Morgunblaðið - 24.04.2009, Side 44
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Stjórnarflokkarnir stærstir
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir eru
enn stærstir með 56,4% fylgi og
fengju samkvæmt nýjustu könnun
Capacent Gallup 37 þingmenn. »4
Engin yfirtaka á Icelandair
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra neitar því að hafa sagt
að íslenska ríkið væri mögulega að
taka yfir Icelandair. Forstjóri Kaup-
hallarinnar hefur óskað skýringar á
ummælunum. »2
Óskiljanlegt vaxtastig
Háir stýrivextir Seðlabankans
leiða til þess að fjármagnskostnaður
fyrirtækja er svimandi hár. Þórður
Magnússon, stjórnarformaður Eyris
Invest fjárfestingarfélags, segir
vaxtastigið óskiljanlega hátt. »14
Eflast uppreisnarmenn?
Mesta mannfall í marga mánuði
varð í tveimur sjálfsmorðsárásum
sem gerðar voru í Írak í gær. Óttast
er að uppreisnarmenn eflist nú þeg-
ar bandarískt herlið undirbýr brott-
flutning sinn frá landinu. »15
Vindur í stað olíu
Framkvæmdastjórn ESB leggur
til stóraukna valddreifingu og breytt
ákvarðanatökuferli í „grænbók“,
skýrslu um sjávarútvegsstefnu sam-
bandsins. »Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Gríman dettur af
Forystugrein: Efnahagsmyndin
Pistill: Kosningaauglýsingar
Ljósvaki: Forréttindi lýðræðisins
UMRÆÐAN»
Vondir tímar rifjast upp
Hundruð starfa hverfa úr landi
Sögulegt tækifæri
Er þetta í lagi?
Meiri rýrnun á bílum með stórar …
Volkswagen að fara fram úr Toyota
Nýir bílar ódýrari en notaðir
Missti stjórnina talandi í farsíma
BÍLAR »
Heitast 8°C | Kaldast 0°C
Norðan 8-13 m/s, en
13-18 úti við vestur-
ströndina. Skúrir eða
él víða, úrkomulítið SV
til. Svalast norðvestan til. »10
Píanóið er líka leik-
myndin: lækur, fugl-
ar, reiðhestur. Og
ástin. Snillingurinn
Dalton Baldwin er
mættur. »35
TÓNLIST»
Með stórt
litaspjald
TÓNLIST»
Lesendur segja hana þá
kynþokkafyllstu. »40
Hélt ekki að Ísland
væri svo stórt að það
þyrfti að rífast um
stærð bókaforlaga.
Dóttir Laxness
fagnar. »35
BÆKUR»
Loksins,
loksins!
AÐALSMAÐUR»
Rammpólitískur og æfði
sig við spegil. »36
KVIKMYNDIR»
Tribeca-hátíð sett með
klassískum Allen. »39
Menning
VEÐUR»
1. Hommi inn við beinið
2. Tilhæfulaust að ríkið taki … yfir
3. Hótanir ráðherra ekki við hæfi
4. Valdís Ýr valin ungfrú Vesturland
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
KRISTBJÖRG Lilja Jakobsdóttir
greip í tómt í gær er hún fór ásamt
manni sínum til ræðismannsins í Ár-
ósum til að taka þátt í alþingiskosn-
ingum. Kjörseðlarnir voru búnir.
Þeir höfðu klárast um hádegi. Áður
hafði verið sagt að hægt yrði að
greiða atkvæði til fjögur á sumar-
daginn fyrsta, vildi fólk vera öruggt
um að atkvæðin næðu heim til Ís-
lands.
„Mér finnst alveg ótrúlegt að þetta
hafi getað gerst. Ég hélt að maður
gæti verið öruggur um að fá kjörseð-
il,“ segir Kristbjörg Lilja sem hitti
fleiri vonsvikna landa sína hjá ræð-
ismanninum. „Þar var okkur bent á
að næsti kjörstaður væri í Horsens,
en við höfðum ekki tækifæri til að ná
þangað fyrir lokun.“ Þær skýringar
voru gefnar á kjörseðlaskortinum að
ekki hefði verið búist við að svo
margir myndu kjósa því þátttaka
væri venjulega mun minni. Kristrún
Lilja telur ekkert einkennilegt við að
fleiri kjósi nú. „Að sjálfsögðu vill
maður kjósa, af því að núna skiptir
það virkilega máli.“
Margir kjósa í Kaupmannahöfn
Svavar Gestsson, sendiherra Ís-
lands í Danmörku, hafði ekki fengið
fregnirnar frá Árósum er haft var
samband við hann. Svavar sagði
kosningaþátttöku í Kaupmannahöfn
nú þó mun meiri en undanfarin ár.
Þannig hefðu yfir 800 manns komið
og kosið í sendiráðinu nú, en venju-
lega kysu ekki fleiri en 200.
Hjá utanríkisráðuneytinu fengust
þær upplýsingar að vissulega virtist
meira um að Íslendingar erlendis
kysu nú en áður. Kosningaþátttaka
ætti hins vegar ekki að stranda á
kjörseðlaskorti og verið væri að
vinna í því að koma fleiri kjörseðlum
til Árósa í kvöld. Allt kapp yrði síðan
lagt á að atkvæðin næðu heim aftur
fyrir lokun kjörstaða á laugardags-
kvöld. Það ætti að vera hægt takist
að koma kjörseðlunum í þær vélar
sem fljúga til Íslands í síðasta lagi á
laugardagsmorgun.
Kjörseðlarnir
búnir í Árósum
Fleiri seðlar sendir og reynt að koma
þeim til Íslands fyrir lokun kjörstaða
Kosningar Ekki náðu allir Íslending-
ar í Árósum sem vildu að kjósa í gær.
Í HNOTSKURN
»Þeir Íslendingar sem kjósaerlendis bera sjálfir
ábyrgð á því að atkvæði þeirra
skili sér í tæka tíð til viðkom-
andi kjörstjórnar á Íslandi.
»Meira virðist um að Íslend-ingar erlendis taki þátt í
alþingiskosningum nú en ver-
ið hefur undanfarin ár.
» Utankjörfundaratkvæða-greiðsla erlendis fyrir
kosningarnar á laugardag
hófst 16. mars síðastliðinn.
VALUR og Haukar leika til úrslita
um Íslandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik karla. Haukar áttu aldrei í
vandræðum með að leggja Fram að
velli í þriðja leiknum í undan-
úrslitum N1-deildarinnar. Lokatölur
30:21 en mestur var munurinn 11
mörk.
Það var meiri spenna í leik Vals
og HK þar sem Valur hafði betur,
29:25. „Núna fáum við sterkt lið Vals
í úrslitum, mitt gamla félag. Fáum
hér skemmtilegan KFUM-slag þar
sem andi séra Friðriks Friðriks-
sonar mun svífa
yfir vötnum,“
sagði Einar Örn
Jónsson, leik-
maður Hauka, í
gær en hann var
áður leikmaður
Vals.
Úrslitin hefjast
á mánudag á
heimavelli Hauka
í Hafnarfirði en
það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki
verður Íslandsmeistari. | Íþróttir
Valur og Haukar keppa
um meistaratitilinn
Einar Örn
Jónsson
„ALLSKYNS verur og furðudýr
lifna við í lóninu,“ lofaði danshöfund-
urinn Erna Ómarsdóttir fyrir sýn-
ingu Íslenska dansflokksins í Bláa
lóninu að kvöldi síðasta vetrardags.
Það voru orð að sönnu, því þegar
sýningargestir höfðu komið sér fyrir
úti í lóninu í baðfötum hófst mikið
sjónarspil. Um lónið sveimuðu
furðuverur með kísilhöfuð, á bakk-
anum birtist einhver risaskepna og
síðan dönsuðu í vatninu og við vatns-
borðið verur sem virtust koma úr
djúpum hraunsins við Svartsengi.
Höfundar verksins, dansararnir
Erna og Damien Jalet og myndlist-
arkonan Gabríela Friðriksdóttir,
sóttu innblástur verksins, sem nefn-
ist Transaquania - Out of the Blue, í
uppruna Bláa lónsins. Í síðari hluta
sýningarinnar barst leikurinn inn í
salarkynni við lónið og kunnu gestir,
sem voru fjölmargir, vel að meta lit-
ríkt sjónarspilið. | 41
Furðuverur birtust
úr djúpum vatnsins
Morgunblaðið/Ómar
Eins og furðufiskar Dansararnir undu upp á sig, fettu sig og brettu.
Íslenski dansflokkurinn í Bláa lóninu