Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 63
B
A
-1
5-
05
-2
00
9-
1-
1-
F
E
R
D
-4
6-
ha
rp
a-
C
M
Y
K
Það eru 33 farfuglaheimili um
allt land og því auðveldlega
hægt að fara hringinn í kringum
landið og gista einungis á far-
fuglaheimilum. Þó hefur vantað
farfuglaheimili í miðbænum en
úr því hefur verið bætt því Hos-
telling International hefur opn-
að farfuglaheimili á Vesturgötu
17. „Við erum með farfugla-
heimili í Laugardal og við höf-
um fundið fyrir því að það hefur
verið mikil eftirspurn eftir því
að gista í miðbænum,“ segir
Markús Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hostelling Int-
ernational á Íslandi. „Þetta
verður því mikil búbót fyrir okk-
ur.“
Snyrting og
eldunaraðstaða
Farfuglaheimilið tekur um 70
manns og Markús segir að
staðsetningin sé frábær enda
sé heimilið alveg í hjarta borg-
arinnar. „Á heimilinu eru 18
herbergi þar sem 2-8 manns
geta gist í einu. Það er snyrting
inni á öllum herbergjum og
sömuleiðis er eldunaraðstaða
á heimilinu þar sem fólk getur
eldað sér eigin mat. Eins er
hægt að komast í nettengda
tölvu og annað slíkt á heim-
ilinu. Á heimilinu er bæði hægt
að panta eitt og eitt rúm sem
og eitt herbergi. Í flestum til-
vikum eru pöntuð stök rúm í
stærri herbergjunum en svo er-
um við líka með 2-5 manna fjöl-
skylduherbergi sem fjölskyldur
geta pantað.“
Meira um erlenda
ferðamenn
Markús segist búast við að að-
sóknin að farfuglaheimilum
verði meiri í ár en oft áður og
þegar er búið að bóka töluvert.
„Við erum að opna heimilið
þessa dagana en við höfum
farið rólega af stað með kynn-
ingarmálin.
Það eru helst erlendir ferða-
menn sem hafa bókað hjá okk-
ur en það á svo sem eftir að
reyna á það hvort þeir verða
fjölmennari. Við bindum hins
vegar vonir við að geta fengið
Íslendinga til okkar í Húsadal
þar sem við vorum að yfirtaka
allan rekstur.“
Farfuglar um allt land
Farfuglar Nýtt farfuglaheimili hefur verið opnað að Vesturgötu 17 en
mikil eftirspurn hefur verið eftir farfuglaheimili í miðbænum.
Farfuglar
www.hostel.is
ferðasumar 2009 Morgunblaðið | 63
Trex - Hópferðamiðstöðin • Hesthálsi 10 • 110 Reykjavík • sími 587 6000 • www.trex.is • info@trex.is
Veljið Ísland og rútu frá TREX
fyrir hópferðina!
Beint flug, vikulega til Genfar
og Zürich í Sviss yfir sumarið
Seljum rútupassa með áætlunarbílum um landið.
Tilvaldir í sumarferðalagið. Sjá nánar á www.trex.is
Emstrur - Þórsmörk 19.-20. sept.
Gönguferð, haustlitir og grillveisla í samvinnu við Ferðafélagið.
Verð 16.000 kr. og 14.000 kr. f. félaga í F.Í.
Sumarsólstöðuferð
Strandir - Djúp
17.-21. júní.
5 dagar rútu- og skoðunarferð
um heillandi vestfirska náttúru-
og söguslóðir.
Verð. 70.000 kr og mikið innifalið.
Fararstjóri: Kristján M. Baldursson.
Það er hagkvæmt og eflir félagsandann að fara saman
í hópferðabíl frá TREX.
Við höfum eitt mesta úrval landsins af
hópferðabílum, af öllum stærðum og gerðum.
Við þjónum allt frá innanbæjarskutli upp í
krefjandi hálendisferðir á fjallatrukkum.