Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 33
Dagbók 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 Sudoku Frumstig 4 6 8 2 5 6 9 2 6 2 8 7 4 1 3 4 8 5 3 6 9 2 5 6 5 4 8 2 4 7 3 2 8 6 3 1 2 9 5 3 7 1 7 2 4 4 1 9 3 9 5 1 7 1 2 4 5 2 6 7 4 3 5 8 8 9 7 7 3 9 2 4 6 5 8 1 6 8 4 5 9 1 2 7 3 2 1 5 8 3 7 6 9 4 1 2 7 3 8 9 4 6 5 4 9 8 6 5 2 1 3 7 5 6 3 7 1 4 9 2 8 9 5 6 4 7 8 3 1 2 8 4 2 1 6 3 7 5 9 3 7 1 9 2 5 8 4 6 1 3 2 7 8 5 9 4 6 7 6 5 2 9 4 8 3 1 8 9 4 1 3 6 7 2 5 4 1 3 5 6 7 2 9 8 9 8 6 3 1 2 4 5 7 2 5 7 8 4 9 6 1 3 3 7 9 6 2 1 5 8 4 5 2 8 4 7 3 1 6 9 6 4 1 9 5 8 3 7 2 2 1 9 6 8 4 3 5 7 7 6 8 1 5 3 9 2 4 5 4 3 7 2 9 8 1 6 3 7 2 8 6 1 5 4 9 8 5 1 4 9 7 2 6 3 4 9 6 2 3 5 7 8 1 9 8 5 3 1 6 4 7 2 1 3 7 5 4 2 6 9 8 6 2 4 9 7 8 1 3 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 4. júní, 155. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð- ar himneskur fyrirgefa yður. (Matt. 6, 14.) Víkverji gleðst óendanlega yfir þvíað sumarið skuli vera komið og það hríslast um hann sælutilfinning þegar hann horfir út um gluggann á allt þetta græna sem ilmar svo vel. Þó setti örlítinn hroll að Víkverja í gær þegar honum varð hugsað til þess að nú eru sex mánuðir liðnir síð- an landsmenn og heimsbyggðin öll hélt heilög jól. Það þýðir að til jóla eru núna akkúrat sex mánuðir. Þetta þótti Víkverja allhrikaleg tilhugsun því svo stutt er liðið frá jólum. Miðað við það verða aftur komin jól áður en við verður litið og þar með hávetur að nýju. x x x Þetta eru þó líklega óþarfarvangaveltur að sinni þar sem því verður alls ekki neitað að hratt flýg- ur stund. Íslendingar eiga víst við næg vandamál að etja þótt ekki sé horft til þess að sumarið er alltof stutt og veturinn alltof langur. x x x Fréttir hafa verið með neikvæðaramóti allt síðan í október á síð- asta ári. Fólk virðist vera búið að fá svo yfir sig nóg af slíkum fréttum að Víkverji fær oft yfir sig skammagusu þegar hann hittir vini og vandamenn á förnum vegi. Fólk spyr gjarnan: Ætlið þið ekki að fara að skrifa um eitthvað jákvætt? Víkverji getur ekki annað en tekið undir þessa spurn- ingu og varpar fram þessari spurn- ingu til allra fréttamiðla landsins. Er ekki kominn tími til að skrifa gömlu fréttirnar? Þær sem hefðu verið sagðar ef ekki hefði komið kreppa? Og vel á minnst – hvaða fréttir væru sagðar ef ekki væri kreppa? x x x Í þeim tilfellum þegar allar fréttireru kreppulegar er Víkverji far- inn að hafa þann háttinn á að ann- aðhvort slökkva á viðtækinu, leggja frá sér blaðið eða ganga burt frá sjónvarpinu. Honum þykir óbærilegt að hlusta enn og aftur og enn og aft- ur á sömu neikvæðu fréttirnar um hrun og peningaplokk, hlutabréf og hvað þetta nú allt heitir. Förum að segja hinar fréttirnar! víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vörugeymsl- an, 8 ljúkum við, 9 daufa ljósið, 10 flana, 11 fífl, 13 króks, 15 deilu, 18 póll, 21 kusk, 22 dáni, 23 vilj- ugt, 24 fugl. Lóðrétt | 2 ávöxtur, 3 náðhús, 4 sýnishorn, 5 syndajátning, 6 skjóta undan, 7 klettanef, 12 elska, 14 tré, 15 vers, 16 veiðarfæri, 17 eyddur, 18 bjuggu til, 19 stétt, 20 stútur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gáski, 4 gegna, 7 fátæk, 8 golan, 9 agn, 11 alin, 13 maur, 14 ýlfra, 15 snær, 17 trúr, 20 sný, 22 padda, 23 sötri, 24 iðrar, 25 niðja. Lóðrétt: 1 gifta, 2 setti, 3 iðka, 4 gagn, 5 gilda, 6 annar, 10 gufan, 12 nýr, 13 mat, 15 seppi, 16 ældir, 18 rotið, 19 reisa, 20 saur, 21 ýsan. 6 8 11 15 22 1 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 2 16 SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. Bd3 Rf6 6. O-O Be7 7. c3 O-O 8. Bc2 Bg4 9. d4 Rbd7 10. Rbd2 d5 11. He1 Bd6 12. Rf1 He8 13. Hxe8+ Dxe8 14. Re3 Bh5 15. Bd2 c6 16. Rf5 Bf8 17. Rg3 Bg6 18. Bxg6 hxg6 19. Db3 Db8 20. He1 Dc7 21. Dd1 Bd6 22. Rg5 b6 23. Df3 c5 24. h4 cxd4 25. cxd4 Dc2 26. Bf4 Bxf4 27. Dxf4 Dxb2 28. He7 Hf8 29. h5 gxh5 30. Rf5 Db1+ 31. Kh2 Rg4+ 32. Kg3 Rdf6 33. Hc7 Dh1 34. Re7+ Kh8 Staðan kom upp á 3. heimsbikarmóti Sambands atvinnuskákmanna í Odessa í Úkraínu. Þýski stórmeistarinn Ar- kadji Naiditsch (2700) hafði hvítt gegn rússneska kollega sínum Dmitry Jako- venko (2753). 35. Rxf7+! Hxf7 36. Hc8+ Rg8 37. Hxg8+ Kh7 38. Dxf7 h4+ 39. Kxg4 Dxg2+ 40. Kf5 De4+ 41. Kg5 Dg2+ 42. Kh5 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Regla Hammans. Norður ♠DG1052 ♥D62 ♦754 ♣86 Vestur Austur ♠9643 ♠87 ♥– ♥Á1098743 ♦KDG102 ♦83 ♣DG93 ♣75 Suður ♠ÁK ♥KG5 ♦Á96 ♣ÁK1042 Suður spilar 3G. Við Bob Hamman er kennd svohljóð- andi sagnregla: „Ef nokkrar sagnir koma til greina og 3G er þar á meðal, í öllum bænum segðu þá 3G.“ Suður hafði reglu Hammans í huga þegar hann valdi að melda 3G við hindrun austurs á 3♥. Slemma var vissulega möguleg, en „betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi“. En er þessi fugl í hendi? Það er ekki víst. Útspilið er ♦K. Verkefnið verður að nálgast spaðas- lagina í blindum. Til að byrja með er rétt að gefa tígulinn tvisvar og taka svo ♠Á-K. Það væri hins vegar móðgun við austur að spila næst hjartakóng eða gosa. Hann mun ekki líta við þeim feðgum, heldur geyma ásinn fyrir drottninguna. Hér verður að grípa til óvenjulegra ráða. Suður tekur ♣Á-K og spilar síðan ♥5 á sexuna í borði! (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú þarft að leysa vandamál sem krefst mikillar einbeitingar og yfirsýnar. Enginn er eyland og þú þarft félagsskap eins og aðrir. (20. apríl - 20. maí)  Naut Besta vörnin gegn óvæntum við- brögðum frá öðrum er að segja sem fæst í dag. Manstu þegar þú varst á upphafs- reit? Fagnaðu hve langt þú ert kominn. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Nú er að grípa tækifærið og gera tilboð í það sem þú hefur lengi haft augastað á. Samskipti ykkar eru fyr- irhafnarlaus og gefandi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú veist nákvæmlega hvernig líf þitt á að vera út mánuðinn. Reyndu að sinna listrænum viðfangsefnum eða íþróttum meðan þannig stendur á. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Vinir og kunningjar veita þér stuðn- ing í dag. Klappaðu sjálfum þér á bakið fyrir að þora að íhuga að snúa baki við því sem þú þekkir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þarfir fjölskyldunnar og löngun þín til að bæta umhverfi þitt gera það að verkum að þú einbeitir þér að heimilinu. Ekki taka áhættu til þess eins að græða. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú gætir auðveldlega hneykslað fólk í dag. Galdurinn felst í því að láta engan hafa áhrif á sig, sérstaklega ekki þá sem þú elskar og lítur upp til. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Stundum er eina ráðið að halda að sér höndum og bíða færis. Að öðrum kosti kunna afleiðingarnar að verða óvæntar og alvarlegar. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þegar hæfileikar þínir blómstra muntu hljóta viðurkenningu víða. Reyndu að halda stillingu þinni og muna að þessi ruglingur verður horfinn á morgun. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur góðan byr í seglin en þarft að gæta þess að kollsigla þig ekki. Gættu þess að láta það hvorki bitna á vinnufélögum þínum né þínum nánustu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er greinilegt að roskinn vinur eða ættingi sér hreinlega ekki sól- ina fyrir þér og lætur þig finna það með ýmsum hætti. Hafnið slíkum óskum kurt- eislega og þá verður það virt. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fiskurinn tekur sífelldum breyt- ingum í augum annarra. Reyndu að fara eitthvert upp í fjöll ef þú mögulega get- ur. Stjörnuspá 4. júní 1944 Hornsteinn var lagður að Sjó- mannaskólanum í Reykjavík, á sjómannadaginn. Húsið var tekið í notkun í október 1945. 4. júní 1957 Hulda Jakobsdóttir var kjörin bæjarstjóri í Kópavogi og tók við af eiginmanni sínum, Finn- boga Rúti Valdimarssyni. Í viðtali við Þjóðviljann sagði hún: „Ég hefði helst viljað vera laus við þetta.“ Hulda var fyrsta konan sem gegndi bæj- arstjórastarfi hér á landi. 4. júní 1959 Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, var stofnuð til að hafa forystu í baráttu fatlaðs fólks fyrir auknum réttindum og bættri aðstöðu í þjóðfélag- inu. 4. júní 1998 Jarðskjálfti, sem mældist 5,3 stig, varð í nágrenni Hvera- gerðis og þar „lék allt á reiði- skjálfi,“ að sögn Morgunblaðs- ins. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir Urban verður sjötug í dag, 4. júní. Maki henn- ar er Agnar Ur- ban. Þau hjónin verða að heiman á afmælisdaginn en eru með opið hús í sumarbústað sínum í Gríms- nesi laugardaginn 6. júní kl. 14-17. Allir velkomnir, kaffi og kökur. 70 ára „ÞETTA er enginn aldur,“ segir Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor í eðlisfræði við HÍ og for- stjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, um 55. af- mælisdag sinn. Hann er staddur í St. Pétursborg í Rússlandi þar sem Alheimsorkuverðlaunin verða veitt í dag við hátíðlega athöfn. Þorsteinn situr í alþjóðlegri 28 manna dómnefnd sem tilnefnir þá sem skarað hafa fram úr til verðlaunanna. Sjálfur hlaut Þorsteinn verðlaunin árið 2007 fyrir rannsóknir og þróun á endurnýjanlegri orku og tengslum hennar og vetnis. Tók hann við þeim á svipuðum tíma það ár en honum þykir sérlega ánægjulegt að afhendinguna sjálfa skuli bera upp á afmæli sitt í ár. „Við förum svo á georgískt veitingahús sem þykir alveg rosalega skemmtilegt,“ segir Þorsteinn, en veitingastaðurinn heitir Cat og ku vera með þekktari veitingastöðum í borginni. Rúsínan í pysluend- anum á þessum góða afmælisdegi er að afmælisbarnið mun hitta Dmítrí Medvedev Rússlandsforseta í tengslum við hátíðahöldin. Auk þess er sá kvittur á kreiki að sjálfur Vladímír Pútín, forsætisráðherra landsins, láti sjá sig. Því kemur ekki á óvart að Þorsteinn muni ekki eftir afmælisdegi sem kemst í hálfkvisti við þennan. skulias@mbl.is Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor 55 ára Með Medvedev á afmælinu Nýirborgarar Reykjavík Telma Lindberg fæddist 5. janúar kl. 13.59. Hún vó 3.490 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Helga Lindberg Jóns- dóttir og Sumarliði Dag- bjartur Gústafsson. Reykjavík Anna Lára fæddist 16. febrúar kl. 0.12. Hún vó 18 merkur og var 54 cm löng. Foreldrar hennar eru Magni Rík- arðsson Owen og Petrea Ómarsdóttir. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.