Morgunblaðið - 24.04.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
mikið úrval af sófum og sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti Húsgögn
sumar-tilboð
opið í dag
FRÁ 13:00 TIL 16:00
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„SLÍK orka er ekki samkeppn-
ishæf við hagkvæmustu kosti og
því alltaf niðurgreidd kröftuglega
með einum eða öðrum hætti,“ segir
Þorkell Helgason, fyrrverandi
orkumálastjóri, um hugsanlega
vindorkuframleiðslu á Íslandi.
Virkjun vindorku er möguleiki
sem Kolbrún Halldórsdóttir um-
hverfisráðherra teflir fram sem
valkosti við olíuvinnslu á Dreka-
svæðinu. Í Morgunblaðinu í gær
staðfesti hún andstöðu sína við ol-
íuleitina og sagði nær að Íslend-
ingar reyndu að virkja vindinn á
hálendinu og meðfram ströndum
landsins. „Kynni ekki að vera að
það skapaði miklu fleiri atvinnu-
tækifæri í landinu en olíuvinnsla?“
sagði Kolbrún. Flokkur hennar
hefur hins vegar brugðist við yf-
irlýsingum Kolbrúnar með því að
árétta að hann sé ekki mótfallinn
olíuleitinni.
Vindorka á og við Ísland var
kortlögð í tíð Þorkels sem orku-
málastjóra, en þá var í samvinnu
við Veðurstofuna búinn til vind-
atlas, kort af ætlaðri vindorku við
landið. Vindorka er síst minni hér
en í löndum sem þegar eru byrjuð
að nýta hana, t.d. Danmörku, en
aðstæður eru aðrar hér.
Ólík staða á Íslandi
„Græn orka er mjög mikið nið-
urgreidd í verði í Evrópu. Við erum
í svolítið annarri stöðu hér á landi,“
segir Guðni A. Jóhannesson orku-
málastjóri. Á meginlandinu bjóðist
ekki aðrir hagkvæmari kostir í
grænni orkuframleiðslu og því
leggi þarlendir mikið fjármagn í
hluti eins og vindmyllur, uppsetn-
ingu þeirra og þróun. Hér á landi
sé hins vegar jarðvarmi og vatns-
föll sem nýtist til orkuframleiðslu
með mun meiri hagkvæmni.
„Vindorkan keppir ekki í verði
við þessar virkjanir sem við höfum
verið að byggja, jarðvarma og
vatnsorku. Það er ekki raunhæfur
möguleiki á meðan sátt er um að
virkja jarðvarma eða vatnsafl,“
segir Guðni. Sá tími komi samt á
endanum, þegar Íslendingar þurfi
að skoða þennan kost.
Tæknin kemur frá útlöndum
Aðspurður hvaða vinna sé í
gangi hjá Orkustofnun í vindorku-
málum segir Guðni að stofnunin
fylgist með þróuninni erlendis. Í
löndum þar sem takmarkaðir
möguleikar séu á grænni orku
leggi menn mikla fjármuni í þróun
hennar. Hin hagkvæma útfærsla
vindorkunýtingar muni því koma
frá útlöndum þegar þar að kemur.
Þegar vindorkunýting er annars
vegar þarf líka að huga að
ákveðnum vanköntum hennar.
Mikil þörf er fyrir varaafl þegar
enginn er vindurinn og nýta lönd
eins og Danmörk sér iðulega teng-
ingar við raforkukerfi annarra
landa þegar svo háttar til, flytja inn
rafmagn sem keypt er á sameig-
inlegum orkuuppboðsmarkaði. Sú
orka getur verið framleidd með t.d.
kjarnorku eða kolabrennslu. Ísland
er hins vegar eyland, í bókstaf-
legum skilningi, sem gerir það mál
erfiðara viðfangs. Þá má geta þess
að of mikill vindstyrkur er ekki síð-
ur vandamál fyrir tækni nútímans,
en iðulega er slökkt á vindmyllum
þegar sterkir vindar geisa.
Reuters
Rok Þótt vindmyllur þróist ört eru þær ekki samkeppnishæfar við vatnsafl og jarðvarma hvað hagkvæmni varðar, þar sem slíkar orkulindir eru í boði.
Vindorka er niðurgreidd
Umhverfisráðherra vill vindorku í stað olíuleitar Aðrar þjóðir hafa forskot í
tækniþróun vindorku Íslendingar bíða eftir hagkvæmri tækni utan frá
„Nei, ég myndi nú ekki taka svo djúpt í árinni,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs, aðspurð hvort flokkur
hennar sé ósáttur við það hvernig Össur Skarphéð-
insson iðnaðarráðherra fer með málefni olíu-
leitarinnar á Drekasvæðinu. „Það komu auðvitað upp
umræður um að það hefði mátt gefa þessu meiri tíma
við undirbúning málsins. En það var engin prinsippaf-
staða gegn málinu, alls ekki,“ segir Katrín. Vinstri-
græn hafi gert afstöðu sína ljósa og sett fyrirvara
hvað umhverfismál og skattlagningu varðar.
Katrín segir ekki heldur mikinn ágreining við Kol-
brúnu Halldórsdóttur vegna ummæla hennar. „Hún er að tala sem mál-
svari umhverfisins í þessu efni, það er mjög eðlilegt að hún hafi uppi þá
fyrirvara sem við gerðum og að hún minni á þá.“
Engin prinsippafstaða á móti
Katrín
Jakobsdóttir
MJÖG slæm færð var víðast hvar á
Vestfjörðum í gær og þurftu lög-
reglumenn frá Patreksfirði og
björgunarsveit frá Barðaströnd að
aðstoða fólk sem hafði fest bíla sína.
Engum varð meint af en vegna
slæms skyggnis þurfti lögreglan að
ganga á undan bílunum til að koma
þeim yfir Klettshálsinn.
Erlendir ferðamenn hringdu á
lögreglu um sexleytið síðdegis og
lögregla og björgunarsveit unnu svo
við það um kvöldið að losa bíla sem
höfðu fest sig á hálsinum. Allt að
fimm bílar þurftu á aðstoð lögregl-
unnar að halda. jmv@mbl.is
Ófært fyr-
ir vestan
Lögregla og björg-
unarsveit losuðu bíla
ALLS höfðu 2.746 manns skráð sig á
lista andstæðinga Evrópusambands-
aðildar, osammala.is, í gærkvöldi.
Var vefurinn opnaður á mið-
vikudagskvöldið, en aðstandendur
hans eru ósammála þeim málflutn-
ingi að innganga í Evrópusambandið
sé leiðin til þess að koma efnahags-
málum Íslands aftur í réttan farveg.
Í gærkvöldi höfðu 11.297 skráð sig
á vef stuðningsmanna ESB aðildar,
sammala.is, en sá vefur var opnaður
20. mars. Telja aðstandendur hans
hagsmunum þjóðarinnar best borgið
innan ESB og með upptöku evru.
Fleiri ennþá
sammála
Morgunblaðið/Ómar
Fyrrverandi ráðherra Ragnhildur
Helgadóttir styður aðildarumsókn.
MARGRÉT Herdís
Thoroddsen, viðskipta-
fræðingur og fyrrver-
andi deildarstjóri hjá
Tryggingastofnun rík-
isins, lést 23. apríl sl.
Margrét fæddist 19.
júní 1917 á Fríkirkju-
vegi 3 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru
María Kristín, f. Claes-
sen, og Sigurður Thor-
oddsen, landsverk-
fræðingur og yfirkenn-
ari við Menntaskólann
í Reykjavík. Margrét
var yngst sex systkina en þau voru
auk hennar Sigríður, Kristín, Val-
garð, Jónas og Gunnar. Þau eru öll
látin.
Margrét lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1937 og cand. phil.-prófi frá Háskóla
Íslands ári síðar. Hún starfaði á
Bæjarskrifstofum Reykjavíkurborg-
ar þar til hún hélt til New York árið
1941 og var þar til ársins 1944.
Margrét giftist 1945 Einari Egils-
syni, síðar innkaupastjóra hjá Raf-
magnsveitum ríkisins. Margrét
starfaði sem heimavinnandi húsmóð-
ir í 23 ár og í fjögur ár var hún
fulltrúi hjá Heilsu-
verndarstöð Reykjavík-
ur. Hún braut að vissu
leyti blað í sögu HÍ með
því að fara í viðskipta-
fræðinám 57 ára gömul
og lauk þaðan námi sem
cand. oceon. Hún vann í
bókhaldsdeild TR en
síðar sem deildarstjóri í
upplýsingadeild, lét af
því starfi í lok árs 1987
en vann áfram í hluta-
starfi hjá stofnuninni í
fjögur ár. Hún stundaði
nám við lagadeild HÍ
veturinn 1992-93, þá 75 ára að aldri.
Margrét var um tíma í stjórn Fé-
lags eldri borgara og auk þess vara-
formaður Landssambandsins.
Margrét og Einar fluttu með þrjú
ung börn til Mexíkó árið 1950 þar
sem Einar tók við starfi forstjóra
Canada Dry-verksmiðju. Þar fædd-
ist þeim fjórða barnið. Þau fluttu aft-
ur heim til Íslands 1954 en þau eign-
uðust alls fimm börn.
Einar lést 28. mars 1999. Öll börn-
in lifa foreldra sína. Barnabörnin eru
18, barnabarnabörnin 17 og fyrsta
barnabarnabarnabarnið er væntan-
legt í heiminn í sumar.
Margrét Thoroddsen
Andlát
MIKIÐ var að gera hjá lögreglu að-
faranótt sumardagsins fyrsta og var
talsvert um ölvun og óspektir í mið-
borginni. Að sögn lögreglu á höf-
uðborgarsvæðinu var tilkynnt um
alls átta líkamsárásir þá nóttina og
átta manns gistu fangageymslur lög-
reglu.
Einn maður var fluttur á slysa-
deild um nóttina eftir að hafa verið
skorinn í andliti með skrúfjárni í
Austurbænum. Þá barst tilkynning
frá skemmtistaðnum Nasa um að
maður hefði verið barinn með flösku
og blæddi mikið úr honum. Á Kaffi
Zimsen réðust síðan tveir menn á
annan og var hann með bæði mar og
rispur eftir árásina.
Fjöldi umferðaróhappa var einnig
tilkynntur lögreglu vegna hálkunnar
sem myndaðist í höfuðborginni und-
ir morgunsárið.
Átta líkamsárásir í vetrarlok
MAÐUR var
stunginn með
hnífi í lærið við
verslun Krón-
unnar í Jafnaseli
í Breiðholti í
gær. Árásarmað-
urinn flúði á
brott á bíl, en var
stoppaður stuttu
síðar af lögreglu, sem lokaði götum
í nágrenninu, og færður í yf-
irheyrslu.
Hinn maðurinn var fluttur á
slysadeild þar sem nú er gert að
sárum hans, en hann er ekki í lífs-
hættu að sögn lögreglunnar. Ekki
er vitað með vissu hvernig árásina
bar að eða um hvað mennirnir
deildu, en fórnarlambið þekkti árás-
armanninn, sem hefur áður komið
við sögu lögreglu. una@mbl.is
Stakk mann
í lærið
ÚRVAL-Útsýn hefur ákveðið að
bjóða upp á beint flug frá Akureyri til
Faro í Portúgal vikulega í sumar.
Þetta þýðir að nú geta norðlenskar og
austfirskar fjölskyldur flogið beint í
fríið á Algarve-ströndina og í sólina.
Ferðaskrifstofan ætlar einnig í sam-
starfi við portúgalska söluaðila að
bjóða ferðir frá Portúgals til Akureyr-
ar og nágrennis. Ferðaskrifstofa hef-
ur ekki áður boðið upp á reglulegt
flug frá Akureyri til Portúgals.
Beint flug
frá Akureyri