Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009 Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is VERULEGA hefur dregið úr ofbeldi í Írak á liðnu ári en í gær varð mesta mannfall í landinu í 14 mánuði. Tvær sjálfsmorðssprengingar felldu allt að 78 manns og særðu aðra 120. Önnur sprengingin varð norðaustur af Bag- dad og hin í rólegu íbúðahverfi í suð- austurhluta Bagdad. Röð vel skipulagðra sjálfsmorðs- árása hefur átt sér stað í Írak að undanförnu. Það hefur vakið ótta um að hópar uppreisnarmanna eflist nú í ljósi þess að Bandaríkjaher mun byrja að draga sig út úr borgum landsins í lok júní, en stefnt er á að herinn verði farinn úr landinu árið 2011. Deildar meiningar eru um hvort sú áætlun standi. En samkvæmt ný- legum skýrslum bandaríska varn- armálaráðuneytisins hefur lækkandi olíuverð m.a. átt þátt í að hægja á möguleikum íraskra öryggissveita til að starfa á eigin vegum og halda uppi baráttunni gegn uppreisn- arhópum. Allra varna er þó þörf því upp- reisnarmenn úr röðum súnníta hafa lýst því yfir að þeir muni fjölga árás- um á bandarískt herlið og banda- menn þeirra úr stjórn landsins sem er í höndum sjíta. Mikilvægum áfanga náð? Í kjölfar árásanna í gær tilkynnti íraski herinn að leiðtogi uppreisnar- manna í Írak hefði verið handtekinn. Maðurinn sem um ræðir er Abu Om- ar al-Baghdadi sem er sagður vera leiðtogi hópsins Íslamska lýðveldið Írak. Reynist fullyrðing Írakshers um handtöku Baghdadis á rökum reist gæti það verið mikilvægt skref í að stemma stigu við sjálfsmorðs- árásum. Íslamska lýðveldið Írak er regn- hlífarsamtök uppreisnarhópa sem berjast gegn Bandaríkjaher og Íraksher og sverja hollustu við Osama bin Laden. Tilkynnt hefur verið ranglega um handtöku eða andlát Baghdadis nokkrum sinnum í gegnum tíðina en árið 2007 sagði talsmaður Bandaríkjahers að Bag- hdadi væri ekki til, hann væri upp- spuni. Samkvæmt tölum sem AP- fréttastofan hefur frá íröskum yf- irvöldum hafa í það minnsta 87.215 Írakar látist í ofbeldisverkum frá árinu 2005 og yfir 110.000 hafa látist frá því að Íraksstríðið hófst árið 2003. Þá eru ótaldar þær þúsundir sem er saknað og almennir bogarar sem hafa verið grafnir án tilkynn- ingar til yfirvalda. Mun ofbeldisaldan vaxa á ný?  Mesta mannfall í marga mánuði varð í tveimur sjálfsmorðsárásum sem gerðar voru í Írak í gær  Óttast er að uppreisnarmenn eflist nú þegar bandarískt herlið undirbýr brottflutning sinn frá landinu Reuters Árás Stúlka grætur á staðnum þar sem sjálfsmorðsárásarmaður sprengdi sig í Bagdad í gær og varð rúmlega 30 manns að bana en margir særðust. LÍTILL vafi virðist leika á því hver verður næsti forseti Suður-Afríku en útlit er fyrir að Afríska þjóð- arráðið (ANC) vinni stóran sigur í þingkosningum landsins. Enn er þó á huldu hver forsetafrúin verður. Einkalíf Jacob Zuma, forseta ANC, hefur löngum þótt skrautlegt en hann hefur átt fjölda eig- inkvenna í gegnum tíðina. Ein þeirra er látin og hann hefur skilið við enn eina þeirra. Eftir standa Sizakele Khumalo, fyrsta eiginkona hans sem hann kvæntist árið 1973 og Nomp- umelelo Ntuli, sem er öllu yngri, en Zuma kvæntist henni í fyrra. Þar að auki er talið að Zuma hafi gifst á ný í janúar, konu að nafni Thobeka Mabhija. Talið er að Zuma eigi allt að 18 börn með eiginkonum sínum. Fer ekki í felur með fjölkvænið „Margir stjórnmálamenn eiga sér hjákonur og börn sem þeir fela til að þykjast vera einkvænismenn. Ég vil vera opinskár. Ég elska kon- urnar mínar og er stoltur af börn- unum mínum,“ segir Jacob Zuma þegar fjölmiðlar spyrja hann um ástæður fjölkvænisins. Nompumelelo Ntuli var við hlið Zuma þegar hann greiddi atkvæði í kosningunum á miðvikudag en hún hefur tekið nokkurn þátt í kosn- ingabaráttu ANC og notið hylli. Sizakele Khumalo þykir hlédræg- ari og hefur í áratuga hjónabandi með Zuma lítið haft sig í frammi opinberlega en þykir líklegust til að verða opinber vegna stöðu sinnar sem fyrsta eiginkonan. Fjölkvæni er löglegt í S-Afríku en sífellt færri ungir menn velja þann kost þar sem það þykir gam- aldags og dýrt. jmv@mbl.is AP Hjón Zuma dansar við Ntuli í brúð- kaupi þeirra á síðasta ári. Aðeins ein forsetafrú? BANDARÍSK kona slapp með skrekkinn þegar byssukúla end- urkastaðist af vír í brjóstahald- aranum hennar. Að sögn lögregl- unnar í Detroit í Bandaríkjunum skaut innbrotsþjófur að konunni þar sem hún horfði á hann ræna húsið við hliðina ásamt fleiri þjóf- um. Konan stóð við stofugluggann þegar þjófurinn skaut á hana og fór byssukúlan í gegnum rúðuna og í konuna. Í staðinn fyrir að fara inn í líkama hennar endurkastaðist hún hinsvegar af vírnum í brjóstahald- ara hennar. Vírinn hægði verulega á kúlunni og hlaut konan því aðeins minni- háttar meiðsli. „Við þurfum að fá skotheld vesti úr sama efni. Þetta er ólseigur vír,“ sagði lögreglan. Brjóstahöld bjarga lífi ÞESSAR ungu stúlkur virðast ekki láta hættu- legt umhverfi í einu fátækrahverfi Djakarta aftra sér frá því að bregða á leik. Fátækt og fólksfjöldi er stórt vandamál í Indónesíu en talið er að yfir 30 milljónir búi nú undir fátækramörk- um þeim sem stjórnvöld hafa sett. Íbúafjöldi í Djakarta hefur stigið mjög ört síð- ustu fjörutíu árin án þess að hægt hafi verið að mæta fjölguninni með viðeigandi hætti. Skráðir íbúar hafa farið úr rúmri einni milljón í tæpar níu milljónir á síðastliðnum fjörutíu árum. Talið er að um 23 milljónir manna búi í borg- inni og nágrenni hennar og telst svæðið því ann- að stærsta þéttbýlissvæði heims. Vöxtur borgarinnar hefur gert stjórnvöldum ókleift að mæta grunnþörfum íbúanna og er hús- næðisvandi mikill auk þess sem mikil þörf er á að endurnýja gömul hús. jmv@mbl.is AP Leikið við lestarteina London. AFP. | Rannsókn ísraelska hersins á 22 daga árás hans á Gaza- svæðið er ótrúverðug og kemur ekki í staðinn fyrir sjálfstæða rannsókn. Þetta er mat mannúðarsamtakanna Amnesty International í London sem tilkynnt var um í gær. Vann í samræmi við alþjóðalög Síðastliðinn miðvikudag varði ísr- aelski herinn árás sína og sögðu tals- menn hans að fimm rannsóknir á vegum hersins hefðu gefið til kynna að herinn hefði „unnið í samræmi við alþjóðalög.“ Að mati Amnesty vant- ar mikilvæg smáatriði í samantekt hersins. Ekki hafi verið skýrt hvers vegna meirihluti látinna voru al- mennir borgarar auk þess sem skot- ið hafi verið á sjúkrastofnanir. „Þar sem mikilvæg sönnunargögn vantar til að undirbyggja staðhæf- ingarnar virðast fullyrðingar hersins frekar vera tilraun til að víkja sér undan ábyrgð heldur en að vera ferli til að leiða sannleikann í ljós,“ segir í ályktun Amensty. „Rannsókn ísr- aelska hersins kemur ekki í staðinn fyrir nákvæma, sjálfstæða og óháða rannsókn.“ Rannsókn ótrúverðug og margt látið ósagt Amnesty International gagnrýnir rannsókn Ísraelshers Í HNOTSKURN »Alvarlegasta ásökunin áhendur Ísraelsher er notk- un fosfórsprengna í íbúðar- hverfum á Gaza. »Slíkar sprengjur eru skv.alþjóðalögum leyfðar til að mynda reykský til að skýla hersveitum á opnum svæðum en ekki á þéttbýlum svæðum eins og Gaza.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.