Morgunblaðið - 24.05.2009, Síða 44
44 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Sudoku
Frumstig
4 1
8 1 6 2
7 5
5 3 9 7
1
2 5 9
3 8 9
6
9 2 6
1 5 4
7 2 6 5
9 8 7
6 1
8
2 5 6
6 3 7 2 4
9 2 1
3
7 9 4
4 8 6 3
1 5 2
7 2
4 9 8
6 3 5 7
9 3 8
5 9 1
3 1 2 6 9 8 5 7 4
9 6 7 3 4 5 1 2 8
4 5 8 2 1 7 6 3 9
5 8 4 7 3 2 9 1 6
1 2 6 4 8 9 3 5 7
7 3 9 5 6 1 8 4 2
8 7 5 1 2 6 4 9 3
2 9 3 8 5 4 7 6 1
6 4 1 9 7 3 2 8 5
8 9 4 7 2 6 3 5 1
3 1 2 9 8 5 4 6 7
6 7 5 4 1 3 2 9 8
1 2 8 6 3 7 5 4 9
7 5 9 2 4 8 1 3 6
4 6 3 1 5 9 7 8 2
2 3 6 8 7 4 9 1 5
9 4 1 5 6 2 8 7 3
5 8 7 3 9 1 6 2 4
2 9 3 8 4 7 5 1 6
7 8 5 3 1 6 4 2 9
4 1 6 5 2 9 3 7 8
3 6 4 2 7 8 9 5 1
8 5 1 9 3 4 7 6 2
9 2 7 6 5 1 8 3 4
5 7 8 4 6 2 1 9 3
1 4 2 7 9 3 6 8 5
6 3 9 1 8 5 2 4 7
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út
í reitina þannig að í hverj-
um 3x3-reit birtist tölurnar
1-9. Það verður að gerast
þannig að hver níu reita
lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og
aldrei má tvítaka neina tölu
í röðinni.
Í dag er sunnudagur 24. maí,
144. dagur ársins 2009
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af
ávexti sínum, enda lesa menn ekki
fíkjur af þistlum né vínber af þyrni-
runni. (Lúkas 6, 44.)
Sjónvarp Víkverja dó um daginn.Það heyrðist hvellur og tíu ára
gamalt sjónvarpið slökkti á sér. Vík-
verji reyndi alls konar lífgunartil-
raunir án árangurs og varð að sætta
sig við orðinn hlut. Hann gat hins
vegar ekki sætt sig við Kastljós-laust
kvöld og hringdi í náinn ættingja og
spurði hvort hann ætti afgangs-
sjónvarp.
x x x
Ættinginn býr í 250 fermetra ein-býlishúsi með maka, barni,
tveimur hundum, tíu gullfiskum og
þremur sjónvarpstækjum. Ættinginn
bauðst til að lána eitt sjónvarpstækj-
anna en tók skýrt fram að hann yrði
að fá það aftur. Það skildi Víkverji
ekki almennilega því honum finnst
svo sjálfsagt að sá sem á þrjú sjón-
vörp gefi eitt þeirra. En kannski
finnst Víkverja þetta bara af því að
hann hefur aldrei átt þrjú sjónvörp,
bara eitt. Þegar til kom tímdi ætting-
inn ekki að lána eitt af stóru sjón-
vörpunum sínum heldur útvegaði
pínulítið lánssjónvarp hjá öðrum ætt-
ingja. Það nægði Víkverja alveg.
x x x
Daginn eftir fór Víkverji í versl-unarleiðangur að skoða sjón-
vörp og sá sér til óblandinnar ánægju
að eingöngu fást flatskjáir. Víkverja
hefur alltaf langað í flatskjá og sá
draumur hans er nú um það bil að
rætast. En fyrst þarf Víkverji að fara
í bankann og fá yfirdráttarheimildina
hækkaða. Hann á ekki fyrir sjónvarpi
en kaupir það samt.
x x x
Litla lánssjónvarpið er með þeimósköpum að þar nær Víkverji
ekki að sjá Skjá einn. Þetta er mikið
mein. Víkverji er nú að missa af alls
konar þáttum sem hann hafði ekki
hugmynd um að hann væri háður.
Þetta eru raunveruleikaþættir af öll-
um stærðum og gerðum þar sem einn
þátttakandi er sendur heim í viku.
Víkverji vonast til að nýja sjónvarpið
verði komið inn á heimili hans innan
ekki of langs tíma þannig að hann
geti snúið sér af krafti að því að horfa
á raunveruleikaþættina.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 flakkari, 8 ill-
mennið, 9 húsdýrið, 10
keyri, 11 kali, 13 léleg
skepna, 15 vöggu, 18 til
sölu, 21 stúlka, 22 kjaft,
23 kærleikurinn, 24 víl-
ið.
Lóðrétt | 2 sterk, 3 dysj-
ar, 4 stikir, 5 rask, 6
margur, 7 elska, 12 ótta,
14 hita, 15 sundfugl, 16
týna, 17 orðrómur, 18
skjótum, 19 fyrirgang-
urinn, 20 heimili.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rusti, 4 bitur, 7 taldi, 8 ræsið, 9 nam, 11 aðan,
13 bann, 14 eyðni, 15 gorm, 17 kaun, 20 óró, 22 tólið, 23
strák, 24 naumi, 25 rúmin.
Lóðrétt: 1 rotna, 2 sulla, 3 iðin, 4 barm, 5 tísta, 6 rúðan,
10 arður, 12 nem, 13 bik, 15 gætin, 16 rellu, 18 aurum,
19 nakin, 20 Óðni, 21 ósar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 d5 2. g3 c6 3. Bg2 Bg4 4. O-O
Rd7 5. d4 e6 6. Rbd2 Rgf6 7. He1 Be7
8. e4 O-O 9. c3 dxe4 10. Rxe4 Db6 11.
Rxf6+ Bxf6 12. h3 Bxf3 13. Bxf3 a5 14.
a4 Hfd8 15. Dc2 g6 16. Be3 Dc7 17.
Had1 Rb6 18. c4 Rd7 19. Kg2 Be7 20.
h4 h5 21. Bh6 Bf8 22. Bf4 Bd6 23. Bg5
He8 24. He2 Bf8 25. d5 e5 26. d6 Db6
27. g4 e4 28. Bxe4 hxg4
Staðan kom upp í atskákkeppni
landsliðs Asera og nokkurra öflugustu
stórmeistara heims. Keppninni lauk
með öruggum sigri þeirra síðarnefndu
en hún fór fram í Bakú í Aserbaídsjan.
Heimamaðurinn Teimour Radjabov
(2756) hafði hvítt gegn Sergey Karjak-
in (2721). 29. Bxg6! Hxe2 30. Dxe2
Db3 31. Bd3 Bg7 32. Dxg4 Re5 33. Df5
f6 34. Dh7+ Kf7 35. Bxf6! og svartur
gafst upp enda mát eftir t.d. 35… Kxf6
36. Df5#.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Til hvers?
Norður
♠G107652
♥Á6
♦Á96
♣98
Vestur Austur
♠K9 ♠Á83
♥10 ♥87
♦108432 ♦KDG75
♣KDG104 ♣732
Suður
♠D4
♥KDG95432
♦--
♣Á65
(20) Sagnbaráttan.
Norður er skotinn í ásunum tveimur
og sexlitnum og vekur því á 1♠. Austur
passar og suður býr sig undir langa
slemmuleit með 2♥. Það er enginn á
hættu. Á vestur að blanda sér í málin?
„Til hvers, styrkurinn er í NS; af
hverju að kjafta frá legunni?“ Eitthvað
þessu líkt hljóma mótbárur úrtölu-
manna, sem aldir eru upp í þeim boð-
skap Hávamála að rétt sé að mæla
þarft eða þegja. Ítalinn Claudio Nunes
er ekki sama sinnis. Hann sýndi láglit-
ina með 2G. Norður passaði og Fulvio
Fantoni í austur stökk í 5♦. Yfir til þín,
suður.
Ensku Hackett-tvíburarnir voru í
NS og Jason lét vaða í 6♥. Það skot
hans geigaði illa.
„Til hvers?“ var spurt. Og svarið er:
„Jú, hver veit nema hægt sé að pressa
mótherjana og neyða þá til að giska.“
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Samskipti við vini þína kunna að
verða sérkennileg í dag. Ekki gera tíu
hluti heldur þrjá – í afslöppuðum gír – og
árangurinn verður betri.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki eru allir á eitt sáttir um að
gera breytingar. Jafnvel meistari skuld-
bindur sig til að halda áfram að nema.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Nú eru aðrir reiðubúnir til að
hlusta á mál þitt og gefa því þann gaum,
sem það á skilið. En hvernig viltu sjá hlut-
ina? Sem leiðinlega eða sem ævintýri?
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hamingjan bíður þín á næsta leiti
en þú þarft að sýna dirfsku og þolinmæði
til þess að finna hana. Nýttu tækifærið og
reyndu að koma sem mestu í verk.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt þér sé sýndur ýmis sómi skaltu
varast að láta velgengnina stíga þér til
höfuðs. Ekki vera hissa ef þú stressast
smávegis.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fylgist vel með fjármálunum.
Reynið að gera eitthvað nýtt í dag sem
opnar ykkur nýja sýn á umhverfið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Leggðu þig fram við að bæta skipulag
þitt í dag. Ef eitthvað er ekki gaman,
skaltu sleppa því. Vertu opinn fyrir nýj-
ungum og mundu að maður getur alltaf
lært eitthvað nýtt og spennandi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hver sá sem þekkir frægðina
mun fullvissa þig um kosti þess að vera
óþekktur. Gættu þess að láta ekkert
koma þér á óvart.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Varastu stóryrtar yfirlýsingar
og skuldbindingar sem geta komið þér í
koll. Ekki þarf lengur að hafa áhyggjur af
vinum, sem héldu aftur af þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Láttu aðra sem mest um sín
mál og einbeittu þér að því að leysa þín
eigin. Líklega er gáfulegast að beina orku
sinni þangað sem hennar er mest þörf.
Leyfðu þér að þýðast þinn innri togkraft.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er mikill styrkur fólginn í
því að þekkja veikleika andstæðingsins.
Skrifaðu langt bréf um það hvernig þú
eitt sinn varst særður – hentu því svo.
Hver er sinnar gæfu smiður.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur meðbyr og átt að geta
notfært þér hann. Ekki leyfa þér að fara í
fýlu, þá verðurðu ánægðari og umburð-
arlyndari gagnvart fólkinu í kringum þig.
Stjörnuspá
24. maí 1839
Bæjarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti að skylda bæjarbúa til
að inna af hendi þegnskyldu-
vinnu við vegagerð o.fl.
Ákvörðun þessi var felld úr
gildi sex árum síðar og sér-
stakur skattur lagður á.
24. maí 2002
Íslenska heiðlóan sigraði í evr-
ópskri söngfuglakeppni, blá-
brystingur frá Belgíu varð í
öðru sæti og tjaldur frá Fær-
eyjum í því þriðja.
24. maí 2004
Fjölmiðlafrumvarpið var sam-
þykkt á Alþingi með 32 at-
kvæðum gegn 30. Umræður
höfðu staðið í 84 klukkustund-
ir. Forseti Íslands synjaði lög-
unum staðfestingar rúmri
viku síðar.
24. maí 2007
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins og Samfylkingarinnar,
undir forystu Geirs H. Haarde,
tók til starfa. Hún var við völd
í tuttugu mánuði.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Áróra Kristín Guðmundsdóttir og
Elías Kristján Elíasson voru gefin
saman í Árbæjarsafnskirkju 8. apríl
síðastliðinn af séra Lilju Kristínu
Þorsteinsdóttur.
Brúðkaup
„ÉG ætla að bjóða nokkrum kunningjum til smá
veislu í Borgarasal Leikfélags Akureyrar,“ segir
Þráinn Karlsson leikari sem fagnar 70 ára afmæli
sínu í dag. Veislan fór fram í gærkvöldi og er
blaðamaður ræddi við Þráin átti hann von á að
gestir yrðu mest starfsfólk leikhússins og fólk því
tengt. Hann hafði ekki undirbúið skemmtiatriði
fyrir veisluna en kvaðst glaður taka á móti afmæl-
isvísum.
Þráinn hefur staðið lengi á sviði. Hann fagnaði
50 ára leikafmæli sínu 2006, og eru þau orðin ófá
verkin sem hann hefur leikið í hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar frá því að hann steig þar fyrst á svið sem unglingur. Í vetur
tók hann þátt í uppfærslu leikfélagsins á Músagildru Agöthu Christie.
„Ég mun síðan leika í fyrsta verkefni næsta vetrar.“ Hann kveðst ekki
mega gefa upp um hvaða verk sé að ræða en segir hlutverkið gjör-
ólíkt persónu sinni í Músagildrunni. „Það er þetta sem hefur haldið
manni við efnið í öll þessi ár. Flóran hefur verið það mikil að maður
hefur ekki fest í neinu einu, heldur fengið að leika mörg og misjöfn
hlutverk,“ segir Þráinn og kveðst ætla að láta heilsuna ráða því hve-
nær hann setjist í helgan stein. annaei@mbl.is
Þráinn Karlsson leikari 70 ára
Veisluhöld í Borgarasal
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is