Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 42
42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 SKÁLDSAGAN Grafarþögn eftir Arnald Indriða- son kom út fyrir rúmum mánuði á Spáni undir heitinu La mujer de verde. Þetta er önnur bók Arnaldar sem kemur út þar í landi en áður hefur Mýrin verið gefin út á spænsku. Grafarþögn hefur gengið gríð- arlega vel í spænska lesendur og setið allan aprílmánuð í efstu sæt- um metsölulistanna. Á met- sölulistum þriggja stærstu blað- anna í Katalóníu – La Vanguardia, El Periódico og El Mundo: Catal- unya – fór bókin beint í fimmta sæti en hækkaði sig viku síðar í fjórða sæti og hefur setið þar síð- an. Sömu sögu er að segja um met- sölulista La Razon sem kemur út um allan Spán. Á þeim lista slær Arnaldur við metsölubókum eins og Twilight-bókum Stephenie Meyer og Lesaranum eftir Bern- hard Schlink með því að sitja fast í fjórða sæti. Raunar virðast vin- sældir Arnaldar teygja sig ansi víða á Spáni. Sem dæmi má nefna að í blaðinu Hoy, sem kemur út í Extremadura-héraðinu vestast á Spáni, fór Grafarþögn líka beint í fjórða sæti og þar hefur hún verið síðan. Góðan árangur Arnaldar á Spáni má meðal annars þakka mikilli og jákvæðri umfjöllun, en birst hafa stórar greinar um bók- ina og höfundinn í blöðum eins og La Vanguardia og El Mundo. Gagnrýnendur hafa þá tekið bók- inni vel; El Periódico segir rann- sóknarlögreglumanninn Erlend Sveinsson vera norræna útgáfu af Maigret lögregluforingja, stóískan og angistarfullan: „Ég ríf í mig Grafarþögn eftir Arnald Indr- iðason, óhugnanlega spennusögu sem ég tel eina af áleitnari og mest grípandi skáldsögum seinni tíma,“ segir ritdómarinn Ramón de España. Ekkert stöðvar Arnald Á Spáááááni Arn- aldur Indriðason. Slær í gegn á Spáni MYNDASÖGUVERSLUNIN Nexus mun ásamt þúsundum verslana um víða veröld halda upp á „Free Comic Book Day“ í dag. Á ókeypis mynda- sögudeginum verða meira en tvær milljónir myndasagna- blaða gefnar um gjörvallan heim en markmiðið er að kynna almenningi þetta skemmtilega bókmenntaform. Dagurinn er nú haldinn átt- unda árið í röð og lýkur Nexus upp dyrum sínum kl. 12. Ýmsar upplýsingar um titla og útgefendur er að finna á vefsíðunni www.FreeComicBook- Day.com. Myndasögur Ókeypis myndasög- ur í tonnavís Gísli Einarsson, eigandi Nexus. AKUREYRAR-AKADEMÍ- AN stendur fyrir málþingi í dag um málbreytingar og gildi íslenskrar tungu. Yfirskriftin er „Breytingar til bölvunar? – Um íslenskt mál á 21. öldinni“ en um er að ræða vorþing Aka- demíunnar og fer það fram í gamla húsmæðraskólanum. Erindi flytja Kristján Árna- son, prófessor við HÍ, Finnur Friðriksson, lektor við HA, Þórhallur Eyþórsson, sérfræðingur við Málvís- indastofnun HÍ, og Einar Már Guðmundsson rit- höfundur. Málþingið er öllum opið og stendur yfir eitt laugardagssíðdegi frá kl. 13 til 17.30. Íslenskt mál Höfum við gengið til góðs? Einar Már er á meðal fyrirlesara. TEXTÍLVERKSTÆÐIÐ Korpa, Korpúlfsstöðum, verð- ur formlega opnað í dag. Vinnustofur verða opnar milli kl. 13 og 17 og fé- lagskonur kynna nýjar vinnu- stofur. Textílfélagið hefur tek- ið á leigu stórt og glæsilegt rými í fyrrverandi mjólkurbúi á Korpúlfsstöðum. Markmið Textílfélagsins með Textílverkstæðinu Korpu er að efla textílmenntun. Verður verkstæðið vett- vangur þar sem hægt er að leita til fagmanna á sviði textíls til eflingar textíllistum og text- ílhönnun í landinu. Textíll Verkstæði opnað á Korpúlfsstöðum Frá Korpúlfs- stöðum. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÁHORFANDINN sem nálgast verk- ið Parallax, innsetningu Elínar Hans- dóttur myndlistarmanns í Hafn- arhúsinu, kemur fyrst að lítilli ljósmynd af húsi sem stóð í Hafn- arfirði, það er gamalt hús með sér- staka framhlið. Hann gengur síðan inn myrkvaðan gang. Við enda gangs- ins beygir hann til hægri, stígur upp nokkrar tröppur, og virðist þá vera kominn inn í salinn sem innsetningin er í. Eða hvað? Gólfið hallast, hann rekur höfuðið nánast upp í loft og gluggarnir, eru þeir á réttum stað? Hvernig í óskupunum er hlutföll- unum háttað? Nærri innganginum í salinn er skjár uppi við loft. Í honum má fylgjast með áhorfandanum í inn- setningunni – eins og tilraunadýri í gamalli vísindahrollvekju, sagði ein- hver. Á morgun, sunnudag, klukkan 15 verður innsetning Elínar skoðuð og greind út frá ýmsum sjónarhornum. Leiðsögn verður um sýninguna en þau sem bregða ljósi á verkið eru Ólafur Mathiesen arkitekt, Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður og útgef- andi, Shauna Laurel Jones listfræð- ingur og Magnús Þór Þorbergsson, lektor við leiklistardeild LHÍ. Langaði að vera í nútímanum Í sköpunarferli þessa viðamikla verks leitaði Elín til fólks á ýmsum sviðum. Ólafur Mathiesen er einn þeirra. „Elín byrjaði að vinna út frá húsi Brunabótafélagsins; húsi sem mörgum fannst og finnst hálffárán- legt, en á það var sett módernísk framhlið í byrjun sjöunda áratug- arins,“ segir Ólafur. „Að mínu mati á þessi aðferð sér fordæmi í breyt- ingum sem urðu á íslenskri húsagerð í lok 18. aldar, þegar burstir eða stafnþil ruddu sér til rúms á betri bæjum. Þá, sem í byrjun sjötta ára- tugarins, voru þjóðfélagslegar breyt- ingar sem sumum þótti nauðsyn að yrðu endurspeglaðar í byggingarlist- inni. Húsinu í Hafnarfirði var ætlað að verða hluti af sínum samtíma, fulltrúi nútímalegrar starfsemi, þeg- ar því var breytt úr íbúðarhúsi í skrif- stofur fyrir Brunabótafélagið 1965. Húsið er að stíga inn í nýjan heim en hefur þetta gamla áfast, rétt eins og burstin hefur torfbæinn áfastan. Elín er að hluta að vinna með ákveðna sjónræna bjögun á því sem maður heldur að sé raunveruleikinn. Hún bendir á að þegar sjónarhornið breytist breytist skilningurinn á við- fangsefninu.“ Innsetning Elínar Hansdóttur í Hafnarhúsinu greind út frá ýmsum sjónarhornum Vinnur með ákveðna bjögun Morgunblaðið/Kristinn Hvað er í gangi? „Eða hvað? Gólfið hallast, hann rekur höfuðið nánast upp í loft og gluggarnir, eru þeir á réttum stað?“ Í HNOTSKURN » Innsetning Elínar Hans-dóttur, Parallax, í Hafn- arhúsinu verður skoðuð og greind út frá ýmsum sjón- arhornum á morgun, sunnudag, kl. 15 undir yfirskriftinni List og rýni. » Fjórir sérfræðingar veitaleiðsögn um sýninguna og bregða ljósi á verkið. Aðgangur er ókeypis. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „HVER maður hefur ákveðinn grundvöll að standa á, og við stönd- um í fæturna enda þótt fólk hugsi ekki mikið út í það í daglegu amstri,“ segir Þóra Sigurðardóttir myndlist- armaður. Þóra vinnur með snert- inguna við rými og tíma í verkum sem hún sýnir í Listasafni ASÍ. Í Arinstofunni er röð blýantsteikninga sem hún hefur unnið út frá rými ým- issa staða en í salnum er röð ætinga, þar sem sami myndheimur er kann- aður, og þrjár stórar teikningar sem liggja lárétt. Þar er einnig stórt skrifað textaverk og grafík unnin með þurrnál. Þóra segir þær unnar út frá teikningum af vír sem stóð út úr vegg. „Sýningin fjallar um teikninguna og rýmið, er eins konar könnun á því hvað hún er eða hvað hún getur ver- ið. Þessi verk eru öll svolítið um það hvernig maður les efni, eins og þeg- ar blindur maður þreifar sig áfram. Hvernig aflar maður upplýsinga um heiminn?“ spyr Þóra. Í Gryfjunni er hljómrými eftir Sólrúnu Sum- arliðadóttur. Hreyfimynd úr teikn- ingum eftir Þóru er sýnd með hljóð- verki Sólrúnar, en þær mæðgur hafa ekki áður unnið saman með þessum hætti. Hljóðverkið er stemningsríkt og ofið úr mörgum lögum – minnir nokkuð á hljómheim hljómsveit- arinnar Amiinu, sem Sólrún er með- limur í. Uppistaðan er hljóð úr ákveðnum potti. „Hann hljómar mjög vel,“ segir hún sannfærandi. Þrátt fyrir að pottur og vatnsbunur séu meg- inhljóðveitan segir Sólrún að verkið spretti ekki út frá Búsáhaldabylting- unni. „Það var ekki meðvitað, en vissulega voru pottar fólki ofarlega í huga,“ segir hún og brosir. „Þetta eru sterk efni hjá okkur hér; steypt gólf og málmpottur.“ Steypt gólf og pottur eru efniviðurinn Morgunblaðið/Einar Falur Sólrún og Þóra „Hvernig aflar maður upplýsinga um heiminn?“ spyrja mæðgurnar. Á sýningunni eru teikningar, grafík, texta- og hljóðverk.  Mæðgurnar Þóra Sigurðardóttir og Sólrún Sumarliðadóttir í Listasafni ASÍ ...sá allra frægasti í þessum bransa, og er búinn að vera mitt idol síðan ég var 12 ára. 44 » MÆÐGURNAR Þóra Sigurð- ardóttir og Sólrún Sumarliðadóttir opna sýningar í Listasafni ASÍ í dag klukkan 15. Þóra sýnir teikningar, grafík og vídeó en framlag Sól- rúnar er hljómverk og kallast Pott- hljóð í gryfju. Þóra stundaði nám við MHÍ og framhaldsnám við Det Jyske Kunstakademi. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Samhliða því hefur Þóra m.a. unnið við listkennslu, skólastjórn, verk- efna og sýningarstjórn. Sólrún lærði á selló við Tónlistarskólann í Reykjavík og í Hollandi, lauk BA gráðu í tónvísindum í Utrecht og MA gráðu í menningarfræðum í London árið 2006. Sólrún er í hljómsveitinni Amiinu. Myndlist og tónlist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.