Morgunblaðið - 24.04.2009, Side 34
34 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HVAÐ Í
HEIMINUM...?
VISSIR ÞÚ AÐ
FÓLK GEFUR ÖND-
UNUM Á TJÖRNINNI
AÐ BORÐA?
ÞAÐ ER
HRÆÐILEGT
AÐ JÓLIN
SÉU BÚIN
EF EINHVER
MINNIST Á
JÓLIN ÞÁ FER
ÉG AÐ GRÁTA
UM LEIÐ
HAFÐIR
ÞÚ ÞAÐ
GOTT UM
JÓLIN?
ÉG VERÐ SVO ÞUNGLYND...
MIG VERKJAR Í ALLAN
LÍKAMANN... SVO ÞREYTT... AAGH!
EF ÞÚ BIÐUR
STJÖRNU UM
ÓSK ÞÁ
RÆTIST HÚN
ÉG VERÐ AÐ
HÆTTA AÐ
TRÚA ÞESSUM
TEIKNIMYNDUM
ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ
ÉG ÆTTI
HUNDRAÐ
MILLJÓNIR
EDDI, HVAÐ
ER Í MATINN
Í KVÖLD?
SPAGETTÍ
OG FISKI-
BOLLUR
VIÐ ERUM
BÚNIR AÐ VERA
OF LENGI Á
SJÓNUM
HVAÐ KALLAR
ÞÚ HÓP AF
KJÚKLINGUM?
FÖTU
EF ÞÚ VILT Í
ALVÖRUNNI AÐ KALLI
LÆRI AÐ SPILA Á GÍTAR
ÞÁ ÆTTIR ÞÚ AÐ FINNA
HANDA HONUM ALVÖRU
KENNARA
EN MIG
LANGAR AÐ
KENNA
HONUM
ÞAÐ ER ERFITT
AÐ KENNA SÍNU
EIGIN BARNI...
ÞETTA Á BARA
EFTIR AÐ ENDA
MEÐ RIFRILDI
ENGAR
ÁHYGGJUR,
ADDA...
ÉG Á EFTIR AÐ
VINNA RIFRILDIÐ!
ÉG ÆTLA AÐ FINNA
KENNARA...
ÉG LÆT EKKI
MANN EINS OG
SIMON KRANDIS
BOLA MÉR Í BURTU!
ÉG
BJÓST
EKKI VIÐ
ÞVÍ
EN ÞESSI FANTUR
SEM VINNUR FYRIR
HANN GÆTI SKAÐAÐ
STARFSEMINA ENN
FREKAR... ÞÚ GÆTIR
ÞURFT HJÁLP
OG HANA FÆR HANN... FRÁ VINI
SÍNUM,
KÓNGULÓAR-
MANNINUM
Gríðarleg eigna-
upptaka sparifjár
framundan
AFNÁM verðtrygg-
ingar á útlánum bank-
anna, og þá auðvitað
jafnframt á innláns-
reikningum í bönkum
og sparisjóðum, mun
þýða gríðarlega eigna-
upptöku sparifjár eldri
borgara og annarra.
Fyrir því er áratuga
reynsla frá síðustu
öld, fyrir tíma verð-
tryggingar í banka-
kerfinu 1981, en þá
töpuðu sparifjáreig-
endur 750 milljörðum króna miðað
við framfærsluvísitölu á einum ára-
tug, þ.e. 1971-1980 (samanber Fjár-
málatíðindi Seðlabankans 1982 1.
hefti).
Jafnframt er boðuð stórhækkun
fjármagnstekjuskatts en hann
leggst á alla innlánsvexti, jafnt á
vexti sem eru lægri en verðbólgan,
þ.e. raunverulega neikvæðir, og
raunvexti, þ.e. vexti umfram verð-
bólgu. Slík skattlagning er ekkert
annað en refsiskattur á sparnað og
raunveruleg eignaupptaka, og einn-
ig notað til að svipta ellilífeyrisþega
grunnlífeyrinum frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Enn einu sinni
á að hengja bakara fyrir smið. Elli-
lífeyrisþegar verða látnir borga
lántökufylleríið, látnir greiða millj-
arða afskriftir skulda. Afskriftir
skulda gufa aldrei upp í loftið. Elli-
lífeyrisþegar og aðrir sparifjáreig-
endur verða látnir borga lántöku-
blindafylleríið – látnir borga lánin
sem aðrir tóku. Sparnaður mun
stórminnka og síðan hrynja, alveg
eins og stefndi í á áttunda áratug
síðustu aldar áður en verðtrygging
var tekin upp. En á þeim tíma
stefndu allir bankar, sparisjóðir og
einnig allir lífeyrissjóðir í landinu í
allsherjargjaldþrot – raunverulegt
þjóðargjaldþrot. Hvar ætlar þá hin
langskólagengna, en lántökuóða ís-
lenska þjóð að taka lán? Kannski
hjá Icesave-reikningseigendum í
Englandi og Hollandi?
Eldri borgari.
Kosningasjónvarp
ÉG var svo ánægð með kosninga-
sjónvarp frá Suðurlandi. Helgi
Seljan og Sigríður Hagalín voru
frábærir spyrlar.
Ég var hins vegar óánægð með
kosningasjónvarp í Reykjavík þeg-
ar Þóra svaraði stjórnmálamann-
inum með spurningunni: Á bara að
fara aftur í stígvélin og slorið?
Þjóðin er búin að lifa
af á sjónum alla tíð.
Mér fannst hún sýna
þessu málefni lítils-
virðingu.
Kristín.
Eyðilegging
krónunnar
YFIRLÝSING frá
Seðlabankanum um að
það taki tvö ár að
losna frá gjaldeyr-
ishöftum, sem vænt-
anlega er studd af for-
sætisráðherra,
jafngildir ákveðnum
vilja um að eyðileggja íslensku
krónuna. Ennþá er hún bara eins
og liggjandi maður sem sparkað er
í, en slíkt athæfi getur leitt til
dauða. Ef alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn ætlar sér ekki að veita okkur
aðstoð til að losna við „jöklabréfin“,
þá höfum við ekkert með hann að
gera, og ef hann ætlast til að fjár-
lög verði hallalaus, þá er betra að
hann fari. Hvort er hér á ferðinni
skilningsleysi eða skemmdarverk
gegn íslensku þjóðinni?
Halldór I. Elíasson.
Hvað með tíu prósentin?
ATLI Gíslason, efsti maður á lista
VG í Suðurlandskjördæmi, upplýsti
á kosningafundi sjónvarpsins á Sel-
fossi 20. apríl að Vinstri-grænir
vissu um 90% þeirra skilyrða, sem
Evrópusambandið myndi setja
fram í samningaviðræðum okkar
um aðild. Þetta eru merkilegar
fréttir, en nú vantar okkur vitn-
eskju um 10%. Getum við fengið
þau fram nema með aðild-
arumsókn?
Böðvar Stefánsson,
ellilífeyrisþegi, Selfossi.
Hvar er búsáhaldabyltingin?
HÆSTVIRTUR forsætisráðherra
rak ráðuneytisstjóra félags- og
tryggingamálaráðuneytis og for-
sætisráðuneytis strax er hún tók
þar við stjórntaumunum og réð í
staðinn vinkonu sína og jásystur.
Þegar Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hafði myndað stjórn sína til-
kynnti hann ráðherrunum að þeir
væru komnir til að þjóna þjóð sinni
en ekki til að hygla sér og sínum.
Ráðherra sem hyglar sínum getur
ekki flutt slíkan boðskap.
Kjósandi.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, kaffi
og dagblaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9-
16.30, bingó kl. 13.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16. Opin
smíðastofa kl. 9-16.30. Bingó kl. 13.30
(2. og 4. föstud. í mán.).
Bólstaðarhlíð 43 | Kertaskreyting,
handavinna, kaffi/dagblöð, hárgreiðsla,
böðun, fótaaðgerð. Kl. 13 myndbands-
sýning „Dalalíf“.
Dalbraut 18-20 | Harmonikka og söng-
ur kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl.
9.20, málm- og silfursmíði kl. 9.30 og
kl. 13, jóga kl. 10.50 og félagsvist kl.
20.30.
Félagsheimilið, Gullsmára 13 | Jóga kl.
9, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.45, bingó
kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Frambjóðendur Framsóknarflokksins
heimsækja Jónshús kl. 14.30. Vatns-
leikfimi kl. 9.20, gler og leir, síðasti tími,
kl. 10. Bútasaumur og ullarþæfing, síð-
asti tími, kl. 13. Félagsvist FEBG kl.
13.30, rúta frá Hleinum kl. 13, frá Garða-
bergi kl. 13.15. Bíó í kirkjunni kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergi | Kl. 9-16.30
vinnustofur opnar, m.a. bókband. Kl. 10
prjónakaffi/bragakaffi. Kl. 10.30 staf-
ganga. Frá hádegi spilasalur opinn. Kl.
13 leikfimi (frítt) í ÍR-heimilinu v/
Skógarsel, umsj. Júlíus Arnarsson
íþróttakennari. Kóræfing fellur niður.
Uppl. á staðnum og s. 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl.
14.15 koma Aðalheiður og Anna Sigga
og stjórna fjöldasöng fram að kaffi kl.
15.
Háteigskirkja – starf eldri borgara |
Konur spila brids í Setrinu, safn-
aðarheimili Háteigskirkju, kl. 13, kaffi.
Hraunbær 105 | Baðþjónusta og handa-
vinna kl. 9, bingó kl. 14. bókabíllinn kl.
14.45.
Hraunsel | Opnað kl. 9, bókmennta-
klúbbur kl. 10-12, leikfimi Bjarkarhúsi kl.
11.30, tréskurður á Hjallabraut og g-
Lækjarsk. kl. 13, brids kl. 13, skrifstofa
stjórnar kl. 10-12.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9, postulínsmálning. Lífsorkuleikfimi kl.
9 og 10. Námskeið í myndlist kl. 12.15.
Bingó kl. 13.30, spilaðar 6 umferðir,
kaffi og meðlæti í hléi. Böðun fyrir há-
degi, hársnyrting.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur með Önnu Hermannsdóttur kl.
10, leikfimi með Janick Moisan kl. 11,
opið hús, vist og brids kl. 13. Hár-
greiðslustofa, s. 862-7097, fótaaðgerða-
stofa, s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Morgunleikfimi kl. 9.45.
Myndlistarnámskeið kl. 9-12, útskurður
með Halldóri leiðb. kl. 9-12 og smíða-
verkstæði opið, leikfimi með Janick kl.
13.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9-12,
spænska kl. 11, sungið v/flygilinn kl.
13.30, dansað í aðalsal kl. 14.30. Hár-
greiðsla og fótaaðgerðir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Leirmótun
kl. 9, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar,
morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10 og
bingó kl. 13.30. Uppl. í síma 411-9450.