Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 14
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-8
-h
ar
pa
- C
M
Y
K
Það getur verið ansi mikið fjör á
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði en þar
eru 580 kindur sem bera.
Heppnir gestir geta því séð
lömb fæðast en Arnheiður Hjör-
leifsdóttir landfræðingur segir
það vera mikla upplifun. „Upplif-
unin felst líka í því að það er
ekki annar bær með svona stórt
sauðfjárbú sem opnar starf-
semi sína með þessum hætti.
Þetta er allt önnur upplifun en
að fara í húsdýragarð því hér
kemur fólk í alvöru fjárhús á
mesta annatíma þegar sauð-
burður er. Þá er svo mikið líf hér
og mikið um að vera. Svo eru
sumir sem hafa aldrei komið í
fjárhús og það á við um bæði
börn og fullorðna. Stundum er-
um við í vandræðum með að
halda fullorðna fólkinu frá svo börnin sjái eitthvað,“ segir Arn-
heiður og hlær.
Arnheiður talar um að gestir
megi klappa lömbunum, halda á
þeim og svo eru sumir svo
heppnir að fylgjast með þeim
fæðast. „Í fjárhúsunum eru líka
kanínur og hestar sem krakk-
arnir hafa gaman af að heim-
sækja. Síðan förum við oft í fjör-
una sem er hér fyrir neðan
bæinn og þar erum við með nátt-
úru- og umhverfisfræðslu. Við er-
um til dæmis með furðufiskaker
sem við höfum dælt sjó í og þar
söfnum við krossfiskum og öðr-
um sjávar- og fjörulífverum.
Krakkarnir geta þá vaðið ofan í
þau, skoðað og jafnvel tekið upp
dýr til að virða fyrir sér.“
Vinsælar gönguferðir
Það er mikið um skólahópa og
aðra hópa á Bjarteyjarsandi en
Arnheiður segir að það sé alltaf
að aukast að fólk komi á eigin
vegum. „Umferðin í Hvalfirðin-
um hefur breyst svo mikið og
núna er miklu meira um að fólk
sé þar í sunnudagsbíltúrum og
það eru því bæði Íslendingar og
erlendir ferðamenn sem koma.
Það er mikið um að ferðamenn
komi og skoði fossinn Glym í
Hvalfjarðarbotni og komi við hjá
okkur í leiðinni,“ segir Arnheiður
og bætir við að það sé líka al-
gengt að fara í styttri og lengri
gönguferðir í Hvalfirðinum. „Við
erum líka með gamla uppgerða
hlöðu þar sem eru borð, stólar,
eldhúskrókur og grill og það er
mjög vinsælt hjá gönguhóp-
unum að grilla eftir göngu-
túrinn.“
Upplifun á
Bjarteyjarsandi
Börn og dýr Það er mikið um að vera á Bjarteyjarsandi.
www.bjartey.is
14| ferðasumar 2009 Morgunblaðið
Náttúrufegurðin á Snæfellsnesi er mikil og
hennar má meðal annars njóta með frískleg-
um göngutúrum um svæðið. Að sögn Gunn-
ars Njálssonar ferðamálafræðings er til
dæmis mjög vinsælt að ganga frá Stapafelli
og upp jökulinn. „Það er svo fallegt hérna og
á sumrin er þetta sérstaklega dásamlegt.
Það er hægt að keyra að Arnarstapa eða
Hellnum. Svo er vegaslóði yfir jökulhálsinn
og þá kemurðu niður í Ólafsvík að norðan-
verðu sem er ekki svo löng leið. Það eru
margar gönguleiðir á þessu svæði og fólk
hefur líka farið upp á jökul á þessu svæði,
bæði gangandi og á vélsleðum.“
Frábært útsýni
Sjálfur hefur Gunnar oft gengið upp á jökul-
inn. „Það tekur svona 2-3 tíma að ganga á
topp jökulsins en best er að fara snemma
dags þegar snjórinn er harður eftir nóttina.
Þetta er alveg frábært og útsýnið er mjög
gott. Í góðu veðri sé ég alveg yfir á Reykja-
nes og alveg inn Breiðafjörðinn.“
Um þessar mundir er Gunnar að hanna
gönguleið sem nær alveg frá Ljósafjöllum,
rétt austan við Stykkishólm og vestur á
Snæfellsjökul. „Þetta er um 80 kílómetra
löng leið og það ætti því að taka um viku að
ganga þetta. Það sem er sniðugt við þessa
leið er að hægt er að byrja hvar sem viðkom-
andi vill og í raun líka hægt að koma niður
hvar sem maður vill. En þetta er margra ára
verkefni og verður því ekki tilbúið í sumar.“
Náttúrufegurð Útsýnið frá Snæfellsjökli er mikið og fagurt en vinsælt er fyrir göngugarpa að ganga upp jökulinn.
Gengið upp jökulinn
Göngum í sumar
Skráning í sumarferðirnar
á skrifstofu Útivistar