Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009 ✝ Helga Sig-urbjörnsdóttir fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1917. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 18. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Þor- kelsson kaupmaður í Vísi og síðar forstjóri Kirkjugarða Reykja- víkur, fæddur á Kiða- felli í Kjós 25.08. 1885, d. 4.10. 1981, og fyrri kona hans,Gróa Bjarnadóttir, f. 16.10. 1885, d. 11.11. 1918. Systkini Helgu sammæðra eru Kristín Ninna (1909-1997), gift Hol- ger W. Nielsen tannlækni, Sólveig (1911-2005), gift Birni Sigurðssyni lækni, Þorkell Gunnar (1912-2006), verslunarmaður, kvæntur Steinunni Pálsdóttur, Birna (1913-1998), gift Ólafi Tryggvasyni úrsmið, Hanna (1915-2007), gift Sveini Ólafssyni hljóðfæraleikara og Hjalti (1916- 2006), bóndi, kvæntur Önnu Ein- arsdóttur. Systkini Helgu samfeðra, börn Sigurbjörns og seinni konu hans, Unnar Haraldsdóttur, f. 29.10. 1904 d. 14.07. 1991, eru Friðrik (1923- 1999. b) Þorvaldur, húsasmíðameist- ari f. 20.03. 1969, kvæntur Elínu Margréti Ingólfsdóttur, lögfræðingi. Dætur þeirra: Kristbjörg Arna, f. 2000 og Hildur Halla, f.2004. c) Helga, tannfræðingur, f. 21.02. 1976, í sambúð með Rúnari Hauki Gunn- arssyni, landmælingamanni. Börn þeirra: Arnar Haukur, f. 1998,og María Katrín, f. 2003. 2) Hrafnkell, vélstjóri, f. á Bíldudal 15.11. 1941, kvæntur Grétu Sigríði Haralds- dóttur, ritara, f. 3.02. 1939. Sonur þeirra: Þorvaldur Skúli, iðnverka- maður, f. 6.01. 1968, d. 5.08. 2001. Helga lauk gagnfræðaprófi og vann um skeið í Útvegsbankanum, en eftir brúðkaup fluttu þau Þor- valdur til Bíldudals, þar sem hann var forstjóri Rækjuverksmiðjunnar og frumkvöðull á ýmsum sviðum. Þorvaldur var einn þeirra mörgu sem fórust með vélskipinu Þormóði á leið til Reykjavíkur í aftakaveðri 17./18. febr. 1943. Helga stóð uppi 25 ára ekkja með tvo unga syni, og flutti því til Reykjavíkur, þar sem fjölskyldan studdi hana dyggilega. Hún setti saman bú með bræðrum sínum ókvæntum, Þorkeli og Hjalta, sem reyndust sonum hennar eins og bestu feður. Hún giftist ekki aftur. Þegar synirnir komust á legg hóf hún á ný störf í bankanum, og vann þar til starfsloka 1987, þá orðin deildarstjóri í Íslandsbanka, vinsæl og vel liðin bæði meðal samstarfs- manna og viðskiptavina. Útför Helgu fer fram frá Áskirkju í dag, 24. apríl, og hefst athöfnin kl. 15. 1986), lögfræðingur, kvæntur Halldóru Helgadóttur, Ástríður (1925-1935), Áslaug (1930-2001), hjúkr- unarfræðingur, gift séra Magnúsi Guð- mundssyni. Yngstur, og einn eftirlifandi þeirra systkina og maka, er Björn, erfða- fræðingur, f. 1931, kvæntur Önnu Páls- dóttur lífeindafræð- ingi, en fyrri konu sína, Helgu Páls- dóttur, missti hann 2004. Helga giftist 25.12. 1938 Þorvaldi Friðfinnssyni málara og niðursuðu- fræðingi, f. í Reykjavík 25.12. 1908. Foreldrar hans voru hjónin Frið- finnur Pétursson frá Járngerð- arstöðum (1866-1914) og Jónína Þor- valdsdóttir húsmóðir og verkakona, af Mýrum (1875-1935). Synir Helgu og Þorvaldar eru 1) Björn, tannlæknir, f. á Bíldudal 14.11. 1939, kvæntur Kristbjörgu Kjartansdóttur tanntækni, f. 2.10. 1944. Þeirra börn eru: a) Erna, B.A. í alþjóðasamskiptum, f. 2.06. 1967, í sambúð með Þórarni Bjarnasyni, verkfræðingi. Börn þeirra: Þor- björn, f. 1994 og Hildigunnur, f. Elsku systir mín, Helga, lést 18. apríl, 91 árs. Það er sérstök lífs- reynsla að sjá nú á bak tíu systkinum sínum og standa ellefti, einn, eftir. En það eru líka mikil forréttindi að hafa alist upp umvafinn ást og umhyggju þessara yndislegu systkina minna. Ég veit ekki hvort það er algengt, en ég man aldrei eftir neinni misklíð, neinum deilum eða missætti í þessum stóra systkinahópi, barna Sigur- björns Þorkelssonar í Vísi og fyrri konu hans, Gróu, sem lést í spönsku veikinni 1918, og seinni konu hans, móður minnar, Unnar. Mér var sagt eftir að ég hafði vit til að sumt af systkinum mínum væru hálfsystkin og sum alsystkin. Þar sem ég fann ekki þá og aldrei síðan neinn mun á okkur systkinunum, varð þessi vitn- eskja óþörf. Elskuleg systir mín, Helga, var yngst af eldri systkininum sjö, en ég yngstur af hinum fjórum. Helga var eins árs þegar hún missti móður sína. Hún sagði stundum að ég hefði verið aðeins of fljótur í heiminn að fæðast rétt fyrir miðnætti, daginn fyrir af- mælisdaginn hennar, 19. nóvember. Hún vildi fá mig í afmælisgjöf. Helga giftist ung manni sínum, Þorvaldi Friðfinnssyni, glæsilegum hæfileikamanni sem við systkinin dáðum og virtum. Hann var ekki bara aðlaðandi persónuleiki heldur annál- aður athafnamaður og afburða list- málari og teiknari. Sagt var að Kjar- val hefði talið hann efnilegasta upprennandi landslagsmálarann á Ís- landi. Ég man þegar þau Helga sigldu til Bíldudals þar sem Valli gerðist for- stjóri rækjuverksmiðjunnar og þar sem þau eignðust synina tvo, Björn tannlækni og Hrafnkel vélstjóra. Ég minnist líka sorgarinnar þegar Valli drukknaði ásamt fleirum er vélskipið Þormóður fórst í fárviðri á leið frá Bíldudal til Reykjavíkur. Eftir sátu rúmlega tvítug ekkja og eins og tveggja ára strákarnir þeirra. Þorkell bróðir og Birna systir fóru vestur með varðskipi til að sækja litlu fjöl- skylduna og tók Þorkell þau svo að sér. Helga vann nær alla sína ævi í Út- vegsbankanum og síðar Íslands- banka. Hún hlýtur að hafa verið af- bragðsstarfsmaður, því hún hækkaði hratt í tign og ábyrgð. Vinsældir hennar meðal samstarfsmanna voru slíkar að mér var alltaf tekið með kostum og kynjum í bankanum sakir skyldleika við Helgu. Ég nýt hennar enn af þeim kollegum hennar sem enn starfa í Íslandsbanka. Helga var alltaf kjölfestan í systk- inahópnum, sá um öll sameiginleg fjármál og það sem þurfti að gera sameiginlega í fjölskyldunni. Það var þung reynslan sem ung kona mátti þola og takast á við í lífinu en aldrei sá ég hana eða heyrði kvarta. Alltaf kát og glöð og umvafði litla bróður sinn og okkur öll hin með kærleika sínum. Ég sakna Helgu systur og allra minna yndislegu systkina. Einhvers staðar eru þau nú öll saman komin og halda áfram að veita hvert öðru og öll- um í kringum sig af kærleika sínum og umhyggju. Þeir nafni minn og Hrafnkell hafa nú misst báða foreldra sína, en hví- líkur fjársjóður af góðum minningum sem þeir og fjölskyldur þeirra eiga. Guð blessi þá og fjölskyldur þeirra og minningu Helgu, elsku systur minn- ar. Björn Sigurbjörnsson. Nú er mín kæra tengdamamma Helga farin í ferðina löngu, sem bíður okkar allra, á vit genginna ástvina. Hvíldinni fegin eftir langan dag. Ljúf- ari og betri konu var vart hægt að hugsa sér. Hún var líka falleg ytra sem innra, greind og skemmtileg. Hafði þessa góðu nærveru svo manni leið alltaf vel með henni. Hún átti góða æsku í faðmi sam- heldinnar fjölskyldu. Hún missti móður sína í spönsku veikinni innan við árs gömul, en þá tók Kristín amma hana undir sinn verndarvæng og pabbi og eldri systkinin sex létu ekki sitt eftir liggja. Svo eignaðist hún Unni mömmu og fjögur systkini í viðbót, og það var engin lognmolla á því heimili þegar allir voru saman- komnir. Sorgin barði reyndar aftur að dyrum þeirra þegar Ásta litla syst- ir dó 10 ára gömul og Helga var bara 18 ára. Stóru ástina sína, hann Valla, fékk hún líka að hafa allt of stutt hjá sér, því hann fórst í Þormóðsslysinu vet- urinn 1943 og hún orðin ekkja 25 ára með drengina sína tvo, eins og þriggja ára. Þau höfðu flust vestur á Bíldudal þar sem Þorvaldur var verk- smiðjustjóri, og að sögn heimamanna fluttu þau með sér ferskan andblæ ut- an úr heimi, enda hann nýkominn frá námi erlendis. Hún sagði stúlkum til í leikfimi, sem hún hafði stundað fyrir sunnan, hann kenndi á skíðum og sagði unglingum frá framandi heimi myndlistar, var sjálfur snjall teiknari og listmálari. Eftir slysið flutti hún suður og þá var gott að eiga stóra og samheldna fjölskyldu sem umfaðmaði þau. Með hjálp bræðra sinna þá ókvæntra, Hjalta og einkum Þorkels, kom hún drengjunum sínum til manns og það með glans. Hún fór að vinna í Útvegsbankan- um allt þar til hún varð sjötug, ánægð og vel liðin enda var þar ekkert kyn- slóðabil, hún var alltaf ein af stelp- unum. Hún var fagurkeri á myndlist og unni góðri tónlist. Við urðum oft sam- ferða á sýningar og kammertónleika, og Sinfóníuna stundaði hún með systrum sínum og systurdætrum. Ferðalög og útivist voru stór þáttur í lífinu. Hún fór með strákana sína í Þórsmörk og Landmannalaugar og kveikti hjá þeim ferða- og öræfaþrá, sem pabbi þeirra hafði reyndar löngum verið haldinn. Það var nota- legt að ferðast með henni bæði innan- lands og utan og gaman að sjá hvern- ig hún pakkaði niður í tösku með því að rúlla flíkunum upp. Útivistin var þó lengst af mest stunduð í sumarparadísinni á Kiða- felli, sælureitnum og sumarbústað þeirra systkina í Brekku. Þar undu þær systur Helga og Hanna, sem allt- af voru sérlega samrýndar, lengi sumars fram eftir ævi. Þangað var gott að koma og sækja sér bæði and- lega og líkamlega næringu. Helga var börnunum okkar afar góð amma og fyrirmynd. Naut þess að gæta þeirra, las þeim sögur og ljóð og passaði upp á bænirnar. Prjónaði sokka og vettlinga og dekraði við þau á allan máta. Þau launuðu líka fyrir sig með því að fá hana til að hætta að reykja. Ég kveð hana hinstu kveðju með söknuði og þakklæti fyrir allt, ekki síst fyrir hann Bjössa minn, sem ég vonandi fæ að hafa hjá mér svolítið lengur. Guð blessi minningu hennar. Kristbjörg Kjartansdóttir. Helga amma lék stórt hlutverk í uppvexti mínum. Alltaf nálæg, tilbúin að gefa af sér og fylgjast af einlægum áhuga með því sem ég tók mér fyrir hendur. Hún kenndi mér bænirnar, sem ég síðar kenndi mínum börnum, bauð í leikhús og á tónleika og var til staðar þegar á þurfti að halda. Amma átti mörg systkini og hún fylgdist með afkomendum þeirra allra af lifandi áhuga eins og þeir væru hennar eigin. Það var henni mikilvægt að fjölskylduböndin gliðn- uðu ekki þótt ættliðunum fjölgaði og hún sá til þess að við systkinin kynnt- umst og umgengjumst frændur og frænkur. Árin sem ég bjó í Danmörku skrifaði hún mér reglulega löng bréf þar sem hún sagði fréttir af sjálfri sér og stórfjölskyldunni. Hvergi leið ömmu betur en í Brekku, sumarbústaðnum á Kiðafelli í Kjós, þar sem hún var umvafin nátt- úrunni og ættingjunum á Kiðafelli og í bústöðunum í kring. Þar réðu þær ríkjum hún og Hanna systir hennar, tóku að sér næturgesti, nærðu barna- hópinn sem fór eins og sveimur á milli bústaða og aðstoðuðu við leik- og íþróttaæfingar á flötinni fyrir framan bústaðinn. Amma hafði yndi af að kenna okk- ur og fræða og segja okkur sögur úr bernsku sinni. Hún hvatti okkur til að bera virðingu fyrir náttúrunni og ganga vel um hana. Þannig kenndi hún okkur að þekkja blóm og jurtir sem vaxa í sveitinni og hlúa að gróðr- inum. Við fylgdumst með lífi brekkus- nigilsins sem búið hafði um sig í rör- inu yfir lækinn og með þröstunum sem verptu í nágrenni Brekku. Við stikluðum og óðum í ánni, tíndum steina í fjörunni og veltum við kúa- dellum í Kvíahvammi. Það er ekki hægt að minnast Helgu ömmu án þess að Hanna amma komi þar talsvert við sögu. Að mörgu leyti svo ólíkar systur en tengdar sterkum böndum og nágrannar stóran hluta ævinnar. Þær bjuggu mörg ár í sam- liggjandi íbúðum í Sólheimunum og ég minnist þess varla að hafa heim- sótt ömmu þangað án þess að hún hafi sótt Hönnu, svo Hanna mætti fá frétt- ir af mér og mínum. Þær töluðu gjarnan hvor upp í aðra, sögðu hvor sína söguna svo talsvert var fyrir því haft að halda þræði í þeim báðum samtímis. Þær ferðuðust saman, m.a. til Ninnu systur sinnar í Danmörku. Í einni slíkri heimsókn komu þær í mat til okkar og átti aldeilis að gera vel við þær og bjóða upp á íslenskan fisk. Eitthvað mislukkaðist eldamennskan og Hanna fékk lítið eldaðan bita. „Þetta er allt í lagi,“ sagði amma þá, „henni Hönnu hefur alltaf þótt hrár fiskur miklu betri en eldaður,“ og þar með þurfti ekki að vandræðast meira með það. Þegar við fluttum heim frá Danmörku fannst henni ekkert sjálf- sagðara en að flytja yfir til Hönnu svo við gætum búið í íbúðinni hennar þar til við fyndum okkur eigið húsnæði. Ömmu hafði farið mikið aftur á undanförnum árum. Hún var enn ljúf og góð en minnið orðið mjög götótt. Það er því ómetanlegt að geta kallað fram ótal góðar minningar um elsku ömmu, þessa sterku, ákveðnu en um- fram allt umhyggjusömu og hlýju konu. Ég kveð hana nú með kærri þökk fyrir allt sem hún gaf mér. Það hefur reynst mér ómetanlegt vega- nesti út í lífið. Erna. Elsku amma. Þetta er mitt síðasta bréf til þín, eitt af ótalmörgum sem okkur hafa farið á milli í gegnum tíðina. Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja eða hvernig, því ég minnist svo margs þegar ég hugsa um þig. Óteljandi hlutir sem minna á þig koma upp í hugann. Góðmennska, Svarti-Pétur, Brekka, dönskuslettur, þrasið í þér og Hönnu, skilningur, stuðningur, hlý orð, hjálpsemi, hreinskilni og hispurs- leysi. Áttræðisafmælið þitt í London, mannbroddar, skattholið, bænir og kandískrukkan í eldhússkápnum. Uppháu körfuboltaskórnir þínir, slæðurnar, útskriftin mín í Kaup- mannahöfn að ógleymdum öllum samverustundunum. Svona gæti ég haldið áfram endalaust. Þú sitjandi í stólnum þínum með klassíska tónlist á fóninum að lesa Moggann eða með eitthvað á prjónunum, já eða ný- komna heim frá Ninnu systur þinni í Kaupmannahöfn með töskuna fulla af einhverju spennandi handa okkur barnabörnunum og spægipylsu og einn „táfýluost“ handa fullorðna fólk- inu. Þú hafðir gaman af því að ferðast, fara á söfn og stunda aðra menning- arviðburði og þú vildir gjarnan deila því með okkur. Þú varst mikil fjöl- skyldumanneskja enda alin upp í stórri og mjög samheldinni fjöl- skyldu. Þér þótti því mikilvægt að fylgjast vel með því sem við vorum að gera hverju sinni. Margsinnis tók ég leið 3 heiman frá mér á Nesinu í vinnuna til þín í Út- vegsbankann. Þaðan lá leið okkar með tvistinum í Sólheimana, þar sem þú áttir heima í meira en 20 ár. Þegar við litla fjölskyldan fluttumst heim frá Danmörku fyrir 2 árum varstu komin á Skjól. Íbúðin þín stóð tóm og við fengum að flytja inn í hana. Þetta gerði heimflutninginn svo miklu auð- veldari og erum við þér ævinlega þakklát fyrir það. Nú ert þú farin í þitt síðasta ferða- lag og í þetta sinn muntu ekki koma heim aftur. Nýr áfangastaður bíður þar sem löngu látnir ættingjar og vinir taka vel á móti þér. Ég veit að þú ert búin að bíða eftir þessari ferð í nokk- urn tíma og ég gleðst fyrir þína hönd þó að ég og við hin sem eftir sitjum séum leið yfir því að hitta þig ekki aft- ur. Elsku amma, takk fyrir allt. Helga. Elsku amma. Okkur langaði bara að segja takk. Takk fyrir að vera góð, ástrík og um- hyggjusöm amma og langamma. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur, hlustaðir og studdir. Full af kærleika og kennd- ir okkur að bera virðingu fyrir öllum, bæði mönnum og málleysingjum sem og náttúrunni allri. Takk fyrir allar minningarnar. Fyrst á Hringbraut- inni, kandís, kókostoppar, falið silfur- berg og lykill á flugi út um klósett- gluggann. Göngutúrar í kirkjugarðinn, niður að tjörn og á söfn. Jólaböll í Útvegsbankanum, gistinætur og gleði, alltaf gleði. Síðan í Sólheimunum, músík í útvarpinu, eitt- hvað á prjónunum, teiknaðar myndir, fjölskylduboð og ís. Marglitu snjó- kornin, skúffukassinn sem svo gaman var að gramsa í og auðvitað falið silf- urberg, líka með næstu kynslóð. Hlýj- ar móttökur, Skúli, Hanna, Lóló eða einhver annar í heimsókn, sérrí, hlegið og talað, mikið talað. Sterkastar eru þó minningarnar úr sveitinni. Göngu- túrar, náttúruskoðun, sögur úr fortíð- inni og samvera með ættingjunum. Arineldur í Brekku, notalegheit og all- ir í feluleik í Svartaskógi. Frelsi. Leik- ur, gleði og hlátur svo að sumir héldu varla vatni. Takk fyrir að fá að kynn- ast þér og læra af þér hvað skiptir máli í lífinu. Þú varst yndisleg mann- eskja og það var og er auðvelt að elska þig. Takk. Þorvaldur, Elína Margrét og dætur. Ég sé þau fyrir mér standandi sitt- hvorumegin við hliðvængina upp að grasigróinni hlíðinni að himnesku Kiðafelli takandi glaðbeitt veifandi og umfaðmandi á móti henni Helgu, systkini hennar þau Ninna, Lóló, Bóbó, Binna, Hanna og Hjalti, Frið- rik, Áslaug og Ástríður sem kölluð var burt af foldu aðeins 10 ára gömul. Með þeim er afi Sigurbjörn og Gróa fyrri kona hans sem lést úr spænsku veik- inni árið 1918 frá sjö börnum þegar Helga, sem var þeirra yngst, var að- eins rétt ársgömul. Þarna er að sjálf- sögðu einnig hún Unnur amma sem gekk Helgu í móðurstað, Kristín langamma auk maka systkinanna ásamt mörgu fleira af góðu fólki að ógleymdum riddaranum á hvíta hest- inum, glæsimenninu Þorvaldi Frið- finnssyni sem kemur ríðandi niður hlíðina ásamt afadrengnum Þorvaldi Skúla til þess að taka á móti Helgu. Það sjást gleðitár á hvarmi og það verða fagnaðarfundir. Eftir að hafið hafði tekið Þorvald Friðfinnsson eiginmann Helgu, sem fórst með vélskipinu Þormóði frá Bíldudal í febrúar 1943 þegar hún var aðeins 25 ára gömul með synina tvo Björn þriggja ára og Hrafnkel á öðru ári, kom það í hlut föður míns, bróður Helgu, að fara vestur til að hlúa að litlu systur og drengjunum hennar. Héldu þau síðan saman heimili, fyrst við Hrefnugötu 4, þar sem þau bjuggu til ársins 1949 er þau fluttu að Sigtúni 29 þar sem þau bjuggu þar til faðir minn mannaði sig upp í að biðja sér konunnar sem hann hafði haft auga- stað á til fjölda ára. Giftust þau daginn fyrir fimmtugsafmælið hans árið 1962 og fluttu þá Helga og drengirnir að Kirkjuteigi 33. Miklir kærleikar og samstaða ríkti með þeim systkinum, börnum afa míns, Sigurbjörns Þorkelssonar í Vísi. Þá ekki síst gagnkvæm umhyggja pabba og Helgu sem sýndi sig í sjálf- sögðu verki alla tíð og bar þar aldrei skugga á. Það var því ekki auðvelt fyrir föður minn þótt hann teldi það ekki eftir sér að heimsækja báðar konurnar sem hann hafði búið með um ævina, mömmu og Helgu systur sína, á sömu hæðina á Hjúkrunarheimið Skjól þar sem þær dvöldust báðar með heilabil- un og runnu sitt skeið. Þótt ég ætti Helga Sigurbjörnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.