Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 22
22 UmræðanKOSNINGAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009 STÆRSTA réttlætismál heimilanna er að fá hlutdeild í afskriftum skulda gömlu bankanna og að þeim sé þannig bætt það tjón sem þau hafa orðið fyrir í því efna- hagslega fárviðri sem nú gengur yfir. Framsóknarflokkurinn hefur lagt til að húsnæðisskuldir heimilanna verði leið- réttar um 20%. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að kröfuhafar gömlu bank- anna bera kostnaðinn en ekki ríkissjóður. Þessi aðgerð mun örva efnahagslífið og auka tekjustofna ríkisins sem er und- irstaða öflugs velferðarkerfis. Margir hafa stigið fram að undanförnu og lagt til að lengja í lánum til að minnka mánaðarlega greiðslu- byrði. Segjum sem svo að fjölskylda skuldi 16 milljóna verðtryggt jafngreiðslulán til næstu 40 ára. Mán- aðarleg afborgun lánsins er um 72.000 krónur. Sé lánstími lengdur í 70 ár verður mánaðarleg afborgun um 63.000 krónur. Munurinn er um 9.000 krónur eða rétt rúmlega 10%. Síðan í ársbyrjun 2008 hefur verð- bólga verið hátt í 20% og gengi krónunnar hefur fallið um nærri helming. Lenging lána mun því ekki bæta það tjón sem hrunið hefur valdið heim- ilunum. Verðtrygging leggst ofan á verð- tryggð lán og því lengri sem lánin eru, þeim mun meiri eru áhrif verðtryggingarinnar. Af þeim sökum getur beinlínis verið skaðlegt fyrir heimilin að lengja lánstímann á þennan hátt. Um daginn birtist grein í Morg- unblaðinu þar sem fram kom hugmynd að lausn vandans með svokallaðri LÍN leið. Í stuttu máli snýst sú leið um að fólk greiðir af fasteignalánum eftir getu þar til lánið er uppgreitt. Lántakendur hjá LÍN sem farnir eru að greiða sín lán til baka ná ekki að greiða niður höfuðstól lánsins vegna þess að verðbætur hækka meira en sem nemur afborgunum. Fólk gæti því átt á hættu að festast í núverandi hús- næðisskuldum til æviloka verði lengingarleið rík- isstjórnarinnar fyrir valinu. Er það sú framtíðarsýn sem við viljum sjá. Framsóknarflokkurinn segir nei og vill aðgerðir strax. Bætum heimilunum þann skaða sem þau hafa orðið fyrir. Nánari upplýsingar um mál- ið má finna á framsokn.is. Eftir Vigdísi Hauksdóttur Vigdís Hauksdóttir Höfundur skipar 1. sætið á lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Leiðréttingarleiðin er raunhæf lausn ÞAÐ sem við þurf- um nú að tala um hér á landi eru lausnir á því mikla atvinnuleysi sem við glímum við nú um stundir. Atvinnuleysið felur í sér marg- víslegan vanda, bæði fyrir þá sem eru án vinnu en einnig hefur það í för með sér að tekjur til ríkis og sveitarfélaga munu dragast saman. Það er nauðsynlegt að við finnum leiðir til að auka tekjur til að draga úr þeim fyrirséða niður- skurði sem stefnt er að í velferðar- kerfinu. Við þurfum einnig að auka tekjur til að koma í veg fyrir að skatt- ar verði hækkaðir. Það er einnig nauðsynlegt að nota öll þau ráð sem við eigum möguleika á að nota til að spara gjaldeyri. Það eru til lausnir á þessum vanda og við þurfum ekki að leita langt yfir skammt. Lausnirnar felast í að nota og nýta þær auðlindir sem við höfum yfir að ráða. Við höfum möguleika á að auka fiskveiðar í flestum tegundum og með því ættu tekjur þjóðarinnar að geta aukist um 70-80 milljarða. Þetta mun leiða til aukinna skatttekna til ríkisins og útsvarstekna og hafnar- gjalda til sveitarfélaga. Og það sem er ekki síst mikilvægt ef þetta verður gert er að fleiri störf koma til með að verða til í greininni. Í landbúnaði eru miklir möguleikar fólgnir í því að auka til muna framleiðslu á grænmeti fyrir innanlands- markað. Með því mætti draga úr innflutningi á þess- um vörum og þannig væri hægt að spara gjaldeyri. Forsenda þess að hægt sé að auka framleiðsluna er að hún sé samkeppnishæf í verði við innflutt grænmeti. Forsenda þessa er að lækka orkukostnað til garðyrkju- bænda. Það er mikilvægt að stofna grasköggla- og áburðarverksmiðjur sem anna innanlandsþörf sem leið til gjaldeyrissparnaðar. Við verðum að nýta orkuna sem finnst í iðrum jarðar og er til staðar í fallvötnunum til raforkuframleiðslu. Raforku sem við getum nýtt til at- vinnuuppbyggingar í tengslum við iðnað sem þarfnast mikillar orku. Í þessu sambandi má nefna álver, ál- iðngarða, álþynnuverksmiðjur og netþjónabú. Það eru miklir möguleikar sem fel- ast í auðlindunum okkar og þær ber að nota og nýta okkur öllum til góðs. Lausnir Eftir Grétar Mar Jónsson Grétar mar Jónsson Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi. KVÓTAHAFAR og stuðningsmenn þeirra fullyrða að stjórnarflokkarnir muni „setja þær atvinnugreinar sem enn standa styrkum stoðum á hausinn“ (Mbl. 18. apríl sl.) af því flokkarnir vilja vinda ofan af kvótakerfinu. Gríðarlegt ósætti hefur ríkt um kvótakerfið og frjálst framsal sl. 20 ár. Sjávarútvegurinn skuldar 500 milljarða og telst það vart við- unandi árangur af „besta fiskveiðistjórn- arkerfi heims“. Aðgerðir til að breyta kvótakerfinu 1. Þjóðareign á sjávarauðlindum verði bundin í stjórnarskrá. 2. Stofnaður Auðlindasjóður sem sjái um að varðveita og ráðstafa fiskveiðiréttindum þjóðarinnar. 3. Arður af rekstri Auðlindasjóðs renni einkum til sveitarfélaga og verði einnig notaður til annarra verk- efna, s.s. haf- og fiskirannsókna. 4. Allar aflaheimildir í núverandi fiskveiðistjórnarkerfi verði innkallaðar eins fljótt og auðið er og að hámarki á 20 árum. 5. Framsal aflamarks í núgildandi aflamarkskerfi verði einungis miðað við brýnustu þarfir. 6. Auðlindasjóður bjóði aflaheimildir til leigu. Greiðslum fyrir aflaheimildir verði dreift á það ár sem þær eru nýttar á. Framsal slíkra aflaheimilda er bannað. Útgerðum verði skylt að skila heimildum sem þær ekki nýta til Auðlindasjóðs. 7. Frjálsar handfæraveiðar verði heim- ilaðar ákveðinn tíma á ári hverju. Sókn verði m.a. stýrt með aflagjaldi sem lagt verði á landaðan afla. 8. Stefnt verði að því að allur fiskur verði seldur á markaði. Þessar aðgerðir hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Kvótahafar segja að 80-90% kvótans hafi skipt um eigendur, en stærstu kvótahafarnir fengu mest gefins í upphafi og kvótinn hefur færst á æ færri hendur. Nú eru það einungis 10-12 fyrirtæki sem eiga allan kvótann. Þegar fyrirtækin keyptu kvótann tóku þau ákveðna áhættu, því kvótakaup áttu ekki að fela í sér eignarrétt til framtíðar. Nú telja kvótaeigendur hins vegar að kominn sé hefðarréttur á eign þeirra. Það, að kvótahafar reki upp ramakvein nú, er sönnun þess að við erum á réttri leið. Hræðsluáróður kvótahafa Eftir Margréti K. Sverrisdóttur Margrét Sverr- isdóttir Höfundur skipar 8. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykja- vík suður. JÆJA góðir landsmenn. Nú höfum við fengið að hlusta á tvo heiðursmenn tala við okkur um ástandið á landinu bláa. Báðir vara þeir við AGS og lýsa því hvernig farið hefur fyrir þjóðum sem leitað hafa á náðir sjóðsins. Einhver óttalegur leyndardómur varðandi lána- skilmála AGS er hulinn okkur og stjórnvöld bundin þagnarskyldu um þá. Í allri umræðunni um gagnsæi og að allt eigi að vera uppi á borðinu þá má ekki segja þjóðinni sannleikann um þennan mikilvæga þátt sem sagður er vera nauðsynlegur endurreisn- inni. Steingrímur Joð var fyrstur manna til að krefjast þess að láninu yrði skilað en tók það svo skömmu síðar til baka. Nú þegar hann hefur lykilinn að fjárhirslum ríkisins þá má ekkert vitnast um skilmála AGS né heldur hvort eða í hvað búið er að eyða láninu eða hluta þess. Finnst fólki þetta vera í lagi? Vera Michael Hudsons og John Perk- ins á Íslandi rataði ekki á forsíður prentmiðla hér á landi þrátt fyrir að ummæli þeirra vörpuðu sprengju inn í umræðuna. Er þetta kannski of við- kvæmt mál að ræða svona skömmu fyr- ir kosningar? Hvað á það svo að þýða að nefnd sem vinnur að breytingum á stjórnarskrá skuli leita umsagnar er- lends stórfyrirtækis varðandi auðlindaákvæði stjórnarskrár íslenska lýðveldisins? Er þetta í lagi? Borgarahreyfingin leggur ríka áherslu á að auð- lindir landsins séu sameign þjóðarinnar. Borgarahreyfingin hafnar því algjörlega að AGS, ALCAN – Rio Tinto, Century Aluminium og aðrir erlendir auðhringir séu að stjórna þessu landi. Þjóð – finnst ykkur þetta í lagi? Ég geri kröfu til þess að stjórnvöld segi okkur sannleikann og að þjóðin hafi kjark til að standa gegn þeirri vá sem er fyrir dyrum. Það er verið að kyrkja smá- þjóð með krumlum erlendra auðhringja. Hvernig væri svo að hætta að selja þeim orkuna okkar á gjafverði og lækka orkuverð til íslenskra framleiðenda og bænda? Það kæmi atvinnulífinu af stað og yrði þjóð- inni til blessunar. Er þetta í lagi? Eftir Valgeir Skagfjörð Valgeir Skagfjörð Höfundur skipar annað sæti lista Borgarahreyfingarinnar í Suðvesturkjördæmi. FERÐAÞJÓNUSTA er sú atvinnugrein sem er í hvað mestum vexti. Hér á landi fer stór hluti ferðamennskunnar fram á lands- byggðinni í dreifbýli og er því vel til þess fall- in að bæta efnahag dreifðari byggða og auka við fjölbreytni atvinnulífs. Eitt helsta aðdráttarafl erlendra ferða- manna til Íslands er menning lands og þjóðar og viljum við Vinstri græn leggja okkar af mörkum til að auka menningartengda ferða- þjónustu. Mjög víða á landsbyggðinni státa bæjarfélög af menningartengdum hátíðum sem eiga sér orðið hefð og draga að sér fjöldann allan af fólki. Enda má segja að slík ferðaþjón- usta sé einkar vel til þess fallin að koma menningu lands- ins á framfæri við ferðamenn. Ég held að flestir vilji auka ferðamannastraum í sinni heimabyggð. Ferðaþjónusta er atvinnuskapandi – hún er þjónustugrein, þarfnast því mikils mannafla og kostn- aður við að skapa störf í ferðaþjónustu er minni en í öðr- um atvinnugreinum. Ferðaþjónusta hleypir gjarnan lífi í bæjarfélög og gerir þau áhugaverðari og skemmtilegri til búsetu. Í hverju sveitarfélagi er það þó langmikilvægast að fólk standi saman og efli samstarf þeirra aðila sem koma að ferðaþjón- ustu og bæti úr því sem betur má fara. Þegar hugað er að uppbyggingu ferðaþjón- ustunnar þarf að skoða hvar styrkleikar hvers svæðis liggja, reyna að efla það sem fyrir er og byggja á þeim góða grunni sem til staðar er. Ég tel að möguleikarnir séu miklir enda býður landið okkar upp á mikla náttúrufegurð, fjöl- breytta útivistarmöguleika, og mikinn mann- auð. Hin hreina náttúra landsins býður upp á svo ótal möguleika og hægt er að nýta hana mun betur til að efla ímynd heilsutengdrar ferðaþjónustu. Með því að markaðssetja Ís- land erlendis aukast möguleikarnir á því að lengja ferða- mannatímabilið og þar getur hið opinbera sameinast flugfélögum og ferðaþjónustuaðilum við landkynningu. Við Vinstri græn teljum hlutverk hins opinbera fyrst og fremst fólgið í því að verja þau störf sem til staðar eru og skapa skilyrði til að ferðaþjónustan geti blómstrað. Ferðaþjónusta – falinn fjársjóður! Eftir Bjarkeyju Gunnarsdóttur Bjarkey Gunnarsdóttir Höfundur skipar 4. sæti á lista Vinstrihreyfingrinnar – græns framboðs í Norðausturkjördæmi. Á SÍÐUSTU dögum kosningabaráttunnar hefur nokkuð verið fjallað um meintan vilja VG til þess að lækka launin í landinu. Mér er málið nokkuð skylt eftir þriggja áratuga starf á vettvangi verkalýðs- hreyfingarinnar. Þar hef ég barist fyrir jöfnuði í kjaramálum. Andstæða jafnaðar er frumskógurinn og þau lögmál sem þar gilda. Til þess að komast út úr þeim skógi hafa samtök launafólks og atvinnurekendur smíð- að kauptaxtakerfi og þegar um það hefur verið að ræða að unnið skuli samkvæmt bónusum hefur verið reynt af hálfu okkar í hreyfingu launafólks að semja um þá á fé- lagslegum grunni. Það tryggir að hald sé í kjörunum þegar á reynir. Alltaf viljað háa kauptaxta Margir atvinnurekendur hafa vilj- að hafa annan hátt á: Kauptaxta lága en síðan greiðslur að þeirra duttl- ungum þar ofan á. Þegar gefur á bát- inn þjónar þetta þeirra hagsmunum en kemur launafólkinu í koll. Ég hef alla tíð verið eindreginn fylgismaður þess að hafa kauptaxta háa. Og til þess að stuðla að jöfnuði hef ég á ferli mínum í starfi innan verkalýðshreyf- ingarinnar ítrekað lagt til að samið verði um fast hlutfall á milli lægstu og hæstu launataxta. Slíkt hefur hins vegar ekki náð fram að ganga eins og kunnugt er. Nú kreppir að og ein- staklingsbundnar greiðslur ofan við taxta hrynja. Ég hef beint þeim til- mælum til stjórnenda stofnana innan heilbrigð- iskerfisins að hlífa því fólki sem er í lægri kantinum við þess háttar skerðingum. Betur væri að kauptaxtar þessa fólks væru hækkaðir því til varnar. Engir launataxtar lækkaðir Um launataxtana að öðru leyti eru skoðanir mínar mjög afdrátt- arlausar. Við samnings- bundnum launatöxtum á ekki að hrófla undir neinum kringumstæð- um. Allt tal um launalækkanir í þess- um skilningi er því út í hött. Það breytir því ekki að launataxtar geta vaxið eða rýrnað að verðgildi eftir því hver verðlagsþróun er. Því miður hef- ur óðaverðbólga undangenginna mánaða höggvið óþyrmilega í kaup- máttinn. Sem betur fer er verðbólgan nú á hraðri niðurleið og eru það góðar fréttir hvað kaupmátt áhrærir. Fólk láti ekki blekkjast Svo er hitt allt annað mál, að þeir sem taka inn tekjur sínar sem verk- takar frá hinu opinbera í allt öðru og hagstæðara skattaumhverfi en launa- maðurinn þurfa að horfa í eigin barm í þeim tilvikum sem um veruleg um- framkjör er að ræða. Þarna vaknar einfaldlega krafa um félagslegt rétt- læti og ábyrga ráðstöfun fjármuna skattborgarans. Það er mikilvægt í þeirri kjaraumræðu sem framundan er að halda þessum staðreyndum til haga en láta ekki blekkjast af út- úrsnúningatali kosningabaráttunnar. Um laun og launafólk Eftir Ögmund Jónasson Ögmundur Jónasson Höfundur er heilbrigðisráðherra. Flettu upp nafni fermingarbarnsins mbl.is FERMINGAR 2009 NÝTT Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.