Morgunblaðið - 24.04.2009, Page 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
samtali við Morg-
unblaðið.
Í lok árs 2008
var eiginfjárhlut-
fall Sparisjóðs
Keflavíkur 7,06
prósent sem er
undir lágmarks-
hlutfalli sem fjár-
málafyrirtæki
þurfa að upp-
fylla. Lágmarkið
er átta prósent. Sjóðurinn tapaði
rúmlega 17 milljörðum í fyrra.
Á grundvelli neyðarlaganna hef-
ur íslenska ríkið ákveðið að styðja
sjóðinn, eins og flesta sparisjóði í
landinu, með fjárframlagi. Gert er
ráð fyrir því að eiginfjárhlutfall
sjóðsins verði 13,83 prósent.
Geirmundur segir að ríkið muni
vafalítið setja ströng skilyrði í
tengslum við þá aðstoð sem það
ákvað að veita sparisjóðakerfinu í
landinu. „Við erum tilbúnir að
draga saman seglin til þess að fá
aðstoð frá ríkinu í þessum óvenju-
legu aðstæðum sem skapast hafa á
fjármálamörkuðum. Það hefur
valdið mér miklum vonbrigðum
hvað aðgerðirnar sem hófust með
neyðarlögunum hafa tekið langan
tíma,“ sagði Geirmundur.
Hann segir að launagreiðslur til
æðstu stjórnenda sparisjóða muni
vafalítið lækka mikið vegna að-
stoðar ríkisins við þá. „Samkvæmt
ársreikningi okkar í fyrra námu
laun til mín um tveimur milljónum
á mánuði. Það eru laun sem passa
ekki því umhverfi sem nú hefur
skapast og það gefur augaleið að ís-
lenska ríkið getur ekki verið að
borga svo há laun í sparisjóðum
víða um landið.“ magnush@mbl.is
GEIRMUNDUR Kristinsson, sem
verið hefur sparisjóðsstjóri í Kefla-
vík um árabil, hefur ákveðið að
hætta að stýra sjóðnum.
Hann tilkynnti ákvörðun sína á
aðalfundi sjóðsins sl. miðvikudag.
Geirmundur hefur starfað hjá
sjóðnum í 44 ár. Hann segir að
breytingar séu nú að eiga sér stað á
starfsumhverfi sparisjóða og við
þau tímamót sé eðlilegt að end-
urmeta stöðuna. „Ég hef verið
starfandi hjá sjóðnum í 44 ár og
þekki því vel til þess góða starfs
sem unnið hefur verið í sjóðnum.
Mér fannst eðlilegt að skoða mína
stöðu í ljósi þess að ríkið er að koma
að þessu með afgerandi hætti og
því ákvað ég að hætta á þessum
tímapunkti,“ sagði Geirmundur í
Hættur eftir 44 ár hjá sjóðnum
Geirmundur Kristinsson segir eðlilegt að nýir menn taki við stjórnartaumunum
Geirmundur
Kristinsson
Í HNOTSKURN
» Afkoma Sparisjóðsins íKeflavík var neikvæð um
19 milljarða í fyrra fyrir
skatta. Hagnaður upp á 2,2
milljarða var hins vegar nið-
urstaðan fyrir árið 2007.
» Útlán jukust um 22 millj-arða hjá sjóðnum á árinu
2008 miðað við árið 2007.
ÞETTA HELST ...
● Seðlabanki Evrópu í Lúxemborg ber
sjálfur áhættu af útlánum til fjármála-
fyrirtækja. Ekki er ljóst hve miklu bank-
inn tapar vegna lána til dótturfélags
Landsbankans í Lúxemborg. Talið er að
heildarlánin til Landsbankans hafi num-
ið 2,2 milljörðum evra.
Í Morgunblaðinu í gær var greint frá
því að Seðlabanki Evrópu sæti uppi
með hundrað milljarða króna í íslensk-
um skuldabréfum. Þau voru hluti af
veðum fyrir lánum. bjorgvin@mbl.is
Evrópski seðlabankinn
lánaði 2,2 milljarða evra
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
MIÐAÐ við það að vaxtakjör myndu
batna um þrjú prósentustig, við inn-
göngu í Evrópusambandið og evra
tekin upp sem gjaldmiðill, yrði ávinn-
ingur fyrir heimili og fyrirtæki í land-
inu 228 milljarðar króna vegna lækk-
unar vaxtagjalda.
Þetta kemur fram í útreikningum
sem Þórður Magnússon, stjórnarfor-
maður Eyris Invest fjárfestingar-
félags, sendi forsvarsmönnum Sam-
taka iðnaðarins og Samtaka
atvinnulífsins (SA) eftir aðalfund SA
á miðvikudag. Á fundinum lýstu
stjórnendur fyrirtækja yfir miklum
áhyggjum af háu vaxtastigi en stýri-
vextir Seðlabanka Íslands eru nú
15,5 prósent. Á skömmum tíma hafa
þeir lækkað lítillega. Farið úr 18 pró-
sentum niður í það sem þeir standa í
nú.
Þórður segir vaxtastigið vera
„óskiljanlega hátt“ og það geti ekkert
annað verið, en að Seðlabanki Íslands
skilji ekki hversu alvarleg vandamál
skapast af þessu háa vaxtastigi, bæði
fyrir heimili og fyrirtæki. Ekkert
réttlæti svo háa vexti og það gefi
augaleið að fyrirtæki og heimili þoli
ekki vaxtastigið.
Þór Sigfússon, formaður stjórnar
Samtaka atvinnulífsins, segir for-
svarsmenn fyrirtækja vera reiða, en
jafnframt „hálfskelkaða“ vegna þess
hve háir vextirnir eru í því árferði
sem nú ríkir. „Vextirnir eru alltof há-
ir, það gefur augaleið. Það er lítil sem
engin eftirspurn í hagkerfinu, verð-
bólgan á undanhaldi og stíf gjaldeyr-
ishöft til þess að verja gjaldmiðilinn
frekara falli. Það réttlætir ekkert
þessa háu vexti. Það sem nú er orðið
mjög alvarlegt er að þau fyrirtæki
sem hafa staðið traustum fótum,
þrátt fyrir hremmingarnar í vor, eru
að lenda í vandræðum í raun vegna
þessa fráleita vaxtastigs. Vilhjálmur
Egilsson [framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins innsk. blm.] og við
sem höfum verið í forsvari fyrir Sam-
tök atvinnulífsins höfum margbent á
hversu alvarleg vandamál skapast af
þeim háu vöxtum sem hér hafa verið.
Menn hefðu mátt hlusta betur, og
ættu auðvitað að gera enn. Þetta
gengur ekki,“ sagði Þór í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Í útreikningunum sem Þórður lét
taka saman kemur fram að vaxta-
ávinningur heimila yrði um 60 millj-
arðar miðað við fyrrnefndar vaxta-
forsendur. Hjá hinu opinbera myndi
ávinningurinn vera 33 milljarðar og
hjá fyrirtækjum 135 milljarðar miðað
við vaxtaberandi skuldir í lok árs
2008.
Þá kemur fram að vaxtaávinning-
urinn nemur töluvert hærri fjárhæð-
um en sem nemur heildartekjum Ís-
lands af útflutningi á fiski og áli,
miðað við tölur fyrir árið 2008.
228 milljarða vaxtalækkun
Vaxtastig sagt „óskiljanlega hátt“
Stjórnendur fyrirtækja reiðir !"!#
$
%
,
()*+**
,*-./*
(*01
*2)
$
$3-45**67 !0*8
&"!$
'()*
,
+205*09:;<
=/---)/; +205*0-)/;/*=* =/5
7;46+ !.--7/1+/*==;>0= +205*0
?-7-*6=-)/; / (- 0
1 /,
"
23
4.
23
0
5+67+8592292:; 7
<
0
5 ,
0
$3-@
45* =
(.
0
4
$3-@
45* =
80
!
&
=
!
.
0
! ,
&
5
>
0
. 4 "
7
!
>
0
.
!-
1
23
!.
0
!
0
0
0
?1
>
"1
!
@, %
,
@
Morgunblaðið/Ómar
Þungt farg Háir stýrivextir Seðlabankans leiða til þess að fjármagnskostnaður fyrirtækja er svimandi hár.
● Nauðsynlegt var talið að sækja um
heimild til greiðslustöðvunar Straums
fjárfestingabanka, einkum til að
freista þess að koma nýrri skipan á fjár-
mál félagsins og til að tryggja jafnræði
kröfuhafa í samræmi við íslensk lög og
tilskipanir ESB.
Þetta kemur fram í auglýsingu frá
bankanum í Morgunblaðinu í gær.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
ein leið sem kröfuhafar eru að skoða sé
að halda starfsemi bankans áfram þó
umfang starfseminnar dragist saman.
Tekið er fram í tilkynningunni að
Straumur muni halda starfsleyfi sínu á
tímabilinu. Ráðstöfun eigna bankans al-
mennt er óheimil á meðan nema
vegna endurskipulagningar eða dag-
legrar starfsemi. Greiðslustöðvunin
rennur út 11. júní nk. bjorgvin@mbl.is
Straumur áfram með
starfsleyfi til 11. júní
VIÐSKIPTI með
hlutabréf de-
CODE Genetics,
móðurfélags Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, marg-
földuðust á
bandaríska Nas-
daq-markaðnum í
gær. Veltan nam
14,5 milljónum
dollara. Meðalvelta með bréf de-
CODE sl. ár hefur verið 151 þúsund
dollarar á dag.
Lokagengi bréfanna var 0,43 doll-
arar á hlut og hafði farið hæst í 0,57
dollara yfir daginn. Hækkunin frá
deginum áður var 167% eða 0,27
sent. Lægst hefur gengi deCODE
farið í 0,13 dollara sl. ár.
Ástæðan fyrir þessum mikla
áhuga fjárfesta í gær var tilkynning
sem greindi frá samstarfi deCODE
og félagsins Celera Corporation.
Kári Stefánsson, forstjóri de-
CODE, segir samkomulag félaganna
fela í sér heimild Celera til að selja
ákveðin próf m.a. til að meta áhættu
á hjartaáfalli. Um sé að ræða þrjár
tegundir af prófum.
„Þeir borga okkur ákveðna fjár-
hæð fyrirfram og svo fáum við hlut-
deild í tekjum af sölu prófsins. Það
má líta á þetta sem aukna markaðs-
setningu á þeim prófum sem við höf-
um sett saman,“ segir Kári.
Hluti af áætlunum deCODE
„Þetta er ofboðslegt erfitt árferði í
þessari iðngrein. Ég lít á þetta sem
hvalreka fyrir okkur. Þetta er hluti
af því plani sem við höfum unnið eft-
ir, að framselja til annarra heimild
til að selja prófin og þessi samningur
kemur sér vel núna. Það er ljóst að
markaðurinn metur þetta mikils,“
segir Kári Stefánsson. bjorgv-
in@mbl.is
Hlutabréf
deCODE
taka kipp
Mikil velta í gær í
kjölfar nýs samnings
Kári Stefánsson