Morgunblaðið - 24.04.2009, Page 17
Daglegt líf 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
Gildir út apríl 2009
15% afsláttur
VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 100 g.
15% afsláttur
NICOTINELL tyggjó, Classic og Fruit.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
45
82
8
04
/0
9
Eftir Atla Vigfússon
Þingeyjarsveit | „Mér fannst allt
rosalega gaman. Ég er dýrakona og
mér finnst svo skemmtilegt að sjá
dýrin,“ segir Ingibjörg Ósk Ingv-
arsdóttir, nemandi í 4. bekk Borg-
arhólsskóla á Húsavík, sem var að
koma úr kynningarferð ásamt fé-
lögum sínum um Þingeyjarsveit og
nágrenni þar sem markmiðið var að
sýna húsdýr og umhverfi þeirra.
„Við höfum verið að vinna með dýra-
fræði í skólanum mínum og núna er
ég að skrifa um geitur og þau not
sem geta verið af þeim, t.d. geita-
mjólkina. Þá er ég búin að vera að
vinna með ull í handavinnunni og þar
vorum við að kemba og þæfa. Mjög
gaman allt saman,“ heldur Ingibjörg
Ósk áfram og segir að sér finnist
þetta svo frábært.
Útinám nýtur
vaxandi skilnings
Það var Húsdýraskólinn sem stóð
fyrir skólaferðalaginu ásamt Borg-
arhólsskóla en markmiðið er að vera
með útinám sem hentar hinum ýmsu
aldurshópum sem vilja fræðast um
búskap í sínu héraði og vita meira um
bæina og þann bústofn sem þar er.
Húsdýraskólinn er í raun sam-
starf nokkurra aðila sem áhuga hafa
á meira útitengdu námi og hefur sú
hugmynd lengi verið í gangi að
stofna einn umhverfisskóla sem er
samsettur af ýmsum deildum með
einni yfirstjórn. Þar má nefna Forn-
leifaskólann, Hvalaskólann og Þjóð-
garðsskólann auk Húsdýraskólans
sem áður hét raunar bara „Þema-
vika um landbúnað“.
Skilningur á útinámi hefur mikið
aukist að undanförnu en hann hefur
ekki aukist hjá sveitarfélögum í raun
því auðvitað er alltaf erfitt að fjár-
magna rútuferðir og marga kostn-
aðarliði sem bætast við fyrir utan
hinn hefðbundna skólakostnað.
Samþætting grunngreina
er lykilatriði
Húsdýraskólinn leggur mikið upp
úr því að hægt sé að samþætta hinar
ýmsu grunngreinar í náminu öflugri
kennslu um húsdýr og umhverfi.
Sérstaklega á þetta við um yngri
námsstigin. „Að lesa, reikna og
skrifa um sveitina,“ var upphafsorð
fyrstu þemavikunnar um landbúnað
og þá voru skrifaðar sögur um dýrin,
lesin ljóð um skepnurnar, sungið um
hænsnin og hestana, reiknuð dæmi
um búfjárfjölda og þrautir leystar.
Þá var mikið teiknað og klippt og
bændabýli sett upp á veggi.
Spjall við bændur færir
nemendur nær námsefninu
Ferðalag 4. bekkjar Borgarhóls-
skóla var fræðandi en auðvitað engin
tæmandi mynd. Skoðað var fjós á
Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði
þar sem nýlega er búið að setja upp
mjaltaþjón, þar var skoðuð ullar-
vinnsla, farið í fjárhús og kálfum
klappað. Á bænum Rauðá voru skoð-
aðar geitur með kiðlinga, stór naut
skoðuð og spjallað við bóndann um
not af geitum.
Á Fosshóli var pylsuveisla í boði
Húsdýraskólans en eftir hádegið var
ekið að Hestamiðstöðinni Saltvík
þar sem bændur buðu upp á fræðslu
um hesta og allir fengu að fara á
bak. Þar sýndu nemendur reiðskól-
ans mismunandi gangtegundir ís-
lenska hestsins.
„Ég myndi vilja fara í fleiri svona
ferðir því það er svo gaman að fara
og vera með dýrunum“ segir Ingi-
björg Ósk, unga dýrakonan sem
kann að meta útinám og það að læra
um sitt umhverfi.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hesturinn Vafi í Saltvík fékk nóg að gera, en Eirin Riesto teymdi krakkana. Geit Ingibjörg Ósk Ingvarsdóttir kunni vel að meta kiðlingana.
Ullarvinnsla Laufey Skúladóttir, bóndi á Stóru-Tjörnum, sýndi ullarvinnu.
Húsdýraskólinn er hugmynd
að skemmtilegu útinámi
Í HNOTSKURN
»Borgarhólsskóli á Húsavíkhefur um langt árabil vilj-
að efla fræðslu um heima-
byggð og landbúnað í héraði.
»Fræðsla um húsdýr og um-hverfi þeirra er víða mun
þróaðri á Norðurlöndum en
hér á landi.
»Fjármagnsskortur er einmesta hindrun útináms í
dag í mörgum námsgreinum.
Hólmfríður Bjartmarsdóttirsendir hlýjar sumarkveðjur úr
Aðaldalnum:
Sýnist úti sumar blítt
sólin bræðir krapið.
Allt er nú sem orðið nýtt
einkanlega skapið.
Friðrik Steingrímsson hlustaði á
fagran fuglasögn fyrsta sumardag:
Fönn þó hylji fjalla skarð
fögnum ljúfum gesti,
sumarið hér gekk í garð
með gredduhljóði í þresti.
Loks Hreiðar Karlsson:
Okkur flytur andvarinn
ilm af horfnum ströndum.
Vorið fer um vanga minn
vinsamlegum höndum.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af sól og
sumri
ELDRI borg-
urum sem var
sagt að eldra
fólki gengi al-
mennt illa á
minnisprófum
gekk verr í slík-
um prófum en
öðrum þátttak-
endum. Sam-
kvæmt nýrri
rannsókn háskól-
ans í Norður-Karólínu í Bandaríkj-
unum leiða áhyggjur af minnisleysi
til þess að heilinn hættir að sinna
minnisstörfum sínum og fer að sinna
áhyggjunum. Þetta getur jafnvel
leitt til þess að fólk forðist að stunda
minnisþrautir og það verði til þess
að heilinn fari úr æfingu og vandinn
verði enn meiri en ella.
Þá hefur verið sýnt fram á að þótt
elliglöp séu í mörgum tilfellum var-
anleg séu ýmsar leiðir til að halda
heilanum skörpum, allt frá því að
halda áfram að mennta sig til þess
að bæta mataræðið og stunda reglu-
lega hreyfingu. jmv@mbl.is
Hugsað um
minnisleysi
Hugsað Heilinn
er áhrifamikill.
Lágfargjalda-
flugfélagið
Ryanair íhugar
nú að rukka feita
farþega um
hærri fargjöld en
aðra farþega. Til
greina kemur að
krefjast auka-
greiðslu fyrir
hvert kíló umfram 100 kg hjá kon-
um og umfram 130 kg hjá körlum.
Eða jafnvel að rukka fólk um auka-
sæti snerti líkami þess báða arma
flugsætisins. Talsmaður flugfélags-
ins segir að ef af yrði myndu mörk-
in verða svo há að aðeins þeir allra
feitustu yrðu rukkaðir. Þ.e. þeir
sem gengju á þægindi sessunaut-
arins. jmv@mbl.is
Feitir borgi
hærra gjald