Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 60
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-4
4-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
Í lok maí verður eitt glæsileg-
asta tjaldsvæði landsins opnað
í Grindavík en Grindavíkurbær
hefur kostað miklu til að gera
tjaldsvæðið sem glæsilegast,
að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, upplýsinga- og þróun-
arfulltrúa Grindavíkurbæjar.
„Tjaldsvæðið er alls 13.500 fer-
metra og svæðið er sérhannað
fyrir húsbíla, fellihýsi, tjaldvagna
og tjöld. Á tjaldsvæðinu eru 42
stæði fyrir húsbíla, fellihýsi og
tjaldvagna og að minnsta kosti
30 stæði fyrir tjöld. Tjaldsvæðið
er fjögurra stjörnu en það eina
sem vantar upp á fimmtu stjörn-
una er að þar verði sólarhrings-
vakt.“
Leiktæki fyrir börn
Öll aðstaða á tjaldstæðinu er
sömuleiðis til fyrirmyndar að
sögn Þorsteins. „Þar er mjög
fullkomin aðstaða til losunar af-
falsvatns og seyru af húsbílum.
Á svæðinu er aðgangur að
þvottavél og þurrkaðstöðu og
nettenging auk þess sem þar
eru tvö leiksvæði með rólum og
köstulum fyrir börn. Nú þegar er
komið lítið þjónustuhús með
salerni og annarri nauðsynlegri
þjónustu en síðar verður reist
150 fermetra þjónustuhús með
stórum sal, eldhúsi og öðru,“
segir Þorsteinn og bætir við að
tjaldsvæðið sé vel staðsett.
„Það er skammt frá gamla tjald-
svæðinu, í hjarta bæjarins og
skammt frá sundlauginni.“
Breytt ferðaþjónusta
Tjaldsvæðið verður opnað
seinnipartinn í maí en Þorsteinn
talar um að þegar sé mikill
áhugi á tjaldsvæðinu. „Um
helgina voru til dæmis nokkrir
bílar á tjaldsvæðinu þótt ekki
væri búið að opna það form-
lega. Það er ljóst að Íslendingar
munu ferðast meira innanlands
í sumar en oft áður og Grindavík
er að stimpla sig á kortið með
þessu tjaldsvæði. Svo má líka
horfa til þess að Suðurstrand-
arvegur er langt á undan áætlun
og verður tilbúinn á næsta ári
en þá er malbikað alla leið frá
Grindavík til Ölfuss. Þetta gjör-
breytir landslaginu í ferðaþjón-
ustu, atvinnulífi og öðru. Grind-
víkingar horfa því mjög björtum
augum fram á veginn.“
Grindavík Í maí verður fjögurra stjörnu tjaldsvæði opnað í Grindavík en Grindavíkurbær hefur kostað miklu til að gera tjaldsvæðið glæsilegt.
Fjögurra stjörnu tjaldsvæði
www.grindavik.is
60| ferðasumar 2009 Morgunblaðið
Það er alltaf stemning að fara í
tjaldútilegu að sumri til en það
er ansi margt sem getur eyði-
lagt annars góða skemmtun.
Það er því mikilvægt að skipu-
leggja sig vel og vera viss um
að ekkert vanti áður en lagt er í
hann. Það er alltaf gott að taka
með sér aukasett af tjaldhæl-
um því þeir eiga það til að
beyglast og bogna auk þess
sem þeir týnast auðveldlega.
Oft er kaldara í útilegum en bú-
ist er við og því er nauðsynlegt
að vera með teppi í bílnum. Ef
undirlagið í tjaldinu er gott, til
dæmis eitt til tvö lag af teppum
og góðar dýnur, þá eru minni lík-
ur á að þeim sem gista í tjald-
inu verði kalt. Það sem er einna
mikilvægast að taka með að
heiman er góða skapið því ým-
islegt getur komið upp á í úti-
legum en með góða skapið að
vopni er fátt sem eyðileggur
góða helgi.
Góða skapið er tekið með
Tjaldútilega Það er nær alltaf
gaman í útilegu í góðra vina hóp.