Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 16
B A -1 5- 05 -2 00 9- 1- 1- F E R D -9 -h ar pa - C M Y K „Þetta er algjört ævintýri,“ segir Sverrir Hermannsson hjá fyrir- tækinu Snjófelli sem leigir út vélsleða til að fara upp á Snæ- fellsjökul. „Vélsleðaferðir upp á jökul eru mjög vinsælar. Það er ótrúlega gaman að keyra alla leið upp á topp. Svo er líka frá- bært útsýni þar ef veðrið er gott og þetta er því mikið fjör.“ Keyrt upp í troðara Það fer eftir veðri hve lengi er hægt að fara á vélsleða upp jök- ulinn en Sverrir talar um að reynt verði að fara í ferðir fram í ágúst. „Við erum líka með troð- araferðir þar sem 20 manns fara upp á einum troðara. Það er misjafnt eftir árstíðum hve lengi er verið að keyra upp jökul- inn en núna tekur það svona þrjú korter.“ Veðrið hefur mikið að segja Lagt er af stað frá Arnarstapa en Sverrir segir að bæði Íslend- ingar og útlendingar hafi mjög gaman af ferðunum. „Oft borða hóparnir fyrst á Arnarstapa og fara svo upp á jökul. Veðrið hef- ur náttúrlega mjög mikið að segja því útsýnið er svo æð- islegt ef veðrið er gott. Stundum keyrum við upp úr þokunni og það er alveg heiðbjart á toppn- um en það finnst fólki gaman að sjá. Útlendingar hafa sér- staklega gaman af því að fara upp á jökul í þoku enda hafa þeir aldrei upplifað svona. Það má því segja að útlendingar kunni mun betur að meta slæma veðrið en Íslendingarnir. Kunna að meta slæmt veður Ævintýri Útsýnið frá Snæfells- jökli er fallegt og snjósleðaferðir upp á jökulinn eru vinsælar. Snjófell www.snjofell.is 16| ferðasumar 2009 Morgunblaðið Það er ekki bara Snæfellsjökull sem er einkenni fyrir Snæfells- nes heldur er það líka sjórinn sem íbúarnir eru umluktir. Á Snæfellsnesi eru til minjar og menning sem tengjast sjósókn og lífinu í sjónum, að sögn Mar- grétar Bjarkar Björnsdóttur, at- vinnuráðgjafa Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi. „Allt líf heimamanna á Snæ- fellsnesi snýst meira og minna um sjóinn og sjósókn. Við erum sjávarbyggð og við ætlum að draga það fram til að gera gest- um okkar kleift að geta rakið sig eftir línu sem við leggjum umhverfis nesið okkar þar sem fólki verður boðið upp á að skoða gamlar minjar, heyra sögu okkar, finna lyktina og smakka á sjávarfangi.“ Kraftar náttúrunnar Margrét talar um að þetta sé í raun nokkurs konar klasaverk- efni sem er tengt saman á einni línu umhverfis Snæfellsnes. „Á þeirri línu eru undirkrókar þar sem eitthvað er að sjá eða smakka fyrir gesti og í raun er það þjónustuaðilanna að útbúa neytendapakkann fyrir fólk. Þemað er lífið við sjávarsíðuna, hvernig við höfum mann fram af manni lifað við það að búa með sjónum og lifa af honum. Hér eru mjög margar fjörur og strendur og hver og ein er ólík þeirri næstu. Þessi aðgangur, að komast alls staðar niður í fjöru og upplifa krafta og öfl náttúrunnar, er mjög merki- legur.“ Andleg eða líkamleg næring Átthagastofan í Snæfellsbæ heldur utan um verkefnið en þetta er verkefni til tveggja ára. Alls eru um 13 þjónustuaðilar sem taka þátt í verkefninu í sumar. „Þessir aðilar munu þá veita gestum eitthvað sem við- kemur hafinu, andlega eða lík- amlega næring. Þetta gæti því verið góð fiskisúpa, saga út- gerðar eða allt þar á milli.“ Gefinn verður út passi þar sem sjá má hvaða þjónustuað- ilar á Snæfellsnesi taka þátt í þessu verkefni en hægt verður að nálgast passann á upplýs- ingamiðstöðvum á Snæfells- nesi frá 1. júní. Sjórinn og lífið Íbúar á Snæfellsnesi hafa lengi lifað af sjónum. Lífið við sjávarsíðuna Fok- og þjófavarnafestingar fyrir allar tegundir af kerrum, tjaldvögnum, felli- og hjólhýsum. Gaurarnir eru á kynningarverði út júní - 11.689 kr. Pantaðu núna í síma 861 0384 eða á suda@suda.is. Frekari upplýsingar á www.suda.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.