Morgunblaðið - 09.01.2009, Síða 47
Menning 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
Það er margt stórfurðulegt ímenningarlegri vitund okk-ar Íslendinga. Auðvitað er
hér sem annars staðar marglitt
menningarlíf en sé heildin skoðuð
úr fjarlægð virðumst við nokkuð
grunnhyggin. Langvinsælasta kvik-
mynd síðasta árs hér á landi var
Abba-söngleikurinn Mamma Mia!
Bæði í kvikmyndahúsum og í sölu
mynddiska.
Það er gjörsamlega ómögulegt að
fá þjóðina alla til þess að standa
saman þegar kemur að því að mót-
mæla hvers kyns pólitísku klúðri en
ekkert mál að fá fjöldann til þess að
safnast saman yfir áramóta-
skaupinu, Eurovision eða Gay
pride.
Ef við skoðum þetta nánar þá eraugljós rauður þráður sem
tengir alla þessa hluti. Flestir
myndu skrifa undir að það sem er
talið upp hér að ofan geti flokkast
undir að vera „hálffáránlegt“ eða
„skemmtilega úrelt“. Það er að
segja; allir vita að ekkert af þessu er
neitt sérstaklega svalt, en við sætt-
um okkur við að hafa gaman af því
samt. Aðrir myndu jafnvel þora að
vera svo djarfir að segja að hægt
væri að setja alla þessa hluti undir
þá skilgreiningu að vera ann-
aðhvort stíll eða tíska (sem gætu
hæglega verið önnur orð yfir hefð-
ir) „svo úrelt, tilgerðarleg eða óvið-
eigandi að hægt sé að hafa gaman
af því að taka hana upp“.
Þessi skilgreining er beint upp úr
ensk-íslenskri orðabók Máls og
menningar yfir lýsingarorðið
„camp“. Þar er ekki verið að vitna í
neitt sumarbúðaævintýri heldur er
þetta orðastimpill Breta yfir þær lit-
ríku lífsglöðu persónur (hugsanlega
samkynhneigðar) sem ekki er hægt
að taka alvarlega vegna kjánalegs
háttalags. Þetta eru persónurnar er
sætta sig við að detta annað slagið í
trúðslegt hlutverk sitt aðeins til
þess að framkalla bros á vörum ann-
arra. Í allra sorglegustu tilvikunum
er þetta fólk grátandi inn á við en
brosandi út á við. Og við, sem þjóð,
elskum svona fólk! Ísland er á toppi
ísjakans, mjög camp þjóð!
En hverjir geta þá fallið undirþessa skilgreiningu? Flestir
þeir sem hafa eða eiga eftir að taka
þátt í Eurovision-keppninni eru gott
dæmi. Hvort sem það er Geirmund-
ur Valtýsson, Sigga Beinteins, Eiki
„rauða ljónið“ Hauks, Jónsi, Helga
Möller eða yngra klón hennar Birg-
itta Haukdal.
Við erum Eurovision-sjúk þjóð. Á
meðan aðrar stórþjóðir hafa löngu
afskrifað keppnina og skipta um
stöð um leið og á hana er minnst
byrja menn hér að leggja drög að
stríðsplaninu fyrir næsta ár í byrjun
júní, viku eftir að aðalkeppninni
lýkur. Við erum litli risinn úti í Atl-
antshafi, reiðubúin til þess að gera
nánast hvað sem er til að eiga loks-
ins séns á að vinna stórþjóðirnar í
einhverju … eiginlega sama hverju,
eins lengi og það eru ekki listar yfir
spilltustu eða púkalegustu þjóðir
heims. Í Eurovision finnst okkur við
eiga möguleika, kannski vegna þess
að helstu sigrar landsins út á við
hafa jú verið á tónlistarsviðinu! Þess
vegna eigum við eftir að eyða næstu
mánuðum í að pumpa okkur upp í
sigurgírinn. Eyða næstu vikum í að
ræða hvernig hitt og þetta lag hafi
verið og hvern sé best að senda út til
að massa þetta. Lausnin er auðvitað
afar einföld: Finnum fjóra nýbúa
hér á landi, hvern frá sínu landinu í
Austur-Evrópu, klæðum þá í níð-
þrönga búninga að hætti ABBA og
látum þá flytja lag sem er nauðalíkt
stærstu poppslögurum Páls Óskars!
Getur ekki klikkað.
Það verður nú ekki eins mikiðhúllumhæ hjá RÚV í kringum
forkeppni Eurovision og í fyrra,
sem er kannski bara hið besta mál,
enda var landinn gegnsósa af Euro-
rugli í fyrra í allt of langan tíma áð-
ur en keppnin sjálf fór fram. Nú
hefst forkeppnin aftur á laugardag
og áður en við vitum af verðum við
komin í auga Eurovision-stormsins
á ný. Hægt og rólega mun söng-
gleðin deyfa reiði okkar yfir banka-
hruninu og mótmælendum fer þá ef-
laust fækkandi á Austurvelli. Þess í
stað getur fólk hist á kaffihúsum og
rætt um hvort kjóllinn hennar
Ragnhildar Steinunnar hafi verið
nægilega glæsilegur eður ei. Á með-
an kreppan hirðir svo af okkur þau
litlu fríðindi sem eftir eru getum við
a.m.k. ávallt glaðst yfir því að rík-
issjónvarpið skuli færa okkur eitt-
hvað nægilega skemmtilega hallær-
islegt og „camp“ til þess að gleyma
sorgum okkar í. Og við elskum það
mest af öllu! biggi@mbl.is
Af hverju
löðumst við að
Eurovision?
AF LISTUM
Birgir Örn Steinarsson
Morgunblaðið/Einar Falur
Siguvegarar „Í Eurovision finnst okkur við eiga möguleika, kannski vegna
þess að helstu sigrar landsins út á við hafa jú verið á tónlistarsviðinu!“
» Það er gjörsamlegaómögulegt að fá þjóð-
ina alla til þess að standa
saman þegar kemur að
því að mótmæla hvers
kyns pólitísku klúðri en
ekkert mál að fá fjöldann
til þess að safnast saman
yfir áramótaskaupinu,
Eurovision eða Gay
pride.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„TRANSIT er ástand manns þegar
hann er kominn á stað sem er ekki
ákvörðunarstaður hans, þó þannig að
hann hefur þegar yfirgefið brottfar-
arstað sinn, og oft fyrir þó nokkru, og
er enn að bíða þess að komast áfram
á leið til ákvörðunarstaðar síns.“
Þannig hljóðar upphafið að texta
Hlyns Helgasonar í sýningarskrá
sýningar hans sem opnuð verður í
Suðsuðvestur í Keflavík á morgun,
laugardag, kl. 16. Sýningin heitir
Transit.
Hlynur hefur undanfarin ár unnið
með ljósmyndir og kvikmyndir þar
sem hann vinnur markvisst með stað-
hætti og menningu þess umhverfis
sem sýningin er í. Í Suðsuðvestri
heldur hann uppteknum hætti og
þungamiðja sýningarinnar er unnin í
Reykjanesbæ og á Keflavík-
urflugvelli. Hann velur að nýta bæinn
og stöðu hans til marks um mögu-
leika Íslendinga í samtímanum, skoð-
ar sjónarsviðið í kringum fólkið á ít-
arlegan hátt og varpar myndinni til
baka inn í samfélagið.
Út um frostrósótta glugga
„Þetta er eitt kvikmyndaverk, tek-
ið af landslagi á Keflavíkurflugvelli
þar sem farið er í kringum þyrpingu
af tómum húsum. Auk þess er ég með
fjögur ljósmyndaverk. Eitt þeirra er
stórt og sýnir sjóndeildarhringinn frá
Keflavíkurbæ upp á flugvöll. Verkið
Transit er tekið út um gluggana á
flugstöðinni, af flugvellinum sjálfum í
frosti. Fjórða verkið er tekið vestur í
Dölum í huggulegri snjóstemningu
og heitir Borderspace. Það sýnir
hvernig snjórinn útmáir landamerki,
þar sem snjór þekur læk og grind-
verk fer á kaf. Þetta eru fremur róm-
antískar myndir. Það fimmta er svo
tekið út um gluggana á Tate Modern-
safninu í London og sýnir umhverfið
þar. Þungamiðja verkanna er í Kefla-
vík og sýn fólks út, jafnvel með þrá í
eitthvað annað, og hvernig það reynir
að útmá mörk milli staða.“
Við gætum gleymt okkur
Sjónarröndin, þráin eftir öðru –
biðin, það sem er hinum megin, þetta
er kjarninn í sýningu Hlyns og ég bið
hann að útskýra hugmyndina nánar.
„Kreppan kom inn í miðjan und-
irbúning minn fyrir sýninguna. Þess
vegna langaði mig að skoða veröldina
út frá þjóðfélagsástandinu í dag. Við
erum á vissan hátt í transit-ástandi,
að bíða á ákveðnum stað, komin frá
brottfararstað, en ekki komin í far-
artækið sem ber okkur á áfangastað.
Ef þú horfir á aðra manneskju í flug-
stöð veistu hvorki hvaðan hún er að
koma eða hvert hún er að fara. Allir
möguleikar eru opnir. Sjálf vitum við
hvaðan við komum og hvert við ætl-
um. Við erum bara í tilgangslausri
bið. En ef við horfum á það jákvæða
gætum við gleymt okkur og hætt að
hugsa um biðina. Í því ástandi gæti
eitthvað gerst og möguleikarnir opn-
ast þótt svo gæti virst að þeir væru
lokaðir. Með hugarfari og hugsun er
hægt að útmá landamæri.“
Vildi taka á ástandinu
Hlynur hefur unnið að sýningunni í
18 mánuði en yngstu verkin eru frá
því í nóvember. „Transit-verkið var
komið á borðið hjá mér þegar krepp-
an reið yfir. Í því ástandi vildi ég
vinna önnur verk sem styrktu þá
hugmynd. Ég fann hjá mér þörf til að
taka á ástandinu en ég vildi ekki gera
það beint, heldur á andlega jákvæðan
hátt. Þótt sýningin beinist að vissu
leyti að tóminu og gæti virst þung-
lyndisleg er hugmyndin engu að síður
sú að í gegnum það opnist möguleik-
arnir að jákvæðri hugsun.“
Sýningin er opin á laugardögum og
sunnudögum frá 14-17 til 15. febrúar.
Transit Verkið er tekið út um glugga á flugstöðinni, af flugvellinum í frosti.
Í tóminu opnast möguleikar
Hlynur Helgason
opnar sýninguna
Transit í Suðsuð-
vestur
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
■ 7.-10. janúar 2009
Vínartónleikar í kvöld
Stjórnandi: Markus Poschner
Einsöngvari: Dísella Lárusdóttir
Í kvöld 9. janúar kl. 19.30 - Örfá sæti laus
Á morgun 10. janúar kl. 17.00 - Örfá sæti laus
Nýtt ár hefst með hátíðarbrag á Vínartónleikum
þar sem hljóma sígrænar perlur eftir Strauss,
Lehár og fleiri meistara óperettunar.
Vínartónleikarnir hafa um árabil verið
vinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar
og vissara að tryggja sér miða í tíma.
Húsið opnað klukkutíma fyrir tónleika.
Strengjatríó leikur Vínarvalsa í anddyri.
„Maðurinn hefur numið staðar,
á einskonar ferðamótum þaðan
sem margar leiðir eru færar, og
bíður þess að komast í þá ferð
sem hann ætlaði sér. Margar
leiðir eru færar þaðan sem
hann er staddur, en hann er
ekki óráðinn í því hvert hann
ætlar; þegar maðurinn er í
transit-ástandi er ferðin þegar
ákveðin frá upphafi til enda;
það er bara spurning um bið
eftir réttu farartæki.[…]
Þegar maður er í transit velt-
ur það því á manni sjálfum
hvort maður lætur ástandið
taka yfir, horfir einbeittur fram
á við, lætur sig ekki varða um
annað en leiðina sem farin var
og býr við þennan eina heim
sem er mögulegur því aðrir eru
ekki lengur sammögulegir; eða
hvort maður lætur hugann
reika um sjóndeildarhringinn
og leyfir öllum sammögulegu
heimunum að fylla hugann.
Hvenær sem er, hvar sem er, þá
getur maður kannski losnað úr
transit-ástandinu.“
Hlynur segir: