Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 36
Án hvers geturðu ekki verið? Ég er einn af þeim sem fá alltaf kaldan svita þegar farsíminn verður batteríslaus. Gæti ekki ímyndað mér að vera án hans lengur en nokkra klukkutíma. Hvar læturðu helst til þín taka á heimilinu? Uppi í sófa, hangandi í tölvunni. Er alveg skammarlega duglaus við önnur heim- ilisstörf, foreldrum mínum til mikillar ar- mæðu. Veit ekki hvernig ég á að komast af þegar ég flyt út. Hversu pólitískur ertu á bilinu 1-10? Ég er rammpólitískur, algjör tía á skalanum. Líklegast er ég pólitískari en góðu hófi gegnir, allavega er ég búinn að missa töluna á matarboð- unum sem ég hef eyðilagt með póli- tískum átökum við matargesti. Hvað ætlar þú að kjósa á morgun og afhverju? Sjálfstæðisflokkinn. Hann er sá flokkur sem ég treysti best til að reisa samfélag sem ég get hugsað mér að lifa, starfa og eignast börn í upp úr áföllum síðustu mánaða. Svo eru frambjóðendurnir svo gott fólk upp til hópa. Hvernig myndir þú vilja deyja? Mér væri alveg sama hvenær eða hvernig, svo fram- arlega að ég væri búinn með „to-do“ lista lífs míns. Afhverju ertu svona mælskur? Ég fæddist allavega ekki þannig. Ætli þetta séu ekki mörghundruð klukkustunda æfingar fyrir framan spegilinn að skila sér? Ræðumennska er náttúrulega eins og hver önnur íþrótt; bara æfing, æfing og æfing. Hvað felst í því að vera góður ræðumaður? Að vera hæfilega öruggur með sig og að trúa því sjálf- ur sem maður segir. Fyrr getur maður ekki ætlast til þess að aðrir trúi manni. Hverju myndirðu vilja breyta í eigin fari? Ég á alveg hrikalega erfitt með að segja nei við fólk og lendi þess vegna oft í að gera hluti sem ég vil ekki. Ég myndi vilja vera aðeins harðari. Hvaða þekkti Íslendingur fer mest í taugarnar á þér? Það eru nokkrir á Eyjublogginu sem gera mér stund- um heitt í hamsi. Hefurðu lagt í stæði ætlað fötluðum? Þótt skömm sé frá að segja hefur það komið fyrir. Þá þurfti ég samt að skreppa mjög stutt út úr bílnum og önnur fatlaðrastæði voru laus við hliðina. Hefurðu áhyggjur af hárvextinum? Já! Svona í seinni tíð er mér farið að vaxa hár á alls kyns furðulegum stöðum, þar á meðal á öxlunum. Mér líst mjög illa á þessa þróun. Ef þú værir neyddur til þess, gætirðu útskýrt íslenska bankahrunið? Heldur betur. Þetta hófst allt með undirmálslánum í Bandaríkjunum sjáðu til... Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hefurðu einhvertímann logið að foreldrum þínum? Á ERFITT MEÐ AÐ SEGJA NEI HAFSTEINN GUNNAR HAUKSSON VAR Í SIGURLIÐI VERSLUNARSKÓLA ÍSLANDS Í MORFÍS, MÆLSKU- OG RÖKRÆÐUKEPPNI FRAMHALDSSKÓLA SEM FRAM FÓR FYRIR VIKU, OG VAR JAFN- FRAMT VALINN RÆÐUMAÐUR KVÖLDSINS. HANN ER AUK ÞESS AÐALSMAÐUR VIKUNNAR. 36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009  Hinn 30. apríl mun færeyska hljómsveitin ORKA leika í Norræna húsinu ásamt Eivöru Pálsdóttur og Ólöfu Arnalds. Tónlist ORKU er öll leikin á heimasmíðuð hljóðfæri og hefur frumleg tónlistin fallið í góð- an jarðveg víða um Evrópu und- anfarin misseri. Einn af helstu sam- starfsmönnum sveitarinnar í gegnum tíðina hefur verið Frakk- inn Yann Tiersen, þekktur fyrir að hafa samið tónlistina við kvikmynd- irnar Amélie og Goodbye Lenin. Tiersen nýtir oft óvenjuleg hljóð- færi við tónlistarsköpun sína og hefur samstarf hans við þá fær- eysku verið líkt og draumur í dós. Yann Tiersen og ORKA Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „VIÐ erum mjög ánægðir með sýninguna, og okkur finnst hún hafa gengið eftir okkar ósk- um,“ segir Jón Atli Jónasson, einn höfunda og leikara leiksýningarinnar Þú ert hér sem sýnd hefur verið í Borgarleikhúsinu. Síðasta sýning á verkinu var í gærkvöldi, en um var að ræða meinfyndna ádeilu á ástandið í þjóðfélaginu í dag. Aðspurður segist Jón Atli telja að sýningin hafi vakið töluvert umtal. „Það er alltaf gaman að heyra viðbrögð frá fólki eftir á. Auðvitað er mörgum mjög brugðið, enda er þetta ósvífin sýn- ing. En ég held að það sem við lögðum upp með, að gera mjög íslenska sýningu sem talar beint inn í ástandið, hafi tekist ágætlega, eins dóm- bærir og við nú erum á það.“ Jón Atli segir það hafa komið þeim félögum hvað mest á óvart hvað fólk hló mikið á sýn- ingum á verkinu. „Það var aldrei tilgangurinn, að gera einhverja gamansýningu. Við héldum eiginlega að grínið væri bara lélegt,“ segir hann, en á meðal þess sem leikararnir þrír, Jón Atli, Jón Páll Eyjólfsson og Hallur Ingólfsson lögðu á sig í „gríninu“ var að drekka gríðarlegt magn af kóki meðan á sýningum stóð. „Við erum bara komnir með blæðandi magasár. Mamma hans Palla kom á sýningu og gaf okkur brjóst- sviðatöflur, hún er dásamleg kona af Suðurnesj- unum,“ segir Jón Atli í léttum dúr, en hann telur að þeir hafi drukkið um tíu lítra af kóki á hverri sýningu. „Það er kannski svona ársdrykkja heimilis,“ segir hann að lokum og hlær. Komnir með blæðandi magasár af kókdrykkju Morgunblaðið/Kristinn Beittir Jón Páll, Jón Atli Jónasson og Hallur.  Hljómsveitirnar Reykjavík! og Mammút eru nú staddar í Þýska- landi á vegum Norðsins en það er tónleikaröð sem stofnað var til af Iceland Express, ÚTÓN og Admir- als Palast-leikhúsinu í Berlín, en í þeim rekstri fer mikinn sjálfur Helgi Björns. Í gær léku sveitirnar í Köln en í fyrradag í nefndri Admi- ralshöll í Berlín. Tónleikarnir voru vel sóttir og stuð mikið. Ekki væsti um Ísfirðingana í Reykjavík! á með- an þeir dvöldu í heimsborginni Berlín en Helgi er ná- eða fjar- skyldur flestum þeirra enda Ísfirð- ingur sjálfur. Dvöldu þeir félagar því í góðu yfirlæti í glæsiíbúð Helga á meðan á dvöl þeirra stóð. Því mið- ur höfðu frændurnir þó engan kost á að nýta sér bransainnsæi Helga, sem ku gríðarlegt, en meistarinn var heima á Íslandi á meðan, eit- ursvalur að vanda. Helgi Björnsson er maðurinn í Berlín! Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MAÐUR veit einhvern veginn ekki hvar maður hefur hina hæfi- leikaríku Ágústu Evu Erlends- dóttur. Hún er hálfgerður uglu- spegill þegar kemur að daðri við listgyðjuna; syngur, leikur, skrifar og virðist dúkka óforvarandis upp á hinum ólíklegustu stöðum. Síðast fór hún á kostum í hinum óborg- anlegu þáttum Svalbarða og eitt- hvað hefur hún verið að syngja með Óskari Guðjónssyni. Að öðru leyti hefur nálægð við fjölmiðla verið með minnsta móti. Blaðamann rak því í rogastans þegar hann sá nafn hennar á auglýsingaspjaldi fyrir tónleika sem fram fara á Sódómu Reykjavík í kvöld en þar mun hún mun koma fram ásamt Megasukk, sem samanstendur af meistara Megasi og þeim Súkkat-bræðrum. Það var vísast að inna frétta … Tekur upp með Megasi „Jú, þeir eru æði,“ segir Ágústa í símann sem er alveg að verða batt- eríslaus. Við neglum því viðtalið á mettíma. „Megas er mjög góður félagi. Við höfum spilað saman áður, á Lee Hazlewood-heiðrunartónleikum sem fóru fram fyrir ca. ári. Það gekk al- veg afskaplega vel. Hluti fólksins sem er að skipuleggja þessa tón- leika skipulagði þá tónleika og þau spurðu hvort við vildum endurtaka leikinn.“ Hér er engin uppgerðarkurteisi í gangi, samstarf hennar við Megas og félaga hefur að sönnu verið blómlegt og hún bætir því við að hún og Megas séu búin að taka upp tvö lög saman. „Þetta eru mjög ólík lög,“ segir hún. „Eitt þeirra er rólegt, forkunn- arfagurt og með mjög snotrum texta. Hitt er einhver skúffu- viðbjóður sem Megas hefur verið að dröslast með í árafjöld og hefur ekki alveg vitað hvað ætti að gera við. Það er eiginlega ógeðslegt og vart boðlegt til flutnings!“ Ekkert er þó fast í hendi enn með hvaða hætti lögin munu koma fyrir eyru almennings. Blaðamaður leyfir hugsunum að flögra, og klisjukenndar hugleiðingar um Fríðu og dýrið flökta um. Föndur Hvað sjálfa tónleikana í kvöld varðar segir hún óráðið hvað verður flutt. „Það er ekkert búið að ákveða það. Megas hefur verið að föndra eitthvað sniðugt veit ég. Það kemur bara í ljós á föstudaginn.“ Ágústa er þá að bardúsa við ým- islegt annað, eins og hún á vanda til. „Ég er að stússa í hinu og þessu. Ég er að skrifa dálítið og svo er ég að vinna að vefsíðu sem er frekar stór í sniðum. Hún hefur með viss samfélagsmál að gera en það skýr- ist betur seinna á árinu hvað um er að ræða. Í sumar ætla ég svo að leika í tveimur íslenskum bíómynd- um takk fyrir. En ég get að sjálf- sögðu ekkert gefið upp um hvaða verkefni það eru á þessu stigi máls- ins eins og sagt er (hlær) …“ „Einhver skúffuviðbjóður …“  Ágústa Eva Erlendsdóttir treður upp með Megasukk á Sódómu í kvöld  Tilefnið er baráttutónleikar til stuðnings flóttamönnum á Íslandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Tvær stjörnur Ágústa Eva hefur tekið upp tvö lög með Megasi, eitt fallegt en annað „ógeðslegt“. Um baráttutónleika er að ræða og bera þeir yfirskriftina „Eng- inn er ólöglegur“ og eru til stuðnings málefnum flótta- manna á Íslandi. Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og fram koma Blóð, Vicky, AMFJ, Nour Al-din, Skorpulifur, Tóta og Jazzbandið, Þrjár raddir, Beatur og Meg- asukk og Ágústa Eva. Aðgangs- eyrir er 1000 krónur og frekari upplýsingar má nálgast á mys- pace.com/electronicethics. Tónleikarnir í kvöld

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.