Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
smádót eða sat við eldhúsborðið
með þér þar sem við spiluðum og
spjölluðum. Alltaf lumaðir þú á ein-
hverju góðgæti, negraköku, klein-
unum þínum einstöku, pönnukökum
eða lummum, hvað öðru betra og
allt alveg ekta Inga amma.
Einnig á ég ljúfar minningar frá
því að gista á 25 en þá var dívaninn
settur við hlið hjónarúmsins og ótal
teppum og púðum hlaðið undir lak-
ið svo mér leið eins og prinsessunni
á bauninni, aðeins það besta í boði
hjá ömmu.
Lífið var þér ansi erfitt undir
lokin en nú eru þær þrautir að baki
og trúi ég því að þér líði vel þar
sem þú ert nú.
Megir þú hvíla í friði, elsku besta
amma mín.
Þín
Jórunn.
Um það leyti sem vorið boðar
komu sína og náttúran er að und-
irbúa sumarið, barst mér andláts-
fregn Ingu vinkonu minnar á Sauð-
árkróki. Með fráfalli hennar er
horfin mikilhæf og mæt kona sem
ávallt gæddi umhverfi sitt kærleika
og gleði hvar sem hún fór. Inga
hafði þessa eiginleika í ríkum mæli,
að veita öðrum af hlýju sinni og
umönnun, margir nutu þess og fóru
glaðari af hennar fundi. Hún var
með afbrigðum gestrisin húsmóðir
enda lengst af gestkvæmt á hennar
fallega heimili. Þar skörtuðu fagrir
munir, margir gerðir af henni, því
allt lék í höndum hennar bæði
hannyrðir og ekki síður var hún
meistari í matseld.
Inga var gift móðurbróður mín-
um Guttormi Óskarssyni og bjuggu
þau allan sinn búskap á Sauðár-
króki að undanskildum nokkrum
árum í Reykjavík, en Guttormur
var gjaldkeri Kaupfélags Skagfirð-
inga í áratugi. Hjónaband þeirra og
sambúð einkenndist af ást og um-
hyggju hvors fyrir öðru og fjöl-
skyldunni.
Þau eignuðust tvær dætur, Sig-
ríði og Ragnheiði sem gegna mik-
ilvægum störfum, en auk þess tóku
þau í fóstur nýfædda bróðurdóttur
Guttorms, Elsu og ólu hana upp
sem sína eigin þegar móðir hennar
féll frá. Allar hafa þær fengið í arf
þessa dýrmætu eiginleika foreldra
sinna.
Mig langar að koma á framfæri
innilegu þakklæti fyrir mikla ástúð
og umhyggju sem Inga og Gutt-
ormur sýndu móður minni þegar
hún dvaldi á öldrunardeild á Sauð-
árkróki síðustu ár ævi sinnar. Það
verður seint fullþakkað.
Ég mun sakna Ingu, nú verða
ekki fleiri heimsóknir til þessara
elskulega hjóna né þeirra að koma í
sumarbústaðinn okkar, en það var
árlegur viðburður í Skagafirði og
ávallt tilhlökkunarefni. Sá tími er
liðinn. Þannig er gangur lífsins.
Við Sigurjón sendum dætrunun
þremur og fjölskyldum þeirra okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Margrét Margeirsdóttir.
Góð kona er gengin. Inga hans
Guttorms er horfin af okkar sjón-
arsviði til þess ókunna veruleika,
sem leið allra liggur til fyrr eða síð-
ar. Hún var þrotin að kröftum og
kveið ekki þeim umskiptum sem
hún vissi að voru á næsta leiti. Á
heimili hennar og manns hennar,
Guttorms Óskarssonar, var um ára-
tugi samastaður þeirra manna er
aðhylltust samvinnu og félagslega
úrlausn mála, enda var maður
hennar löngum þar í hlutverki leið-
togans. Öllum sem að garði hennar
bar var veitt af rausn og alúð. Ung-
linga, sér skylda sem óskylda,
leiddi hún að sama borði og bún-
aðarmálastjórann og ráðherrann.
Í húsum hennar var ekki farið í
manngreinarálit. Inga var ein
þeirra mörgu kvenna, sem helguðu
heimili og börnum krafta sína en
sóttist lítt um vinnu fjarri heimili.
Þá voru heldur engir leikskólar
sem sinntu þörfum og uppeldi
barna. Það var hlutverk heimilanna
og þá fyrst og fremst mæðranna.
Höfðingslund, alúð og smekkvísi
einkenndu alla hennar framgöngu
og mótuðu hennar rann, hnjóð um
náungann þekktist ekki og leiðst
ekki á hennar heimili.
Inga var vinaföst, sannkallað
tryggðatröll. Hún var trúuð kona
og sótti sér styrk í trúarlífið bæði í
sorg og gleði. Maður hennar gekk
til feðra sinna einu og hálfu ári á
undan henni. Hún efaðist ekki um
framhaldslífið hún Inga og við sem
sendum þessi fáu kveðjuorð efumst
ekki heldur um að hún hafi fengið
hlýjar móttökur handan móðunnar
miklu . Hérna megin móðunnar lifa
minningar um mannkosta mann-
eskju.
Við þökkum allar þær góðu
stundir sem við nutum á hennar
heimili. Dætrum hennar, fóstur-
dóttur og öðrum aðstandendum
vottum við dýpstu samúð.
Helga Árnadóttir.
Gunnar Oddsson.
Í dag er síðasta kveðjustundin
runnin upp.
Það var eins og hver önnur til-
viljun að kynni okkar Ingu hófust
fyrir fimm árum. Það var séra Guð-
björg sem leiddi okkur formlega
saman. Á þessum árum hittumst
við reglulega og höfum notið sam-
vistanna hvor við aðra. Við vorum
kannski svolítið feimnar í upphafi
enda vorum við báðar að stíga þetta
skref í fyrsta sinn. Ég að feta mig
áfram sem heimsóknarvinur og þú
að opna heimili þitt fyrir ókunnri
konu. Á síðustu dögum hef ég velt
því fyrir mér hvaða þættir ráða
þegar vinátta myndast milli manna.
Af hverju líður fólki betur með
þessari manneskju frekar en ein-
hverri annarri. Ég hef ekki fundið
svarið, en veit fyrir víst að þar hef-
ur aldursmunur engin áhrif. Þakkir
er orðið sem kemur í huga minn
þegar ég hugsa til þín og þakkirnar
eru ekki einskorðaðar við góðar
móttökur, heldur ekki síður fyrir
ákveðin lífsgildi sem þú tileinkaðir
þér. Traust og hlýtt faðmlag þitt
verður ei meir, en minninguna mun
ég geyma. Dætrum Ingu og fjöl-
skyldum þeirra sendi ég innilegar
samúðarkveðjur. Hvíl í friði, ágæta
vinkona.
Sigrún Alda Sighvats.
Hún Inga Guttorms, eins og hún
var kölluð á Króknum, hefur kvatt
þennan heim. Inga var móðir Ragn-
heiðar æskuvinkonu minnar og hjá
Ingu átti ég alltaf skjól. Hana
prýddu margir mannkostir sem
henni sjálfri fannst lítið til um. Hún
var þeim mun duglegri að benda á
kosti annarra. Tryggð hennar og
hlýja drógu marga að og oft var
mannmargt á Skagfirðingabraut-
inni. Ég minnist Ingu sem mikillar
móður og húsmóður þar sem allt
var svo vandað og vel gert. Hún var
mjög gestrisin og það sem hún bar
á borð var með afbrigðum gott.
Inga umvafði fólk með móðurlegri
hlýju, tryggð og ræktarsemi. Hún
var trúuð kona og viss um aðra til-
vist að þessari lokinni. Hún var fyr-
ir löngu tilbúin í hinstu ferðina og
vildi alls ekki að fólk væri að syrgja
sig látna. Söknuðinn sem upp kem-
ur við fráfall hennar getur hún þó
ekki komið í veg fyrir. Það verður
fátæklegra að koma á Krókinn án
Ingu. Það er þó huggun að margir
af mannkostum hennar hafa erfst
til dætranna og munu varðveitast
með þeim til framtíðar. Sem dæmi
um það er sú aðdáunarverða tryggð
og ræktarsemi sem Ragnheiður
sýndi foreldrum sínum til dauða-
dags. Það má með sanni segja að
hún hafi annast þau til hinstu
stundar og sýnt þannig hverjum
mannkostum hún er búin.
Ég er þakklát fyrir að hafa
kynnst Ingu og notið samvista við
hana og fjölskyldu hennar. Ég
votta dætrunum og fjölskyldum
þeirra mína dýpstu samúð. Um leið
og ég bið Ingu allrar blessunar er
ósk mín sú að allar þær bænir sem
Inga hefur beðið fyrir öðrum megi
nú fylgja henni sjálfri og lýsa upp
vegferð hennar til annarra heim-
kynna.
Margt ég vildi þakka þér
og þess er gott að minnast
að þú ert ein af þeim sem mér
þótti gott að kynnast.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Sigurlína Hilmarsdóttir.
Ætli séu ekki rúmlega 60 ár síð-
an Inga og Guttormur fluttust inn á
Skagfirðingabraut 15 í hús foreldra
okkar og bjuggu þar næstu átta ár-
in eða svo. Þá færðu þau heimili sitt
litlu sunnar við Skagfirðingabraut, í
húsið númer 25 og bjuggu þar alla
tíð síðan. Jafnan var samgangur
milli heimilanna og traust vinátta
til lokadags.
Sigurlaug amma var sumar eftir
sumar ráðskona hjá Rögnvaldi
vegaverkstjóra, föður Ingu, og Inga
var henni til halds og trausts mörg
sumur. Þeim var vel til vina og þær
minntust oft góðra stunda í eldhús-
skúrnum forðum daga. Mamma og
Inga voru nánar vinkonur og bar
þar aldrei skugga á.
Inga var einstaklega hjartahlý
kona og mörgum einstæðingum
reyndist hún haukur í horni. Heim-
ili þeirra Guttorms var hlýlegt og
þangað var gott að koma. Gesta-
gangur var þar jafnan ærinn, bæði
skyldmenna sem annarra og ekki
síst vegna pólitískra umsvifa Gutt-
orms, en til hinsta dags var hann
ábyrgðarmaður Framsóknarflokks-
ins í Skagafirði og persónugerv-
ingur hans.
Heilsuleysi bagaði Ingu langtím-
um saman, en það bugaði aldrei
glaða lund hennar og umhyggju og
einstaka ræktarsemi. Hún var ræð-
in og skemmtileg og hallaði ekki á
nokkurn mann í samtali. Þau eign-
uðust tvær dætur, þær Sísu og
Ragnheiði, og tóku að sér Elsu
bróðurdóttur Guttorms þegar móð-
ir hennar féll frá, og Laufey systir
hennar bjó hjá þeim um tíma með-
an hún stundaði skóla á Króknum.
Þeim fækkar nú óðum þessum
gömlu heimilisvinum og við munum
jafnan minnast Ingu og Guttorms
með hlýju og virðingu. Það var gott
að eiga þau að. Blessuð sé minning
þeirra.
Sigurlaug, Herdís
og Sölvi Sveinsbörn.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær stjúpfaðir okkar, faðir minn, afi og langafi,
ÞORGRÍMUR GUÐNASON,
Hlíf I,
Ísafirði,
lést á öldrunardeild Fjórðungssjúkrahússins á
Ísafirði fimmtudaginn 23. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju mánudaginn
4. maí kl. 14.00.
Pálína Kristín Þórarinsdóttir,
Sigurgeir Bjarni Árnason,
Kristín Þorgrímsdóttir,
Ingi Þorgrímur Guðmundsson, Óttar Gunnarsson,
Oddgeir Már Ingþórsson, Árni Hlöðver Sigurgeirsson,
Jóna Ingibjörg Sigurgeirsdóttir
og langafabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,,
HELGU SIGURBJÖRNSDÓTTUR
fyrrum bankafulltrúa.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 3. hæðar á Skjóli
fyrir góða umönnun og vinsemd.
Björn Þorvaldsson, Kristbjörg Kjartansdóttir,
Hrafnkell Þorvaldsson, Gréta Sigríður Haraldsdóttir,
Erna Björnsdóttir, Þórarinn Bjarnason,
Þorvaldur Björnsson, Elína Margrét Ingólfsdóttir,
Helga Björnsdóttir, Rúnar Haukur Gunnarsson
og langömmubörn.
✝
Okkar ástkæra
GUÐRÚN RAGNA SVEINSDÓTTIR
lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 13. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Eiríkur Sigfinnsson,
Veronika G. Sigurvinsdóttir, Björn H. Kristjánsson,
Páll Grétar Viðarsson, Trine Ch. Andreassen,
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, Benedikt Þór Kristjánsson,
Ingibjörg Lára Þorbergsdóttir, Joao Petro Duarte
og barnabörn.
✝
Við tilkynnum að okkar elskaði eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi
BALDUR ÁRSÆLSSON,
Hörgatúni 1,
Garðabæ,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ
fimmtudaginn 21. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Við þökkum starfsfólkinu að Holtsbúð fyrir yndæla umönnun
og þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug.
Guðrún Klara Daniels
Birgitta Baldursdóttir, Gunnar Sigurgeirsson,
Ársæll Baldursson, Helga Gestsdóttir,
Daníela Gunnarsdóttir, Vignir Hreinsson,
Gunnar Karl Vignisson,
Klara Dís Gunnarsdóttir, Baldur Geir Gunnarsson,
Marta Rún Ársælsdóttir, Orri Ársælsson.
Sími: 525 9930
hotelsaga@hotelsaga.is
www.hotelsaga.is
Hótel Saga annast erfidr ykkjur af
virðingu og alúð. Fágað umhverfi,
góðar veitingar og styrk þjónusta.
Erfidrykkjur af alúð
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is