Morgunblaðið - 24.05.2009, Blaðsíða 46
46 Menning
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MAÍ 2009
Lokalagið Guðrún Gunnarsdóttir og
Pálmi Gunnarsson í fíling.
Eiga samleið Jóhann G. Jó-
hannsson, Sigríður Beinteins-
dóttir, Grétar Örvarsson og
Þorsteinn Gunnarsson
trommuleikari Stjórn-
arinnar, fagna sigri
1989.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Þ
að elskuðu margir Álf-
heiði Björk eftir að
lagið í flutningi Eyjólfs
Kristjánssonar og
Björns Jörundar Frið-
björnssonar vann Landslags-
keppnina – Sönglagakeppni Ís-
lands árið 1990.
Það var í annað sinn sem keppn-
in var haldin, árið 1989 sigraði
Stjórnin með lagið „Við eigum
samleið“ og varð það lag ekki síð-
ur vinsælt en „Álfheiður Björk“.
Þrátt fyrir að mjög margt gott
hafi komið út úr Landslagskeppn-
inni kom hún upphaflega ekki til
af góðu. Upphaf hennar má rekja
til þess að Sjónvarpið ákvað eitt
árið að hafa ekki Söngvakeppni
Sjónvarpsins opna fyrir alla laga-
höfunda. Í staðinn voru nokkrir
höfundar valdir sérstaklega til
þess að semja fyrir keppnina.
Margir sáu undankeppni Söngva-
keppninnar sem stökkpall til að
koma lagasmíðum sínum á fram-
færi en þegar sá stökkpallur var
útilokaður var ákveðið að efna til
annarar keppni, Landslagsins –
Sönglagakeppni Íslands. Við-
brögðin létu ekki á sér standa,
fyrsta árið sem keppnin var haldin
voru send inn á fjórða hundrað
lög. Tíu komust í úrslit.
Keppnin var samt bara haldin
fjórum sinnum, á árunum 1989-
1992. Ýmsir stóðu að keppninni á
þeim tíma m.a Félag tónskálda og
textahöfunda, Félag íslenskra
hljómlistarmanna, Hljóðverið
Stöðin, Stöð 2, Rúv, Flugleiðir,
Pressan og Hótel Ísland.
Það var til mikils að vinna, t.d.
var ein milljón króna í verðlaun
fyrir sigurlagið árið 1992 sem var
dágóð upphæð á þeim tíma. Titl-
arnir voru margir sem þátttak-
endur gátu hlotið, valið var besta
lagið sem hlaut nafnbótina Lands-
lagið, athyglisverðasta lagið, besta
útsetningin, besti textinn og besti
flytjandinn.
Mikið lagt í keppnina
Einn af þeim sem sameinuðust
um að koma Landslagskeppninni á
koppinn var Axel Einarsson hjá
Hljóðveri og hljómplötuútgáfunni
Stöðinni.
„Vegna óánægju með fyrir-
komulagið á Söngvakeppni Sjón-
varpsins sameinuðumst við nokkur
um að halda þessa keppni,“ segir
Axel sem kom bara að fyrstu
tveimur keppnunum. „Svo tók
Stöð 2 þetta yfir og hélt keppnina
seinni tvö árin. Það var mikið lagt
í þetta, gerð myndbönd við lögin
og þau kynnt í sjónvarpi fyrir
keppni. Svo fór hún fram í beinni
útsendingu, í fyrstu þrjú skiptin
frá Broadway en síðasta árið fór
hún fram á Sjallanum á Akureyri
og var þá kölluð Landslagið á Ak-
ureyri.“
Yfirlýst markmið Landslagsins
var að efla íslenska dægurtónlist
og að sögn Axels náðist það.
„Menn lögðust í að semja lög sem
aldrei hefðu orðið til nema út af
þessari keppni. Mörg lögin urðu
langlíf og eru orðin klassísk í dag,
lög sem allir þekkja.
Það er ekkert vafamál að keppn-
in varð mörgum tónlistarmönnum
til framdráttar. Meðlimir Stjórn-
arinnar hafa sagt að sigurinn í
fyrstu Landslagskeppninni ’89 hafi
lyft þeim upp og orðið til þess að
þau urðu þekktari, þau bættu svo
um betur árið eftir og unnu
Söngvakeppnina með „Eitt lag
enn“,“ segir Axel sem á sér auðvit-
að uppáhalds Landslag. „Lagið
„Við tvö“ eftir Inga Gunnar Jó-
hannsson er mér minnistætt, það
tók þátt árið 1990 og var sungið af
Evu Ásrúnu Albertsdóttur.“
Manstu eftir ...
Landslaginu
Álfheiður Björk Eyjólfur Kristjánsson og Björn Jörundur voru góðir saman og töffaralegir.
1989 „Við eigum samleið“
Höfundur: Jóhann G. Jóhanns-
son
Flytjendur: Sigríður Bein-
teinsdóttir og Stjórnin
1990 „Álfheiður Björk“
Höfundur: Eyjólfur Krist-
jánsson
Flytjendur: Björn Jörundur
Friðbjörnsson og Eyjólfur
Kristjánsson
1991 „Ég aldrei þorði“
Höfundur: Anna Mjöll Ólafs-
dóttir
Flytjandi: Anna Mjöll Ólafs-
dóttir
1992 „Ég man hverja stund“
Höfundur: Jón Kjell.
Flytjendur: Pálmi Gunnarsson
og Guðrún Gunnarsdóttir
Landslögin
Samkvæmt Þjóðskrá bera níu
konur á Íslandi nafnið Álfheiður
Björk. Þrjár eru fæddar fyrir
sigurár lagsins, ein fær nafnið
sama ár en fimm síðar.
Álfheiður Björk
Ekki símakosning Árið 1991 var hægt að klippa út atkvæðaseðil
og senda inn. Atkvæði hlustenda giltu 20% á móti dómnefnd.