Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 Lögreglumessa var á Selfossi í gær. Annaðist hana séra Óskar Hafsteinn Óskarsson en Lögreglukórinn söng undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Ræðumaður var Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni. Gengið í kirkju Ljósmynd/Guðmundur Karl KRAKKARNIR í fjórða bekk Grundaskóla á Akranesi fóru í dagsferð til Reykjavíkur síðasta dag aprílmánaðar. Þau heimsóttu Alþingi og skoðuðu landnámssýninguna, röltu um miðbæ- inn og stöldruðu við í Menntaskólanum í Reykja- vík og Hallgrímskirkju. Þau voru sótt við styttu Leifs Eiríkssonar. Þar sem þau biðu eftir rútunni náði ljósmyndari Morgunblaðsins í skottið á þeim eftir þennan skemmtilegan dag. Morgunblaðið/RAX 4. bekkur í dagsferð til höfuðborgarinnar KARLMANNI er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Land- spítalans en hann fannst liggjandi í blóði sínu við hús á Skólavörðustíg í Reykjavík í gærmorgun. Maðurinn er höfuðkúpubrotinn og með inn- vortis meiðsli en líðan hans er eftir atvikum. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu er málið til rannsóknar en ýmislegt bendi til þess að hann hafi dottið af húsþaki þegar hann var að reyna að klifrast inn um glugga. Lögreglan segir ekkert benda til þess að ráðist hafi verið á manninn eða á hann ekið en hún hefur ekki útilokað neina möguleika í málinu. andri@mbl.is Datt líklega af húsþaki Haldið sofandi í önd- unarvél á gjörgæslu Skólavörðustígur Maðurinn fannst höfuðkúpubrotinn. Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is ÞAÐ er stórt skref að þessi vett- vangur, sem er samkoma allra presta kirkjunnar, álykti og leggi fram skoðun í máli sem þegar er í meðferð innan kirkjunnar, skoðun sem tekur svona afgerandi afstöðu með þörfum safnaðarins,“ segir séra Gunnar Rúnar Matthíasson, formaður fagráðs um kynferð- isbrot innan þjóðkirkjunnar. Gunnar segist fagna ályktun ný- yfirstaðinnar prestastefnu um málefni Selfosssafnaðar. Í ályktuninni, sem var sam- þykkt samhljóða, segir að presta- stefna hvetji biskup til þess að „nýta þær leiðir sem hann hafi til lausnar“ í málefnum safnaðarins. Fagráðið sendi í lok mars bréf til biskups um mál séra Gunnars Björnssonar, þar sem þess var óskað að biskup vísaði málinu til úrskurðarnefndar. Farið var fram á að þau atriði sem út stæðu eftir umfjöllun dómstóla skyldu ekki látin óátalin, en Gunnar var sýkn- aður af ákærum um kynferðislega áreitni. Gunnar Rúnar reiknar með því að úrskurðarnefnd kirkjunnar hafi komið saman og sé byrjuð að fjalla um málið, en hefur ekki nán- ari upplýsingar um hvernig staðan er. Ekki er von á svari fyrr en niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir, en Gunnar Rúnar vonar að það verði á þann veg að kirkjan geti staðið með þeim samþykktum sem hún hefur gert. Kirkjan hafi sett sér strangari reglur en lög- gjafinn er tilbúinn að dæma eftir til refsingar. Að sögn Árna Svans Daníels- sonar, upplýsingafulltrúa Bisk- upsstofu, er ekki ljóst hvernig brugðist verður við ályktun prestastefnu, þar sem mjög stutt er síðan hún kom fram. Þetta sé þó augljóslega mál sem þoli enga bið. Fagnar ályktun prestastefnu  Beðið niðurstöðu úrskurðarnefndar kirkjunnar um málefni Selfosssafnaðar Í HNOTSKURN »Séra Gunnar Björnssonvar sýknaður í Hæstarétti í lok mars sl. af ákæru um kynferðislega áreitni. »Prestastefna, sem lauk núá fimmtudag, ályktaði samhljóða um að hvetja biskup til að nýta leiða til lausna í málefnum Selfosssafnaðar. »Slíkar leiðir gætu verið aðfæra prestinn til í starfi, þ.e. í annað prestakall, eða að semja um starfslok. SAMÞYKKT var á aðalfundi Efl- ingar – stétt- arfélags að ganga til viðræðna við önnur verkalýðs- félög í Flóa- bandalaginu, þ.e. Hlíf í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, um sameiningu. Kristján G. Gunnarsson, formaður VSFK, segir þetta koma í kjölfar samþykktar aðalfundar félags síns. Hann segir málið í könnunarferli og verði fráleitt unnið í flýti. „Við horf- um til félaganna í Flóabandalaginu, hvernig staðan sé og hvernig hún gæti litið út í sameinuðu félagi.“ Hann tekur fram að skiptar skoð- anir séu um málið meðal fé- lagsmanna. andri@mbl.is Sameining könnuð Kristján Gunnarsson „ÞETTA er þáttur í greining- arvinnu sem ríkisskattstjóri hefur með höndum. Það er kominn vísir að greiningardeild hjá embættinu,“ segir Skúli Eggert Þórðarson rík- isskattstjóri. Hann staðfestir að embættið hafi til rannsóknar á þriðja hundrað fyrirtækja og félaga í skattaskjólum á borð við bresku Jómfrúreyjar. „Í þessu felst að afla upplýsinga í gegnum aðila í Lúxemborg um það hvaða félög hafi farið þar í gegn sem hægt sé að tengja Ís- landi. Það er ekki víst að þetta sé tæmandi talning,“ segir Skúli Egg- ert. Hann segir að vinnan sé ekki rannsókn á neinum tilteknum meintum skattalagabrotum, heldur sé þetta greining almenns eðlis, hluti af því að koma saman heild- stæðri mynd af raunverulegu eign- arhaldi íslenskra félaga erlendis. onundur@mbl.is Rannsakar eignarhald Ríkisskattstjóri kort- leggur félög á Tortólu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.