Morgunblaðið - 09.01.2009, Qupperneq 53
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
HLJÓMSVEITIN Hjaltalín hóf tón-
leikaferðalag um Evrópu í Kaup-
mannahöfn í gær. Framundan eru
17 aðrir tónleikar þar sem hvergi er
slegið slöku við. Fara þeir fram dag-
lega og í eitt skipti verða tveir þeirra
sama dag. Blaðamaður náði í Högna
Egilsson, lagasmið, söngvara og gít-
arleikara sveitarinnar er hann var
þá nýlentur á Kastrup . Hljómsveitin
er sjö manna í þetta sinnið og með í
för eru umboðs- og hljóðmaður.
„Þetta er stærsti túrinn okkar til
þessa og sá fyrsti sem er algerlega
að okkar undirlagi,“ segir Högni en í
endaðan nóvember fór sveitin í
stuttan túr með skömmum fyrirvara
um sömu álfu ásamt nýrokksveitinni
Cold War Kids.
„Sums staðar erum við aðalsveit
en stundum er um hátíðir að ræða.
Þetta er að stofni til kynningartúr
þar sem platan okkar, Sleepdrunk
Seasons, er að koma út í Þýskalandi
og nærlöndum þess. Útgáfan sem
sér um okkur þar heitir Haldern
Pop. Svo er platan líka að koma út í
Frakklandi og Bretlandi á okkar
vegum en það er Cargo sem dreifir.“
Högna líst harla vel á túrinn, segir
staðina líta vel út og hafa gott orð-
spor.
Allt að gerast
„Stærsta giggið er svo Eurosonic,
okkur er a.m.k. tjáð að þeir tónleikar
séu mikilvægir!“
Eðalsendiferðabíl hefur verið
leigður undir hersinguna og sjá með-
limir sjálfir um akstur.
„Þetta er vænsta drossía,“ segir
Högni. „Það er DVD tæki um borð
og Playstation-tölva. Við vorum ein-
mitt að versla okkur Pro Evolution
Soccer hérna í fríhöfninni og okkur
ætti því ekki að leiðast á vegum úti.“
Annars er sveitin langt komin með
næstu plötu. Högni segir að eftir
þetta ferðalag verði lagst yfir upp-
tökur og útsetningar en stefnan er
að koma plötunni út með haustinu.
Þá verður farið í stuttan Skandinav-
íutúr í febrúar og svo er annar túr,
svipaður þessum, í apríl. Já, þessir
kammerpopparar kalla ekki allt
ömmu sína, svei mér þá …
Átján gigg á 17 dögum
Hjaltalín er lögð af stað í umfangsmikinn Evróputúr
Tveir aðrir túrar framundan og svo ný plata í haust
Hjaltalín Ætla að slaka á með tölvuleikjum á milli sveittra tónleika.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
“JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í
GRÍNIÐ AFTUR EFTIR FULLLANGA
FJARVERU, OG HANN VELDUR ALLS
EKKI VONBRIGÐUM!”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
V.J.V TOPP5.IS
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
- Roger Ebert
S.V. Mbl
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
OG E
NSKU
TALI
SÝND Á SELLFOSSI SÝND Á SELFOSSI
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
THE CHANGELING kl. 6 - 9 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
YES MAN kl. 8 B.i. 7 ára
THE SPIRIT kl. 10 B.i. 12 ára
ROCKNROLLA kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FOUR CHRISTMASES kl. 6 B.i. 7 ára
YES MAN kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SKOPPA OG SKRÝTLA Í BÍÓ m/ísl. tali kl. 6 (700 kr.) LEYFÐ
CITY OF EMBER kl. 8 B.i. 7 ára
APPALOOSA kl. 10:20 B.i. 16 ára
„..BESTA DISNEY-TEIKNIMYNDIN
Í ÁRARAÐIR“
L.I.B. – FRÉTTABLAÐIÐ
SÝND MEÐ Í
SLENSKU
OG ENSKU
TALI
AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FILMCRITIC.COM
FRANK MILLER KEMUR HÉR MEÐ OFUR-SVALA
SPENNUMYND BYGGÐA Á „HASARBLAÐA”SÖGU
WILL EISNER. DÚNDUR MYND Í ANDA „SIN CITY”.
KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
SPARBÍÓ 550 krr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
SÝND Í KEFLAVÍK
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
JIM CARREY ER HREINT
STÓRKOSTLEGUR Í SINNI
BESTU GRÍNMYND SÍÐAN
DUMB AND DUMBER
SÝND Í ÁLFABAKKA
8. jan. Kaupmannahöfn Rust
9. jan. Köln Werkstatt – Haldern
Pop Event
10. jan. München Atomic Cafe
11. jan. Vín B72
12. jan. Innsbruck Weekender
13. jan. Sursee Kulturwerk 118
14. jan. Lúxemborg Exit 07
15. jan. Groningen Eurosonic
16. jan. Groningen Platosonic In-
store Festival
16. jan. Groningen Eurosonic
17. jan. Maldegem Cafe Maison
18. jan. Brussel Rotonde@Bot-
anique
19. jan. Köln Cologne Music
Week – Stadtgarten
20. jan. París Cafe de la Danse
21. jan. Cannes Midem
22. jan. Brighton The Freebutt
23. jan. London Luminaire
24. jan. Coventry Kasbah
Svefndrukkna tíðin…