Morgunblaðið - 24.05.2009, Qupperneq 24
24 Hönnun
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Eftir Valgerði Þ. Jónsdóttur
vjon@mbl.is
S
em lítill drengur á Smyr-
ilsveginum í Vesturbæ
Reykjavíkur á sjötta og
sjöunda áratugnum bar
hann út og seldi blöð,
safnaði glerflöskum til að selja og
stóð vaktina eldsnemma á morgn-
ana fyrir utan bakaríð í hverfinu.
„Ég beið eftir að bakararnir klár-
uðu að baka vínarbrauðin til að fá
endana handa móður minni og
bróður,“ segir Þorgeir Daníel
Hjaltason, eða Thor Daniel Hjalta-
son eins og ævintýramaðurinn,
frumkvöðullinn og athafnamað-
urinn hefur kallað sig eftir að hann
fluttist til Bandaríkjanna fyrir
fjórtán árum. Thor dugar honum
sem hönnuði.
Þótt lífsbaráttan hafi verið
býsna hörð á árunum áður virðist
núna flest ganga honum í hag eftir
því sem ég komst næst þegar ég
sló á þráðinn til hans í Dallas í
Texas. Þar hefur hann búið und-
anfarin ár ásamt Lauru, eiginkonu
sinni, og Thorinu, tveggja og hálfs
árs dóttur þeirra.
Listrænir ljósaskúlptúrar eiga
hug hans allan þessa dagana. Thor
kallar þá einfaldlega IQ, en vöru-
heitið er IQ Illuminated Sculptu-
res. Nafnið rímar við fyrirtækið,
Innovative IQ, sem hann stofnaði
þar vestra í janúar 2008. Trúlega
engin tilviljun að IQ er notað í
báðum nöfnum, enda þekkt
skammstöfun hugtaksins Intelli-
gence Quotient, sem þýðir greind-
arvísitala, en hugmyndin byggist
einmitt á viti; grænu hugviti, nán-
ar tiltekið, sem ekki að ósekju er
svo vinsælt um þessar mundir.
Ekki hafði alveg kviknað á per-
unni þegar ég las um og skoðaði
þessa nýstárlegu og orkusparandi
hönnun Thors á vefnum inn-
ovativeiq.com. Því liggur beinast
við að spyrja hvernig grænt hugvit
gæti mögulega verið fólgið í skúlp-
túrum með þessum líka gríð-
arstóru ljósum, að því er virtist?
LED-ljósaundrið
„Hugmynd mín að hönnun og
gerð ljósaskúlptúra og ljósalampa
er ekki ný af nálinni. Hins vegar
reyndist hún ekki framkvæmanleg
fyrr en stórlega endurbætt kyn-
slóð af svokölluðum LED-ljósum
(Light-emitting diode) kom á
markað fyrir þremur árum. Ljósin
hafa verið í stöðugri þróun allt frá
því þau voru uppgötvuð í Rúss-
landi um 1920. Það er engin furða
að þau þyki bylting í ljósatækni
því LED-perur nota 80% minni
orku en venjulegar flúorperur,
þær þurfa ekkert viðhald, endast
allt að 100 þúsund klukkutíma og
eru umhverfisvænar. Ýmis fyr-
irtæki framleiða LED-ljósin, sem
eru agnarsmá, en Kínverjar eru
leiðandi í samsetningu. Möguleikar
ljósanna í hönnun eru ótakmark-
aðir,“ segir Thor hrifinn og fer
reyndar ívið dýpra í tæknilegar út-
listingar á ljósaundrinu.
„Ég hef hannað 35 skúlptúra og
er að byrja á svokölluðum „office“-
lömpum, sem eru einstakir í útliti.“
Áður en Thor hófst handa við
hina listrænu umgjörð ljósanna
ferðaðist hann allvíða bæði um
Bandaríkin og Asíu til þess að
kynna sér LED-framleiðslu og
samsetningu.
„Þetta hófst allt saman fyrir
tveimur árum,“ segir Thor og upp-
lýsir að hönnun, samsetning, smíði
frumgerðanna, ferðalög, markaðs-
setning og annar undirbúningur
hafi kostað tæpar 19 milljónir
króna. Engir fjárfestar komu við
sögu, en hann kveðst vera að
IQ Grænt hugvit í l
‘‘LED-PERUR NOTA 80%MINNI ORKU EN VENJU-LEGAR FLÚORPERUR,ÞÆR ÞURFA EKKERT
VIÐHALD, ENDAST ALLT
AÐ 100 ÞÚSUND
KLUKKUTÍMA OG ERU
UMHVERFISVÆNAR.
Ljósaskúlptúrar Thor hefur hannað 35 ljósaskúlptúra, sem hann kallar IQ, og eru þeir komnir í sölu hjá Cantoni-verslununum.
þreifa fyrir sér hjá íslenskum sjóð-
um.
Íslensk hönnunarmiðstöð
„Ég gæti hugsað mér að stofna
hönnunarmiðstöð á Íslandi. Íslend-
ingar eru mjög skapandi og hafa
mikið hugvit í nýsköpun og hönn-
un. Þá skortir hins vegar reynslu í
framleiðslu og markaðssetningu á
erlendum vettvangi. Forsvars-
menn nýsköpunar- og fjárfest-
ingasjóða á Íslandi ættu að fá sér-
fræðinga til að lesa og gagnrýna
viðskiptaáætlanir, sem frum-
kvöðlar gera, því oft þarf mikla
sérþekkingu til að meta þessi mál.
Í Bandaríkjunum eru sérfræð-
ingar, hver á sínu sviði, fengnir til
að fara yfir viðskiptaáætlanir,
gagnrýna eða mæla með eftir at-
vikum,“ segir Thor.
Hann er viss um að ef rétt væri
á málum haldið gæti Ísland orðið
alþjóðleg hönnunarmiðstöð. Tæki-
færin og verðmætin segir hann fel-
ast í að hlúa að hugvitinu.
En aftur að Dallas og hans hug-
viti. Hvar verður það í boði?
Cantoni og
Architectural Digest
„IQ-ljósin eru nú þegar til sölu í
húsgagna- og hönnunarversluninni
Cantoni, sem er með verslanir í
Dallas, Los Angeles, Irving, Hou-
ston og Atlanta, og er ein virtasta
og dýrasta verslun sinnar teg-
undar í Bandaríkjunum. Markaðs-
kynningin er rétt að byrja, en
Danir og Svisslendingar hafa líka
sýnt lömpunum mikinn áhuga.
Nokkur gallerí í Dallas hafa áhuga
á að kynna og fá IQ inn á gólf til
sín og tímaritið Architectural Di-
gest birtir senn grein um hönn-
unina.
Cantoni býður aðallega upp á
hágæðahönnun eftir evrópska
hönnuði og listamenn, einkum þó
ítalska, og þar á bæ eru menn
þekktir fyrir að vera yfirmáta krít-
ískir á það sem þeir taka í sölu.
Umsagnir um IQ hafa verið mjög
jákvæðar, lömpunum er lýst sem
óvenjulegum, listrænum og nú-
tímalegum. Það að Cantoni skyldi
falast eftir þeim í sölu er mikill
vegsauki og viðurkenning fyrir
mig,“ segir Thor og gefur upp að
IQ séu nokkuð dýrir, einn slíkur
kosti á bilinu 700 til 1.200 dollara,
eða um 90 til 150 þúsund íslenskar
krónur.
Hann hikar svolítið þegar ég
spyr hvort athafnamaðurinn hafi
alltaf haft í sér listræna taug. Seg-
ist fremur líta á sig sem hönnuð,
en viðurkennir þó að á árum áður
hafi hann einhvern tímann fengið
verðlaun fyrir ljósmyndun. Svo
rifjar hann, umbeðinn, upp ferilinn
í stórum dráttum:
Skrautleg fortíð
„Ég hafði hugsað mér að fara í
læknisfræði eða markaðsfræði eft-
ir menntaskóla, sannfærður um að
ég myndi finna upp lyf við öllu,“
hefur hann frásögnina. Líklega er
honum alvara – ég sé ekki hvort
hann glottir. „Ég hætti eftir þrjá
bekki í menntó, ætlaði að taka mér
frí í eitt ár til að vinna mér inn
pening, enda þurfti ég að kosta