Morgunblaðið - 24.04.2009, Page 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
7 8 1 3
2 9 8
6 1 4
4 3 9
5 3
9 2
1 9
1 5 2
7
3 4
5 2 1 9
1 2 8 4
2 8
4 7
5 3
7 3 4
8 9
5 2
7 8 6
8 5 9
3 6 2
1
1 5 7 3
2
1 9 3
8 2 7 4
6 4 5 8 7 3 1 2 9
2 3 1 4 9 5 7 6 8
9 7 8 6 1 2 5 4 3
1 8 6 2 4 7 9 3 5
5 2 7 9 3 1 4 8 6
3 9 4 5 6 8 2 1 7
4 5 3 7 2 6 8 9 1
8 6 2 1 5 9 3 7 4
7 1 9 3 8 4 6 5 2
1 2 7 8 4 6 3 9 5
9 5 6 3 1 2 8 4 7
4 8 3 7 5 9 1 6 2
2 1 5 9 6 8 7 3 4
7 3 9 5 2 4 6 8 1
8 6 4 1 7 3 5 2 9
5 4 8 2 3 7 9 1 6
3 7 2 6 9 1 4 5 8
6 9 1 4 8 5 2 7 3
2 5 9 3 8 1 4 6 7
8 3 7 6 4 5 1 2 9
1 6 4 9 7 2 5 8 3
7 1 3 2 5 6 8 9 4
4 9 8 1 3 7 2 5 6
6 2 5 8 9 4 3 7 1
9 7 1 4 2 8 6 3 5
3 8 6 5 1 9 7 4 2
5 4 2 7 6 3 9 1 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 24. apríl, 114. dagur
ársins 2009
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Nú þegar kosningar bresta ástendur upp á Víkverja að kom-
ast að niðurstöðu um það, hvað hann
ætlar að kjósa. Og það verður að segj-
ast einsog er að í fyrsta skipti vefst
málið fyrir Víkverja. Fjórflokkurinn
freistar beinlínis ekki, þrír þeirra sem
vita upp á sig skömmina, hvorki biðj-
ast afsökunar né sýna nokkra iðran,
hvað þá að þeir biðji um annað tæki-
færi af auðmýkt. Það er bara einsog
ekkert hafi gerzt. Þótt VG geti sagzt
saklaust er það ekki af því að þá hafi
skort viljann til vondra verka, heldur
voru þeir ekki í aðstöðu til þeirra. Það
sýndi sig, að ekki vantaði þá viljann,
þegar græðgin hljóp með alþing-
ismenn í gönur í eftirlaunahneyksl-
inu.
Borgarahreyfingin sem er af-
sprengi búsáhaldabyltingarinnar,
sem Víkverji var mjög svag fyrir, hef-
ur átt erfitt með að finna pólitískt
platform og líka verður að segjast
einsog er að talsmennirnir hafa verið
mistækir. En Borgarahreyfingin
virðist nú hafa náð einhverjum vopn-
um, þótt seint sé, og stefnir í fjóra
þingmenn. Þeir munu hinsvegar duga
skammt og endast illa, ef hópurinn
stækkar ekki á lokasprettinum.
x x x
Víkverji gerði fyrir nokkru að um-talsefni bensínlykil frá Atlants-
olíu sem virkaði ekki, þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir. Skýringin lá í
tæknilegum mistökum, þegar lykill-
inn var útbúinn. Annar lykill frá Atl-
antsolíu virkar einsog bezt verður á
kosið.
x x x
Víkverja finnst satt að segja illþol-andi, hversu mjög orð eru teygð
og toguð til þess að þau slái meira um
sig í textanum. Stórsöngvari og ofur-
fyrirsæta eru nú algengari en hitt og
á dögunum rak Víkverji augun í aug-
lýsingu þar sem sagði að tiltekin vara
hefði gjörselzt upp.
x x x
Svo var það maðurinn sem varspurður hvað hann hefði kosið
um æfina: Ég hef mest kosið hina og
þessa nema suma aldrei.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 rotn-
unarskán, 4 víðar, 7
verkfærin, 8 varkár, 9
andi, 11 sefar, 13 lesta,
14 skeldýr, 15 gaffal, 17
strá, 20 bókstafur, 22
andstaða, 23 bumba, 24
hafna, 25 fugls.
Lóðrétt | 1 dálæti, 2
geyja, 3 beitu, 4 vitleysa,
5 fótaþurrka, 6 rás, 10
spilið, 12 vindur, 13 hátt-
ur, 15 hluti fuglsmaga,
16 hrotti, 18 illkvittin, 19
stólpi, 20 halda heit, 21
hvasst fjallsnef.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 harkalegt, 8 umbót, 9 detta, 10 und, 11 tíðum,
13 anaði, 15 stagl, 18 ömmur, 21 álf, 22 undin, 23 urðar,
24 harðjaxls.
Lóðrétt: 2 amboð, 3 kætum, 4 lydda, 5 gutla, 6 autt, 7
gati, 12 ung, 14 nam, 15 saur, 16 aldna, 17 lánið, 18 öf-
uga, 19 miðil, 20 rýrt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Rge2 0-0 6. Rg3 h5 7. Be2 Rbd7 8.
Bg5 c5 9. d5 Rh7 10. Be3 Re5 11. h3
e6 12. Dd2 exd5 13. exd5 f5 14. Rf1
He8 15. f4 Rf7 16. Bd3 a6 17. 0-0-0
b5 18. cxb5 axb5 19. Bxb5 Bd7 20.
Bc4 Rf6 21. Rg3 h4 22. Rge2 Re4 23.
Dd3 Db6 24. Hhe1 Heb8 25. Dc2
Db4 26. Db3 Da5 27. Dc2 Hb4 28.
Bd3 Rxc3 29. Rxc3
Staðan kom upp á alþjóðlega
Reykjavíkurskákmótinu sem lauk
fyrir skömmu í Listasafni Reykjavík-
ur í Hafnarhúsinu. Franski stór-
meistarinn Sebastien Maze (2.579)
hafði svart gegn þýska kollega sínum
Sebastian Siebrecht (2.440). 29. …
Hxb2! og hvítur gafst upp enda fátt
til varnar.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Forþvingun.
Norður
♠ÁKD1065
♥K85
♦93
♣KD
Vestur Austur
♠8 ♠743
♥G10 ♥D942
♦ÁDG10742 ♦86
♣942 ♣G1073
Suður
♠G92
♥Á763
♦K5
♣Á865
Suður spilar 6G.
„Einhvern veginn lentum við í sex
gröndum,“ nefnir David Bird nýja bók
sína um þennan sjaldgæfa samning.
Þetta er 200 síðna rit, sambland af
þrautum og sögulegum fróðleik. Þraut-
irnar eru erfiðar, en lærdómsríkar. Hér
hefur vestur vakið á 3♦ og spilar svo út
♥G.
Tólfti slagurinn færst með þvingun á
austur í hjarta og laufi. Ekki er hægt að
leiðrétta talninguna með því að gefa
slag snemma, þannig að þvingunin verð-
ur að vera „without the count“, eða það
sem Þórður heitinn Sigfússon nefndi
„forþvingun“. Sagnhafi tekur á ♥K,
leggur niður laufhjón og spilar spöð-
unum til enda. Síðasti spaðinn þvingar
austur: tíglum sínum hefur hann þegar
hent, en hann verður að fara niður á tvö
hjörtu til að geta valdað laufið. Sagnhafi
hendir þá ♣8 og spilar ♥Á og hjarta.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Fólk er voða mikið að gagnrýna
þig þessa dagana. Nokkrum í heiminum
finnst þó allt sem þú gerir æðislegt.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk er vingjarnlegt í þinn garð
um þessar mundir. Mundu að allir eiga
sinn rétt. Hvaða nýjungar leggur þú
til?
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Átök vegna stjórnmála, trú-
mála eða heimspeki gætu hæglega
komið upp í dag. Augnablikseinvera
nærir sálina og hvílir andann.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Farðu varlega í námunda við
foreldra þína, kennara og yfirmenn,
sem gætu sprungið af bræði af minnsta
tilefni. En vertu opinn og varastu alla
þröngsýni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það kemur aldri ekkert við en við
erum alltaf börn foreldra okkar. Viðr-
aðu góðar tillögur við yfirmann þinn.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það eru alls konar hlutir sem
skjóta upp kollinum og setja allar áætl-
anir úr skorðum. Dagurinn í dag ein-
kennist af tilfinningaflækjum og er ekki
heppilegur til málamiðlana.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er ástæðulaust að fá sekt-
arkennd yfir öllu sem þú gerir fyrir
sjálfan þig. Láttu einföld vandamál ekki
verða að fjallháum hindrunum heldur
leystu þau bara með bros á vör.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þótt hlutirnir freisti skaltu
skoða vandlega hvort þú hafir einhverja
þörf fyrir þá.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt menn sameinist um að
vinna að ákveðnum málum er alltaf
hætta á að valdabarátta fylgi í kjölfarið.
Láttu það þó ekkert á þig fá því það er
þín tilfinning sem skiptir mestu máli.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér vegnar vel ef þú vinnur
undirbúningsvinnnuna þína. Miklar til-
finningar eru í samskiptum þínum við
aðra.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Fjölskylduskuldbindingar
koma í veg fyrir að þú getir gert eitt-
hvað. Reyndu að yfirvinna óttann í
sjálfum þér. Kannski geta sérfræðingar
ráðið gátuna seinna meir.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér á eftir að líða vel bæði í
vinnunni og heima í dag. Ekki láta hóf-
semi þína verða til þess að þú hafnir
góðu tilboði.
Stjörnuspá
24. apríl 1914
Dauðadómur var kveðinn upp
í síðasta sinn á Íslandi. Kona
var dæmd til lífláts en dómn-
um var síðar breytt í ævilanga
fangelsisvist.
24. apríl 1970
Níutíu námsmenn ruddust inn
í skrifstofur mennta-
málaráðuneytisins við Hverf-
isgötu í Reykjavík til að lýsa
stuðningi við kröfur náms-
manna erlendis. Ungmennin
settust í ganga og voru flest
borin út af lögreglu.
24. apríl 1977
Tékkneski stórmeistarinn
Vlastimil Hort setti heimsmet
í fjöltefli á Seltjarnarnesi þeg-
ar hann tefldi á rúmum sólar-
hring við 550 manns. Hann
vann 92% skákanna.
24. apríl 1982
Jón Páll Sigmarsson setti tvö
Evrópumet á móti í Sjónvarp-
inu, lyfti 362,5 kg í rétt-
stöðulyftu og samanlagt 940
kg. Orð hans að afrekinu
loknu urðu fleyg: „Þetta er
ekkert mál fyrir Jón Pál.“
24. apríl 1994
Magnús Scheving vann til silf-
urverðlauna í heimsmeist-
arakeppni í þolfimi í Japan
með 9,12 stig en sigurveg-
arinn hlaut 9,16 stig. „Frábær
frammistaða,“ sagði Morg-
unblaðið.
24. apríl 1996
Feðgarnir Arnór Guðjohnsen,
34 ára, og Eiður Smári Guð-
johnsen, 17 ára, léku báðir í
landsleik í knattspyrnu í Tall-
inn í Eistlandi, en það hafði
ekki gerst áður í sögu knatt-
spyrnunnar. Arnór var að
leika sinn 65. landsleik.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
ÍSLANDSMEISTARAR FH í knattspyrnu karla
mæta Val í átta liða úrslitum deildabikarsins í
kvöld. Fyrirliði FH, Davíð Þór Viðarsson, stefnir á
að fagna 25 ára afmælisdegi sínum með sigri í
leiknum, en draumurinn er háleitari, þ.e. sigur og
mark frá afmælisbarninu.
Að öðru leyti er afmælisdagurinn hefðbundinn
hjá Davíð. Framundan eru skil BA-ritgerðar í við-
skiptafræði og munu því skrif eiga hug hans allan
í dag. Hann getur þó ekki kvartað yfir inniveru í
dag, enda kom hann til landsins í gær eftir átta
daga æfingaferð á Portúgal með FH-liðinu. Öll
vinnan sem átti að fara í ritgerðina í ferðinni varð einnig að litlu sem
engu í 25 stiga hita og sólskini.
Fari svo sem stefnt er að með ritgerðina – að hún verði kláruð fyrir
11. maí nk. – útskrifast Davíð í vor. Hann hefur því í hyggju að slá
saman veislum tveimur og gera úr heljarinnar partí.
Fyrir utan ritgerðarskrif eru æfingar á fullu hjá FH þessa daganna
enda stutt í að Íslandsmótið hefjist. Að vanda stefnir liðið á Íslands-
meistaratitilinn en jafnframt að ná langþráðri tvennu og landa bik-
armeistaratitli einnig. Fagna þá allir góðir menn. andri@mbl.is
Davíð Þór Viðarsson knattspyrnukappi 25 ára
Fagnar með sigri (og marki)
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is