Morgunblaðið - 24.04.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
segðu
smápestum
stríð á hendur!
Fæst í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
irnar koma niður á öllum þáttum
starfseminnar og hafa sumir starfs-
mannanna verið lengi hjá fyrirtæk-
inu. „Maður er alveg miður sín að
vera að segja upp svo mörgu hæfu
fólki.“
Spurður hvort búast megi við
frekari niðurskurði segir hann ekk-
ert vitað í þeim efnum. „Undanfarn-
ir mánuðir hafa sýnt manni að það
þýðir ekki að reyna að spá því hvað
gerist næst og það á líklega hvergi
betur við en í fjármálabransanum.“
annaei@mbl.is
Upplýsingatæknifyrirtækið Teris
hefur sagt upp tæpum fjórðungi
starfsfólks. Alls starfaði 141 hjá fyr-
irtækinu og hefur 34 nú verið sagt
upp störfum.
Að sögn forstjórans, Sæmundar
Sæmundssonar, eru uppsagnirnar
beintengdar fjármálahruninu. „Við
erum fyrirtæki sem sinnir eingöngu
upplýsingatækniþjónustu fyrir fjár-
málafyrirtæki.“ Meðal viðskiptavina
Teris séu t.d. allir sparisjóðir á land-
inu, sem og fjölmörg önnur fjármála-
fyrirtæki, sem nú dragi saman seglin.
Þegar Spron og Sparisjóðabank-
inn voru komnir undir skilanefnd og
Kaupþing hafði yfirtekið Sparisjóð
Mýrasýslu, hafi fyrirtækið ekki átt
annan kost þrátt fyrir aðhaldsað-
gerðir undanfarna mánuði, en Teris
sagði upp 15 manns í haust.
Ekkert annað í stöðunni
„Þetta kemur mjög harkalega nið-
ur á rekstri eins og okkar og því
miður var ekkert annað í stöðunni
en að grípa til svo róttækra að-
gerða,“ segir Sæmundur. Uppsagn-
34 sagt upp hjá Teris
Ekki annar kostur í stöðunni eftir yfirtöku sparisjóðanna
Kemur niður á öllum þáttum starfsemi fyrirtækisins
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
KOSNINGAR eru handan við horn-
ið og skoðanakannanir því farnar að
gefa nokkuð raunsæja mynd af
væntanlegu kjörfylgi flokka. Stærð-
arröð þeirra er óbreytt, samkvæmt
nýjustu skoðanakönnun Capacent
Gallup, fyrir Morgunblaðið og Rúv.
Stjórnarflokkarnir eru stærstir með
samanlagt 56,4% fylgi en Sjálfstæð-
isflokkur er í þriðja sæti og stendur
nánast í stað frá síðustu könnun.
Stjórnarflokkarnir fengju sam-
kvæmt þessu 37 þingmenn, eða
fimm fleiri en þarf til að mynda
meirihluta. Samfylkingin missir einn
þingmann yfir til Vinstri grænna frá
síðustu könnun. Stuðningur við rík-
isstjórnina er hins vegar minni en
samanlagt fylgi stjórnarflokkanna.
53,9% aðspurðra styðja stjórnina, en
í heildina hafa vinsældir hennar
stöðugt dalað frá því hún tók við. Í
febrúar hafði hún tæplega 65%
stuðning.
8% ætla að skila auðu
Sjálfstæðisflokkur fengi fimmtán
þingmenn, Framsóknarflokkurinn
sjö og Borgarahreyfingin fjóra, eins
og í síðustu könnun. Samfylkingin
og Borgarahreyfingin sækja mest
fylgi á höfuðborgarsvæðið, en aðrir
flokkar eru sterkari á landsbyggð-
inni, sérstaklega Framsóknarflokk-
urinn, sem hefur 16,7% stuðning þar
en 9,2% í borginni.
Átta prósent aðspurðra ætla að
skila auðu, flestir undir þrítugu og
ívið fleiri konur en karlar.
Könnunin var net- og símakönnun
sem gerð var dagana 20.-22. apríl.
Heildarúrtak var 2.380 manns 18 ára
og eldri. Svarhlutfall var 60,1%.
Stjórnin heldur enn
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir enn stærstir með 56,4% fylgi
Þingstyrkur flokka frá síðustu könnun festir sig í sessi
!"
# $!"
%
$
& $
%
& $
&
!
" !
%##'
%'
#&'
'
$$'
#
" !
()*
+
,
#
'
'
!
"
#
'
"
"
'
$
#
%
'
&
'
'
'%
"
"
"
%
'
- % .
%
%.
$
$.
.
# .
,
)
#
"%
%
"
%'
%
"
"%
%
##
#'
#%
%
"
#
#
%
Könnunin bendir til að svokallað kynjabil sé að lokast.
Frá því snemma á 9. áratugnum hafa konur frekar kosið
til vinstri og karlar til hægri hér á landi, líkt og í flestum
vestrænum ríkjum. Mældist kynjabilið 7,2% í síðustu
kosningum, sem telst mjög breitt bil. „Það er nánast
ekkert kynjabil nema hjá VG, þar sem 7,6% fleiri konur
ætla að kjósa flokkinn en karlar,“ segir Einar Mar Þórð-
arson stjórnmálafræðingur.
Fari kosningarnar eins og könnunin spáir yrði þetta
kynjabil hins vegar aðeins 2,7%, svipað og á öðrum
Norðurlöndum, að sögn Einars Mars. Nú ber svo við að
um 29% beggja kynja ætla að kjósa Samfylkinguna.
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut atkvæði 45% karla 2007 en mælist nú með
24,8% hjá þeim. Samfylkingin fékk þá 23% stuðning karla. Í þeim kosn-
ingum var gríðarlegt kynjabil á fylgi Samfylkingarinnar en svo virðist sem
konur séu nú að yfirgefa flokkinn í einhverjum mæli og færa sig yfir til
Vinstri grænna. En hið mikla fylgi meðal karla hefur greinilega hrunið af
Sjálfstæðisflokknum. „Þá má velta því fyrir sér að þeir geirar sem farið
hafa verst út úr efnahagshruninu eru frekar miklir karlageirar. Fyrst má
nefna bankana sjálfa sem voru náttúrulega karlavígi og svo er það auðvit-
að byggingageirinn,“ segir Einar Mar. Verið geti að karlar úr þessum
greinum vilji refsa Sjálfstæðisflokknum fyrir hrunið.
Kynjabilið er að lokast
Einar Mar
Þórðarson
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SIGMUNDUR Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, segir annað hrun vera handan
við hornið ef ekkert verði að gert.
Skýrsla endurskoðunarfyrirtækis-
ins Oliver Wyman, þar sem farið
er yfir verðmat Deloitte á eignum
gömlu og nýju bankanna, sýni að
staðan sé miklu verri en stjórnvöld
tala um. Kerfishrun sé einfaldlega
handan við hornið. „Stjórnvöld
halda sannleikanum leyndum fyrir
almenningi,“ sagði Sigmundur
Davíð í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Staðan verri en sagt er?
Hann birti á vefsvæði sínu á
eyjan.is upplýsingar sem unnar
voru upp úr minnisblaði, þar sem
niðurstöður úr skýrslu Oliver
Wyman voru reifaðar. Sigmundur
Davíð segir á vefsíðu sinni að stað-
an sé mun verri en talað hefur ver-
ið um til þessa.
Stjórnvöld hafi ætlað í upphafi
að færa 6.000 milljarða úr gömlu
bönkunum og gert ráð fyrir inn-
heimtu upp á 3.000 milljarða. Sig-
mundur Davíð segir endurmat á
stöðu mála sýna að staðan sé verri.
„Vegna endurmats og þess hversu
hratt hefur fjarað undan atvinnu-
lífinu undanfarnar vikur og mán-
uði var ákveðið að 2.000 milljarðar
til viðbótar af milljörðunum 6.000
væru ónýt lán. Þau lán fara því
aftur í gamla bankann og eftir
standa í nýju bönkunum 4.000
milljarðar að nafnverði. En þeir
4.000 milljarðar verða þó aftur af-
skrifaðir um helming. Þannig að í
raun er aðeins gert ráð fyrir að í
gegnum nýju bankana innheimtist
2.000 milljarðar af upphaflegum
14.400 milljörðum. Þessar tölur
fela í sér að gert sé ráð fyrir al-
gjöru hruni íslensks efnahagslífs,“
segir Sigmundur Davíð á vefsíðu
sinni.
Misskilningur
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra segir að þær upplýsingar
sem Sigmundur Davíð hafi komið
fram með séu á misskilningi
byggðar. „Ég hef ekki séð þetta
tiltekna minnisblað og veit því
ekki hvort misskilningurinn er
höfundarins eða hvort hann er til-
kominn annars staðar frá. Það er
hins vegar rétt að það er verið að
ganga frá mati á eignum sem fóru
á milli gömlu og nýju bankanna,
og skuldbindingunum líka. En það
hefur ekkert komið fram sem segir
að tjónið sé þúsundum milljarða
meira en menn sáu fram á síðast-
liðið haust.“
Gylfi segir vinnu við mat á eign-
um vera á lokastigum. „Það verður
gengið frá endanlegu uppgjöri á
næstu vikum. Síðan eiga kröfuhaf-
ar eftir að fá að skoða gögn og
koma sínum sjónarmiðum á fram-
færi, og síðan á eftir að semja um
hugsanlega aðkomu kröfuhafanna
að eignarhaldi á nýju bönkunum.
En ég hef ekki séð nein skjöl eða
tölur sem gera ráð fyrir því að
tjónið sé miklu meira en reiknað
var með í haust,“ sagði Gylfi.
„Afleit“ lánasöfn
Hann segir alveg ljóst að lána-
söfn gömlu bankanna hafi verið
„afleit“, eins og matið hafi leitt í
ljós, en ekki sé endanlega ljóst
hvernig útlánasöfnin verði í nýju
bönkunum þegar efnahagsreikn-
ingar hafa verið formlega stofnaðir
og þeim hefur verið lagt til eigið fé
frá ríkinu. Þá sé fyrirsjáanlegt að
ríkið þurfi ekki að leggja bönk-
unum til eins mikið eigið fé og
reiknað var með í upphafi, sem var
385 milljarðar króna. „Ef til kem-
ur aðkoma kröfuhafa að eign í
bönkunum, sem eru nú töluverðar
líkur á, þá myndi eiginfjárfram-
lagið minnka. Þannig að þessi mál
hafa ekki verið til lykta leidd enn
og því ótímabært að tjá sig um
hvernig lokaniðurstaðan verður.“
Telur allsherjar-
hrun vera hand-
an við hornið
Misskilningur segir viðskiptaráðherra
Í HNOTSKURN
» Sigmundur Davíð Gunn-laugsson segir að inn-
heimtir verði um 2.000 millj-
arðar en áður hafði verið talað
um 3.000 milljarða.
» Gylfi Magnússon segir töl-urnar sem Sigmundur
Davíð byggir mál sitt á vera á
misskilningi byggðar. Auk
þess sé ekki ljóst enn hvernig
staða mála er í raun.
» Gylfi segir töluverðar lík-ur vera á því að kröfuhaf-
ar komi að einhverjum nýju
bankanna sem eigendur.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Gylfi
Magnússon