Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.06.2009, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2009 HEIMILDARMYND UM HANDBOLTALANDSLIÐ ÍSLANDS Á ÓLYMPÍULEIKUNUM Í PEKING 2008 SÝND Í KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI Versta starf í heimi færði honum besta tíma ævi sinnar Frábær tónlist og hinir frábæru leikarar Ryan Reynolds og Kirsten Stewart (Twilight) tryggja góða skemmtun HHHH CHICAGO TRIPUNE HHHH THE WASHINGTON POST HHH½ T.V. KVIKMYNDIR.IS HHH½ PREMIERE SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND M EÐ ÍSLENS KU OG ENSKU TALI Frá leikstjóraTHE NIGHTMARE BEFORE CHRISTMAS og metsöluhöfundinum Neil Gaiman kemur ein frumlegasta mynd ársins. SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI HÚN ELSKAÐI ALLT SEM MIAMI HAFÐI UPPÁ AÐ BJÓÐA EN NÚ VERÐUR HÚN AÐ FLYTJA Í MESTA KRUMMASKUÐ ÍHEIMI! MAÐURINN SEM BAUÐ RISUNUM BYRGINN OG SIGRAÐI SÝNINGUM FER FÆKKANDI SÝND Í KRINGLUNNI M I L E Y C Y R U S SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA SÝND ME Ð ÍSLENSK U TALI FRÁBÆR FJÖLSKYLDUSKEMMTUN Sýnd á fös tuda g SÝND Í ÁLFABAKKA / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI GOTT SILFUR GULLI BETRA Frumsýning kl. 8 L LET THE RIGHT ONE IN kl. 10 16 THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10 16 TERMINATOR SALVATION kl. 8 - 10:20 12 GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 8 L THE BOAT THAT ROCKED kl. 10 12 THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10:20 16 GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 8 L CRANK 2 kl. 10:20 16 Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is MEÐ Skjaldborg hafa íslenskir heimild- armyndagerðarmenn öðlast vettvang til þess að fá viðbrögð við myndum sínum á meðal kollega og áhugamanna um kvikmyndagerð. Sem fyrr fór hátíðin fram um hvítasunnuhelgina á Pat- reksfirði þar sem sýndar voru um 30 myndir. Mynd Höllu Kristínar Einarsdóttur um Rauðsokkurnar, kvenréttindahreyfingu sem var stofnuð fyrir þrjátíu árum og kom sínum sjónarmiðum oft á framfæri á litríkan hátt, fékk hin eftirsóttu áhorfendaverðlaun í ár. „Það eru rauðsokkurnar sjálfar sem rekja þráðinn í myndinni en þetta er mjög áhugaverð saga,“ segir Halla um myndina sem ber heitið Konur í rauðum sokkum. „Það var til rosalega lítið af myndefni frá þessu. Ég fann eitthvert brot hjá Ríkissjónvarpinu en svo hafði ein þeirra haft aðgang að 8mm tökuvél og átti upp- tökur af fundum og 1. maí-göngu og svoleiðis. Svo hafði ég samband við Unu Lorenzen sem býr í Kaliforníu. Hún gerði teiknimyndir sem ég gat notað. Þetta er samkrull af aðferðum. Mikið tínt til og eitthvað notað úr blaði sem þær gáfu sjálfar út. Þær voru alltaf mjög myndrænar og litríkar þannig að það var ýmislegt sem hægt var að tína til.“ Belja á fegurðarsamkeppni Uppátæki rauðsokkanna eru mörg fræg. Eins og þegar þær mættu með belju fyrir utan fegurðarsamkeppni á Akranesi. Halla segist ekki hafa vitað mikið um rauðsokkurnar áður en hún gerði myndina en viðurkennir að hafa orðið fyrir töluverðum hughrifum við vinnslu hennar. Hún segir að þrátt fyrir að almenningur hafi upplifað rauðsokkurnar sem stífar og alvarlegar þá hafi það ekkert endilega verið stemningin innan hópsins. „Þær eru mjög misjafnar en voru allar sammála um að þetta hafi verið af- skaplega skemmtilegur tími.“ Halla segist hafa spurt þær hvað þeim fyndist um þróun jafnréttismála hér landi síðustu þrjá- tíu ár og margar hafi viðurkennt að ástandið væri vissulega skárra þó það væri fjarri því að vera fullkomið. „Myndin fjallar samt ekkert sérstaklega um það heldur bara hvað þær voru að gera á þessum tíma. Fólk upplifir það kannski sjálft hvernig hlutirnir hafa breyst síð- an þá og hvernig ekki.“ Myndin er rúmur klukkutími á lengd en ekk- ert hefur verið ákveðið með frekari sýningar á myndinni. Myndrænar og litríkar rauðsokkur Heimildarmynd um hinar íslensku Rauðsokkur hlaut verðlaun áhorfenda á Skjaldborgarhátíðinni Rauðsokkur Hér má t.d. sjá Ingibjörgu Sólrúnu, en hún er sú þriðja frá vinstri. Hreyfingin hófst í kjallara Norræna hússins í apríl ár- ið 1970 eftir að hópur ungra kvenna hittist þar til að ræða stöðu kvenna á Ís- landi og aðgerðir til að vekja almenning til umhugsunar. Fyrr á árinu hafði danskur kvennahópur er kallaði sig Rødstrømperne valdið usla í Kaupmannahöfn með göngu þar sem konurnar ýktu brjóstastærðir sín- ar, höfuðföt og gerviaugnahár til að vekja athygli fjölmiðla á þrýsting samfélagsins á því hvað væri kvenlegt. Íslenska kvenhreyfingin fór í 1. maí- gönguna 1970 þar sem þær báru styttu af konu með áletruðum borða er stóð á; manneskja – ekki markaðsvara. Þær voru allar klæddar rauðum sokkum. Rauðsokkahreyfingin var svo formlega stofnuð á fjölsóttum kynningarfundi 19. október sama ár í Norræna húsinu. Rauðsokkur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.