Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 9
Kjólar við leggings/buxur Bæjarlind 6 sími 554 7030 Opið í dag kl. 10-16 Eddufelli 2, sími 557 1730 Opið í dag kl. 10-14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Langur laugardagur 15% afsláttur af öllum náttfatnaði Póstsendum Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 20% afsláttur aðeins í dag af galla- og stretch buxum Ótrúlegt úrval, yfir 50 tegundir • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • Sími 562 2862 KYNNINGAR- DAGAR 24. apríl - 2. maí 15% AFSLÁTTUR Stærðir 42-54 Laugaveg 53 • sími 552 3737 Opið mán.-fös. kl. 10-18, langur laugardagur kl. 10-17 Ný sending af litríkum sumarvörum Langur laugardagur opið 10-17 20% afsláttur af öllum stuttermabolum og sumarjökkum Laugavegi 63 • Sími 551 4422 Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli Gleðilegt sumar Kringlunni • Sími 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822 www.polarnopyret.is KAUPAUKI Hverju setti af vindúlpu og buxumfylgja stígvél* *meðan birgðir endast STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efti@mbl.is „ÞAÐ er ekki mikið að gerast. Við erum aðallega að segja veiðisögur – gamlar,“ sagði einn félaganna sem stóðu í hnapp í skjóli við Elliða- vatnsbæinn þegar klukkan var að ganga tíu í gærmorgun. Þeir brostu, supu á kaffinu og bættu við að einn og einn urriði hefði náðst á land. „Þeir hafa fengið einhverja fiska þarna á horninu, á rækju,“ sagði einhver og benti á tvo félaga sem sátu í skjóli fyrir hryðjunum og fylgdust með grænum flotholtum í öldunni. Það var býsna hvasst við Elliða- vatn í gærmorgun. Úti á vatni dól- aði himbrimi sér og álftir rótuðu æti upp af botninum. Langt úti á Engj- um, í miðju vatni, voru þrír menn og sýndist mér öldurnar brjóta á þeim. Inni í Elliðavatnsbænum hitti ég Sigþór Elíasson. „Við erum búin að selja 40-50 leyfi í morgun,“ sagði hann. „Þeir fyrstu voru tilbúnir klukkan sjö, drifu sig út í og fyrsti urriðinn náð- ist þá strax. Áhuginn er gífurlegur hjá þess- um köllum.“ Hann vissi til þess að einhverjir væru búnir að fá einn og tvo fiska. Þegar ég sá tvo félaganna sem voru úti á Engjum ösla í land sat ég fyrir þeim. Þetta voru feðgarnir Magnús Már Vilhjálmsson og Vil- hjálmur. Þeir voru hvor með sinn fiskinn í netpoka við mjöðmina; fað- irinn bleikju og sonurinn urriða. Þeir voru komnir út í vatn um hálfníu og sögðu gönguförina út á veiðistað hafa verið strembna. En þeir urðu svolítið varir, þrátt fyrir að vatnið væri bara um sex gráður; Vilhjálmur missti einn og svo fengu þeir þessa, báða á púpuna Mobutu. Fljótlega birtist þriðji maðurinn sem hafði verið á Engjunum og var það Geir Thorsteinsson, sem þekkir svæðið öðrum betur. Hann var með tvo fallega urriða í pokanum. „Þeir tóku hvor sinn nobblerinn,“ sagði hann. „Ekki þennan appels- ínugula, sem ég helst mest upp á, heldur hvítan og brúnan. Takan er treg – en þetta er fín líkamsrækt, að vaða svona í öldunni. Ég fer aftur út þegar ég er búinn að fá mér kakó!“ „Aðallega að segja veiðisögur – gamlar“  Veiðin hafin í Elliðavatni  Takan var róleg til að byrja með Fyrstu veiðimennirnir voru að vanda mættir við Elliðavatn strax klukkan sjö að morgni fyrsta maí, en fyrir marga markar þessi dag- ur upphaf stangveiðitímabilsins. Stöku silungur beit á agnið. Morgunblaðið/Einar Falur Fyrstu silungarnir Magnús Már Vilhjálmsson og Vilhjálmur, sonur hans, veiddu bleikju og urriða úti á Engjunum. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.