Morgunblaðið - 25.05.2009, Síða 6

Morgunblaðið - 25.05.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MAÍ 2009 Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@simnet.is GÓÐUR gangur er í framkvæmdum við ný- byggingu Háskólans í Reykjavík við Öskjuhlíð og er fyrsti áfangi byggingarinnar nú fokheld- ur. Sá hluti er þrjár hæðir og verður tekinn í notkun um áramót. Þar verður aðsetur tækni- og verkfræði-, tölvunarfræði- og viðskipta- deildar skólans. Þessi fyrsti áfangi liggur næst Öskjuhlíð og er alls 24 þúsund fermetrar. Framkvæmdir við annan áfanga eru skemmra á veg komnar, það er við sex þúsund fermetra byggingu þar sem háskólatorg, bókasafn og lagadeild og kennslu- og lýðheilsudeild verða til húsa. Ístak er aðalverktaki við þessar fram- kvæmdir, en fjöldi undirverktaka sinnir sér- hæfðari þáttum. „Á góðum degi eru hér að störfum á milli 200 og 300 manns. Þetta er mik- il framkvæmd og ánægjulegt að þetta skuli vera í gangi á þessum erfiðleikatímum, segir Þorkell Sigurlaugsson framkvæmdastjóri fjár- mála- og þróunarsviðs HR. Fjármögnun tryggð Eignarhaldsfélagið Fasteign, sem er í eigu Íslandsbanka, nokkurra sveitarfélag og Há- skólans í Reykjavík, byggir húsið og mun eiga það og reka í framtíðinni og leigja til skólans. Áætlaður byggingakostnaður er liðlega 10 Kraftur hjá HR þrátt fyrir kreppu Ljósmynd/Sigurður Bogi Sjaldgæf sjón Enn sjást byggingakranar í borginni en þrír slíkir eru notaðir við nýbyggingu HR. Kaffi Nauthóll, þar sem verður kaffi og fundaaðstaða, er fremst á myndinni. milljarðar króna, en verður væntanlega nokk- uð hærri vegna meiri verðbólgu og fjármagns- kostnaðar. „Áður en verkið hófst hafði Fasteign tekist að fá vilyrði fyrir allri fjármögnun. Hér hefur verið kraftur þrátt fyrir kreppu,“ segir Þorkell. Framkvæmdir við bygginguna hófust í upp- hafi síðasta árs og var þá miðað við að fyrsti áfanginn yrði tilbúinn nú á haustdögum. Vegna efnahagsástands og fleiri þátta var ákveðið að hægja aðeins á verkinu. Það ræður því, að áð- urnefndrar deildir skólans flytja í nýbygg- inguna um áramótin, en ekki nú á haustdögum eins og í fyrstu var áætlað. Einnig var ákveðið að fresta um óákveðinn tíma að byggja tvær tengibyggingar við skólann, þar sem til stóð að yrði m.a. bókasafn og mötuneyti, samtals um 6.000 fermetrar Áformin sveigð „Á byggingatímanum höfum við sveigt þau áform sem lagt var upp með svolítið til. Í upp- hafi stóð meðal annars til að flestir kennarar okkar hefðu einkaskrifstofur, en niðurstaðan er sú að flestir fá starfsaðstöðu í opnu rými. Sama má segja um bókasafnið og mötuneytið sem verða í bráðabirgðaaðstöðu að minnsta kosti fyrstu árin. Með þessu næst mun betri nýting á húsnæði en ella væri,“ segir Þorkell. Við hlið háskólabyggingarinnar rís Kaffi Naut- hóll þar sem verður bæði kaffihús og veit- ingasalur. Þar verður í tengslum við skólann funda- og veitingaaðstaða, sem verður öllum opin. Nemendur þeirra deilda HR sem flytja í ný- bygginguna við Öskjuhlíð um komandi áramót eru 2.300 og kennarar um 200. Þegar húsið er fullbyggt flytja þangað lagadeild, og kennslu- og lýðheilsudeild, Opni háskólinn og MBA námið – sem og önnur starfsemi HR – en skráðir nemendur í dag eru liðlega 3.000 og fastráðnir kennarar og aðrir starfsmenn um 250. Nýbyggingin opnar hins vegar möguleika á frekari vexti og áætlanir gera ráð fyrir um 4.000 nemendum á næstu árum. „Þetta verður einn best búni háskóli í Evrópu,“ segir Þor- kell Sigurlaugsson. „Gæði kennslu- og rannsókna skipta auðvitað mestu um hvernig til tekst í há- skólaskólastarfi, en húsnæðið, sem er um- gjörð þessa alls, hefur þó mikið að segja. Kennslu- og rannsóknaaðstaða er fyrsta flokks. Kennslustofur og fyrirlestrasal- ir, sem eru yfir 40 talsins, eru bjartir og rúmgóðir án þess þó að við ætlum að kenna í allt of stórum hópum. Þegar húsið er fullbyggt og öll starfsemin komin á einn stað vænti ég þess að við getum í ríkari mæli farið út í kennslu þvert á deildir sem er í samræmi við stefnu skólans.“ Einn best búni skólinn Þorkell Sigurlaugsson. dómsúrskurði en heimild til húsleit- ar er aðeins veitt ef rökstuddur grunur er um brot. „Um er að ræða gagnaöflun sem er liður í yfirstandandi rannsókn sem varðar ferðaþjónustuna,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam- keppniseftirlitsins. Páll segir að rannsókin beinist einkum að því hvort fyrirtækin hafi brotið bann við samráði. „Upphaflega hófst rannsókn á ferðaþjónustunni með húsleit hjá samtökum aðila í ferðaþjónustu og ferðaskrifstofum á árinu 2007. Þetta kemur síðan í framhaldi af því. Þessi athugun er vel á veg komin og þetta er liður í því að ljúka þeirri rann- sókn,“ segir Páll. Hann segir að ekki hafi verið gerð húsleit á heimilum stjórnenda enda hafi Samkeppnis- eftirlitið ekki heimildir til slíks, ólíkt því sem gildir um rannsókn saka- mála. Lögðu hald á gögn úr tölvu Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair Hot- els, segir að stafsmenn Samkeppn- isstofnunar hafi mætt á skrifstofu sína tíu mínútur yfir níu um morg- uninn og tekið tölvugögn. Þeir fóru ekki í gögn eða tölvur annarra starfsmanna fyrirtækisins.„Við höf- um ekkert að fela og höfum ekki far- ið á svig við nein lög,“ segir Magnea. Hún segir að þetta muni ekki koma til með að hafa áhrif á reksturinn. Kristján Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Hótel Sögu, sagði að starfsmenn Samkeppniseftirlitsins hefðu komið og fengið gögn á Hótel Íslandi, en fyrirtækin eru rekin af sama fyrirtækinu. Þórður B. Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Foss- hótela, kveðst ekki vita til þess að starfsmenn Samkeppnisstofnunar hafi gert húsleit hjá fyrirtækinu á miðvikudaginn var, en Fosshótel til- heyra sömu keðju og Grand Hótel, að því er fram kom á mbl.is Að sögn Páls Gunnars er ekki gert ráð fyrir að leita þurfi hjá fleiri fyr- irtækjum á sviði hótelrekstrar. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is STARFSMENN Samkeppniseftir- litsins framkvæmdu húsleitir hjá þremur hótelkeðjum síðastliðinn miðvikudag. Eru fyrirtækin grunuð um brot á samkeppnislögum með því að hafa haft með sér ólögmætt sam- ráð, meðal annars í verðlagningu. Um er að ræða Hótel Ísland og Hótel Sögu, sem eru í eigu sama fyr- irtækisins, fyrirtæki sem rekur Grand Hótel, Hótel Reykjavík og Hótel Reykjavík Centrum og Ice- landair Hotels, sem reka m.a. Hótel Eddu og Hótel Loftleiðir. Húsleit- irnar fóru fram að undangengnum Morgunblaðið/Sverrir Grand Hótel Húsleitirnar eru liður í stærri rannsókn á ferðaþjónustunni. Hótel grunuð um samráð  Samkeppniseftirlitið framkvæmdi húsleitir hjá þremur hótelkeðjum  Grunur um ólögmætt samráð  Liður í yfirstandandi rannsókn á ferðaþjónustunni Ljósmynd/Sigurður Bogi Í hallarstíl Á háskólatorginu þar sem breiðstigi er milli hæða.  Fyrsti áfangi í notkun um áramót  Kostnaður rúmlega tíu milljarðar króna  Byggingin fjármögn- uð fyrir kreppu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.