Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 4. A P R Í L 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 109. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «MÖRG ANDLIT EVU DÚKKAR ÓVÆNT UPP OG DAÐRAR VIÐ LISTGYÐJUNA «HEIMSÆKJA SVEITINA HÚSDÝRASKÓLI FYRIR BÖRNIN sex saman í p akka ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 45 86 1 04 /0 9 Sérblað um Heimili og Hönnun fylgir Morgunblaðinu í dag ÞAÐ myndi skila íslenskum heim- ilum, fyrirtækjum og íslenska rík- inu og sveitarfélögum lækkun vaxtagjalda sem nemur 228 millj- örðum króna á hverju ári, ef vaxtakjör bötnuðu um þrjú pró- sentustig við Evrópusambandsað- ild. Þetta kemur fram í útreikn- ingum sem Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest, lét gera og sendir voru til Sam- taka iðnaðarins og Samtaka at- vinnulífsins (SA) að loknum aðal- fundi SA. | 14 Vaxtaávinningur af ESB-aðild 228 milljarða lækkun Morgunblaðið/Ómar Banki Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru nú 15,5 prósent. KATRÍN Tinna Magnúsdóttir var í hópi þeirra Akureyringa sem gerðu sér glaðan dag við Minjasafnið í gær í tilefni sumarkomunnar. Margir þáðu lummur og kakó, fóru í pokahlaup, léku sér að legg og skel eða blésu sápu- kúlur. Katrín Tinna hafði mest gaman af að kríta á stéttina. Sumarið kom á réttum tíma en spennandi verður að sjá hve lengi það stendur við í ár. Sumarið komið til Akureyrar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson FYLGISHRUN Sjálfstæðisflokksins meðal karlkyns kjósenda gæti or- sakað að svokallað kynjabil í kosn- ingum lokaðist næstum. Kynjabilið hefur lýst sér þannig að konur hafa frekar kosið vinstriflokka og karlar hægriflokka allt frá því snemma á níunda áratugnum, þegar Kvenna- listinn bauð fyrst fram. Kynjabil í kosningum hefur verið mjög breitt hér á landi og var 7,2% árið 2007. Samkvæmt niðurstöðum nýjustu könnunar Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV er þetta bil nú 2,7%. Stjórnmálafræðingur seg- ir það vera hugsanlega ástæðu að karlavígi í atvinnulífinu hafi orðið verst úti í efnahagshruninu. | 4 Kynjabil í kosningum lokast                                !        " Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins (ESB) leggur til stóraukna valddreifingu og breytt ákvarðanatökuferli í „grænbók“, skýrslu um sjávarútvegsstefnu sam- bandsins, sem birt verður í dag. Hingað til hefur fiskveiðistjórnun- arkerfi ESB sætt mikilli gagnrýni fyrir að allt vald innan þess liggi í Brussel, hjá ráðherraráðinu, og eng- inn greinarmunur sé gerður á grundvallarreglum þess annars veg- ar og framkvæmdarreglum hins veg- ar. Fiskveiðum sé stjórnað niður í minnstu smáatriði úr æðstu valda- stöðum. Nú stingur framkvæmda- stjórnin hins vegar upp á að þessu verði umturnað og vald framselt til hennar og aðildarríkjanna um ýmis mál. Framkvæmdastjórnin geri til- lögur við ríkin, sem hafi vald til að samþykkja þær eða hafna þeim. Framseljanleg réttindi Einnig leggur framkvæmda- stjórnin til að róttækum aðgerðum verði beitt til að minnka hinn of- vaxna fiskiskipaflota ESB og ná tök- um á fiskveiðistjórninni, sem verið hefur eitt helsta bitbein Evrópuum- ræðunnar hérlendis. „Notkun mark- aðstækja eins og framseljanlegra veiðiréttinda gæti verið hagkvæmari og ódýrari leið til að draga úr offjár- festingu og leið sem sjávarútvegur- inn sjálfur þyrfti að taka meiri ábyrgð á,“ segir í skýrslunni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Rétturinn til nýtingar og ábyrgðin á góðri umgengni þurfi að fara saman. Tillögurnar eru að hluta til að ís- lenskri fyrirmynd. Valdinu dreift í sjávarútvegi Framkvæmdastjórn ESB vill fiskveiði- stjórnun að íslenskri fyrirmynd að hluta Í HNOTSKURN »Framkvæmdastjórninefast um regluna um hlut- fallslegan stöðugleika, sem mælir svo fyrir að ríki skuli halda hlutdeild sinni í heildar- aflamarki ESB á milli ára. »26 aðildarríki af 27 eruhins vegar mótfallin því að hrófla við reglunni og er hún því talin standa óhögguð nú sem fyrr.  Gylfi Magn- ússon við- skiptaráðherra segir það ekki rétt hjá Sig- mundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Fram- sóknarflokksins, að mat á eignum gömlu og nýju bankanna gefi verri mynd af stöðu mála en talað var um í upphafi. Vinnan við verð- mat sé á lokastigi en ekkert liggi ljóst fyrir enn. »4 Misskilningur að staðan sé miklu verri en talið var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  „Vindorka keppir ekki í verði við þessar virkjanir sem við höfum ver- ið að byggja, jarðvarma og vatns- orku,“ segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri. Slík orka er yf- irleitt kröftuglega niðurgreidd í öðrum löndum. Kolbrún Halldórs- dóttir umhverfisráðherra vill vind- orkunýtingu í stað olíuvinnslu á Drekasvæðinu. »6 Niðurgreidda vindorku í stað olíuvinnslu úti á hafi  Ætla má að útflutningsverðmæti kolmunnaafla þessa árs sé á fjórða milljarð króna. Sl. miðvikudag hafði verið landað ríflega 82 þús- und tonnum af þeim 92 þúsund tonnum sem heimilt er að veiða í ár. Nokkur skip eru búin með kvóta sinn en önnur ætla að treina hann fram í maí. HB Grandi skoðar nú hvort hægt verður að veiða laxsíld- artegundir frá lokum kolmunna- vertíðar og þangað til síld- og mak- rílveiðar hefjast í júlí. »18 Kolmunninn gefur milljarða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.