Morgunblaðið - 24.04.2009, Qupperneq 38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2009
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Sími 551 9000
750kr.
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA
Garbage Warrior ísl. texti kl. 6 LEYFÐ
Hunger Ótextuð kl. 8 B.i.12 ára
Wordplay ísl. texti kl. 6 LEYFÐ
Draumalandið kl. 6 - 8 -10 LEYFÐ
State of Play kl. 8 - 10:30 B.i.12 ára
Me and Bobby ísl. texti kl. 8 LEYFÐ
Gomorra ísl. texti kl. 10 B.i.16 ára
Die Welle (The Wave) enskur texti kl. 6 B.i.12 ára
Two Lovers ísl. texti kl. 10 B.i.12 ára
Fast and Furious kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
I love you man kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
Dragonball kl. 6 B.i. 7 ára
Mall Cop kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Marley and Me kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
Crank 2: High Voltage kl. 5:50 - 8 - 10 B.i.16 ára
17 Again kl. 5.50 - 8 LEYFÐ
Fast and Furious kl. 10 B.i.12 ára
STÆ
RST
A
OP
NU
NIN
Á Á
RIN
U
STÆ
RST
A
OP
NU
NIN
Á Á
RIN
U
750k
r.
750k
r.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
TILBOÐ Í BÍÓ
750k
r.
....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR
TIL AÐ SEGJA ÞAÐ?
“ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT GLOTTANDI
EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT ALLA LENGDINA.
MÆLI VEL MEÐ HENNI.”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND
SEM KEMUR ÖLLUM TIL AÐ HLÆJA
HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT
BARA UNGUR EINU SINNI?
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b
....ERTU NÓGU MIKILL MAÐUR
TIL AÐ SEGJA ÞAÐ?
“ÞESSI MYND HÉLT MÉR ANNAÐ HVORT
GLOTTANDI EÐA SKELLI- HLÆJANDI ÚT
ALLA LENGDINA. MÆLI VEL MEÐ HENNI.”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA
KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL
750k
r.
ÖRYGGI TEKUR SÉR
ALDREI FRÍ
750k
r.
JASON STATHAM ER
MÆTTUR AFTUR Í
HLUTVERKI HINS
ÓDREPANLEGA
CHEV CHELIOS
HÖRKU HASAR!
FYRIR2 1
KL. 3:40
OPNU
NARM
YND
Allar upplýsingar á
www.graenaljosid.is
Dagskrá og
miðasala á Miði.is
- S.V., MBL
- S.V., MBL
- KHG, DV
- H.J., MBL
GEÐVEIKIN STOPPAR ALDREI,
OG VIRÐIST ÞEIM FÉLÖGUM,
LEIKSTJÓRUNUM NEVELDINE OG
TAYLOR FÁTT VERA ÓMÖGULEGT.
- V.J.V., -TOPP 5
STATE OF PLAY er vandaður og
vel leikinn pólitískur samsæris-
tryllir, byggður á samnefndri
sjónvarpsþáttaröð gerðri af BBC
árið 2003. Myndin er á svipuðum
nótum þó samsærið sé flutt til
Washington D.C., og nýtt fólk
túlki persónurnar.
Myndin hefst á skotbardaga þar
sem einn liggur í valnum, annar
særist lífshættulega. Skömmu síð-
ar ferst einkaritari þingmannsins
Stephens Collins (Affleck), en
dauðsföllin tengjast í gam-
alreyndum kolli blaðamannsins
Cals McAffreys hjá Wahington
Globe. Hann er vinur og fyrrum
herbergisfélagi Collins frá skóla-
árunum. Síðar viðurkennir Collins
að hafa haldið við einkaritarann,
sem er hið bragðversta mál, Coll-
ins er hin nýja, stóra von flokksins
og á kafi við að fletta ofan af
verktakafyrirtækinu PointCorp,
sem annast öryggismál á vegum
ríkisstjórnarinnar.
Della Frye (McAdams), nýliði á
Globe, leitar upplýsinga um Coll-
ins hjá vini hans, reynsluboltanum
McAffrey, sem bregst þver við í
fyrstu. Fleiri og fleiri grun-
samlegir þættir flækja málið og
McAffrey hleypir nýliðanum inn í
blaðamannagengið sem ritstjórinn
Cameron (Mirren), setur saman til
að rannsaka hvort tengsl séu með
morðinu og PointCorp og hvort lífi
Collins sé ógnað. Blaðamennirnir
sogast inn í sífellt ógnþrungnara
andrúmsloft þar sem kemur m.a.
við sögu hópur fyrrverandi her-
manna, nú málaliða hjá PointCorp.
Með hverju skrefi sem blaðamenn-
irnir taka koma nýir og ógnvæn-
legir þættir í ljós og að lokum vita
þeir ekki lengur hverjum er
treystandi í spillingarfenjum höf-
uðborgarinnar.
Það er ánægjulegt að fá sam-
særistrylli af gamla skólanum til
að lífga upp á formúlumoðið sem á
að henta fjöldanum nú um stundir.
Breskir sjónvarpsþættir um saka-
mál eru almennt hin besta
skemmtun og eiga að vera upplagt
efni til kvikmyndagerðar – ef vel
er á haldið. Til að flytja State of
Play (sem var í sex, stund-
arlöngum þáttum), yfir á tjaldið,
er fenginn Skotinn Kevin
McDonald, bráðsnjall leikstjóri
sem tókst að skapa yfirþyrmandi
spennu í Touching the Void og
The Last King of Scotland. Verk-
efnið er stór áskorun fyrir
McDonald, sem gerir marga góða
hluti í sinni fyrstu Hollywood-
mynd, en mér er til efs að ómælt
fé breyti miklu fyrir leikstjórann,
alltént nær hann ekki að halda
uppi í nýju myndinni þeirri níst-
andi spennu sem slaknaði ekki á í
perlunum hans tveim. Það er
kannski til of mikils mælst, hand-
ritið býður ekki upp á slíka veislu
að þessu sinni. T.d. er samstarf
lögreglunnar og blaðamannanna
ósköp pasturslítið.
Það verður heldur ekki af
McDonald tekið að honum tekst á
löngum köflum að hnika manni að
stólbrúninni, eltingarleikir og
mörg lykilatriði eru þrungin sam-
særisæsingi þó hann mætti vera
meira viðvarandi. Leikurinn er vel
yfir meðallagi hjá Crowe, Affleck
og nýstirninu McAddams, sem er í
hlutverki bloggarans sem er að
pota sér inn í fréttadeildina en
McAffrey er reynsluboltinn af
gamla skólanum. Þau mynda
skemmtilega andstæðu í oftast
skynsamlegri og áhugaverðri
mynd. Útvaldir skapgerðarleik-
arar hressa upp á framvinduna,
ekki síst Bateman og hin eilíflega
stórglæsilega Mirren, sem hefði
gjarnan mátt fá fleiri þungavikt-
arsetningar, og sama má segja um
Jeff Daniels. Útlitið er óaðfinn-
anlegt og í það heila tekið er State
of Play yfir höfuð spennandi og
ásættanleg afþreying.
Nýliðinn, reynsluboltinn og spillingin
Crowe og Affleck „Útlitið er óaðfinnanlegt og í það heila tekið er State of
Play yfir höfuð spennandi og ásættanleg afþreying,“ segir m.a. í dómi.
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó,
State of Play
bbbmn
Leikstjóri: Kevin Macdonald. Aðalleik-
arar: Russell Crowe, Ben Affleck, Rachel
McAdams, Robin Wright Penn, Jason
Bateman, Jeff Daniels, Helen Mirren.
120 mín. Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND