Morgunblaðið - 07.05.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAÍ 2009
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á
síðustu sætunum til Mallorca 26. maí í
8 nætur. Þú bókar sæti og 4 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú
gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins í
sumarbyrjun á þessari einstöku
sumarleyfisperlu.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 59.990
8 nætur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna
og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 8 næt-
ur. Stökktu tilboð. Verð m.v. 2-3 í
stúdíó / íbúð kr. 69.990. Aukavika
kr. 20.000.
8 nátta ferð - allra síðustu sætin!
Stökktu til
Mallorca
26. maí
frá kr. 59.990
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„BÁÐIR flokkar hafa þá afstöðu að vilja fara í
breytingar í sjávarútvegsmálum. Við höfum hins
vegar alltaf sagt, eða að minnsta kosti ég, að það
þurfi að vanda sig í öllu sem lýtur að þessari mik-
ilvægu atvinnugrein okkar. Hún er auðvitað í við-
kvæmri stöðu með sínar miklu skuldir. Ef þetta
verður í mínum höndum, og eitthvað sem ég ber
ábyrgð á, verður ekkert ábyrgðarleysi í því,“ sagði
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, spurður út í frétt Morgunblaðsins í gær-
dag þess efnis að stjórnarflokkarnir ætluðu ekki
að ráðast í róttækar breytingar á fiskveiðistjórn-
unarkerfinu á næstunni.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylking-
arinnar, svaraði spurningum blaðamanns frétta-
vefs Morgunblaðsins, mbl.is, hins vegar afdrátt-
arlaust. Jóhanna sagði að stefna beggja flokka
væri að kalla aflaheimildir inn í áföngum og sú leið
yrði farin.
Flokkarnir funduðu stíft í gærkvöldi um stjórn-
arsáttmála sem að öllum líkindum verður kynntur
almenningi á laugardaginn. Steingrímur og Jó-
hanna voru á einu máli um það að vinnan gengi vel.
Jóhanna sagði ekkert hafa komið upp sem breytti
því að ný ríkisstjórn yrði kynnt um helgina. Stein-
grímur bætti því við að til lands sæist í flestum
efnum „En það er náttúrlega ekki búið að ganga
frá samkomulagi um neitt fyrr en það er búið að
klára allt. Það er heildarmyndin sem að lokum
verður metin.“
Steingrímur sagði að um leið og niðurstaða
fengist væri hægt að tímasetja hvenær þing yrði
kallað saman. Hann sagði ennfremur að þess
þings biðu ærin verkefni.
„Ekkert ábyrgðarleysi“
Steingrímur J. Sigfússon segir að ríkisstjórnin verði að vanda sig þegar kemur
að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu Fundað er stíft um stjórnarsáttmála
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ábyrgðarfullur Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, var á þönum í gærdag á milli funda.
Fagur fiskur Krakkarnir í 2. og 3. bekk Ingunnarskóla höfðu gaman af
verkefni sem þau luku við nýlega og tengdist þemadögum. Var það unnið í
listgreinum og að sögn Ragnheiðar Skúladóttur stigstjóra var þemað nú
fiskar og fjaran. „Við fengum ekta fisk, sem kom til okkar í kælikassa, og
börnin völdu sér fisk til að mála,“ segir Ragnheiður. Myndin var svo þrykkt
á efni og úr saumaðir púðar. Herlegheitin enduðu svo í neti uppi á vegg.
Morgunblaðið/Heiddi
100 fiskipúðar í netinu
RÚMLEGA 60%
þjóðarinnar eru
mjög eða frekar
hlynnt því að fara
í aðildarviðræður
við Evrópusam-
bandið. Tæp 27%
eru því andvíg en 11,8% tóku ekki
afstöðu. Kemur þetta fram í könn-
un, sem Gallup gerði fyrir Rík-
isútvarpið.
Er spurt var um afstöðu til að-
ildar að ESB voru hóparnir næstum
jafnstórir, 38,6% á móti aðild en
39% studdu aðild. 22,4% tóku ekki
afstöðu. Er stuðningur við aðild
mun meiri í Reykjavík og nágrenni
en á landsbyggðinni.
Meirihluti er fyrir aðild-
arviðræðum í öllum flokkum nema
Sjálfstæðisflokki. Yfir 90% Sam-
fylkingarfólks vilja viðræður og um
80% aðild og meirihluti fyrir henni
er einnig í Borgarahreyfingu. Í öðr-
um flokkum eru fleiri andvígir. 47%
vinstri grænna eru hlynnt því að
fara í viðræður við ESB.
Í netúrtaki voru 1.300 manns og
var svarhlutfall ríflega 60%.
svs@mbl.is
Rúm 60% styðja
viðræður við ESB
ILLUGI Gunn-
arsson var í gær
kjörinn formað-
ur þingflokks
sjálfstæðismanna
á fundi flokksins.
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
var kjörin vara-
formaður þing-
flokksins á sama
fundi og Einar K. Guðfinnsson rit-
ari þingflokksins.
Illugi gegndi stöðu varaformanns
þingflokksins á síðasta kjörtímabili,
en hann var fyrst kjörinn á Alþingi
í maí 2007. Illugi er hagfræðingur
og með MBA-gráðu.
Illugi kjörinn þing-
flokksformaður
Illugi Gunnarsson
SVEITARSTJÓRN Hvalfjarð-
arsveitar hefur ákveðið að segja
upp samningi sveitarfélagsins við
Strætó bs., en fyrirhugað var að
strætó gengi um Hvalfjarðarsveit
og til Borgarness. Borgarbyggð
hefur þegar sagt upp samningum
við Strætó um akstur til og frá
Borgarnesi, að því er segir á vef
Skessuhorns.
Strætó ekur ekki
um Vesturland
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
REIKNAÐ tap í
ársreikningi
Reykjanesbæjar
fyrir síðasta ár
nam rúmum átta
milljörðum
króna. Fimm
milljarðar eru
vegna gengistaps
og neikvæðra
fjármagnsliða.
Árni Sigfússon
bæjarstjóri er þrátt fyrir allt bjart-
sýnn á framhaldið.
Stærsti liðurinn er vegna Hita-
veitu Suðurnesja eða fjórir milljarð-
ar. Reykjanesbær á 35% í hitaveit-
unni og þarf að skrá tap af 11,7
milljarða tapi HS. „Við höfum ekki
horft á það í þessu samhengi en við
höfum lýst yfir miklum áhuga á að
eignast meirihluta í HS-veitum en
fara úr samkeppnisrekstrinum sem
fylgir HS-orku,“ segir Árni og bætir
við að hann eigi von á að þær breyt-
ingar gangi í gegn á árinu. Reykja-
nesbær á um fimmtán milljarða í
hitaveitunni en í reikningum bæjar-
ins er það skráð sem fimm milljarða
eign. Árni segir ýmsa hafa sýnt
áhuga á eignarhlutnum.
Horfir til atvinnuverkefna
Spurður hvernig bæjarfélagið ætli
að vinna úr þessu málum segir Árni
að þar sem um reiknaðar tölur sé að
ræða, sem að mestum hluta snúi að
gengistapi, sé einfaldast að segja að
með því að gengið styrkist snúist
þetta við. „Sama gildir um önnur
sveitarfélög og fyrirtæki. Það verður
ekki búið við þetta lengi. Það liggur í
augum uppi.“
Árni segir vera horft til fjölda at-
vinnuverkefna, s.s. álvers, kísilvers
og gagnavers auk mikilla fjárfest-
inga í ferðaþjónustu. Hins vegar
þurfi til ríkisstjórn sem standi með
bæjarfélaginu og vinni verkefnin
með því.
Gengistapið vegur þungt
Reiknað tap í ársreikningi Reykjanesbæjar fyrir síðasta ár
nam 8 milljörðum króna Fjórir milljarðar kr. vegna HS
Milljarður vegna framkvæmda í Helguvík
2,4 milljörðum hærri fjármagnsliðir bæjarsjóðs
Rekstrartekjur 100 milljónum undir áætlun
Bæjarstjórinn bjartsýnn á framhaldið
Miklar fjárfestingar í áhugaverðum verkefnum
Árni
Sigfússon
Fyrningarleið víst farin
mbl.is | SJÓNVARP