Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.05.2009, Blaðsíða 30
30 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. MAÍ 2009 – meira fyrir áskrifendur Fylgiblað með Morgunblaðinu 12. maí Eurovision 2009 F í t o n / S Í A Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Meðal efnis: • Stiklað á stóru í sögu Eurovision í máli og myndum, helstu lög og uppákomur • Páll Óskar spáir í spilin • Kynning á keppendum í undankeppni og í aðalkeppni • Ævintýrið um Jóhönnu Guðrúnu • Íslensku lögin í gegnum tíðina • Atkvæðaseðill fyrir aðalkeppnina • Ásamt fullt af spennandi efni um Eurovision Undankeppnin fer fram 12. og 14. maí en aðalkeppnin laugardaginn 16. maí. Þetta er tvímælalaust blaðið sem sjónvarpsáhorfendur hafa við höndina 12., 14. og 16. maí þegar Eurovision verður sýnt í sjónvarpinu. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00, fimmtudaginn 7. maí. Í kosningabaráttunni hefur umræðan um að- ild að EB enn magnast og þá einkum vegna þess að þeir flokkar sem ætla sér í stjórn að þeim loknum eru ekki alveg samstiga í þessu máli. Það hefur vakið at- hygli mína að rök Sam- fylkingar fyrir aðild hefur breyst. Það er ekki lengur tí- undað hve allt verði miklu betra hér á landi við aðild heldur er eina ástæðan nú að með aðild getum við skipt um gjaldmiðil. EB neitar okkur um að nota evruna nema við gerumst með- limir og sagt er að það sé bókstafleg um líf og dauða að tefla að taka upp þann gjaldmiðil. Rökin felast sem sagt í hræðsluáróðri og beinum hótunum. Svo er talað um að við verðum að sækja um aðild til að „sjá hvað sé í boði“. Ef litið er á síðara atriðið fyrst verður að segjast að það er furðulegt og jafnvel barnalegt. Þegar stjórnvöld taka þá ákvörðun að sækja um aðild þá er það gert í fullri alvöru og með þann ásetning að ná niðurstöðu. Þeg- ar sú niðurstaða liggur fyrir (og hún næst alltaf) er það hlutverk stjórnar að fullvissa þjóðina um að samþykkja gjörninginn og beita sér af öllu afli til að samningurinn verði samþykktur. Þessi fáránlega hugmynd um að við getum bara að sagt við EB „Jæja strákar, hvað er í boði, nokkur góð til- boð?“ er ekki á borðinu. EB tekur ekki þátt í slíkum skrípaleik og Sam- fylkingunni er fullkunnugt um það. Niðurstaða mun nást og Vinstri græn- ir verða að mæla með því af fullri sannfæringu að þjóðin samþykki að- ildina. Það er umhugsunarvert að velta fyrir sér af hverju okkur er meinað að taka upp evru. Hvaða máli skiptir þótt þrjú hundruð þús- und manna þjóð sem er í nauð fái að taka upp gjaldmiðilinn? Eru þetta ekki einlægir vinir okkar og bandamenn? Viðbrögð EB ættu að vera okkur viðvörun. Einhverjir blýantsnag- arar í Evrópu tala um formann stærsta flokks á þingi Íslendinga af fyrirlitningu og kalla hann allt að því kjána. Þvílíkur hroki. Hér mælir einhver sem veit sitt vald. Er þetta það sem koma skal? EB vill fá Ísland í sínar raðir og myntbandalagið verður notað sem skiptimynt í samningum. Af hverju vill EB endilega fá okkur inn? Svarið er augljóst. Auðlindir. Franskir sjó- menn settu allt á annan endann í síð- ustu viku vegna þess að þeir fá ekki að fiska. Slíkt má laga með aðgöngu að fiskimiðum Íslendinga. Raunar sýnist mér að breskir sjómenn geti leitað til skrípadómstóls Sameinuðu þjóðanna og klagað okkur fyrir mann- réttindabrot eins og íslenskir trillu- karlar hafa myndað hefð fyrir. Fyrir nokkrum áratugum ráku íslensk stjórnvöld breska fiskimenn með valdi frá fiskimiðum sem þeir höfðu sótt í aldaraðir og sviptu þá þar með lífsafkomunni. Eru það ekki mann- réttindabrot? Dómstóllinn hlýtur að ákvarða að allir í EB megi fiska þar sem þeir vilja. Nú er fullyrt að olíu- lindir séu í efnahagslögsögu okkar sem megi nýta á næstu árum. Ætli einhver örhreppur norður í Atlants- hafi sitji einn að slíkum krásum? Norðmenn treysta því ekki og dettur ekki í hug að ganga í stórveldið. Ef að það er algjör nauðsyn að skipta um gjaldmiðil, af hverju er þá dollarinn ekki tekinn upp? Þar eru engin skilyrði og Bandaríkin gera engar kröfur um að við göngum í ríkjabandalags þeirra og ekki er nein krafa um aðgang að auðlindum okk- ar. Reyndar dettur mér það í hug að erfitt yrði fyrir Steingrím ráðherra að ganga út í búð og borga með doll- urum fyrir mjólkina – en hvar er þá neyðin? Hér áður fyrr þegar Samfylkingin var að reyna að fá okkur í bandalagið voru rök þeirra að við mundum hafa svo mikil áhrif innan Evrópu. Það eru gjörsamlega óraunhæf rök, enda á nú að koma okkur inn vegna neyðar okk- ar. Ég horfði á þátt í BBC fyrir nokkru þar sem verið var að ræða stjórnarskrá EB sem var felld í fáein- um löndum og málið þar með dautt. Nú hefur orðalagi sáttmálans verið breytt og reyna á aftur. Þátturinn fjallaði m.a. um að ríkisstjórn Breta treystir ekki þjóðinni til að kjósa rétt og ætlar þinginu að afgreiða málið þvert á fyrri yfirlýsingar. Hollenskur EB-kerfisþjónn var í þættinum og sagði að það þyrfti að breyta ferlinu þannig að kosningar færu fram í öll- um ríkjum samtímis og einfaldur meirihluti látinn ráða þannig að ein- hver smáríki gætu ekki skemmt mik- ilvæg mál fyrir heildinni. Þetta er umhugsunarefni fyrir Íslendinga. Eftir Lúðvík Vilhjálmsson » Það er umhugs- unarvert að velta fyrir sér af hverju okkur er meinað að taka upp evru. Hvaða máli skiptir þótt þrjú hundruð þús- und manna þjóð sem er í nauð fái að taka upp gjaldmiðilinn? Lúðvík Vilhjálmsson Höfundur er eftirlaunaþegi. EB enn og aftur Í SUMAR stendur skátahreyfingin hér- lendis fyrir evrópsku skátamóti á Íslandi fyrir skáta frá allri Evrópu á aldrinum 16 til 22 ára sem nefnist Roverway 2009. Þetta er í þriðja skiptið sem mót af þessu tagi er haldið en þau eru hald- in á þriggja ára fresti. Íslenskir skátar sótt- ust eftir að fá að halda mótið á Ís- landi 2009 og náðu kjöri um þetta á síðasta Evrópuþingi skáta. Þátt- takan hefur farið fram úr björtustu vonum en um 3.000 þátttakendur hafa boðað komu sína frá 36 löndum ásamt 200 íslenskir þátttakendum. Erlendu þátttakendurnir munu að jafnaði dvelja hér í 10-14 daga. Mót- ið verður sett við Háskóla Íslands að morgni dags 20. júlí og í fram- haldinu fara allir í margvíslegar ferðir víða um land sem vara í fjóra daga. Farið verður í Þórsmörk, til Akureyrar, í Skaftafell, Vest- mannaeyjar og nánast um allt land. Viðfangsefnið er allt frá ögrandi ís- klifri í menningarferðir á höf- uðborgarsvæðinu og munu þátttak- endur upplifa hina einstöku íslensku náttúru sem og kynnast íslenskri menningu. Þá er eitt markmið ferð- anna að láta eitthvað gott af sér leiða á hverjum stað með fjöl- breyttum samfélagsverkefnum. Að ferðunum loknum hittast allir á Úlf- ljótsvatni og dvelja þar við marg- vísleg verkefni og skemmtan í aðra fjóra daga og verður mótinu svo slit- ið 28. júlí. Erfiðlega hefur gengið að fá fjár- hagslegan stuðning við undirbúning og framkvæmd mótsins frá einkaað- ilum og opinberum aðilum. Um er að kenna efnahagsþrengingunum en skátar eru samt bjartsýnir og halda undirbúningi ótrauðir áfram. En eftir sem áður er þetta einmitt verk- efni sem ber að styðja þegar verið er að markaðssetja landið og stefnt að innflutningi þúsunda erlendra ferðamanna. Það er athyglivert að félagasamtök sem byggjast á störf- um sjálfboðaliða með stuðningi at- vinnufólks hafa frumkvæði að því að bjóða í stóran viðburð innan sinna alþjóðlegu samtaka og ná því mark- miði. Afraksturinn er þrjú þúsund erlendir ferðamenn sem er um eitt prósent af fjölda erlendra ferða- manna í sumar og munu þeir færa til landsins um hálfan milljarð króna af eftirsóttum gjaldeyri. Ferðaiðnaðurinn er einn helsti vaxtarbroddurinn í nauðsynlegri at- vinnuuppbyggingu. Félagasamtök landsins geta komið þarna sterk inn og fært til landsins þúsundir er- lendra ferðamanna. Í landinu starfa hundruð félagasamtaka sem eru að- ilar að norrænum, evrópskum eða alþjóðlegum samtökum og þarf markvisst að hvetja þau til að bjóða í ráðstefnur og viðburði sem ávallt eru í boði og fá viðburði til Íslands. En til að hvetja félagasamtök sem gjarnan samanstanda af sjálf- boðaliðum til dáða verður að tryggja félögunum markaðsfjármagn, kynn- ingargögn, jafnvel aðstöðu og tíma- bundna „verkefnastjórn“ og síðast en ekki síst að ef viðburðurinn næst þarf að endurgreiða þeim hluta áætlaðs virðisauka sem verk- efnið færir til landsins. Metnaðurinn til að tak- ast á við slíka viðburði er gjarnan til staðar, en skortur á fjármagni til að standa undir markaðskostnaðinum og óvissan um fjár- hagslegan stuðning til þeirrar vinnu sem og hræðslan við afkomu viðburðanna dregur gjarnan úr kjarkinum hjá flestum. Auðvelt er að útbúa stuðningskerfi sem myndi minnka fjárhagslega áhættu félaganna við að ráðast í svona verkefni, léttir þeim grunn vinnuna og réttlætir framtakið þeg- ar vel tekst til. Þannig stæðu fé- lagasamtökum til boða frá hendi ríkisins fjárhagsstuðningur í þrep- um eftir eðli viðburðarins, lengd hans og mögulegri þátttöku. Skipta má stuðningnum í þrjú þrep. Fyrsta stuðningsþrepið er til grunnkynn- ingar þegar félögin eru að sækjast eftir að fá viðburð til landsins. Ann- að þrepið kemur til þegar félagið hefur sannanlega hreppt viðburð- inn, en þá væri stuðningurinn til undirbúnings og markaðskynningar til að tryggja sem mesta þátttöku. Lokastuðningurinn er síðan að við- burðinum loknum en sá stuðningur er jafnframt fyrirsjáanlegur og er þá félaginu endurgreiddur hluti virðisauka sem verkefnið færði í tekjum til landsins. Útbúa má reiknilíkan sem tekur m.a. mið af eðli viðburðarins og lengd. Þannig vita félagasamtökin hvaða fjármagn þau hafa til ráðstöf- unar og því meiri líkur á að þau áræði að takast á við vinnuna sem er samfara undirbúningi og fram- kvæmd slíkra viðburða. Roverway 2009 er stórkostlegur viðburður og metnaðarfullt verkefni sem íslenskir takast á við. Mótið verður skemmti- leg og jákvæð landkynning meðal 3.000 erlendra ungmenna sem öll munu kynna land okkar á heima- slóðum og án efa eiga mörg þeirra eftir að sækja landið aftur heim síð- ar á lífsleiðinni. Íslenskir skátar horfa til gífurlegrar vinnu næstu vikurnar við undirbúning og fram- kvæmd Roverway 2009 og treysta í því samhengi á margvíslegan stuðn- ing fjölmargra aðila. Flytja þarf hópinn landshornanna á milli, fæða hann og veita gistingu ásamt marg- víslegri annarri þjónustu. Það er sannfæring okkar að þetta viðamikla verkefni verður skáta- hreyfingunni, þátttakendum og öll- um er að því koma einstök upplifun og horfa því skátar bjartsýnir og fullir eftirvæntingar fram til júlí- mánaðar. Eftir Þorstein Fr. Sigurðsson » Skátahreyfingin stendur fyrir evrópsku skátamóti í sumar á Íslandi, Roverway 2009, og verða erlendir þátttak- endur um þrjú þúsund. Þorsteinn Fr. Sigurðsson Höfundur er framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Skátar koma með 3 þúsund erlenda ferðamenn í sumar ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.