Morgunblaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Vinstri græn hafa gert sitt ýtrastatil að setja sig í stellingar stóra,
ábyrga stjórnarflokksins. Það
gengur ekkert alltof vel.
Kolbrún Halldórsdóttirumhverfisráðherra þrumaði
gegn olíuleit og -vinnslu á Dreka-
svæðinu í sjónvarpsviðtali, þremur
dögum fyrir kosningar.
Tilraunir henn-ar til að klóra
yfir ummælin eru
fremur ámátleg-
ar. Hún vill frem-
ur vindmyllur
meðfram strönd-
inni en olíupalla
úti á sjó. Vafa-
laust verða myll-
urnar feikivinsæl
náttúruprýði, ekki síður en virkj-
anir og háspennulínur.
Skrifstofa VG sló á puttana á Kol-brúnu, en þá upphófust deilur
innan flokksins. Menn á borð við
Árna Finnsson hafa stigið fram og
sagt að Kolbrún túlki hina sönnu
umhverfisstefnu VG.
Steingrímur J. Sigfússon gleymdisér augnablik á fundi á Egils-
stöðum og það rann upp fyrir fund-
armönnum hvað hann langaði heitt
að þjóðnýta stærsta flugfélagið.
Fjármálaráðherrann ber frásögn-ina til baka, en fundarmenn eru
vissir um hvað þeir heyrðu. Kaup-
höllin er ekki hrifin.
Kannski er sigurvissa VG orðinsvo mikil að öfgarnar, bæði
grænar og til vinstri, hrökkva
ósjálfrátt út úr ráðherrum síðustu
dagana fyrir kosningar.
Það er ekki hægt að segja að VGhafi fellt grímuna. Frekar að
hún detti bara af, sama hvað flokk-
urinn reynir að halda henni.
Steingrímur J.
Sigfússon
Gríman dettur af
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 6 súld Lúxemborg 13 léttskýjað Algarve 25 heiðskírt
Bolungarvík -2 snjókoma Brussel 15 léttskýjað Madríd 25 heiðskírt
Akureyri 6 skýjað Dublin 11 súld Barcelona 21 heiðskírt
Egilsstaðir 6 skúrir Glasgow 14 léttskýjað Mallorca 21 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 6 rigning London 18 heiðskírt Róm 19 léttskýjað
Nuuk 2 skýjað París 18 heiðskírt Aþena 15 skýjað
Þórshöfn 8 skýjað Amsterdam 14 léttskýjað Winnipeg 11 alskýjað
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 16 heiðskírt Montreal 10 alskýjað
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt Berlín 16 léttskýjað New York 12 alskýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt Vín 13 alskýjað Chicago 12 léttskýjað
Helsinki 13 heiðskírt Moskva 9 heiðskírt Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
24. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5.43 3,7 11.55 0,3 18.02 3,9 5:23 21:30
ÍSAFJÖRÐUR 1.48 0,2 7.39 1,9 14.03 0,0 20.01 2,0 5:15 21:47
SIGLUFJÖRÐUR 3.44 0,1 10.00 1,1 16.05 0,1 22.18 1,2 4:58 21:31
DJÚPIVOGUR 2.58 1,9 9.00 0,4 15.14 2,2 21.29 0,3 4:49 21:02
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag
Hæg norðlæg átt og dálítil él N-
lands, en annars bjart. Vaxandi
suðaustanátt með slyddu SV-
lands um kvöldið. Vægt frost
fyrir norðan, en hiti annars 1 til
5 stig.
Á sunnudag, mánudag og
þriðjudag
Útlit fyrir austlæga átt og dá-
litla vætu víða um land, síst þó
NA-lands. Hiti 1 til 6 stig.
Á miðvikudag
Breytileg átt og úrkomulítið.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðan 8-13 metrar á sekúndu,
en 13-18 úti við vesturströnd-
ina. Skúrir eða él víða um land,
en úrkomulítið suðvestan til.
Hiti 0 til 8 stig, svalast norð-
vestan til.
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
einfaldlega betri kostur
Hammock. Hengistóll.
95 x 105 cm. Verð 4.990,-
Notalegt
sumar
STJÓRN læknaráðs Landspítala
telur skynsamlegt að slá fyrirhug-
aðri sameiningu á bráðamóttökum
spítalans á frest meðan kannað er
hversu raunhæfar nýjar tillögur um
byggingu spítala eru.
Stjórnin segir í ályktun að samein-
ing á bráðamóttökum Landspítala á
einn stað yrði mikið framfaraskref
fyrir starfsemi sjúkrahússins, ef öll
önnur bráðastarfsemi sjúkrahússins
yrði jafnframt sameinuð á sama stað.
Læknar í mörgum sérgreinum
hafi sett fram vel rökstuddar at-
hugasemdir við hugmyndir um lokun
bráðamóttökunnar á Hringbraut.
Slíkt gæti í ákveðnum tilvikum stofn-
að öryggi sjúklinga í hættu. Þar að
auki sé ekki ljóst hvort fyrirhuguð
sameining á bráðamóttökunum leiði
til raunverulegs rekstrarsparnaðar.
Því sé rétt að bíða með sameiningu
þar til búið sé að skoða betur nýjar
tillögur um nýbyggingu á lóð LSH.
Vilja bíða með samein-
ingu bráðamóttöku
ERIK Skyum-Nielsen bókmennta-
fræðingur hlaut í gær, sumardaginn
fyrsta, verðlaun Jóns Sigurðssonar
forseta. Verðlaunin voru veitt öðru
sinni í Jónshúsi í Kaupmannahöfn.
Skyum-Nielsen hefur verið ötull
þýðandi íslenskra samtíma-
bókmennta og hlotið mikið lof fyrir.
Hann hefur meðal annars þýtt
skáldverk Einars Más Guðmunds-
sonar, Fríðu Á. Sigurðardóttur og
Thors Vilhjálmssonar, en verk
þeirra allra hafa hafa hlotið bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs.
Nýverið þýddi Erik Skyum-Nielsen
verk Auðar Ólafsdóttur, sem hefur
verið tilnefnt til sömu verðlauna.
Verðlaunin eru veitt þeim ein-
staklingi sem hefur unnið verk sem
tengjast hugsjónum og störfum Jóns
Sigurðssonar. Árið 2009 nemur
verðlaunafjárhæðin 2.500 dönskum
krónum.
Fékk verðlaun Jóns
Sigurðssonar forseta
Viðurkenning Erik Skyum-Nielsen
bókmenntafræðingur þakkaði við-
urkenninguna í gær.