Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 47
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-3
3-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 47
Það er ekki amalegt að vera
með sinn eigin leiðsögumann
þegar gengið er um íslensku
þjóðskógana en nýtt verkefni
Skógræktar ríkisins, Hringdu í
skóginn, miðar einmitt að því.
„Þegar gengið er um íslensku
þjóðskógana má finna stöpla á
víð og dreif sem eru merktir
með símanúmeri. Þegar hringt
er í númer næst samband við
sjálfvirkt talhólf sem gefur alls
kyns upplýsingar,“ segir Esther
Ösp Gunnarsdóttir, kynningar-
stjóri Skógræktar ríkisins.
„Annars vegar eru þetta upp-
lýsingar um skóginn, sögu
hans eða þann reit sem við-
komandi stendur í eða ein-
hverjar þjóðsögur, hjátrú eða
eitthvað sem tengist staðnum.
Þetta er í raun bara eins og að
hafa sinn eigin leiðsögumann
með sér í símanum.“
Þrír stöplar í
landsfjórðungi
Verkefnið verður formlega opn-
að 1. júní en Esther talar um að
stöplarnir séu þegar komnir á
sinn stað. „Verkefnið er að
danskri fyrirmynd en þetta er
alveg nýtt á Íslandi. Við förum
rólega af stað í sumar og erum
með þrjá stöpla í hverjum
landsfjórðungi. Svo kemur
þessum stöplum til með að
fjölga jafnt og þétt næstu sum-
ur. Við reiknum með því að
fjöldinn að minnsta kosti þre-
faldist eða fjórfaldist og helst
ætlum við að dreifa þeim í alla
skógana.“
Stutt skilaboð
Kostnaður við símtalið er sá
sami og kostnaður við hefð-
bundið símtal, að sögn Est-
herar. „Það var reynt að hafa
skilaboðin frekar stutt en yf-
irleitt eru þau innan við tvær
mínútur. Við höfum prufukeyrt
þetta í vetur með alls kyns text-
um og það var svo margt sem
hægt var að segja en það yrði
þá of langt,“ segir Esther sem
vill hvetja alla til að prófa að
hringja í skóginn sinn.
Hringdu í skóginn
Íslenskir þjóðskógar Ef hringt er í númer sem finnst á svona stöpli
má fá alls kyns fróðlegar upplýsingar um skóginn.
Farfuglar Sundlaugavegur 34 105 Reykjavík Sími 553 8110 info@hostel.is www.hostel.is
33
farfuglaheimili
bjóða ykkur
velkomin
Ferðastu um Ísland á þægilegan og hagkvæman hátt í
sumar. Þú getur bókað gistinguna fyrirfram og skipulagt
ferðalagið. Boðið er upp á einstaklings- og fjölskylduher-
bergi, eldunaraðstöðu og fjölbreytta afþreyingu á hverjum
stað. Nánari upplýsingar eru á vef okkar www.hostel.is
Við bjóðum ykkur velkomin.
Bókaðu núna!