Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009 Bæjarlind 6 sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 Komnar aftur Ermar á 7.900 kr. Margir litir Bók um reynslu átta Íslendinga af því að eiga ástvin með Alzheimerssjúkdóm Pantanir hjá Bjarmalundi, ráðgjafastofu í símum: 568-4011 eða 895-9737 Einnig má senda fyrirspurnir á www.bjarmalundur.is Bjarmalundur Ráðgjafastofa um Alzheimer og öldrun Smiðjuvegi 11 (gul gata) Kópavogi. LAGER HREINSUN föstudag 11-18 - laugardag 11-18 - sunnudag 13-18 Skór á alla fjölskylduna vegna flutninga á Smiðjuvegi 11 (gul gata) Kópavogi Opnunartími FRÁBÆR VE RÐ! Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • sími 562 2862 Stærðir 42-54 VOR – SUMAR 2009 KYNNINGARDAGAR 24. apríl - 2. maí 15% KYNNINGARAFSLÁTTUR „ÞAÐ ERU opnar þrjár leiðir fyrir nýjar vörur á markað. Annaðhvort ertu með mestu gæðin, lægsta verðið eða fyrstur á markað. Í þessu tilfelli teljum við okkur bæði vera fyrsta á markað og hugsanlega með mestu gæðin,“ segir Kjartan Örn Sigurðs- son, forstjóri Egilsson hf., um þá ákvörðun að hefja sölu á sérhönn- uðum töskum fyrir evrur í versl- unum Office 1. Taskan er eingöngu seld í evrum og er verðmiðinn 129 evrur. „Evruumræðan tengist okkur auð- vitað. Við í Egilsson hf. sem rekum Office 1-verslanirnar erum meðlimir í Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum atvinnulífsins, og höfum þá trú í okkar röðum að evran sé besti kosturinn fyrir íslenskt þjóð- félag. Við erum innflutningsfyrirtæki þannig að undir rós erum við að styðja þá umræðu með þessu framtaki,“ segir Kjartan Örn. Evran myndi breyta miklu Aðspurður hvaða áhrif hann telji evruupptöku mundu hafa á rekst- urinn segir Kjartan Örn: „Það myndi breyta miklu fyrir reksturinn á fyrirtækinu. Það myndi skapa stöðugleika, bæði fyrir okkur sem innflytjendur, og stöðugleika fyrir kaupendur á ritföngum og skrif- stofuvörum í landinu, enda fengist meiri stöðugleiki í verðlagi.“ Hvað snertir markaðinn fyrir evrutöskuna hér á landi kveðst Kjartan Örn eiga von á góðri sölu, hann vænti þess að hún verði uppseld fyrir alþingiskosningarnar á laug- ardag. baldura@mbl.is Evruáróður undir rós  Office 1 hefur hafið innflutning á evrutösku sem verður aðeins seld í evrum  Tengist umræðunni um aðild að ESB SÁÁ hefur hlotið styrk til að koma upp eftirmeðferðarstarfi fyrir ung- menni. Ásta R. Jóhannesdóttir, fé- lagsmálaráðherra, afhenti styrk- inn. Hann er ætlaður fyrir ungmenni að 18 ára aldri sem eru að koma úr áfengis- eða vímuefna- meðferð. Styrkurinn er 10 milljónir króna og er tekinn af fjárveitingu ráðuneytisins til vímuvarna. SÁÁ fær 10 millj- óna króna styrk Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞETTA ER verkefni sem er búið að vera í bígerð hjá samfélagi Kan- adamanna af íslenskum ættum í mörg ár en það vantar verulega hús- næði undir samkomuhald í Gimli. Samfélagið heldur þar Íslend- ingadaginn, kvikmyndahátíð og aðra viðburði en á ekki sal sem rúmar fleiri en 250 manns,“ segir Sigurður Harðarson, arkitekt hjá Batteríinu, um fyrirhugað samvinnuverkefni fyrirtækisins um hönnun fjölnota samkomuhúss í Gimli í Kanada. Bæjarfélagið hefur veg og vanda af framkvæmdinni en það hefur ákveðið að hönnun mannvirkisins verði á herðum Batterísins og kan- adísku arkitektastofunnar George Cibinel Architects og segir Sigurður verkefnið eiga sér aðdraganda. „Bæjarfélagið hefur verið að safna fyrir framkvæmdinni í mörg ár og nú virðist allt koma heim og saman hjá því, þannig að það er að reyna að hrinda þessu af stað. Í gróf- um dráttum er ráðgert að þarna rísi sundmiðstöð með innisundlaug, vatnsleikjabrautum, líkamsrækt- arstöð og öðru slíku. Síðan er bæj- arfélagið að leita eftir því að þarna rísi fjölnotasalur með flötu gólfi með áhorfendabekkjum sem nota má sem fundarsal, leikhús eða undir sýningarhald.“ Ágæt búbót á erfiðum tímum Að sögn Sigurðar er verkefnið ágæt búbót fyrir Batteríið í erfiðu árferði en í fyrsta áfanga reiknar hann með að tveir íslenskir og jafn- margir kanadískir arkitektar komi að því. Þegar frumdrögunum sé lok- ið og verkefnið komið á næsta stig muni 4 til 5 arkitektar í hvoru landi hafa fullt starf af hönnuninni. Inntur eftir stærð mannvirkisins segir Sigurður enn óákveðið hver endanleg stærð þessu verður, ákvörðun um það sé verkefni fyrsta áfanga. Kostnaðaráætlun hljóði upp á 1.575 til 2.100 milljónir íslenskra króna á núverandi gengi. Fjármögnuninni sé ekki lokið og því muni nánari áætlanir ekki verða gerðar fyrr en framkvæmdaféð ligg- ur fyrir. Gangi núverandi áætlanir hins vegar eftir muni hönnuninni ljúka á næsta ári. Í kjölfarið fari í hönd eins til tveggja ára fram- kvæmdatími, allt eftir umfanginu. Ljóst sé að ætlunin sé að mann- virkið verði miðstöð bæjarins og Vestur-Íslendinga almennt. Búbót í kreppunni Batteríið tekur þátt í hönnun sam- komuhúss Íslendingafélagsins í Gimli Morgunblaðið/Kristinn Gimli Er við Winnipeg-vatn og þar búa margir afkomendur Íslendinga. Í HNOTSKURN »Á milli 5.000 og 6.000manns eru búsettir í Gimli í Kanada yfir veturinn og fjölgar íbúunum í allt að 12.000 yfir sumartímann. » Í landinu öllu er að finna ámilli 200.000 og 300.000 manns af íslenskum ættum. GUÐNÝ Kristmannsdóttir mynd- listarkona og Björn Þórarinsson tónlistarmaður fengu í gær starfs- laun listamanna á Akureyri 2009- 2010. Hátt í 20 umsóknir bárust. Guðný og Björn hafa bæði starfað að list sinni í fjölda ára og munu sinna listinni sem bæjarlistamenn í sex mánuði hvort. Friðbjarnarhús, sem stendur við Aðalstræti 46, fékk viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrarbæjar og tóku þeir Gunnar Lórenzson, Guðmundur Magnússon og Árni Valur Viggósson á móti viðurkenn- ingunni en þeir hafa lagt mikið á sig við endurbætur á húsinu. Bygg- ingarlistaverðlaun Akureyr- arbæjar voru að þessu sinni veitt fyrir breytingar á eldra húsnæði. Verðlaunin fékk verslunin Ey- mundsson-Penninn við Hafn- arstræti 91-93. Þá fékk Sigurður Heiðar Jónsson viðurkenningu Menningarsjóðs fyrir framlag til menningar og lista í bænum. Guðný og Björn bæjarlistamenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.