Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 41
Velvakandi 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
MIG DREYMDI EINU SINNI
AÐ ÉG GÆTI FLOGIÐ
HVENÆR KEMUR MORGUN?
EN ÞAÐ
ÁSTAND...
FRÚ RÓSA ÆTLAR AÐ
SANNA FYRIR LÚLLA AÐ
MAÐUR GETI LOSAÐ SIG
VIÐ ÁVANA MEÐ VILJA-
STYRKNUM EINUM SAMAN
LÚLLI ER SVO VISS UM AÐ
HÚN GETI ÞAÐ EKKI AÐ
HANN LAGÐI TEPPIÐ AÐ VEÐI
ÉG VORKENNI
SKÓLASTJÓRANUM ÞEGAR
ALLT FER Í HÁALOFT
ÉG
VORKENNI
HELGU
AF
HVERJU?
HÚN HEFUR VERIÐ GIFT Í SAUTJÁN ÁR EN HEFUR
ALDREI GETAÐ HAFT AFGANGA Í MATINN
HVAR ER
RÚNAR?
HUNDURINN
HENNAR LEONU
HELMSLEY BAÐ
HANN AÐ FARA
MEÐ SIG Í BÍÓ
RÚNAR
ER ÁST-
FANGINN
ÉG HRINGI
Í ÞIG ÞEGAR
MYNDIN
ER BÚIN
JÆJA, KALLI...
HÉRNA KEMUR NÝI
GÍTARKENNARINN ÞINN
HANN ER FÍNN NÁUNGI,
EN HANN TEKUR VINNUNNI
SINNI AF MEIRI ALVÖRU
EN SÓLEY
MARTEINN KNÚTSSON
MÆTTUR TIL VINNU,
HERRA!
Í HVÍLDAR-
STÖÐU,
MARTEINN
HVERNIG VILTU AÐ ÉG SKEMMI
FYRIR JAMESON Í DAG?
USS...
ÉG ER AÐ HORFA
Á SJÓNVARPIÐ
MEIRA
BULLIÐ...
ÞÚ ERT AÐ SLEFA YFIR
MARY JANE PARKER
MÉR FINNST FRÁBÆRT
AÐ VERA LEIKKONA!
HVAÐ ERT ÞÚ
AÐ GERA HÉRNA
NIÐRI? SAGÐI
ÉG ÞÉR EKKI AÐ
FARA UPP AÐ
TAKA TIL Í
HERBERGINU
ÞÍNU?
NEI, ÓFRESKJAN ÞÍN! ÞAÐ
GETA ENGIR VEGGIR
HALDIÐ ÞESSARI
OFURHETJU! KRAFTAR
ÞÍNIR HAFA BRUGÐIST ÞÉR,
STÓRA SKRÍMSLI!
ER ÞAÐ
JÁ?
Æ, NEI! HÚN HEFUR
DÁLEITT MIG! ÉG GET
EKKI STJÓRNAÐ EIGIN
HUGSUNUM LENGUR! ALLT
Í EINU LANGAR MIG AÐ
FARA UPP OG TAKA TIL Í
HERBERGINU MÍNU
FLOTT
Ung fjölskylda naut góðviðrisdags fyrir utan Kjarvalsstaði þar sem nú fer
fram útskriftarsýning nemenda í Listaháskóla Íslands.
Morgunblaðið/Heiddi
Dægradvöl
Öllum börnum vil
ég gefa …
… KÆRLEIKA:
Leyfa þeim að finna ást
og umhyggju. Næra
sálu þeirra og anda.
Hjálpa þeim að muna
hver þau eru og hvað
þau hafa fram að færa.
Og leyfa þeim að vera
nákvæmlega eins ynd-
isleg og þau eru.
… hreyfingu: Börnin
vita hvað hreyfing er
mikilvæg. Þau vita líka
hvað það er að vera
frjáls. Að mega dansa
og leika sér er mik-
ilvægt. Þau kunna að hreyfa sig í
gleði og frelsi. Það að dansa færir
okkur gleði og kæti.
… söng og tónlist: Það að hafa
frelsi til að nota rödd sína er að vita
að þú hefur rétt til þess að láta í þér
heyra og að þú eigir þitt rými hér á
jörðinni. Ein af fallegustu gjöfum
sem þú getur fært barni er söngur
og tónlist. Og að kenna þeim að
þekkja og nota rödd sína. Það er
gott að geta sungið óhindrað og
finna að það býr tónlist innra með
þér. Í hjartslættinum og í andanum.
… virðingu gagnvart náttúrunni:
Kenna þeim að virða fallega landið
okkar. Kenna þeim að sjá töfrana í
móður Jörð. Leyfa þeim að kynnast
því hvað það gefur okkur mikið bara
að vera úti meðal trjánna og
blómanna. Að anda að sér alvöru
lofti og finna ilminn af trjánum og
blómunum. Að kynnast náttúrunni
sem vini og ættingja og leyfa þeim
að njóta þess að vera börn náttúr-
unnar.
… listsköpun: Það er gjöf að fá að
skapa. Í frelsi og gleði. Ég má skapa
það sem ég vil! Og hvernig sem ég
vil. Ég get!
… töfra: Lífið er töfrandi og býð-
ur upp á töfra. Það er frábært að
geta sýnt börnunum okkar að
kraftaverkin gerast og töfrar eru
fyrir alla.
… ævintýri: Ævintýrin minna
okkur á hvað það er gaman að vera
til. Lífið er fullt af ævintýrum. Það
er mikilvægt að segja börnunum
okkar sögur, því þau vita hvað það er
gaman. Lífið er ævintýr!
Waldorfskólarnir bera af öðrum
skólum þegar kemur að því að leyfa
börnum að njóta gjafa barnsáranna.
Gitte Lassen ráðgjafi.
„Viltu pokalandið“ Ísland
ÉG FER í Áfengisverslun ríkisins
þó nokkrum sinnum á ári sem ekki
er í frásögur færandi.
Við sem munum tím-
ana tvenna þá er
breyting á áfengissölu
ótrúlega mikil á síðari
árum og er það vel.
Bæði er miklu meira
úrval áfengis og um-
hverfi og innréttingar
áfengissölunnar ekki
sambærilegt við það
sem var áður fyrr að
maður tali ekki um við-
skiptavinina sem hafa
farið upp um flokk
hvað umgengni og
kurteisi í garð af-
greiðslufólks snertir.
Þetta verður maður
allt var við. Þó er eitt sem maður á
erfitt með að sætta sig við og það er
þegar maður er að borga fyrir veig-
arnar sem eru engir smáaurar
heldur samkvæmt áliti fróðra
manna það hæsta í heimi að fá
framan í sig „Viltu poka,“ til að
setja vöruna í. Maður hefði haldið
að fyrirtækið ætti að sjá sóma sinn
í því að láta viðskiptavinina fá poka
eftir þörfum þegjandi og hljóða-
laust. Við nánari eftirgrennslan sel-
ur Áfengisverslun ríkisins pokann
á 15 krónur sem fer í einhvern
pokasjóð. Hvað er þessi poka-
sjóður? Hvenær var hann stofn-
aður? Hvert er markmið sjóðsins?
Hverjir eru stofnendur? Hver er
ástæða þess að Áfengisverslun rík-
isins annast tekjuöflun fyrir þenn-
an sjóð. Fróðlegt væri að fá svör
hjá viðkomandi við þessum spurn-
ingum. Svo að lokum. Hvernig væri
að breyta „Viltu poka,“ í „Má bjóða
þér (eða yður) poka?“
Viðskiptavinur.
Bankaleyndin
1. AF HVERJU má ekki aflétta
bankaleyndinni? Þetta er bara smá
ákvörðun.
2. Hverjum er verið að hlífa?
Ráðherrum, þingmönnum og auð-
mönnum?
3. Í stjórnarskránni stendur:
„Með lögum skal land byggja og
ólögum eyða.“ Er það bara djók?
4. Ef ráðherrarnir á Íslandi
mundu aflétta bankaleyndinni og
skila almenningi sjávarauðlindinni
þá væru vandamálin nánast engin.
5. Hvers konar sadismi er í gangi
á Íslandi?
Jón H. Valsson.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Vorfagnaður fimmtu-
daginn 14. maí kl. 17. Ragnar Bjarnason
og Þorvaldur Halldórsson sjá um stuðið.
Söngur, grín og dans. Veislumatur frá
Lárusi Loftssyni. Skráning og greiðslur í
s. 535-2760 fyrir 12. maí.
Félag kennara á eftirlaunum | Síðasti
fræðslu- og skemmtifundur vetrarins í
Stangarhyl 4 hefst kl. 13.30. Aðalfund-
arstörf í lokin. Komum tímanlega.
Félagsheimilið Gjábakki | Vorsýning í
dag og á morgun, opið kl. 14-18. Hand-
unnir nytja- og skrautmunir, unnir af
högum höndum og hugviti eldra fólks.
Vöfflukaffi er selt kl. 14-17. Ýmis glerverk
verða til sölu á vorsýningunni.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Hin ár-
lega vorsýning verður í Gullsmára dag-
ana 1.-3. maí og verður opin alla dagana
frá kl. 14-18. Á sýningunni getur að líta
handunna nytja- og skrautmuni unna af
högum höndum og hugviti eldra fólks.
Vöfflukaffi verður selt kl. 14-17.
Hraunsel | Opið hús 7. maí, fellur niður,
vegna undirbúnings handavinnusýning-
arinnar. Hálfsdagsferð til Reykjavíkur 6.
maí, heimsókn í Þjóðmenningarhús sem
er 100 ára. www.febh.is.
Hæðargarður 31 | Myndlistarsýning
Erlu Þorleifsdóttur og Stefáns Bjarna-
sonar opin kl. 14-17. Upplýsingar í Ráða-
gerði, s. 411-2790.