Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009 Í dag kveðjum við ástkæra ömmu og langömmu. Það var alltaf svo gott að koma til hennar í Seljahlíð þar sem hún bjó síðustu ár sín. Hún tók alltaf vel á móti okkur með bros á vör og alltaf átti hún til kókómjólk og fleira góð- gæti handa krökkunum. Með söknuð í hjarta kveðjum við hana og vitum að nú er hún komin á fallegan stað þar sem henni líður vel. Guð geymi Mæju ömmu. Kveðja, Hilmar, Guðný, Aníta Rut, Andri Snær og Aron Orri. Elsku besta amma mín. Nú ertu komin til englanna þinna sem taka vel á móti þér. Það er svo mikið sem ég get sagt um þig, amma mín og minningarnar um þig eru svo margar og dásamlegar. Eins og til dæmis þegar ég var lítil og þú kennd- ir mér að syngja, þegar ég var ný- byrjuð að labba og þú fórst með mér á stubbunum mínum í göngutúra klukkutíma á dag útaf eyrnabólgunni minni, þegar þú tókst mig svo oft með þér uppá Stóru-Fellsöxl. Sögun- um sem þú sagðir mér mun ég aldrei gleyma. Söknuðurinn nístir mig þegar ég rifja upp allar stundirnar okkar sam- an en ég veit líka að núna líður þér betur og ert með þeim sem þú hefur saknað svo lengi. Manstu það sem við ræddum fyrir ekki svo löngu síðan, ég veit að þú kemur því til skila. Manstu þegar ég gaf þér lagið okkar María Guðmundsdóttir ✝ María Guðmunds-dóttir fæddist 28. september 1918 á Suðureyri við Súg- andafjörð. Hún lést á dvalarheimilinu Seljahlíð 8. apríl sl. Útför Maríu fór fram frá Seljakirkju 20. apríl sl. Meira: mbl.is/minningar innrammað, ásamt myndum af okkur í, hvað ég var stolt af því að hafa gert þetta fyrir þig og þá sagðir þú með þinni einstöku rödd: „Nei sko! en hvað þetta er fallegt, Valgerður mín, og þú skrifaðir vísuna sem við eigum tvær, lagið okkar.“ Með þessari vísu vil ég kveðja þig. Krummi krunkar úti, kallar á nafna sinn. Ég fann höfuð af hrúti, hrygg og gæruskinn. Komdu nú og kroppaðu með mér, Krummi nafni minn. Komdu nú og kroppaðu með mér, Krummi nafni minn. (Gömul þjóðvísa) Elsku besta amma mín, minning þín verður ávallt ljós í lífi mínu. Takk fyrir sönginn sem þú gafst mér og ég mun alltaf muna krumm- ann okkar. Þín að eilífu, Valgerður Ólafsdóttir Elsku Mæja amma, ég vil þakka þér fyrir tímana sem við áttum saman í gegnum árin. Það var alltaf svo gaman að koma í heim- sókn til þín, þú tókst alltaf svo vel á móti manni. Það var gaman að tala við þig, þú sagðir alltaf svo skemmti- lega frá og varst alltaf með einhverj- ar sögur til að segja manni. Þú hafðir frábæran húmor og hlóst alltaf svo dátt. Ein besta minning mín um þig og sú sem fær mig alltaf til að skelli- hlæja er þegar ég sagði þér frá því að Sóley hefði verið með ákveðnar spurningar um hálsinn á þér og ég gleymi því aldrei hvað þú hlóst að þessari athugasemd hennar, þú gjör- samlega veltist um af hlátri og talaðir alltaf um þetta þegar við hittumst og hlóst alltaf jafn mikið að þessu. Já, amma, ég á margar góðar, skoplegar og yndislegar minningar um þig og ég trúi því að þú sért kom- in á góðan stað þar sem vel er tekið á móti þér. Ég kveð þig, elsku amma mín, með kærleik og vinsemd. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín Ásgerður Ólafsdóttir Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Í dag kveð ég elskulega systur mína Maríu og fyrir tæplega mánuði dó mágkona okkar, Sigríður Kamilla, kallið var komið, tíminn liðinn. Og það var svo margt sem ég hefði viljað spyrja um, en nú of seint. Við syst- urnar kynntumst ekki fyrr en ég er að verða fullorðin, svo mér finnst ég hafa tapað miklum tíma. Móðir okkar dó aðeins 43 ára frá fimm ungum börnum, Hallbjörn elstur 16 ára, María 14 ára, Jón að verða 10 ára, Ásgeir á 7. ári og ég Guðrún á 5. ári. Þetta voru erfiðir tímar, kreppan stóra og lítil vinna og enga hjálp að fá. Þrjú elstu börnin fóru strax að vinna fyrir sér, en pabbi hafði okkur Ásgeir hjá sér þar til ég var tekin í fóstur 6 ára. En Ásgeir dó svo þrem- ur árum seinna. Þú varst alltaf svo dugleg, elsku systir mín, ég veit þú varst stoð og stytta pabba í þessari miklu sorg, þó þú værir ung að árum. Þú varst kom- in í vist á Ísafirði aðeins 14 ára göm- ul. Alla tíð vannstu, svo dugleg og myndarleg, mikil húsmóðir, þegar þú giftir þig og sást vel um stóra og myndarlega barnahópinn þinn, að eignast 11 börn er mikið þrekvirki, og þau komust öll til fullorðinsára nema elsti drengurinn sem dó sama dag og hann fæddist. Stóri fallegi hópurinn þinn, 5 drengir og 5 stúlk- ur, hvert öðru myndarlegra og öll vænar manneskjur. Mágur minn Sig- urður Breiðfjörð Jónsson var yndis- legur maður og alla tíð mikill vinur minn. Við systurnar vorum miklir vinir og það var alltaf mikið gaman þegar við hittumst og mikið hlegið, saman fórum við í ferðalög erlendis og ferðuðumst líka saman innan- lands. Þú varst góður félagi og systir og mikil húsmóðir, móðir og vinur vina þinna. Ég þakka þér öll liðnu ár- in og mín fjölskylda man alltaf Mæju frænku. Ég veit að mörg tár falla hjá stórfjölskyldunni þinni, því þú varst elskuð af þeim öllum og ég veit þau sakna þín mikið. Það er svo margs að minnast, svo margt sem kemur upp í hugann, en efst er þó þakklætið að hafa átt þig fyrir systur. Hafðu hjart- ans þökk fyrir allt, frá mér og minni fjölskyldu. Góður Guð veri með börn- um þínum og þeirra fjölskyldum. Þó rósirnar fölni og falli og fjúki um hæðir og mel og ævinnar hádegi halli, í huganum líður mér vel. Þó héli um hauður að nýju og hætturnar umkringi mig, það veitir mér himneska hlýju að hugsa um vorið og þig. (G.Ó.) Ég veit þín bíða vinir í varpa. Guð geymi þig. Guðrún (Rúna) systir. Elsku Mæja frænka. Nú er hvíldin komin og þú horfin úr þessu lífi en minningin lifir í hjörtum okkar. Þú hafðir skilað þínu vel, 11 börn eign- aðist þú og 9 á lífi í dag, strax frá blautu barnsbeini unnið hörðum höndum fyrir þér og þínum. Ég vil þakka þér fyrir alla þá elsku og góð- vild sem þú sýndir mér og dætrum mínum. Það kemur enginn í staðinn fyrir Mæju frænku. Það bjó ævin- týramanneskja innra með þér, því fékk ég að kynnast. Við fórum saman í ferðalag með Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík, þú komin langt á áttræðisaldurinn. Farið var upp á Skálafellsjökul, á vélsleða og inn í ís- helli og fleira skemmtilegt gert og þú sko til í allt, ógleymanleg ferð. Þakka þér fyrir það þegar þú tókst að þér heimilið mitt, vikutíma þegar við mamma skruppum til London. Dæt- ur mínar tala enn um það hvað þú varst góð og hvað það var gaman hjá ykkur. Ég kveð þig, elsku Mæja frænka mín, með söknuði og þakklæti. Ég veit að þér líður vel og þú finnur ekk- ert til lengur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Góður guð blessi þig og varðveiti. Hafðu þökk fyrir allt. Hrafnhildur Scheving og dætur. Elsku langamma. Þú varst svo góð við mig alltaf þegar ég hitti þig. Þú áttir alltaf súkkulaði. Þú hlóst alltaf svo mikið og varst alltaf glöð. Það fannst mér svo gaman. Mér þykir vænt um þig. Þín, Sóley Dögg HINSTA KVEÐJA Nú ertu fallinn frá, elsku afi, langt fyrir aldur fram. Við kveðj- um þig með tár í aug- um en bros í hjörtum. Þín verður sárt saknað en samt erum við svo fegin að þú skyldir fá að fara svona fljótt eftir svo erfið veikindi. Loksins ertu kominn á betri stað eftir erfiða baráttu við hræðilegan Alz- heimers-sjúkdóm þar sem þú varst orðinn fangi í eigin líkama. Okkur þótti svo sárt að geta ekki heimsótt þig oftar eftir að þú varst orðinn svona mikið lasinn þar sem fjarlægðin var svo mikil á milli okkar, þú í Reykjavík en við á Akureyri. En við heimsóttum þig alltaf þegar við fórum suður með pabba og mömmu og við vorum svo ánægð þegar við sáum brosið þitt þegar þú tókst á móti okkur, því þá vissum við að þú þekktir okkur og varst örugglega ánægður að fá okkur í heimsókn til þín. Okkur fannst alltaf svo erfitt að sjá hvað sjúkdómurinn náði sífellt meiri og meiri tökum á þér milli heimsókna til þín. Við vissum að þetta var svo erfitt fyrir þig því þú gerðir þér grein fyrir að sjúkdómurinn var að taka smám saman völdin af þér. Þú sem varst alltaf svo handlaginn og dugleg- ✝ Sævar Frímanns-son fæddist á Ak- ureyri 2. febrúar 1942. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi 8. apríl sl. Útför Sævars fór fram frá Bústaða- kirkju 20. apríl sl. ur að dunda þér við hitt og þetta áður en þú veiktist og máttir aldr- ei sjá neitt í niðurníðslu eða sjá óskipulag á hlutunum, því þá þurft- ir þú að bregðast strax við og gera við eða laga til. En smátt og smátt minnkuðu kraftar þínir og geta til að gera það sem þér þótti skemmtilegt og sjúk- dómurinn herjaði á þig með öllu sínu ógnar- valdi og hertók þig. Elsku afi, við geymum ljúfar minningar um þig og minnumst meðal annars ferðar okkar til Spánar um árið þegar við heim- sóttum ykkur Hildi. Við dvöldum hjá ykkur ásamt Helgu ömmu og systr- um pabba og þeirra fjölskyldum í samtals þrjár vikur. Það var yndis- legur tími því það var svo margt að sjá og þú varst svo duglegur að sýna okkur skemmtilega og fallega hluti. Fórst með okkur niður í miðbæinn á Torrevieja eða á ströndina, eða bara út í sundlaugargarðinn ykkar, sífellt var eitthvað nýtt að sjá og hver dagur öðrum skemmtilegri. Þú varst einnig svo stoltur af íbúð- inni ykkar Hildar og sýndir okkur hvað þú varst búinn að vera duglegur að taka hana í gegn, og það gerðir þú þrátt fyrir að þú hefðir ekki fullt starfsþrek eftir að hafa farið í þrjár hjarta- og kransæðaaðgerðir. Senni- lega hefur Alzheimers-sjúkdómurinn einnig þá þegar verið farinn að herja á þig án þess að nokkur vissi af því þá. En það lýsir þér best hvað þú varst alltaf duglegur og gast aldrei á þér setið ef eitthvað þurfti að fram- kvæma, þú varst einnig alltaf boðinn og fús að hjálpa öðrum og ávallt fyrst- ur til verka þrátt fyrir heilsubrest. Elsku afi, það verður svo erfitt að hugsa til þess að við munum ekki geta átt fleiri slíkar yndislegar stundir eins og við áttum öll saman á Spáni, en við eigum svo sannarlega eftir að ylja okkur við ljúfar minningar um þig og við munum halda minningu þinni á lofti um ókomin ár. Hvíl í friði, elsku afi. Þín afabörn, Camilla Hólm, Júlía Rós og Sævar Andri. Í dag er til moldar borinn Sævar Frímannsson, fyrrverandi formaður Verkalýðsfélagsins Einingar. Sævar starfaði hjá félaginu samfellt í 18 ár við góðan orðstír, þar af sem varafor- maður í 5 ár og formaður í 7 ár. Fyrstu árin sinnti hann almennum skrifstofustörfum hjá Einingu en árið 1980 var hann kosinn varaformaður félagsins og fimm árum síðar tók hann við sem formaður. Sævar lét af störfum sem formaður vorið 1992 en starfaði áfram á skrifstofu félagsins til vors 1994, en þá lét hann af störf- um sökum alvarlegs heilsubrests. Sævar sat lengi í miðstjórn ASÍ og í framkvæmdastjórn Verkamanna- sambands Íslands sem fulltrúi Ein- ingar. Hann sinnti einnig fjölmörgum öðrum störfum í þágu félagsins. Á aðalfundi Einingar-Iðju 27. apríl 2006 var Sævar sæmdur gullmerki félagsins fyrir áratuga starf í þágu fé- lagsmanna og honum þökkuð óeigin- gjörn störf fyrir félagið. Við þökkum Sævari fyrir góð kynni og ánægjulegt samstarf og sendum Hildi og fjölskyldunni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði. F.h. stjórnar og starfsfólks Einingar-Iðju, Björn Snæbjörnsson. Sævar Frímannsson ✝ Snjólaug GuðrúnEiríksdóttir Shoemaker fæddist í Reykjavík 26. nóv- ember 1935. Hún lést í Concord í Kaliforníu 22. febrúar sl. Minningarathöfn um Snjólaugu var í Fossvogskapellu 23. mars sl. Meira: mbl.is/minningar Hann var fallegur dagurinn þegar þú kvaddir elsku Björg mín eftir erfiða baráttu við veikindi þín. En nú er þjáningum þínum lokið og ég veit að þú ert á góðum stað. Mikið óskap- lega finnst manni þetta vera ósann- gjarnt þegar móðir er tekin frá börn- um sínum en ég vil trúa því að einhver hljóti tilgangurinn að vera. Þú ert og munt alltaf vera hetjan mín sem barð- ist til síðasta dags. Við áttum svo margar stundir saman sl. vikur, þó svo þær hafi verið erfiðar voru þær samt svo ljúfar og dýrmætar, og við vinkonurnar veittum hver annarri ómetanlegan stuðning. Það er búið að vera óendanlega erfitt að horfa upp á þig svona veika eins og þú varst orðin, en svo gott að hafa getað verið hjá þér þegar þú þurftir mest á því að halda. Ég er svo þakklát fyrir hvað við átt- um yndislegt kvöld á afmælinu mínu í febrúar, þú varst svo ákveðin í að koma og eiga kósýkvöld með okkur stelpunum þó svo að þú værir mikið veik og þú stóðst við það, sem sýnir hvað þú varst ótrúlega dugleg og sterk. Yndislegast var að heyra þig tala um elsku Ragga þinn, hvað þú elskaðir hann mikið og hvað þú værir lánsöm, ást ykkar var svo einlæg og falleg og aldrei hef ég séð aðra eins umhyggju og ást og hann hefur sýnt þér í veikindum þínum. Missir hans Björg Ólöf Bjarnadóttir ✝ Björg ÓlöfBjarnadóttir fæddist í Stykk- ishólmi 23. júlí 1964. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja 8. apríl síðastliðinn. Útför Bjargar var gerð frá Víðistaða- kirkju 22. apríl sl. og barnanna ykkar er mikill og ég bið Guð og englana að vera hjá þeim og gefa þeim styrk. Elsku vinkona það er komið að kveðju- stund, þú munt alltaf eiga stað og minningar í hjarta mínu sem ég mun ylja mér við, það er sárt að þurfa að kveðja, en ég veit að við munum hittast á ný, Guð varðveiti þig og geymi fallega vinkona. Og eins og við sögðum svo oft þegar við kvöddumst: „I love you.“ Elsku Raggi, Þormar, Haf- steinn, Ragna Sól, Bjarni og aðrir að- standendur, mínar innilegustu sam- úðarkveðjur og megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Þín vinkona, Svandís Ragnarsdóttir. Snjólaug Guð- rún Eiríksdótt- ir Shoemaker Minningar á mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.