Morgunblaðið - 24.05.2009, Qupperneq 18
Þórdís er fædd 13. júní 1963.
Hún er útskrifuð úr Æfinga-
skóla KHÍ ’79, Mennta-
skólanum í Reykjavík
’83, Leiklistarskóla Ís-
lands ’87 og rekstrar-
og viðskiptanámi hjá
Endurmenntun HÍ árið
2000. Lék hjá Þjóðleik-
húsinu, Leikfélagi Ak-
ureyrar, leikhópum
og í útvarpi og
sjónvarpi 8́7-́94.
Einnig hefur hún
unnið að dag-
skrárgerð, leik-
listarkennslu á
öllum skólastig-
um, námsefn-
isgerð og fleiru.
Hún starfaði á
Rás 1 ’93- ’95 og
hefur verið fréttamaður á Frétta-
stofu Ríkisútvarpsins frá 1995. Hún
hefur unnið að félagsstörfum, m.a.
árum saman í stjórnum Félags ís-
lenskra leikara og Félags frétta-
manna.
Hún stofnaði Leikhús í tösku árið
1989 og hefur sýnt leikrit sitt,
Grýla og jólasveinarnir, í leik- og
grunnskólum á hverju ári síðan þá.
Synir Þórdísar eru Arnljótur
Björn f. ’90 og Hrólfur f. ’99.
Foreldrar Þórdísar og Eddu eru
Arnljótur Björnsson, prófessor við
lagadeild HÍ og síðar hæstarétt-
ardómari, sem nú er látinn og
Lovísa Sigurðardóttir, framhalds-
skólakennari á eftirlaunum og
margfaldur Íslandsmeistari í bad-
minton. Til viðbótar eiga þær
systkinin Sigurð f. ’68 og Ingi-
björgu f. ’72.
Fínar Systurnar Edda, t.v. og
Þórdís í sínu fínasta pússi.
ÞÓRDÍS ARNLJÓTSDÓTTIR
18 Tengsl
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Þórdís: „Það er eitt og hálft ár á milli
okkar Eddu og ég man ekki eftir mér
öðruvísi en með henni. Þegar ég var
sex ára fluttum við í Hjálmholtið,
bestu götu á Íslandi, og bjuggum þar
til tvítugs. Þar var líf og fjör og
margir krakkar. Edda hélt til dæmis
skemmtanir og söng. Við systurnar
lékum okkur mjög mikið saman, og
erum ennþá heilmikið saman.
Þegar við vorum litlar byrjaði
Edda í ýmsu tómstundastarfi en
hætti oft fljótlega, nema hún var
lengi í fimleikum. Ég var í öllu mögu-
legu og lengi í ballett. Hún var meira
heima og lenti frekar í því að passa
tvö yngri systkini okkar.
Edda var miklu betri í því að passa
krakka en ég fór aldrei í vist eins og
hún. Ég var meira í tómstundum,
kannski til þess að flýja það að vera
elsta systir og bera ábyrgð. Yngri
systkini okkar minnast hennar áreið-
anlega sem betri systur því ég var
ekki eins mikið til staðar.
Ég man eftir einu skipti þegar við
klæddum bróður minn og vin hans í
prinsessukjólana okkar. Við köll-
uðum Sigga bróður Hönnu Sirrý!
Það var gott að búa í Hjálmholtinu
en það er stutt frá Kjarvalsstöðum
þar sem stundum mátti sjá erlent
fyrirfólk sem var í heimsókn. Ég fór
að sjá Margréti Danadrottningu,
Karl Gústaf Svíakonung, Pompidou
og Nixon. Ég vildi fylgjast með og
vera þar sem hlutirnir voru að ger-
ast. Edda veitti þessum hlutum
minni athygli.
Við höfum fylgst mikið að í gegn-
um tíðina og líka í barneignum og
það hefur eflt tengslin. Við höfum
alltaf verið nánar en sambandið hef-
ur frekar styrkst með tímanum.
Dagsdagleg samtöl okkar snúast
gjarnan um praktíska hluti, eitthvað
tengt börnunum.
Líflegar og uppátækjasamar
Við þóttum báðar, kannski af því
við vorum stelpur, mjög líflegar, vor-
um aldrei kyrrar. Við vorum mjög
uppátækjasamar og áttum marga
vini.
Við fluttum nokkrum sinnum til
útlanda með fjölskyldunni út af
vinnu pabba. Við strukum til dæmis
af þremur barnaheimilum í Noregi!
Erlendis þurftum við að bjarga
okkur í nýju umhverfi en það lenti
meira á mér en henni að tala. Edda
lét mig meira um það, kannski af því
að ég var eldri. Þarna var ómet-
anlegt að vera með einhvern með sér
á sama aldri. Það var mikill lærdóm-
ur að prófa að vera í öðrum skólum
en hér.
Edda er rosalega hress og veru-
lega skapgóð. Hún er jákvæð og dríf-
andi, það er rosalegur kraftur í
henni.
Samskipti okkar eru góð, maður
þarf kannski minna að tala saman
þegar maður veit hvað hinn er að
hugsa. Tengingin er sterk á milli
okkar. Á gelgjuskeiðinu áttum við
meira að segja okkar eigin orð yfir
ýmsa hluti.
Sterkari en ekki eins stríðin
Ég var stríðnari en hún og hún
þurfti oft að kvarta yfir mér. En hún
er sterkari en ég svo ég komst ekk-
ert upp með þetta lengi því hún gat
haft mig undir.
Við vorum látnar taka mikinn þátt
í heimilisstörfunum og skiptum því á
milli okkar. Við höfum aldrei farið í
fýlu út í hvora aðra þó við höfum rif-
ist. Það var ekkert hægt að fara í
fýlu á svona stóru heimili!
Fólk segir að við séum líkar og
ruglast á okkur eins og gerðist bara
rétt áðan. Ég segi oft við fólk: Við er-
um líkar sín í hvoru lagi. Svo þegar
þú sérð okkur saman þá erum við
rosalega ólíkar. Fólki finnst við hafa
svipað fas og hreyfingar. Ég myndi
segja að hún væri glaðlegri en ég.
Hún er svo skapgóð og hlær óvenju-
legum hlátri.
Þegar við bjuggum í Bandaríkj-
unum á unglingsaldri var alltaf verið
að spyrja okkur hvort við værum tví-
burar. Þá móðguðumst við bara en
okkur fannst við ekkert líkar. Svo af
því að við vorum pæjulegar og ljós-
hærðar var okkur líkt við sænskar
fyrirsætur í skólablaðinu en ljósa
hárið vakti athygli.
Bikarar í staðinn fyrir styttur
Við erum kannski frá óvenjulegu
heimili. Mamma er margfaldur Ís-
landsmeistari í badminton, var ósigr-
andi í einliðaleik um margra ára
skeið og fór ekki að tapa fyrr en hún
spilaði á móti stelpum sem voru jafn-
gamlar mér. Heima hjá öðrum voru
styttur og skrautmunir á hillunum í
stofunni en hjá okkur var fullt af bik-
urum! Ég man að ég skammaðist
mín fyrir það en á þessum aldri er
maður svo viðkvæmur fyrir öllu sem
er eitthvað öðruvísi.
Við Edda eigum það samt sameig-
inlegt að reyna báðar að halda okkur
í sæmilegu formi þó við höfum ekki
farið í íþróttirnar eins og mamma.
Við systurnar vorum báðar í
Herranótt en Edda lék síðan meira í
Stúdentaleikhúsinu því ég var byrj-
uð í Leiklistarskólanum á þeim tíma.
Ég held hún hafi verið um tvítugt
þegar hún ákvað að leggja leiklistina
fyrir sig. Hún hefði getað gert hvað
sem er og er góður námsmaður. Hún
dansar mjög vel og syngur sömuleið-
is vel. Hún hefur leikið fjölbreytt
hlutverk en það væri gaman að sjá
hana meira í kvikmyndum. Ég hef
fylgst vel með henni og manninum
hennar á sviði. Við erum í mjög
miklu sambandi í dag. Þau eiga fjög-
ur börn og lífið snýst líka mikið um
fjölskylduna og heimili hennar er
mjög fallegt.
Edda er frábær systir og sérlega
ráðagóð manneskja og ég veit að það
eru margir sem leita til hennar. Hún
gefur góð ráð, er jarðbundin og læt-
ur ekki vaða yfir sig. Ég sæki oft ráð
til hennar og hún er mér mikill
styrkur.“
Þær eru báðar leik-
konur þó önnur hafi
síðustu ár orðið
þekktari sem frétta-
maður. Þórdís og
Edda Arnljótsdætur
eru samstiga systur í
góðum tengslum.
Líkar sín í hvoru lagi
Edda fæddist 22. nóvember 1964. Hún
lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands árið
1990 og hefur lengst af verið fastráðin
hjá Þjóðleikhúsinu. Nýleg hlutverk
þar voru í leikritunum Pétur Gautur,
Fagnaður, Stórfengleg!, Hálsfesti
Helenu, Konan áður, Sólarferð og
Sumarljós.
Edda er nýkomin frá Ástralíu þar
sem Hamskiptin voru sýnd á ensku. Hún
leikur ennfremur í væntanlegri þáttaröð
Fangavaktarinnar og verður á fjölunum
í verkinu Biederman og brennuv-
argarnir, sem sett verður upp í Þjóð-
leikhúsinu í leikstjórn Kristínar Jó-
hannesdóttur í haust. Hún er
jafnframt kjörin varaformaður Félags
íslenskra leikara.
Edda er gift Ingvari E. Sigurðssyni
leikara og eiga þau fjögur börn, Áslák
f. ’90, Snæfríði f. ’92, Sigurð f. ’98 og
Hring f. ’99.
EDDA ARNLJÓTSDÓTTIR