völdum aðilum í
ráðuneytinu og á Landspítalanum.
Engar upplýsingar liggja því fyrir,
að umræða á faglegum grunni hafi
farið fram við viðkomandi aðila.
„Samkrull“ eða
aukin miðstýring
Í frétt Morgunblaðsins á Þor-
láksmessu 23.12. sl. kom aðeins
einn viðmælandi blaðamanns fram
undir nafni í umræddir umfjöllun.
Það var Björn Zoëga, fram-
kvæmdastjóri lækninga á Landspít-
alanum. Hann sagði m.a.: „Það er
nú þannig að ef einhverjar breyt-
ingar verða á þessu Stór-Reykja-
víkursvæði, eins og hægt er að lesa
úr fjárlögunum, hafa þær breyt-
ingar auðvitað verið undirbúnar og
unnar hjá heilbrigðisráðuneytinu í
samkrulli við þær einingar sem
þetta hefur áhrif á.
Það þýðir að ég í
minni stjórnunarstöðu
tek þátt í því. En ég
get því miður ekki
sagt meira um þetta
fyrr en lokapunkturinn
er kominn á þetta hjá
ráðuneytinu.“
Þetta er svo sérstök
yfirlýsing að hún verð-
skuldar endurprentun
og nánari skoðun.
Orðalagið „samkrull
við einingar“ ber vott
um valdhroka og má skilja svo að
auka á miðstýringu með því að
stækka Landspítalann enn frekar.
Það er einnig áhugavert að í „sam-
krullinu“ fólst einfaldlega að leggja
niður St. Jósefsspítala í núverandi
mynd.
Þjónusta í 82 ár
Skömmu fyrir jól afhenti
Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar
St. Jósefsspítala að gjöf sérbúnað í
sjúkrastofu á lyflæknisdeild spít-
alans. Þetta er eitt af ótal dæmum
um gjafir velunnara spítalans í
Hafnarfirði á langri farsælli sögu
hans allt frá því að St. Jósefssystur
reistu spítalann 1926. Tryggð Hafn-
firðinga við spítalann er mikil og fé-
lagasamtök, fyrirtæki og ein-
staklingar hafa unnið markvisst að
því að efla og styrkja starfsemi
hans með því að gefa nýjan tækja-
búnað og með öðrum hætti. Á síð-
ustu árum hefur þjónusta melting-
arsjúkdómadeildar spítalans verið í
fararbroddi, skurðstofur verið mjög
vel nýttar og öflug göngudeild
starfað við spítalann. Skemmst er
að minnast þegar keypt voru tæki
til að stórefla starf spítalans við
forvarnir og meðferð meltingar-
sjúkdóma. Lokun hans yrði köld
sending til gefenda og allra þeirra
sem notið hafa sérhæfðrar þjónustu
St. Jósefsspítala.
Ekki má gleyma starfsfólki spít-
alans sem lagt hefur mikinn metnað
í að byggja upp skilvirka, nýja og
sérhæfða þjónustu á síðustu ára-
tugum.
Áhrifin á hafnfirskt samfélag
Það er dapurlegt að alla jólaað-
ventuna var á sveimi orðrómur um
lokun spítalans. Þetta hefur vissu-
lega valdið áhyggjum í hafnfirsku
samfélagi og kvíða meðal starfs-
fólks. Verst þykir mér sem sjálf-
stæðismanni að ráðuneyti heilbrigð-
ismála hefur kosið að hafa algera
leynd um öll áform með spítalann.
Vissulega eru nú erfiðir tíma en
vinnubrögð ráðuneytisins eru engu
að síður í ósamræmi við lýðræð-
islegar hefðir Sjálfstæðisflokksins
og einnig í andstöðu við stefnu hans
um að bjóða upp á skýra valkosti í
heilbrigðisþjónustunni.
Nú hefur sá sem valdið hefur
kveðið upp dóminn en ljóst er að
Hafnfirðingar munu ekki una hon-
um þegjandi. Fréttir herma að hóp-
ur áhugafólks muni andæfa þessari
niðurstöðu ráðherra og skil ég það
mæta vel.
Ég átti von á því allt fram á síð-
ustu stundu að ráðherra auðnaðist
að sjá ljósið og gefa færi á faglegri
umfjöllun um framtíð St. Jós-
efsspítala. Svo varð ekki og lýsi ég
því yfir fullri andstöðu við ákvörðun
heilbrigðisráðherra.
Aðför að St. Jósefsspítala
í Hafnarfirði
Almar Grímsson
skrifar um málefni
St. Jósefsspítala
» Vissulega eru nú erf-
iðir tíma en vinnu-
brögð ráðuneytisins eru
engu að síður í ósam-
ræmi við lýðræðislegar
hefðir Sjálfstæðis-
flokksins.
Almar Grímsson
Höfundur er bæjarfulltrúi.
Tilkynning um innlausn hlutabréfa í Icelandic Group hf.
Eignarhaldsfélagið IG ehf. hefur eignast meira en 9/10 hluta af hlutafé í Icelandic Group hf. Í 24.
og 25. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög er heimild fyrir hluthafa sem á meira en 9/10 hlutafjár
í félagi og ræður yfir samsvarandi atkvæðamagni, að fara fram á að aðrir hluthafar í félaginu
skuli sæta innlausn á hlutum sínum. Eignarhaldsfélagið IG ehf. og stjórn Icelandic Group hf. hafa
komist að samkomulagi um að sá réttur verði nýttur.
Samkvæmt hlutafélagalögum skal tilkynning um innlausn birt með sama hætti og aðalfundarboð.
Kveða samþykktir félagsins á um að það skuli gert með auglýsingu í dagblaði eða á annan
sannanlegan hátt.
Stjórn Eignarhaldsfélagsins IG ehf. hefur ákveðið að innlausnarverð taki mið af nafnvirði
hlutafjár og miðast innlausnarverðið því við kaupgengið 1,0 kr. Með vísan til þess að eigið
fé Icelandic Group hf. samkvæmt 9 mánaða uppgjöri 2008 var neikvætt um 23.952 þús.EUR
telja stjórn Eignarhaldsfélagsins IG ehf. og stjórn Icelandic Group hf. innlausnarverðið vera
hluthöfum hagstætt.
Hlutafjáreign hluthafa tekur mið af stöðu þeirra eftir að hlutafé Icelandic Group hf. var lækkað
til jöfnunar taps líkt og samþykkt var á hluthafafundi félagsins þann 11. nóvember 2008.
Hluthafar eru hér með hvattir til að samþykkja innlausnina og framselja hlutabréf sín í Icelandic
Group hf. til Eignarhaldsfélagsins IG ehf. hið fyrsta og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá
upphafi innlausnartímabilsins, þ.e. fyrir 19. janúar 2009. Innlausnarverðið verður greitt til
hluthafa að loknum framangreindum fresti.
Þeir hluthafar sem ekki samþykkja innlausnina með rafrænum hætti á vefslóð NBI hf. (hér eftir
nefndur Landsbankinn), www.landsbanki.is fyrir 19. janúar 2009 fá söluandvirði hluta sinna greitt
á á geymslureikning á nafn rétthafa. Frá þeim tíma telst Eignarhaldsfélagið IG ehf. réttur eigandi
hlutabréfanna og hlutabréf fyrri eiganda ógild, sbr. 25. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Hlutafélagalög mæla svo fyrir um að vakin skuli athygli á því að vilji hluthafar sem sæta þurfa
innlausn ekki sætta sig við skilmála innlausnarinnar og matsgrundvöll innlausnarverðsins megi
hluthafar skjóta því til ákvörðunar matsmanna sem dómkvaddir skulu á heimilisvarnarþingi
Icelandic Group hf. Ef ákvörðun matsmanna leiðir til hærra innlausnarverðs en boðið er, gildir
það fyrir alla sem sæta verða innlausninni. Kostnaður við ákvörðun verðsins greiðir sá sem
innlausnarinnar krefst nema dómstóll telji, vegna sérstakra ástæðna, að viðkomandi minnihluti
hluthafa skuli að nokkru eða öllu leyti greiða kostnaðinn.
Hluthafar geta framselt hluti sína í Icelandic Group hf. á vefsíðu Landsbankans, www.landsbanki.
is. Hluthöfum er bent á að hafa samband við Fjármálaráðgjafa Landsbankans í síma 410 4040
ef óskað er frekari upplýsinga.
Eignarhaldsfélagið IG ehf.